Frjáls verslun - 01.12.1991, Page 19
in snerist um framleiðslu og sölu á
sfldar- og fiskréttum. Sennilega hef
ég verið eitthvað á undan tímanum
með þetta en í stað þess að leggja árar
í bát ákvað ég að aðlaga framleiðsluna
því, sem fólk vildi, og fór æ meira yfir
í kjötvinnslu og tilreiðslu á alls kyns
réttum sem fólk vildi kaupa. Sfld og
fiskur var þá í húsnæði okkar að
Bergstaðastræti 34 og áður en ég
vissi af fannst mér kominn grundvöll-
ur til að stofna sölubari þar sem fólk
gæti fengið sér að borða. Upphafið
var pylsusala og síðar fleiri kjötréttir.
Það leiddi til þess að ég hóf rekstur
svínabús á Minni-Vatnsleysu og þar
með fóru hlutirnir að ganga.“
Um tíma voru verslanirnar Sfld og
fiskur á fjórum stöðum í bænum, þ.e.
við Bergstaðastrætið, í Austur-
stræti, á Bræðraborgarstíg og við
Hjarðarhaga. Þar gat fólk keypt til-
búna rétti sem var nýlunda á þeim
tíma að frátöldum Fish & Chips versl-
unum Breta á hernámsárunum. M.a.
gat að líta kjúklingagrill úti í gluggum
verslananna og í þeim var að finna vísi
að kjörbúðum sem nú eru allsráðandi.
Matbarir Þorvaldar spruttu upp á
mörgum stöðum í bænum og þeir
urðu upphafið að beinum afskiptum
hans af veitingarekstri í stórum stfl.
„Upphafið var lítill skyndibitastað-
ur, eins og þetta er kallað í dag, við
Bergstaðastrætið. Síðar kom sá hinn
frægi pylsubar í Austurstræti 22, en
allt ætlaði vitlaust að verða í bæjar-
stjórn Reykjavíkur þegar leyfi fékkst
fyrir þeirri starfsemi. Umsókn mín
olli miklu írafári og var mikið deilt um
þetta mál í blöðum á þessum tíma. í
kjölfarið komu fleiri staðir, m.a. í
Austurbæjarbíói, í Lækjargötu 6, á
Keflavíkurflugvelli og síðast en ekki
síst í Leikhúskjallaranum. Þar hlaut
ég eldskím mína sem veitingamaður
og var með reksturinn frá því haustið
1951 og þangað til ég lét hann af hendi
um tuttugu árum síðar.“
REKSTUR SVÍNABÚSINS
Það er óhætt að segja að Þorvaldur
Guðmundsson hafi verið athafnasam-
ur á þessum fyrstu árum 6. áratugar-
19