Frjáls verslun - 01.06.1994, Síða 64
FOLK
ERLA RAFNSDÓTTIR, ÖSSURI HF.
Erla Rafnsdóttir er fyrsti markaðsstjóri Össurar hf. Hún kynntist fyrirtækinu á há-
skólaárum sínum en hún hafði sjálf þurft að nota spelku vegna íþróttameiðsla.
„Framleiðsla og útflutn-
ingur á ICEROSS hulsunni
hefur aukist jafnt og þétt
síðan Össur Kristinsson,
eigandi fyrirtækisins, fann
þessa vöru upp og hóf fram-
leiðslu á henni 1986. Össur
hf. fékk útflutningsverðlaun
Forseta íslands 1992 en
fyrstu árin eftir að sala hófst
á erlendan markað þurfti að
tvöfalda framleiðsluna
nokkrum sinnum á milli ára
til að anna eftirspuminni,“
segir Erla Rafnsdóttir,
markaðsstjóri Össurar hf.
Erla er 30 ára og lauk
stúdentsprófi frá Verslunar-
skóla íslands 1984. Hún
vann fyrst við almenn skrif-
stofustörf og á Reiknistofu
bankanna, til að athuga
hvort hún hefði áhuga á tölv-
um, en komst að því að svo
var ekki. Hún valdi síðan
viðskiptafræði við Háskól-
ann og lauk prófi af markað-
ssviði 1990. „Ég réði mig á
auglýsingastofuna Gott
fólk, strax að prófum lokn-
um, en um áramótin 1991 sló
ég til og réði mig sem mark-
aðsstjóra hjá Össuri hf. Ég
kynntist fyrirtækinu þegar
ég var í skólanum því ég tók
að mér verkefni þegar Ut-
flutningsráð leitaði til há-
skólanema um að aðstoða
lítil fyrirtæki eftir fyrirmynd
frá írlandi. Ég fékk strax
áhuga á fyrirtækinu því það
var með öðruvísi vöru og
tengdist íþróttum og hreyf-
ingu sem er áhugamál mitt.
Lokaritgerð mín við háskól-
ann íjallaði um þetta fyrir-
tæki.“
FLYTJA ÚT TIL 24 LANDA
Erla var fyrsti markaðs-
stjórinn sem ráðinn var til
Össurar hf.
„Við sérsmíðum og erum
með stöðluð stoðtæki fyrir
innanlandsmarkað en aðal-
framleiðsluvara okkar er
þessi staðlaða gerð af hulsu
úr sílíkoni sem er notuð á
gervifætur og gervihendur.
Össur hannaði sílikone&iið í
samvinnu við birgjann og
hefur nú einkakauprétt á
því. Við seljum út til 24
landa og eru starfsmenn
orðnir 37 en hér unnu 17
manns þegar ég byrjaði.
1992 voru settar á markað
tvær nýjar vörutegundir,
sem einnig eru fluttar út, —
gerviökkli og gifsmótatæki.
Nýjasta varan er Erogo
sport hnéhlífar með púða úr
sama sílikonefni og hulsurn-
ar en það efni er góð högg-
vörn fyrir handbolta og blak-
fólk. Hnéhlífarnar eru
saumaðar á íslenskri saum-
astofu og fyrirhugað er að
búa einnig til olnbogahlífar."
VAR LANDSLIÐSÞJÁLFARI í
HANDBOLTA
Erla er gift Magnúsi
Teitssyni, íþróttakennara
og handknattleiksþjálfara,
sem er nýráðinn íþrótta- og
tómstundafulltrúi á Álftan-
esi.
Erla æfði bæði hanbolta
og fótbolta frá unga aldri,
lék fyrst með Breiðabliki
ífótbolta og ÍR í handbolta
en færði sig síðan yfir til
Stjömunnar í Garðabæ.
„Ég hætti að æfa fótbolta
þegar ég slasaðist á fæti
1987 en lék handbolta leng-
ur. Ég hef þjálfað yngri
flokka í handbolta og fót-
bolta í 10 ár og í þrjú ár var
ég þjálfari íslenska kvenna-
landsliðsins í handbolta en
er nýhætt. Ég er hins vegar
ekki hætt afskiptum af
íþróttinni því ég er formaður
landsliðsnefnar kvenna og
er varamaður í fram-
kvæmdasjóm H.S.Í.
Astæðan fyrir því að ég
hætti þjálfarastarfinu er sú
að ég þarf að ferðast mikið í
tengslum við vinnuna og sá
mér ekki fært að sinna
hvoru tveggja.
Ég held sjálfri mér í þjálf-
un með því að fara í Mátt kl.
sjö á morgnana þrisvar sinn-
um í viku. Það geri ég á vet-
urna en á sumrin skokka ég.
Nú hef ég eignast hesta og
langar að stunda hesta-
mennsku. Ég hef haft mik-
inn áhuga á útiveru frá því
ég var í sveit í gamla daga,“
segir Erla.
64