Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1991, Qupperneq 64

Frjáls verslun - 01.08.1991, Qupperneq 64
MENNTUN Æ færri nemendur óska eftir inngöngu í járniöaöardeildir skólanna og hætt er við að þekking íslendinga á skipasmíðum líði undir lok. molum og ekkert er hirt um að við- halda gagnagrunni varðandi fjölda nemenda í einstökum greinum, þörf atvinnulífsins fyrir menntað vinnuafl, tekjumöguleika í hverri starfsgrein að námi loknu o.s.frv. Lægju slíkar upp- lýsingar fyrir á einum stað í aðgengi- legu formi, er víst að nemendur ættu hægara með að velja sér námsbrautir án þess að þurfa að sjá eftir því vali síðar meir. Við litum inn í Námsráð- gjöf Háskóla íslandsog hittum þar að máli þær Ástu Kr. Ragnarsdóttur og Rögnu Ólafsdóttur. Við spurðum þær fyrst hvort eftirspum nýnema eftir þeirra þjónustu hefði aukist á síðustu árum: „Alveg tvímælalaust. Árið 1984 komu 650 nemendur í viðtöl til okkar en á síðasta ári komu yfir 2.500 manns til Námsráðgjafar. Langoftast eru nemendur að biðja um ráð varð- andi námsval og þá velta menn fyrir sér inntaki námsins og ekki síður hvaða atvinnumöguleikar séu að því loknu. Hins vegar teljum við auðséð að námsráðgjöf ætti að hefjast mun fyrr í skólakerfinu og minnum t.d. á að fáir sérmenntaðir námsráðgjafar eru „Á SAMA HÁTT ER ÞAÐ VOND HAGFRÆÐI AÐ BEINA OF MÖRGUM NEMENDUM í NÁM EÐA STÖRF ÞAR SEM EFTIRSPURN ER EKKI FYRIR HENDI OG SAMFÉLAGIÐ HEFUR EKKI NOT FYRIR KRAFTA ÞEIRRA.“ starfandi í grunnskólum landsins. í efstu bekkjunum þar ætti auðvitað megin greiningin að eiga sér stað því einmitt þá eru áhugasvið nemend- anna að byrja að mótast.“ í gögnum Námsráðgjafar Háskóla íslands er fjallað um námsval og bent á að hún feli í sér ákvörðun. Sú ákvörðun byggi venjulega bæði á skynsemi og tilfinningum og vissu- lega bregði oft til beggja vona í þeim efnum. Hins vegar sé hægt að draga úr áhættunni með því að taka ákvörð- un á skipulagðan hátt. ERUM VIÐ UPPLÝSINGAÞJÓÐFÉLAG? Starf blaðamanns er einatt fólgið í því að afla upplýsinga og koma þeim á framfæri. Þar eru margar leiðir fyrir hendi. Oftast er gripið til þess ráðs að spyrja valinkunna menn út úr og þeir beðnir að leggja sitt mat á tiltekin mál. Þar eru stjómmálamenn vinsæll skot- spónn. Þegar hins vegar þarf að kafa dýpra og afla upplýsinga um raunverulega stöðu mála vill oft bregða við að kom- ið sé að tómum kofanum. Það er t.d. furðulegt til þess að hugsa að ekki skuli vera til á einum stað svör við spurningum þeim sem nemendur gjarnan leggja fram þegar þeir ætla að velja sér námsleið. Fjölmargir aðilar í þjóðfélaginu eiga að annast þetta verkefni en af ýmsum ástæðum hafa þeir ekki aðstöðu til að sinna því. Þar er Hagstofan t.d. gott dæmi og raun- ar furðulegt að yfirvöld menntamála skuli ekki tryggja að haldgott yfirlit sé fyrir hendi. Sumarið 1989 var hafist handa við það á vegum Námsráðgjafar Háskól- ans og annarra aðila innan skólans að byggja upp tölvukerfi til aðstoðar við námsval á háskólastigi. Var talið nauðsynlegt að byggja slíkt kerfi upp til að námsráðgjafar hefðu greiðan að- gang að áreiðanlegum upplýsingum um námsframboð og námsskilyrði á sem breiðustum grundvelli. Var menntamálaráðherra og ýmsum stó- fyrirtækjum í landinu sent erindi um styrk til að hanna og vinna tölvukerfið sem hafði hlotið nafnið VALA. Niður- staðan fékkst eftir nokkurn tíma: Hið opinbera sá sér ekki fært að leggja í púkkið og aðeins eitt fyrirtæki bauðst til að leggja fram hundrað þúsund krónur til verksins. Upplýsingakerfi á borð við VÖLU hlýtur að vera nauðsynlegt grunn- gagn allra þeirra sem aðstoða við námsval til undirbúnings störfum á 64
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.