Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1991, Síða 53

Frjáls verslun - 01.08.1991, Síða 53
ars staðar þar sem vel gengur hér á landi, þ.e.a.s. að allir virðast hópast í þær greinar sem einhverjum gengur vel í? ,Jú, það má eiginlega segja að það hafi þegar gerst. Á tímabili voru margir um þessa hitu og nokkrir hafa nú þegar heltst úr lestinni. Núna eru á annan tug póstverslana á markaðin- um, og menn geta spurt sig hvort það sé of mikið eða ekki.“ Hvernig fara kaup í gegnum póst- verslun fram? „Þetta fer þannig fram hjá okkur að fólk fyllir út pöntunarseðil, eða hringir til okkar, sem er í um 85% tilfella. Eftir að við höfum fengið pantanirnar eru þær settar inn í tölvu hjá okkur. Venjulega gerum við það strax. Við athugum hvort vörunúmerið er gilt og ef svo er sendum við vörupöntunina út til Bretlands. Síðan fáum við send- ar upplýsingar að utan um það hvað pantað hefur verið og hvort viðkom- andi vara er til. Fólk getur hringt dag- inn eftir að pöntun hefur verið gerð og athugað hvort viðkomandi vara hefur verið til. Þegar þessu er lokið getur liðið allt frá einni viku upp í þrjár vikur þangað til pöntunaraðili fær vöruna í hend- urnar. Það getur verið nokkuð mis- jafnt hvað tíminn er langur. Ástæðan er sú sem áður getur, að vera kann að vörurnar séu ekki til á lager þegar pöntunin er gerð og þarna kemur einnig inn sú staðreynd að við fáum vörurnar sendar einu sinni í viku og þess vegna hleypur afgreiðslutíminn á vikum. Að meðaltali tekur það tíu daga frá því að pantað er þangað til að varan er tilbúin til afhendingar. Freemans fyrirtækið á Englandi hefur gengið vel, og var velta þess á breska póstverslunarmarkaðinum um 15% á síðastliðnu ári. Fyrirtækið hefur verið í uppsveiflu og hefur notið góðs af því að vera með vel útfærða þjónustu." FÓLKIFINNST GOTT AÐ GETA SKOÐAÐ VÖRURNAR í BÚÐINNI Hjá Freemans á Islandi, Bæjar- hrauni 14 í Hafnarfirði, er einnig starf- rækt verslun, þar sem boðið er upp á nokkrar vörutegundir sem finna má í vörulistum fyrirtækisins. Vörurnar Lárus Ólafsson, framkvæmdastjóri Freemans á íslandi, segir að fólk á öllum aldri versli við póstverslanir og að þetta fólk komi alls staðar að af landinu. 55% viðskiptavinanna eru af höfuðborgarsvæðinu.

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.