Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1991, Síða 37

Frjáls verslun - 01.08.1991, Síða 37
Hvarfakútur. í keramí síunni eru efnahvatar sem draga úr mengun. hafa farið í Bretlandi hafa t.d. sýnt 5-10% minni eldsneytiseyðslu og allt að helmings minnkun á kolmónoxíði í afgasi bensínvéla. Þessi búnaður kostar peninga en hann endist 240 þúsund km. í 100 þúsund krn prófun bílablaðsins Bílsins á Daihatsu Charade, sem lauk snemma á þessu ári, voru keyptir 6540 lítrar af bensíni. 5% minni eyðsla, t.d. með „Powerplus", hefði þýtt að sparast hefðu 327 lítrar af bensíni. Hefði bíllinn eytt 9 lítrum á hundraðið í stað 6,5 hefði 5% sparn- aður þýtt 450 lítrum minni bensín- kaup. Einn af kostum „PowerPlus", sem skiptir einnig máli, er sá að með þenn- an litla hólk, sem tengdur er inn í bensínlögnina á undan blöndungnum, eiga eldri gerðir véla að geta brennt 91-95 oktan „blýlausu" bensíni án þess að skemmast eða verða afl- minni. Samkvæmt upplýsingum framleiðandans, sem er breskur, er ástæðan sú að í hólknum, sem bens- ínið síast í gegnum, er m.a. tin sem gegnir sama hlutverki og blý (þ.e. að koma í veg fyrir forkveikjun og mynda varmaþolna húð á ventlum) en tinið er sagt valda mun minni mengun en blý. „PowerPlus" er þegar í notkun hjá skipafélögum erlendis, svo sem í ferj- um á Ermasundi og þegar er farið að nota þennan búnað í bílum og skipum hérlendis. Vísindalegar prófanir á búnaði á borð við „PowerPlus“, sem fram- kvæmdar væru hérlendis, gætu verið þýðingarmikill þáttur í því að draga úr mengun frá bílum. Reynist búnaður- inn jafn virkur og framleiðandinn full- yrðir væri það mengunarvörn í sjálfu sér og spamaður í eldsneytiskaupum myndi stuðla að því að sem flestir eigendur bfla, skipa og annarra tækja með brunavél notuðu hann. SET SNJÓBRÆÐSLURÖR Fullnýtum orku heita vatnsins meö SET - snjóbræðslurörum undir stéttar og plön. SET - snjóbræöslurör eru gerö úr fjölliða poly propelyne plastefni af viöurkenndri gerö. Hita- og þrýstiþol í sérflokki. SET - snjóbræðslurör og hitaþolin vatnsrör eru framleidd í eftirfarandi stæröum 20mm, 25 mm, 32mm og 40mm. EYRAVEGI 43•800 SELFOSSI Box 83 • SÍMI 98-22700 • Fax 98-22099 37

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.