Frjáls verslun - 01.08.1991, Page 16
FORSIÐUGREIN
Bifreiðaskoðun íslands hf. er afar vel tæknivætt og gífurlegur munur á allri aðstöðu og eftirliti miðað við það sem
áður var. Tilkoma fyrirtækisins stóreykur öryggi í umferðinni.
kerfi, en sú lagabreyting hafði aldrei
náð fram að ganga þrátt fyrir ítrekuð
frumvörp þess efnis á undangengnum
árum. Loksins tókst að knýja þá
breytingu í gegn og fyrst og fremst
fyrir þá sök að menn töldu að með því
mætti spara gífurlega fjármuni. Lítum
nánar á það síðar.
Ekki þarf að hafa um það mörg orð
að öll skoðun ökutækja tók stakka-
skiptum þegar hið nýja fyrirtæki
komst í fullkomna aðstöðu í nýjum
húsakynnum við Hestháls í Reykja-
vík, en flutt var í þau 1. janúar 1990.1
mars sl. voru teknar í notkun stöðvar
á Akureyri og Egilstöðum og nú er
verið að byggja stöðvar á ísafirði,
Borgarnesi, Húsavík og Selfossi. Þá
eru starfræktar stöðvar í leiguhús-
næði á Akranesi, í Keflavík, á Sauðár-
króki og Blönduósi auk þess sem fær-
anleg skoðunarstöð á hjólum þeysist
um landið til að þjónusta smærri
byggðirnar.
Allir sem Frjáls verslun ræddi við
voru sammála um að allt eftirlit væri
margfalt betra og öryggiskröfur mun
harðari en áður. Þá þarf ekki að fjöl-
yrða um stórbætta aðstöðu starfs-
manna og fullkominn vélakost til að
létta þeim eftirlitið með þarfasta þjón-
inum.
En gagnrýnisraddirnar hafa aldrei
þagnað. Sumir segja að það stafi ein-
faldlega af því að skammir um gamla
Bifreiðaeftirlitið hafi verið orðnar
samgrónar þjóðarvitundinni og ís-
lendingar kunni ekki annað en að agn-
úast út í allt sem lýtur að skoðun bif-
reiða! Blaðamaður komst þó að þeirri
niðurstöðu að sitthvað af gagnrýninni
ætti fullan rétt á sér — og við skulum
líta á nokkra þætti hennar.
RÍKISTRYGGÐ EINOKUN
Það sem einna helst sker í augu er
að Bifreiðaskoðun íslands hf. er fyrir-
tæki sem ríkissjóður á helming í og
starfar samkvæmt sérstökum samn-
ingi við aðaleiganda sinn, ríkið. Sá
HÆKKUN ÞJONUSTUGJALDA BIFREIÐASKOÐUNAR 1988-1991
í SAMANBURÐI VIÐ ÞRÓUN FRAMFÆRSLUVÍSITÖLU 0G LAUNA*
200
150
100
50
XI
z>
W_
:0
>
C
3
*o
o
jn
CÖ
o
<
LO
co
O)
3
o
Q-
OJ
CD
E
v3
rC
CD
O)
'c
'03
i—
cn
Lf)
LO
-Q
_L (fi
03 =*
xO 'O
<
oS §
co *o
4-!-
ifi
03
*o
c
Q
O)
65,1% Framfærsluvísitala
35,5% Meöalhækkun launa
* Virðisaukaskattur hefur verið dreginn frá.
* Utreikningar: Neytendasamtökin
16