Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1991, Side 71

Frjáls verslun - 01.08.1991, Side 71
ATHAFNAMENN búnaðarfyrirtækinu Fjarhönnun hf. þar sem hann er stjórnarformaður. Hann settist í stjórn Alpan hf. á Eyr- arbakka, á sæti í stjórn Verslunarráðs íslands, er í Landsnefnd Alþjóða- verslunarráðsins og undirbúnings- nefnd alþjóðaráðstefnu um varnir gegn vá vegna náttúruhamfara, sem haldin verður hér á landi næsta vor í tilefni af 80 ára afmæli Verkfræðinga- félags íslands, og situr í stórn Hjarta- verndar. Hann segir þessi störf ekki vera fulla vinnu. „Kostirnir við að hafa rýmri tíma eru ekki síst þeir að ég hef getað sinnt áhugamálum mínum betur en áður,“ segir Ragnar. „Ég hef gaman af því að spila bridds og í stað þess að spila vikulega geri ég það nú tvisvar til þrisvar sinnum í viku. Svo er ég svo- Ktið farinn að stunda golf. Vikulega hitti ég félaga mína í Rótaryklúbbi Reykjavíkur en ég er fráfarandi for- seti hans. Núna hef ég líka meiri tíma fyrir fjölskylduna. Ég á fjögur bama- börn, sem búa að vísu erlendis með foreldrum sínum, en ég get leikið afa- hlutverkið betur þegar þau koma í heimsókn hingað. Svo eigum við ásamt fleirum sumarbústað við Apa- vatn og við vorum þar hjónin í viku samfleytt í sumar en það hefur ekki gerst áður.“ Ragnar var landsfrægur bíladellumaður og ennþá kann hann að meta góða bíla þótt hann segi delluna hafa minnkað með árunum. Fyrir kosningamar í vor skrifaði Ragnar margar greinar til stuðnings Sjálfstæðisflokknum og því vaknar sú spurning hvort hann stefni á að hasla sér völl á vettvangi stjórnmálanna. „Ég hef nokkrum sinnum verið spurður að því hvort ég hefði áhuga á því að vera í framboði en það stendur alls ekki til.“ Ragnar segist vera mjög sáttur við lífið og tilveruna í dag en það er jafn- framt greinilegt að hann er alls ekki búinn að segja sitt síðasta orð í at- vinnulífinu. „Ég vil ekki draga mig alveg í hlé meðan ég get einhvers staðar orðið að liði,“ segir hann bros- andi. ERLENDUR EINARSSON FV. FORSTJÓRISÍS MENN EIGA AÐ HÆTTA AÐUR EN KERTIÐ ER BRUNNIÐ ÚT Erlendur Einarsson var aðeins 33 ára gamall þegar hann settist í forstjórastól Sambands íslenskra samvinnufélaga og áður hafði hann byggt upp og verið forstjóri Samvinnutrygg- inga í átta ár. Hann þekkir því öðrum betur hvað það er að bera mikla ábyrgð. Fyrir fimm árum lét Erlendur svo af störfum, 65 ára gamall, í samræmi við regl- ur Sambandsins sem kveða á um að forstjóri þess og fram- kvæmdastjórar láti af störfum á þeim aldri. „Ég tel að þessar reglur séu rétt- mætar,“ segir Erlendur. „Þegar menn hafa stjórnað lengi svona stóru og margþættu fyrirtæki er heppilegt að þeir hætti áður en kertið er brunn- ið of mikið út. Og ennþá þýðingar- meira er að fá unga menn til að taka við. Þeir skilja og skynja breytingam- ar í þjóðfélaginu betur en þeir eldri. Þegar ég var ráðinn forstjóri Sam- vinnutrygginga 25 ára gamall fannst mér aldurinn ekki há mér heldur þvert á móti vera kostur. Reynslan er auðvitað alltaf þýðingarmikil en vegna hinna öru breytinga í þjóðfélaginu er þörf fyrir ungt fólk með ferskar hug- myndir við stjómvölinn." En hvemig var Erlendi innan- brjósts þegar hann lét ef störfum eftir áratugi í fremstu víglínu? „Það var gott að losna undan fargi ábyrgðarinn- ar því óneitanlega var það mikið. Eins og einn breskur forsætisráðherra orðaði það: „I feel the burden of res- ponsibility fall off my shoulders.“ A hinn bóginn varð mikil breyting og svolítið tómarúm myndaðist. En nú er það svo að ég hef fengið ýmislegt að dunda við þótt það hefði verið minna á vegum samvinnuhreyfingar- innar en ég hefði óskað mér. Ég er þó enn í miðstjórn Alþjóðasamvinnu- sambandsins og í eftirlitsnefnd þess. Þegar ég settist fyrst í miðstjómina var ég í hópi þeirra yngstu en nú er ég með þeim eldri. Það hefur verið ánægjulegt að starfa þarna og þannig hef ég haldið tengslunum við erlenda kollega mína. Þá er ég í stjórn Þróun- arsamvinnustofnunar Norðurlanda sem vinnur að því að efla samstarf fyrirtækja á Norðurlöndum.“ Æviminningar Erlends eru vænta- legar á bók nú fyrir jólin. Að undan- förnu hefur hann unnið að þeim ásamt 71

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.