Frjáls verslun - 01.08.1991, Page 72
ATHAFNAMENN
ÁRNIGESTSSON, STJÓRNARFORMADUR GLÓBUS
HEF VERIÐ 45 ARI
VIÐSKIPTUM
skrásetjara. „Það hefur verið sagt um
menn sem komnir eru á aldur að þeir
hugsi bara um fortíðina en unga fólkið
aðeins um framtíðina. Ég hugsa sem
betur fer um framtíðina ennþá þótt ég
hafi gert mér það til dundurs undan-
farið að rifja upp fortíðina.“ Erlendur
brosir í kampinn. „Nú sér maður
ýmsa atburði í öðru ljósi en þegar þeir
áttu sér stað. Það er margs ánægju-
legs að minnast en auðvitað verður
maður líka fyrir vonbrigðum á ævinni.
Eiginkona mín hefur alla tíð verið
minn besti stuðningur í lífi og starfí en
eftir á að hyggja hefði ég viljað geta
eytt meiri tíma með bömunum. En nú
kom það af sjálfu sér að ég hef meiri
tíma til samvista við fjölskylduna. Ég
finn mig til dæmis mjög vel í afahlut-
verkinu."
Tónlist er Erlendi og eiginkonu
hans kær og þau sækja því oft tón-
leika. Erlendur á líka sæti í stjóm
Samtaka um byggingu tónlistarhúss.
„Það hefur verið ánægjulegt en skiln-
ingsleysi stjórnvalda eru okkur mikil
vonbrigði. Reykjavík er eina höfuð-
borgin í Evrópu sem hefur ekki af
tónlistarhúsi að státa. Ég skil ekki
hvers tónlistin á að gjalda."
Erlendur stundaði golf í mörg ár en
hefur lítið fengist við það á undanföm-
um árum. „En ég er búinn að heita því
að byrja aftur núna þegar ég hef rýmri
tíma en áður.“ Annað áhugamál hans
er að glíma við sjóbirtinginn í Gren-
læknum. „Við eigum sumarbústað í
Landbrotinu í landi Seglbúða en kona
mín er ættuð þaðan. Grenlækurinn er
nokkuð fisksæll og ég veiði nú orðið
hvergi annars staðar. Þegar ég var í
mínu starfí var ekki mikill tími til þess
að dvelja fyrir austan. En þó bauð ég
þangað stundum erlendum og inn-
lendum viðskiptamönnum SÍS og þá
veiddu þeir í ánni. Það er sérstakt og
ævintýralegt umhverfi í nágrenni
Seglbúða. Gömlu hraunhólamir eru
grónir eins og náttúran hafi lagt teppi
yfir þá, en hraundrangamir standa
upp úr eins og höggmyndir í lands-
laginu.“ Erlendur er einmitt á leiðinni
austur að viðtalinu loknu og hann er
greinilega farinn að iða í skinninu. „í
dag hugsa ég fyrst og fremst um það
að gefa mér tíma til að njóta þess sem
mig langar að gera,“ segir Erlendur
að lokum og er rokinn austur.
Árni Gestsson, stjórnarformað-
ur Glóbus, var 68 ára gamall
þegar hann ákvað, árið 1988, að
tímbært væri orðið að hægja
ferðina. Hann vék þá úr forstjór-
astóli eftir 32 ár í starfi og tók
við stjórnarformennsku í fyrir-
tækinu.
„Mér fannst nú vera kominn tími til
þess að breyta til,“ segir Ámi léttur í
bragði. „Ég fann að minn tími var
kominn. Það hafa orðið svo örar
breytingar í rekstri fyrirtækja á unda-
fömum árum að ég taldi það miklu
heppilegra að ungir menn fengju að
spreyta sig á hlutunum. Þetta var
vissulega mikil breyting en ég var
búinn að gera þetta alveg upp við mig.
Ég var búinn að sætta mig við að það
hlyti að koma að þessu fyrr eða síðar
og að þetta yrði að ganga, sem það og
hefur gert alveg ágætlega."
Þó að Ámi hafi dregið sig út úr
daglegum rekstri fyrirtækisins er
hann ekki búinn að sleppa af því hend-
inni. Sem stjórnarformaður ræður
hann stefnumótun fyrirtækisins og
fylgist með rekstri þess. „Við hitt-
umst reglulega á fundum og ræðum
ýmis mál. En nú er ég auðvitað meira
frá fyrirtækinu en ég var. Ég hef eig-
inlega helgað þessu fyrirtæki alla
mína starfskrafta. Ég er búinn að vera
hér í forsvari í 32 ár en samtals hef ég
verið viðloðandi viðskipti í 45 ár. Gló-
bus var stofnað árið 1947 en mín fjöl-
skylda keypti hlutabréfin í þvf árið
1956 og þá má segja að fyrirtækið hafi
byrjað undir minni stjórn. Meðan ég
var að byggja þetta upp fór ég ekki í
72