Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1991, Page 50

Frjáls verslun - 01.08.1991, Page 50
„ÉG SÉ FYRIR MÉR AÐ HLUTDEILD PÓSTVERSLANA EIGIEFTIR AÐ AUKAST“ - Segir Lárus Ólafsson, framkvæmdarstjóri Freemans á íslandi, sem starfað hefur við póstverslun í á annan áratug. Lárus Ólafsson er fram- kvæmdarstjóri Freemans-póst- verslunarinnar á Islandi. Freemanslistinn hefur verið á boðstólnum hér á landi síðan 1978, eða í alls 13 ár, og er ein virtasta póstverslunin hér. Lár- us er því flestum hnútum kunn- ugur þegar póstverslun er ann- ars vegar og leitaði Frjáls versl- un á náðir hans og innti hann eftir póstverslunarmarkaðin- um, þróun og framförum, síðan póstverslun í núverandi mynd hófst hér á landi. Var Lárus fyrst inntur eftir því hvort mikil þensla væri á póstverslunar- markaðinum hér á Iandi og hvernig þróunin hefði verið síð- an Freemans á Islandi hóf rekst- ur sinn. „Þegar við hófum rekstur Free- mans of London, árið 1978, var póst- verslun í þeirri mynd sem við þekkj- um nú mjög lítil. Þetta breyttist þó fljótt og fyrirtækjum í þessari grein fjölgaði hratt næstu árin. Það var því þensla á þessum markaði og fyrirtæki komu og fóru eins og gengur. Það má ef til vill segja að núna sé nokkur stöð- ugleiki og festa komin á þennan mark- að og að viðbætur verði dýrar.“ FYRIRMYNDIRNAR SÓTTAR TIL EVRÓPU Eru fyrirmyndir póstverslunar á íslandi sóttar til góssenlands póst- verslunar — Ameríku? „Nei, það held ég ekki. í gegnum tíðina höfum við mest átt samskipti við meginlandsþjóðirnar, en Free- mans er aftur á móti breskt fyrirtæki. Fyrirmyndin held ég að sé ekki sótt til Ameríku þó svo að mikið sé um póst- verslun þar og póstverslun í þessu formi sé starfrækt þar.“ Hvemig gengur póstverslunin hér á landi? „Póstverslunin er náttúrlega í bar- áttu við smásölumarkaðinn og hefur verið að vinna á. Astæðan fyrir því er fyrst og fremst sú að verslunarhættir eru að breytast. Fólk hefur nú minni tíma en áður var til verslunarleið- angra og vill hafa úrval á einurn stað þar sem það getur verslað. Tækni- framfarir síðustu ára gera kleift að veita betri þjónustu en áður og menn sjá fyrir sér mikla möguleika í framtíð- inni í þessum geira, samanber t.d. heimaverslun í gegnum sjónvarp sem vísir er kominn að hér á landi.“ Hvernig er þetta starfrækt? Eruð 50

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.