Frjáls verslun - 01.08.1991, Page 9
FRETTIR
geta að sá kostnaður er
ekki inni í verðinu sem
við greiðum fyrir aðföng
frá verksmiðjunum.
Þetta kann að vera mis-
munandi hjá fyrirtækjum
en sá háttur sein IBM hef-
ur er óneitanlega afar
hagstæður Ríkissjóði Is-
lands um þessar mundir.“
Verðið þið varir við að
opinberir aðilar láti ykk-
ur njóta viðskipta sér-
staklega vegna þess hve
mikla skatta IBM á ís-
landi greiðir?
„Nei, síður en svo. Við
eigum í stöðugri sam-
keppni, sem er aðeins af
hinu góða, og við seljum
framleiðsluvörur okkar
fyrst og frernst í krafti
gæða þeirra. Verð á sölu-
vörum okkar og þjónustu
stenst almennt fyllilega
samanburð við markað-
inn, enda er það forsenda
fyrir árangri í sölu. Við
leggjum áherslu á traust-
ar heildarlausnir í sam-
vinnu við samstarfsfyrir-
tæki okkar hérlendis en
höfuðáhersluna leggjum
við, nú sem fyrr, á að
þjóna kaupandanum. Það
er síðan hans að meta
hvort hann telur hag-
kvæmt að skipta við okk-
ur eða ekki.“
Má búast við að IBM á
Islandi greiði eins mikla
skatta á næsta ári og í ár?
„Við vildum gjarnan að
svo mætti verða. For-
senda þess er að sjálf-
sögðu sú að við njótum
áfram þess trausts við-
skiptavina okkar sem við
höfum notið til þessa.
Þær nýjungar sem sí-
fellt sjá dagsins ljós hjá
okkur gefa ekki tilefni til
að ætla að markaðurinn
sé mettaður eða að ein-
hver stöðnun sé í grein-
inni. Eg vil því leyfa mér
að vera bjartsýnn á fram-
tíðina og vona að við meg-
um áfram skipa okkur
meðal hæstu skattgreið-
enda.“
Frá opnun nýju verslunarinnar. Víðir Finnbogason stjórnarformaður Teppalands, Stella Víðis-
dóttir fjármálastjóri og Skafti Harðarson framkvæmdastjóri.
TEPPALAND ENDURNÝJAR VERSLUNINA
Teppaland við Grens-
ásveg hefur endurskipu-
lagt og endurnýjað versl-
un sína og fært starfsem-
ina alla á eina hæð til
hagræðis og þæginda
fyrir viðskiptavini.
Skafti Harðarson,
framkvæmdastjóri
Teppalands, segir að þeir
hafi fengið Ómar Sigur-
bergsson innanhússarki-
tekt til að endurskipu-
leggja verslunina að
Grensásvegi 13 með þeim
árangri að nú sé allt vör-
uframboðið á einni hæð,
þ.e. teppi, flísar, parket
og dúkar.
Teppaland verður senn
25 ára og hefur alla tíð
starfað við Grensásveg-
inn í Reykjavík.
UNGIR SJÁLFSTÆÐISMENN:
HVETJA TIL EINKAVÆÐINGAR
Á nýafstöðnu þingi
Sambands ungra sjálf-
stæðismanna var gerð
skorinorð ályktun um
einkavæðingu.
Tekið er undir áform
um að breyta ríkisbönk-
um og fjárfestingarsjóð-
um hið fyrsta í hlutafélög
og hefja sölu þeirra. I
ályktun þeirra segir að
einkavæðing í peninga-
kerfinu eigi að hafa for-
gang, en eftirfarandi
fyrirtækjum þurfi einnig
að breyta í hlutafélög á
komandi þingi: Sements-
verksmiðju ríkisins,
Áburðarverksmiðju rík-
isins, Lyfjaverslun ríkis-
ins, SKÝRR og Pósti &
síma, sem skipta eigi upp
í tvö fyrirtæki.
Þá segir að SUS fagni
þeim ásetningi sjávarút-
Sementsverksmiðja ríkisins
er eitt þeirra fyrirtækja sem
ungir sjálfstæðismenn vilja
að breytt verði í hlutafélag á
næsta þingi og selt síðan.
vegsráðherra að selja
Síldarverksmiðjur ríkis-
ins í haust. Einnig segir
að ríkið eigi að draga sig
út úr Islenskum aðal-
verktökum, eftir atvik-
um, með því að taka út
eignir.
I ályktun þingsins
kemur einnig fram að
miklir möguleikar séu í
rekstrarútboðum á veg-
um ríkisins því bjóða
megi út rekstur flugvalla,
hafna og fríhafnar svo
eitthvað sé nefnt.
Loks er vikið að því að
hjá Reykjavíkurborg bíði
mörg brýn einkavæðing-
arverkefni. Þar eru nefnd
til sögunnar eftirtalin
fyrirtæki sem ætti að
breyta í hlutafélög og
selja eða leggja niður og
bjóða reksturinn út:
Vélamiðstöð, Malbikun-
arstöð, Pípugerð, Tré-
smíðaverkstæði, Sorp-
hirða, Mötuneyti, Stræt-
isvagnar Reykjavíkur,
Þjónusta við aldraða og
dagvistun.