Frjáls verslun - 01.08.1991, Page 73
ATHAFNAMENN
sumarfrí í 10-12 ár en þessi vinna hef-
ur skilað sér. Það er mikils virði að
eiga góða og skilningsríka konu. Það
er mesta lánið fyrir mann að hafa hald-
ið góðri heilsu, átt góða konu og
mannvænleg börn. Þetta er nú það
sem gefur lífinu mest gildi. Nú á ég
þess kost að verja meiri tíma með
fjölskyldunni. Mér þykir líka mjög
gaman að renna fyrir lax,“ segir Árni
brosandi og bætir því við að hann hafi
meira en nóg við tímann að gera.
Það eru orð að sönnu því auk þess
að vera stjórnarformaður Glóbus er
Ámi aðalræðismaður fyrir Suður-
Kóreu á íslandi. Hann hefur unnið
ötullega að landgræðslu og átti frum-
kvæði að því að stofnað var til „Átaks
í landgræðslu" árið 1988 og safnaði
félagsskapurinn, sem að átakinu
stóð, 27 milljónum króna til land-
græðslumála. Á síðasta umdæmis-
þingi Rotary í júní sl. var samþykkt
tillaga frá Árna þess efnis að Rotary-
hreyfingin beitti sér fyrir því næstu
þrjú árin að styrkja landgræðslustarf-
ið í landinu með fjárframlögum. Þá er
Ámi ennþá í stjómum nokkurra fé-
laga.
Ámi álítur það vera afar mismun-
andi hvenær menn eigi að láta af
„Meðalævin er orðin miklu
lengri en var fyrir 60 árum
síðan. Þá voru fimmtugir menn
gamlir en nú lifa menn við góða
heilsu miklu lengur.“
störfum. „Það er ekki hægt að gefa
eitt algilt svar við því. Það fer eftir
eðli starfsins hvort menn valda því
eða ekki. Ef starfið krefst sköpunar-
gáfu og þess að ryðja nýjum hug-
myndum brautir þá er yngra fólkið
miklu betra í það en það fullorðna.
Miðað við breytingamar sem hafa
orðið á rekstri fyrirtækja þá held ég
að margir, sem eru komnir á minn
aldur, ættu að draga sig í hlé. En
þetta er svo mismunandi. Meðalævin
er orðin miklu lengri en var fyrir 60
árum síðan. Þá voru fimmtugir menn
gamlir en nú lifa menn við góða heilsu
miklu lengur.“
„Eg réði alveg hvenær ég hætti,“
segir Árni. „Ég var orðinn 68 ára og
var búinn að gera þetta upp við mig og
það er nauðsynlegt fyrir alla. Auðvit-
að verður fyrirtækið aldrei rekið með
sama hætti og ég gerði sjálfur. En
maður verður bara að taka það með í
reikninginn og skilja það. Nú eru
yngri hendur sem fara um hlutina og
það þýðir ekkert annað en að sætta
sig við það og gleðjast ef það gengur
vel og ganga eins lengi í takt við tím-
ann og maður getur.“
PLASTIÐJA - PÖKKUN ARÞJ ÓNUS T A
Framleiðsla á ýmsum plastvörum, t.d. plasmmbúðum fyrir
matvælaiðnað, lyfjaframleiðslu, súkkulaðigerð o.fl., einnota
svuntum, smakkskálum til matvælakynninga o.s.frv.
Almenn pökkunar- og vörumerkingarþjónusta á smávörum,
t.d. á vélpökkun á pappaspjöld (blister og skin).
ÖRVI
Plastiðja/pökkunarþjónusta
Kársnesbraut 110, 200 Kópavogi,
Sími 91-43277