Frjáls verslun - 01.08.1991, Page 11
FRETTIR
HVÍTA HÚSIÐ í SPENNANDIVERKEFNUM
Stjórnendur HVÍTA HÚSSINS. Talið frá vinstri: Gunnar Steinn Pálsson, Páll Bragi
Kristjónsson og Halldór Guðmundsson.
- segir Páll Bragi
Kristjónsson sem
tekið hefur við
stjórnarformennsku
fyrirtækisins
„Ég er bjartsýnn á
framtíðina fyrir hönd
HVÍTA HÚSSINS. Við er-
um með spennandi verk-
efni bæði hér á landi og
erlendis, starfsmanna-
hópurinn er einstök
blanda af ungum hæfi-
leikamönnum og göml-
um, reyndum refum og
viðskiptavinirnir eru
bæði traustir og stór-
huga. HVÍTA HÚSIÐ
byggir daglegt starf sitt á
skýrt markaðri stefnu um
þróun í rekstri og þjón-
ustu á komandi árum. Á
því sviði eru ekki síður
forvitnileg og heillandi
verkefni sem gaman
verður að takast á við
með þessum hugmynda-
ríka hópi.“
Þetta sagði Páll Bragi
Kristjónsson viðskipta-
fræðingur, sem nýlega
gerðist einn af hluthöfum
stærstu auglýsingastofu
landsins, HVÍTA HÚSS-
INS, og um leið stjórnar-
formaður þess. Sem slík-
ur mun hann sinna ýms-
um stjórnunarstörfum í
HVÍTA HÚSINU auk dag-
legra starfa sem fjár-
málastjóri fyrirtækisins.
Með honum við stjórnvöl-
inn eru þeir Halldór
Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri rekstrar-
sviðs og Gunnar Steinn
Pálsson, framkvæmda-
stjóri þjónustusviðs.
Páll Bragi hóf fyrst
störf í HVÍTA HÚSINU í
byrjun árs 1989 en síðast-
liðið ár stundaði hann
framhaldsnám við Við-
skiptaháskólann í Árós-
um.
Supercal 5 • Super DB
BISON
TÖLVUR Á ÍSLANDI ► ► ► Nýttá íslandi
SUN —Disklingar
— Tölvuborð
— Prentarar
— Tölvupappír
— Minnsstækki
K.NIELSEN í Mjódd
Álfabakka 12 Sími 91-75200
11