Frjáls verslun - 01.08.1991, Síða 68
ATHAFNAMENN
INDRIÐIPÁLSSON, STJÓRNARFORMAÐUR SKEUUNGS
ALLT OF MIKIÐ GERT
ÚR ÁHRIFUM OKKAR
Indriði Pálsson lét af starfi
forstjóra Skeljungs á síðasta
ári, 62 ára að aldri, eftir að hafa
gegnt því í tvo áratugi. „Það var
ráðgert fyrir löngu að ég myndi
draga mig út úr daglegri stjórn
Skeljungs eftir að ég næði sex-
tugsaldri og ég gerði um það
samning við fyrirtækið. Það er í
samræmi við viðteknar reglur
Shell International sem er
stærsti hluthafinn í Skeljungi.“
Indriði telur þetta vera góða reglu.
„Menn ættu ekki að vera í krefjandi
störfum lengur en þeir halda fullu
starfsþreki en að mínu mati eru bestu
starfsárin fyrir menn í krefjandi
stjórnunarstörfum almennt milli fer-
tugs og sextugs. Eftir það fer starfs-
þrekið venjulega dvínandi. Það þarf
líka að virkja hæfileika þeirra ungu
manna og kvenna sem hafa getu og
vilja til þess að takast á við stjórnun í
atvinnurekstri á hverjum tíma. En
það er áhugavert takmark að saman
fari reynsla og þekking hinna eldri og
góð menntun, atorka og dugnaður
hinna yngri fyrirtækinu til framfara og
hagsbóta, til dæmis með því að þeir
eldri sitji í stjórn þess og taki þannig
þátt í mótun á heildarstefnu."
Skeljungur hyggst greinilega nýta
sér reynslu og þekkingu Indriða því
„Að mínu mati eru bestu starfs-
árin fyrir menn í krefjandi
stjórnunarstörfum almennt milli
fertugs og sextugs. Eftir það fer
starfsþrekið venjulega
dvínandi“
að í fyrra var hann kjörinn stjórnarfor-
maður fyrirtækisins. Auk þess situr
hann í stjóm margra af stærstu fyrir-
tækjum landsins og má þar nefna
Eimskip og nokkur dótturfyrirtæki
þess, Flugleiðir og Úrval-Útsýn.
Indriði segist hafa búið sig undir að
hætta sem forstjóri Skeljungs meðal
annars með því að taka sæti í stjórn-
um þessara fyrirtækja. „Hlutverk
stjórnar er að hafa mótandi áhrif á
fyrirtækið og hún er æðsta vald í mál-
efnum þess milli aðalfunda. Stjórnar-
menn þurfa að fylgjast með rekstri
fyrirtækisins og þeir bera verulega
ábyrgð samkvæmt lögum. Þannig að
stjórnarseta er annað og meira en
formsatriði. “
Stundum hefur verið ýjað að því að
Indriði, sem er varaformaður stjómar
Eimskips, Hörður Sigurgestsson for-
stjóri Eimskips og Halldór H. Jónsson
stjómarformaður sama fyrirtækis
hafi óeðlilega mikil völd í atvinnulífinu
vegna setu sinnar í stjórnum margra
stærstu fyrirtækja landsins. Indriði
er spurður út í þetta atriði. „Ég tel
alltof mikið gert úr þeim áhrifum sem
við erum taldir hafa. Og eins og ég
sagði þá ætti reynsla okkar að nýtast
fyrirtækjunum til hagsbóta á þennan
hátt. Það er heldur ekkert óeðlilegt
að við sitjum í stjórn Flugleiða, svo
dæmi sé tekið, þar sem Eimskipafé-
lagið á þriðjung hlutafjár í fyrirtækinu.
Svipað á við um fleiri fyrirtæki."
Af framansögðu er ljóst að Indriði
hefur í nógu að snúast þótt hann hafi
látið af starfí forstjóra Skeljungs.
Hann hefur skrifstofu í aðalstöðvun-
um þar sem hann er að jafnaði fyrir
hádegi. „I dag ræð ég þó miklu meiru
um minn tíma og gefst meiri tími til
samvista við fjölskylduna en áður,“
segir hann. f gegnum árin hefur Indr-
iði tekið þátt í ýmsum félagsstörfum
sem tengjast atvinnulífinu og er enn í
stjórn Vinnuveitendasambands ís-
lands. Þá er hann æðsti maður Frí-
múrarareglunnar á íslandi sem hann
segir útheimta talsverða vinnu. En
sér hann fyrir sér að hægja ferðina og
draga sig út úr stjórnum fyrirtækja?
„Ég er reiðubúinn til þess að sitja í
stjórnum nokkurra fyrirtækja meðan
ég hef heilsu til þess og traust. En það
er auðvitað ekki mitt að ákveða það
heldur liluthafa viðkomandi fyrir-
tækja.“
Indriði segir að margt ungt hæfi-
leikafólk, sem hafi alla burði til þess
að vera góðir stjórnendur, sé að finna
í íslensku atvinnulífi. En hvað ein-
68