Frjáls verslun - 01.08.1991, Blaðsíða 43
er keyrð undir sínu sérhannaða stýri-
kerfi. Af því leiðir að forritunarmál
eru gefin út í mismunandi útgáfum og
er hver útgáfa aðlöguð ákveðnu stýr-
ikerfi. Forrit sem skrifað er á Basic
fyrir tölvu með gjörva af tegundinni
Zilog 80 er ekki hægt að nota jafn-
framt fyrir tölvu með gjörvann Intel
8086. Forritið getur verið það sama
þótt það sé þýtt fyrir mismunandi
stýrikerfi. Sem dæmi má nefna ritv-
innslukerfið WordPerfect sem hægt
er að fá fyrir jafn ólíkar tölvur og IBM
PC og Macintosh.
Stýrikerfi eru tvenns konar hvað
varðar skipanastjórn. Annars vegar
eru stýrikerfi sem lúta skipunum sem
þarf að skrifa á skjá með hnappaborði
(t.d. MS-DOS) en hins vegar skjá-
stýrikerfi en þá er aðgerðum stjórnað
með því að færa bendil á milli tákn-
rænna mynda á skjá eins og t.d. í
GEM og MS-Windows. í báðum til-
fellum er hnappaborðið notað til að
vinna verk en mismunurinn liggur í
því hvernig vinnslu verksins og að-
gerðum tölvukerfisins er stjómað.
Til er mjög ítarleg íslensk bók um
stýrikerfið MS-DOS. Flún nefnist
„Bókin um MS-DOS“ og er eftir Jör-
gen Pind.
FJÖLVERKA- 0G FJÖLNOTENDAKERFI
Notendaforrit nefnast einu nafni
forrit sem notuð eru til að vinna
ákveðið verk, t.d. bókfærslu og upp-
gjör. Bókhaldskerfi er samstæða ótal
forrita sem skrifuð hafa verið með
sama forritunarmáli og tvinnuð saman
í eina vinnsluhæfa heild sem lýtur
stjórn ákveðins stýrikerfis.
Notendaforrit eru í vaxandi mæli
keyrð á samtengdum tölvum í fyrir-
tækjum. í tölvuneti (LAN er skamm-
stöfun á Local Area Network og nefn-
ist nærnet á íslensku) geta margir
notendur unnið samtímis í sama for-
ritinu, næstum því án þess að tefja
vinnslu hvers annars. Þar kemur til
skjalanna þriðja stýrikerfið, sérstök
eining sem sér um „umferðarstjórn"
innan netsins og nefnist netmiðlari
(Server á ensku).
Nærnet gerir kleift að byggja upp
fjölnotendakerfí á tiltölulega ódýran
hátt, t.d. með PC tölvum. UNIX
stýrikerfið og afbrigði þess, svo sem
Zeniz og Aix, er þróað sérstaklega
sem jjölnotendakerfi. Nauðsynlegt er
að gera skýran greinarmun á tveimur
enskum hugtökum þegar þessi mál
ber á góma en þeim er oft ruglað
saman. Annars vegar er um að ræða
„Multi-user System“ sem er fjölnot-
endakerfi en hins vegar „Multi-task
System“ sem er fjölverkakerfi. Tölva
með fjölverkastýrikerfi (t.d. IBM
OS/2) getur framkvæmt mörg verk-
efni samtímis en er hins vegar ekki
fjölnotendakerfi. I fjölverkakerfi er
unnt að hafa fleiri en einn glugga á
skjánum og fara á milli þeirra með
innskrift á meðan tölvan framkvæmir
vinnslu, að því virðist samtímis í öll-
um gluggunum eða verkefnunum. í
fjölverkakerfi er t.d. hægt að stjórna
útprentun í einum vinnsluglugga á
sama tíma og tölvan er að endurraða
skrá í öðrum o.s.frv.
Hefur þú velt því fyrir þér að mistök geta verið dýr?
| | Var 5-6 milljarða fjárfesting Islendinga í tölvubúnaði og -þjónustu árið 1990 öll nauðsynleg?
Q Reynsla okkar sýnir að vel unnið útboð getur leitt tii 10 - 25% lægra verðs á búnaði og þjónustu
Q Untsjón með útboði, samningagerð og eftirlit með uppsetningu getur kostað minna en 1% af verðmæti búnaðar
Q Ef þú veltir þessu fyrir þér og því, að örlítil mistök geta verið dýr, þá sérðu kosti þess að leita ráðgjafar
Hvers vegna ættir þú að leita til okkar um ráðgjöf?
J Við höfum ráðlagt 10 af 50 stærstu fyrirtækjum íslands um tölvumál - heildarvelta 1989: 50 Milljarðar *)
j Við höfunt unnið fyrir banka, fjölmiðlafyrirtæki, opinberar stofnanir, orkuöflunarfyrirtæki, tryggingafélög, stór- og
smáverslanir, prentsmiðjur, sjávarútvegsfyrirtæki, smáfyrirtæki, einstaklinga.
j Við erurn óháðir ráðgjafar og seljum hvorki vél- eða hugbúnað • við seljum þekkingu
□ Við höfum starfað við tölvuráðgjöf frá 1. mars 1986 og því lengur en flestir aðrir
Námskeið um tölvuvæðingu fyrirtækja í október
□ Námskeiðið er sniðið fyrir þá sem taka þátt í ákvörðunum um tölvumál og krefst ekki þekkingar á tölvutækni
Tölvu- og verkfræðlþjónustan
Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16 • sími: (91) 68 80 90
*) Listi Frjálsrar verslunar 9. tbl 1990
43