Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1991, Qupperneq 17

Frjáls verslun - 01.08.1991, Qupperneq 17
samningur tryggir fyrirtækinu einok- un á skoðun bifreiða í landinu til ársins 2000 eða í 12 ár frá því hann var undir- ritaður, árið 1988. Þrátt fyrir áköf mótmæli ýmissa aðila gegn þessari ráðstöfun á sínum tíma, þótti meiri- hluta þingmanna eðlilegt að veita hinu nýstofnaða hlutafélagi einokunarað- stöðu og jafnan hefur verið blásið á rök þeirra sem benda á hættumar sem slíku ráðslagi eru samfara. Það er óneitanlega býsna furðulegt að á tímum umræðna um aukna einka- væðingu og minnkandi ríkisafskipti skulu menn grípa til þessa gamal- kunna ráðs í ætt við ríkisafskiptasemi kreppuáranna. Eða hvers vegna er ríkið eigandi helmings hlutafjár í fyrirtæki sem skoðar bíla? Hvers vegna máttu ekki best búnu verkstæðin í landinu annast þetta eftirlit? Hvers vegna má ekki stofna fleiri en eitt slíkt fyrirtæki og tryggja þar með heiðarlega og eðli- lega samkeppni um verð og gæði þjónustunnar? Hvaða hagsmuni er verið að verja? Græða bfleigendur á þessu fyrirkomulagi? Eða einungis eigendur Bifreiðaskoðunar íslands hf.? í samningi um skoðun og skráningu ökutækja sem ríkissjóður gerði við Bifreiðaskoðun íslands hf. árið 1988 segirm.a. íl. grein: „Bifreiðaskoðun Islands hf. tekur að sér skoðun öku- tækja sbr. 67. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Framkvæmir félagið skoðun ökutækja í skoðunarstöðvum sínum, en er jafnframt heimilt að veita viður- kenndum aðilum með skoðunarað- stöðu heimild til að annast almenna skoðun eða tiltekna þætti skoðunar skv. nánari ákvörðun stjómar félags- ins.“ Með þessu ákvæði er fyrirtækinu gefíð sjálfdæmi um það hvort og hvaða verkstæði í landinu megi starfa í samkeppni við það! Reyndin hefur verið sú að stjórn Bifreiðaskoðunar íslands hefur aldrei ljáð máls á því að verkstæðin fái heimild til aðalskoðun- ar en á hinn bóginn hafa þau fengið að endurskoða bifreiðar að viðgerð lok- inni. En hvers vegna þessi tregða á að heimila verkstæðunum að keppa við Bifreiðaskoðun íslands? Við spurðum Karl Ragnars framkvæmdastjóra út í þá sálma: Bifreiðaumboðin kvarta sáran undan dýrum skoðunargjöldum og einnig því að þau skuli ekki fá meiri þjónustu en þeir bíleigendur sem aðeins koma með einn bíl á ári til skoðunar. „Þessi mál voru mjög ítarlega rædd í stjórn fyrirtækisins og niðurstaðan var ávallt sú að það væru ólíðandi hagsmunaárekstrar að sami aðili ann- aðist skoðun bflsins og viðgerðir í samræmi við eigin athugasemdir. Er- lendis hafa menn einnig haft áhyggjur af þessu atriði og þar er kappkostað að aðgreina þessa tvo þætti algjör- lega, m.a. í nýjum reglum sem Evrópubandalagið hefur sett í sínum löndum. Þá má minna á þá staðreynd að yfirvöld í þessu landi hafa falið okk- ur að móta þessa starfsemi og setja skilyrði um hvað teljist löglegt ástand ökutækja og það væri fráleitt að við settum okkar samkeppnisaðilum slík skilyrði." Bflgreinasambandið, einn eigenda Bifreiðaskoðunar Islands, hefur ætíð verið ósátt við þá ákvörðun stjómar fyrirtækisins að nýta sér ekki heimild til að gefa verkstæðunum kost á að annast skoðanir. Á aðalfundi sam- bandsins í fyrra var samþykkt ályktun þar sem segir: „Aðalfundurinn hvetur til þess að viðurkennd verkstæði fái heimild til að taka að sér almenna skoðun og að bfleigendur geti valið á milli skoðunar hjá Bifreiðaskoðun ís- lands hf. og hjá viðurkenndum verk- stæðum. Fundurinn bendir á að með 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.