Frjáls verslun - 01.08.1991, Side 48
ríkjanna og spoma gegn misvægi í
greiðslujöfnuði þeirra,
(h) að samræma landslöggjöf aðild-
arríkjanna að því marki sem nauðsyn-
legt er fyrir starfsemi hins sameigin-
lega markaðar,
(i) að stofna Evrópskan félagsmála-
sjóð í þeim tilgangi að auka atvinnu-
möguleika launþega og stuðla að því
að bæta lífskjör þeirra,
(j) að koma á fót Evrópskum fjár-
festingarbanka í því skyni að greiða
fyrir auknum hagvexti innan banda-
lagsins með því að leita nýrra úrræða,
(k) að hafa samstarf við lönd og
yfirráðasvæði handan hafsins með
það fyrir augum að auka viðskipti og
vinna í sameiningu að framþróun í
efnahags- og félagsmálum."
í formála Ólafs Davíðssonar, fram-
kvæmdarstjóra FII, og Jóns Stein-
dórs Valdimarssonar, lögfræðings
FÍI , segirm.a. aðekkiséfjarriaðlíkja
Rómarsamningnum við stjórnarskrá.
Lykilatriði stjómarskráa felast oft á
tíðum í upphafi þeirra og má jafnvel
líkja framantöldum greinum við upp-
hafsgreinar íslensku stjórnarskrár-
innar þar sem kveðið er á um að ís-
land sé lýðveldi og einnig er greint frá
þrískiptingu ríkisvaldsins, í anda
Montesquieu.
En til hvaða lesendahóps á bókin
„Evrópuréttur, Réttarreglur og
Stórt skref hefur verið
stigið í þá átt að auðvelda
almenningi aðgang að
upplýsingum um Evrópu-
bandalagið með bók
Stefáns Más Stefánssonar
prófessors.
stofnanir Efnahagsbandalagsins“ að
höfða? Bókarhöfundur var inntur eftir
því.
„Þessi bók ætti að koma lögfræð-
ingum og laganemum að góðum not-
um,“ sagði Stefán Már í spjalli við
Frjálsa verslun. „Þetta er engin reif-
aralesning og fólk verður að gefa sér
góðan tíma til þess að lesa bókina og
skilja hana. Ég held að þeir, sem hafa
áhuga á málefnum EB, eigi að fmna
flest það, sem þeir leita að, í bókinni
en í henni er lögfræðileg úttekt á öll-
um greinum Rómarsamningsins -
stofnsamningi EB. En bókin er alls
ekki eingöngu fyrir lögfræðinga eða
laganema heldur tel ég hana koma að
góðum notum fyrir hvem þann sem
hefur áhuga á efninu.“
Bókinni er skipt niður í 28 kafla,
eins og áður segir, og í 91 undirkafla.
„Bókin ætti að geta komið fólki að
notum sem uppsláttarrit. Þarna er að
fmna umfjöllun um t.d. samkeppnis-
reglur og sjávarútvegstefnu EB. í
bókinni er einnig að fínna skýringar
þessara reglna og stefna og lagaáhrif
þeirra."
Er einhver afstaða tekin með eða á
móti EES í bókinni?
„Nei, eins og í öðrum lagaritum eru
spilin lögð á borðið og fólk er síðan
látið draga sínar eigin ályktanir. Menn
eru ekki leiddir inn á einhverja
ákveðna braut heldur eru þeir látnir
mynda sér sjálfstæðar skoðanir."
Er útkoma þessarar bókar tíma-
bær?
,Já, eigum við ekki að segja að svo
sé. Ef við íslendingar ætlum okkur að
taka þátt í „Hinu evrópska efnahags-
svæði“ þá verða menn að vita í hverju
þeir ætla að taka þátt því það er ekki
gott að renna blint í sjóinn.“
A haustönn 1991 bjóðum við kennslu í fjölmörgum greinum. Tómstundanám - bóklegar,
verklegar greinar og prófanám - grunnskóli og framhaldsskóli.
Nánari upplýsingar og innritun í Miðbœjarskóla, Fríkirkjuvegi 1. Skrifstofan er opin daglega
frá kl. 13.00-19.00. Símar 12992 og 14106. Athugið að kennslugjaldi er í hófstillt, en greiðist
fyrir fyrstu kennslustund.
Við viljum vekja sérstaka áherslu á aukinni kennslu okkar í teikningu,
bœði modelteikningu og hlutateikningu.
48