Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1991, Page 52

Frjáls verslun - 01.08.1991, Page 52
TÆKNIFRAMFARIR HAFA FÆRT PÓSTVERSLUN NÆR NEYTENDUM En til hvers póstverslanir? Getur ekki fólk bara farið í búðir? „Hvers vegna ekki?! Ég held að meginástæða aukinnar hlutdeildar póstverslunar í heiminum sé að fólk fær á þægilegan hátt gífurlegt úrval af vörum á hagstæðu verði. Tækni- HILLUKERFI SCHKFER v-þýsk gæóavara G.Á. Pétursson hf Nútiðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80 framfarir undanfarinna ára hafa fært póstverslanir nær neytandanum og gert þær aðgengilegri. Mörgum leið- ast langir og erfiðir verslunarleið- angrar og vilja gera sín innkaup í næði heima hjá sér. Það er ekki hægt að segja að ákveðnar manngerðir eigi viðskipti við póstverslanir, miklu heldur að sumir komist betur upp á lag með að gera sín innkaup á þennan máta en aðrir. Við höfum með árunum eignast trausta viðskiptavini sem versla við okkur ár eftir ár og við höfum stöðugt reynt að auka og bæta þjónustuna til að gera þennan nútímalega verslunar- máta aðgengilegan fyrir sem flesta.“ Stærsti hópur viðskiptavina okkar er á aldursbilinu 18 ára til þrítugs. Þeim fer síðan stigfækkandi eftir því sem ofar dregur. Ég tel að ástæða þess að unga fólkið sækir í ríkari mæli í póstverslanir sé sú að það elst upp við að versla á þennan hátt, gagn- stætt því sem á við um eldra fólk.“ Munar miklu í verði? „Það er erfitt að svara því ná- kvæmlega. Við höfum séð dæmi þess að verðmunurinn getur orðið mjög mikill. Fólk hefur verið að kaupa vör- ur í gegnum Freemans listann og séð síðan nákvæmlega eins vörur í búðum hér — en mun dýrari og getur verð- munurinn þá skipt hundruðum prós- enta, eins og í raun gerist oft í saman- burði á verðum í verslunum.“ Er hægt að fá allt milli himins og jarðar í þessum vörulistum? „í listanum okkar er nær eingöngu boðið upp á fatnað. Upprunalegi list- inn, þ.e.a.s. sá sem Freemans á Bretlandi sendir frá sér, er mun yfir- gripsmeiri og í honum er að finna nær allt milli himins og jarðar, t.d. ýmis- konar heimilistæki, húsgögn og stærri hluti. Við gætum sjálfsagt boðið upp á allan listann, en það er staðreynd að með því að vera með hluti sem ekki eru rúmfrekir, eins og t.d. stór raf- magnstæki, er afgreiðslutíminn mun styttri. Keppinautar mínir hérna bjóða allir upp á listana í heild sinni en eins og ég sagði höfum við einbeitt okkur að fatnaðinum.“ Er pláss fyrir fleiri póstverslanir hér á landi? „Ef við berum okkur saman við önnur lönd ætti ég að segja nei vegna þess hversu margar póstverslanir eru hérna nú þegar. Við erum með lista frá öllum helstu löndum Evrópu og öllum helstu póstverslunarfyrir- tækjunum þar. Ég sé þó fyrir mér að hlutdeild póstverslana hér á landi eigi eftir að aukast í fyrirsjáanlegri fram- tíð. Ef litið er til þess, þá væri sjálf- sagt hægt að segja að pláss væri fyrir fleiri héma.“ MENN GETA SPURT SIG HVORTÁ ANNAN TUG PÓSTVERSLANA SÉ EKKI OF MIKIÐ Endurtekur þá ekki sagan sig í póstverslunargeiranum eins og ann- 52

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.