Frjáls verslun - 01.08.1991, Blaðsíða 35
TÆKNI
MENGUN VEGNA BÍLA:
HVAÐA VÖRN ER BEST?
Tíðari stillingar og betra viðhald gætu dregið verulega úr mengun frá bílum
auk þess að spara mikið eldsneyti.
Strangari reglur um leyfilega
mengun í útblæstri bíla eru nauðsyn-
legar hérlendis ef stemma á stigu við
vaxandi loftmengun, t.d. íReykjavík.
Spurningin er, hve strangar eiga
þessar reglur að vera og hvað mega
þær kosta þjóðarbúið? Ef settar
verða sams konar reglur hérlendis og
gilda í Bandaríkjunum og sumum
nágrannalöndum munu þær leiða til
þess að innfluttir bflar verða að vera
með hvarfakút („catalytic conver-
ter“) í afgaslögn. Rýmri reglur, sem
samt gætu dregið verulega úr meng-
un frá útblæstri bfla, gætu komið í veg
fyrir að hvarfakúturinn yrði nauðsyn-
legur og sá aukni kostnaður sem hon-
um fylgir.
Hvarfinn er stálkútur framarlega í
afgaslögn. I kútnum er eins konar
svampkaka úr keramiki sem blandað
er frumefnunum platínu og reníum í
ákveðnu hlutfalli. Þessi efni virka sem
efnahvatar með hitanum í afgasinu og
valda efnahvörfum sem breyta kol-
vetni og kolmónoxíði, sem er meng-
andi og eitrað efni í afgasinu, í skað-
lausan koltvísýring og vatn.
Bflaframleiðendur hafa, eftir um-
fangsmiklar rannsóknir, orðið sam-
mála um að hvarfmn sé ákjósanlegasti
búnaðurinn til þess að uppfylla sífellt
strangari kröfur um afgasmengun
sem gerðar eru í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum vegna loftmengunar.
Reynslan hefur sýnt að þær reglur
taka síðar mörg önnur ríki Bandaríkj-
anna og aðrar þjóðir upp.
Tæknimönnum er ljóst að hvarfinn
er bráðabirgðalausn og ekki gallalaus.
Hvarfi, sem mengunarvörn, dregur
úr afli bflavéla, er dýr og hækkar því
verð á nýjum bflum, endist takmark-
aðan tíma ásamt því að auka eldsneyt-
iseyðslu. Meira viðhald og aukin
eyðsla hækkar því kostnað bfleigenda
og þjóðarbúsins í heild. Það versta við
þetta dæmi er sennilega sú staðreynd
að þessi aukni kostnaður bíleigenda
veldur auknum hagvexti sem er of-
notað hugtak í pólitík.
Frá því að fyrstu hvarfarnir komu á
markaðinn hafa þó átt sér stað tals-
verðar endurbætur á tæknilegum
eiginleikum hvarfans sem dregur nú
minna úr afli véla en áður og hreinsar
afgasið betur. Engu að síður er stór
hluti þeirra endurbóta aukinni raf-
eindatækni í bflum að þakka og hefði
því náðst án þeirrar eyðsluaukningar
sem hvarfinn skapar.
Stærsti gallinn við hvarfann sem
mengunarbúnað er að hann veldur
aukinni eldsneytiseyðslu en eldsneyt-
issparnaður er, að flestra áliti, einn
TÆKNIÞÁTTUR
Leó M. Jónsson vél-
tæknifræðingur
skrifar að þessu
sinni um mengunar-
varnir vegna bif-
reiðaogminniráað
eitt besta ráðið er
að stilla vélar bif-
reiðanna reglulega.
þýðingarmesti þátturinn í því að draga
úr mengun andrúmsloftsins.
Astæðan fyrir því að hvarfinn eyk-
ur eldsneytiseyðslu er sú að hann
tekur við því eldsneyti sem ekki tekst
að brenna í vélinni og sá (eftir)bruni
nýtist ekki til að knýja bfl áfram. Sú
varmaorka sem unnin er úr eldsneyt-
inu í hvarfanum er því gagnslaus, þ.e.
orkutap.
„BIÝLAUST" BENSÍN ER BLEKKING
Svo virðist sem almenningi hafi
verið talin trú um að hvarfí sé m.a.
nauðsynlegur til þess að hægt sé að
nota „blýlaust" bensín í auknum
mæli. Svo er ekki. Það sem er ef til
vill alvarlegra er að það er ekkert
blýlaust bensín selt hérlendis eins og
flestir virðast trúa. Olíufélög hér og
erlendis hafa aðeins komið sér saman
um hæpið, ef ekki villandi, vöruheiti á
bensíni sem inniheldur talsvert minna
blý en áður tíðkaðist.
Af málflutning sumra „sérfræð-
inga“ mætti ætla að hvarfi eyði allri
mengun úr afgasi bfla. Svo er ekki og
35