Helgarpósturinn - 03.10.1994, Blaðsíða 41

Helgarpósturinn - 03.10.1994, Blaðsíða 41
40 MORGUNPÓSTURINN SPORT MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994 Newcastle United Peter Beardsley er kominn á fullt aftur eftir að hafa meiðst í byrjun móts. Leikur eins og engill og dælir boltum á Andy Cole í framlínunni. Upphaflega hét félagið Stanley og var stofnað 1881. Ári síðar breyttist nafnið í Newcastle East End til að forðast misskilning en þá var annað lið ekki langt frá sem einnig hét Stanley. Á þessum tíma var einnig til lið sem hét Newcastle West End og lék það sína leiki á St. James’ Park-vellinum. Árið 1889 lagðist það lið niður og stjórnarmenn þess liðs buðu East End að flytjast á völl- inn. I kjölfarið var nafni félagsins breytt í Newcastle United. Félagið hefur fjórum sinnum orðið meist- ari í Englandi, síðast 1927, og sex sinnum unnið hinn eftirsótta FA bikar, síðast 1955. Það eru því ein- ungis elstu aðdáendur Newcastle sem hafa upplifað sigurstund í helstu keppnum landsins. Nú er það skemmtilegur sóknar- leikur sem hefur vakið upp vonir um meistaratitil eftir 68 ára bið. Framkvæmdastjórinn, Kevin Keeg- an, hefur komið saman sókndjörfu liði sem virðist geta skorað íjögur til fimm mörk hjá hvaða andstæð- ingi sem er. Andy Cole er óstöðv- andi fyrir framan markið og Peter Beardsley sér um að hann hafi úr nógu að moða. Ruel Fox er einn besti kantmaður Englands og Ro- bert Lee er búinn að vinna sig inn í enska landsliðið með frábærum töktum í upphafi móts. I sumar komu tveir útlendingar til að binda saman vörnina, Marc Hottiger frá Sviss og Phillipe Albert frá Belgíu, og þeir hafa ekki síður reynst vel í sóknarleiknum. Helsti veikleiki liðsins er sennilega hversu mörg klaufaleg mörk liðið fær á sig. Tékkinn Pavel Srnicek á það til að gera slæm mistök i markinu og Mike Hooper er engu betri. Félagið reyndi að kaupa bandaríska mark- vörðinn Brad Friedel í sumar og var búið að semja um kaupin en hann félck ekki atvinnuleyfi í Englandi. Nú er liðið að leita að nýjum mark- verði og er Tony Coton, hjá Manc- hester City, sagður efstur á óskalist- anum. Liðið er nú efst í ensku úr- valsdeildinni eftir átta umferðir og treysti stöðu sína enn frekar með Robert Lee skorar nú í hverjum leik og hvert markið öðru glæsi- legra. glæsilegum sigri á Aston Villa um helgina. Framkvæmdastjóri: Kevin Keegan er talinn einn besti stjóri enska boltans. Hann tók við liðinu í febrúar 1992 og lofaði að byggja upp sterkt lið. En eftir að- eins 39 daga sem stjóri hætti hann með liðið þar sem stjórnarmenn vildu ekki leggja peninga í að kaupa menn. Þeim snérist þó hugur og Keegan ákvað að vera áfram. Liðið rétt slapp við fall niður í 2. deild um vorið en ári síðar varð það deildar- meistari í 1. deild. Á fyrsta ári sínu í úrvalsdeildinni varð liðið í þriðja sæti og Keegan var boðinn tíu ára samningur. Keegan var orðaður við Liverpool og enska landsliðið og þess vegna vildi Newcastle tryggja sér hann sem lengst. Hann er mjög virtur í knattspyrnuheiminum eftir að hann var valinn „knattspyrnu- maður Evrópu" tvö ár í röð, 1978 og 1979. Þá var hann leikmaður með Hamburger SV í Þýskalandi en áð- ur háfði hann aflað sér frægðar með Liverpool. Hann snéri aftur heim til Englands og lék með Southamp- ton og Newcastle áður en hann lagði skóna á hilluna. Pavel Srnicek er 26 ára mark- vörður sem Newcastle keypti frá Banik Ostrava í gömlu Tékkóslóv- akíu á tímabilinu 1990 -1991. Hann er stór og sterkur en ekki nógu ör- uggur í markinu og gerir sig oft sekan um klaufaleg mistök. Mike Hooper er þrítugur mark- vörður sem Newcastle keypti frá Liverpool í september 1993 fyrir 550.000 pund. Honum var ætlað að bæta markvörslu liðsins eftir að Srnicek hafði gert nokkur mistök en fljót- lega kom í ljós að hann var lítið skárri. Hooper hóf feril sinn hjá Bristol City en fór til Wrexham á tímabilinu 1984-1985. Það kom mörgum á óvart þegar að Liverpo- ol festi kaup á honum fyrir 60.000 pund ári síðar. Hann stóð oftast í skugganum af Bruce Grobbelaar en fékk þó einstaka tækifæri eftir að Grobbi hafði gert sig sekan um mistök. Mark Hottiger er 26 ára og hægri bakvörður svissneska lands- liðsins. Hann hóf ferilinn hjá Laus- anne og lék lengi sem kantmaður áður en hann var seldur til Sion 1992. Hefur verið fastamaður í landsliðinu um langt skeið og þekktur fýrir hversu sókndjarfúr og þróttmikill hann er. Kevin Keegan vann sem sjónvarpsþulur á HM í sumar og lýsti þar yfir hrifningu sinni á Hottiger. Ekki leið á löngu þar til hann hafði fest kaup á leik- manninum fyrir 600.000 pund. Hann hefur leikið yfir 45 landsleiki fyrir Sviss og hafnaði tilboði frá þýsku liði til að skrifa undir þriggja ára samning við Newcastle. John Beresford er 28 ára vinstri bakvörður sem hóf ferilinn með Manchester City. Þar þótt hann mjög efnilegur og spilaði bæði með drengja- og unglingalandsliði Eng- lands. Eftir þrjú ár sem varamaður fór hann á frjálsri sölu frá félaginu án þess að fá tækifæri með aðallið- inu. Hann spilaði með Barnsley í þrjú ár, ffá 1986 til 1989, en var seld- ur til Portsmouth i mars 1989. Stóru liðin sýndu áhuga á að fá hann til sín sumarið 1992 og Li- verpool samdi um kaup á honum fýrir 700.000 pund. Ekkert varð þó af því þar sem að hann stóðst ekki læknisskoðun. Hann hafði ökkla- brotnað sjö árum áður og brotið hafði ekki gróið rétt saman en aldr- ei hafði hann fundið fyrir óþægind- um. Newcastle var ekki lengi að nýta sér tækifærið og keypti kapp- ann fyrir 650.000 pund. Þessi sókn- djarfi bakvörður hefur komist í enska landsliðshópinn en ekki enn í byrjunarlið. Robbie Elliott er tvítugur vinstri bakvörður sem er uppalinn hjá fé- laginu. Fékk fyrst tækifæri aðeins 17 ára en hefur lítið leikið síðan. Hann kom aftur inn í liðið í fyrra og stóð sig mjög vel. Phillipe Albert er 27 ára belgísk- ur miðvörður og talinn í hópi þeirra bestu í heimi. Newcastle keypti hann í sumar frá Anderlecht fyrir 2,7 milljónir punda eftir að hann stóð sig mjög vel með belg- íska landsliðinu í lokakeppni HM. Það var ekki búist við að hann næði að leika með landsliðinu í sumar eftir að liðband í hné slitnaði síð- asta vetur en hann lét það ekki á sig fá og var einn besti maður liðsins. Spilaði áður með Standard Liege, Charleroi og Mechelen en var seld- ur til Anderlecht fyrir metfé 1992. Það ár var hann valinn knatt- spyrnumaður ársins í Belgíu og oft orðaður við stóru liðin á Italíu. Al- bert hefur gífurlega yfirferð og er ýmist aftasti maður í vörn eða fremsti maður í sókn Newcastle. Hann er einnig mjög skotviss og hefur skorað mörg glæsileg mörk á ferlinum. Darren Peacock er 26 ára mið- vörður sem Newcastle keypti fyrir 2,7 milljónir punda undir lok síð- asta tímabils. Auðþekkjanlegur á velli með mikið og sítt hár og einn traustasti varnarmaður deildarinn- ar. Hóf feril sinn með Newport en fékk lítið að spreyta sig þau þrjú ár sem hann spilaði með liðinu. Var seldur til Hereford sumarið 1988 og stóð sig mjög vel. Gerry Francis, stjóri QPR, gerði sennilega sín bestu kaup þegar hann fjárfesti í Peacock í desember 1990 fyrir 200.000 pund. Annar fótur kapp- ans er styttri en hinn en það kemur ekki að sök og hann bankar nú hressilega á dyr enska landsiiðsins. . -SJeve Howey verður 23 ára í þessum mánuði og er talinn einn efnilegasti miðvörður Englands. Hann er fæddur í Sunderland og var mikill aðdáandi heimaliðsins en þeir eru helstu erkifjendur Newc- astle. Fékk fyrstu tækifæri sín sem framherji hjá Newcastle en var færður aftur í vörnina og hefur blómstrað þar. Howey hefur lítið fengið að leika á þessu tímabili og ekki ólíklegt að hann vilji fara frá félaginu ef það breytist ekki. Manc- hester United hafði áhuga á að fá hann til sín á síðasta tímabili. Barry Venison er þrítugur tengiliður sem hóf ferilinn hjá erki- fjendunum, Sunderland. Þar þótti hann mjög efnilegur sem bakvörð- ur og var í enska U21 árs landslið- inu. Liverpool keypti hann sumarið 1986 og bundu við hann miklar vonir. En eftir eitt ár í byrjunarliði þurfti hann að sætta sig við sæti á bekknum eða í varaliðinu. Það kom nokkuð á óvart þegar Newcastle borgaði 250.000 pund fyrir hann sumarið 1992 en hann varð fljótt lykilmaður í liðinu og var færður í stöðu miðvarðar. Á þessu tímabili var hann síðan færður fram á miðj- una og hefur spilað það vel að hann var valinn í enska landsliðið fyrir skömmu. Hann lék fyrsta landsíeik sinn gegn Bandaríkjunum í síðasta mánuði, nýorðinn þrítugur, og var besti maður liðsins. Robert Lee er 28 ára tengiliður sem er uppalinn hjá Charlton og lék fyrst með liðinu í mars 1984. Lék þá sem kantmaður og þótti mjög efnilegur. Hann var valinn í U21 árs landsliðið og var oft orðaður við stærri félög en vildi aldrei fara. Eftir níu tímabil í liði Charlton var hann seldur til Newcastle í september 1992 fyrir 700.000 pund. Hefur ver- ið færður inn á miðjuna á þessu tímabili og staðið sig frábærlega. Hann skorar grimmt og er nú kom- inn í enska landsliðshópinn. Lee Clark er 21 árs tengiliður og þykir einn sá efnilegasti í enska boltanum, heimamaður sem oft er líkt við Paul Gascoigne en líkar það heldur illa. Hann er mjög leikinn með boltann og spilar vanalega sem sóknartengiliður og stjórnar spil- inu. Hefur leikið með bæði ung- linga- og U21 árs landsliði Englands og er talið að hann verði kominn í A-landsliðið innan skamms. Clark hefur verið meiddur í upphafi þessa tímabils en er búinn að ná sér og byrjaður að leika að nýju. Steve Watson er tvítugur tengi- liður sem hefur leikið með aðallið- inu í fjögur ár. Hann var aðeins sextán ára og níu mánaða þegar hann lék sinn fyrsta deildarleik, á nýársdag 1991. Watson var talinn eitt mesta efni sem Newcastle hafði alið af sér og hann var aðeins 17 ára þegar liðinu var boðin ein milljón punda fyrir piltinn. Þetta steig hon- um til höfuðs og frammistaða hans á vellinum var ekki sem fyrr. Ossie Ardiles, þáverandi stjóri Newcastle, færði hann í stöðu hægri bakvarðar og hjálpaði honum að ná sér á strik að nýju. Watson er nú farinn að spila á miðjunni að nýju og hefur staðið sig vel það sem af er þessu tímabili. Paul Bracewell er 32 ára tengi- liður sem leikur sennilega ekkert með Newcastle á þessu tímabili vegna meiðsla. Nicos Papavasiliou er 24 ára tengiliður og landsliðsmaður frá Kýpur. Newcastle borgaði OFI Creta 125.000 pund fýrir hann sum- arið 1993 og hann stóð sig vel í upp- hafi síðasta tímabils. Hann datt þó út úr liðinu þegar líða tók á vetur- inn. Leikinn og skemmtilegur leik- maður sem geldur fyrir það að það eru fjórir útlendingar hjá félaginu. Ruel Fox er 26 ára hægri kant- maður sem keyptur var frá Nor- wich fyrir 2,25 milljónir punda í febrúar á þessu ári. Hann er uppal- inn í Norwich og kom fyrst inn í aðalliðið á tímabilinu 1986-1987. Hann átti þó erfitt með að festa sig í sessi og það var ekki fyrr en 1990 að hann fór að leika reglulega. Hefur sýnt að hann er einn besti kant- maður landsins og háværar raddir sem vilja hann í enska landsliðið. Fox hefur byrjað mjög vel á þessu tímabili og ósjaldan hefur hann leikið bakverði andstæðinganna grátt. Scott Sellers er 28 ára vinstri kantmaður sem hóf feril sinn með Leeds fyrir rúmum tíu árum. Þeir veittu honum frjálsa sölu sumarið 1986 og lá leið hans þá til Black- burn. Þar var hann fastamaður í liðinu í sex ár og hjálpaði því upp í úrvalsdeildina á ný vorið 1992. Le- eds þurfti að borga 950.000 pund til að fá hann aftur í sínar raðir í júní 1992 en aftur töldu þeir sig ekki hafa not fyrir hann. Eftir aðeins sjö deildarleiki var hann seldur til Newcastle í mars 1993 fyrir 700.000 Barry Venison er kominn í enska landsliðið og leikur sem aldrei fyrr. pund. Peter Beardsley er 33 ára tann- laus framherji sem stendur sig ávallt vel. Newcastle taldi hann ekki eiga framtíð fyrir sér þegar hann var unglingur og hafnaði honum eftir reynslutíma. Effir að hafa unn- ið við að sópa verksmiðjugólf um tíma gaf Caríisle í 3. deildinni hon- um tækifæri og þar spilaði hann frá 1979 til 1981. Þaðan íá leið hans til Vancouver Whitecaps í Kanada þar sem hann vakti athygli Manchester United í æfmgaleik. United fékk hann til sín sumarið 1982 en taldi ekki þess virði að kaupa hann þar sem þeim þótti Mark Hughes það efnilegur að eklci væri þörf fýrir Be- ardsley. Newcastle sá hins vegar hverju þeir höfðu misst af og borg- uðu 400.000 pund fyrir hann ári síðar. Þar lék hann i framlínunni ásamt Kevin Keegan og Chris Waddle og liðið varð deildarmeist- ari í 2. deild 1984. Eftir fjögur ár hjá félaginu var hann seldur fýrir met- fé, tæpar tvær milljónir punda til Liverpool. Sam- starf hans við John Barnes var einstakt og hann varð meistari með liðinu 1988 og 1990 en þegar illa gekk var honum oftast kennt um og settur út úr liðinu. Nágrann- arnir í Everton borguðu að- eins 900.000 pund fyrir hann sumarið 1991 og þar sýndi hann að hann var enn á meðal bestu manna lands- ins. Þegar Newcastle kom Philippe Albert belgíski varnar- maðurinn hefur tekist vel að binda saman vörn Newcastle- liðsins. aftur upp í úrvalsdeildina var Be- ardsley efstur á óskalistanum hjá Keegan og hann fékk sinn mann. Newcastle borgaði 1,5 milljónir punda fýrir að fá hann aftur síðasta sumar og er hann lykilmaður í vel- gengni liðsins. Andy Cole er 22 ára og sennilega mesti markaskorari enska boltans í dag. Arsenal kom auga á hann í knattspyrnuskóla enska knatt- spyrnusambandsins í Lilleshall og fékk hann í sínar raðir. Hann komst þó lítið áleiðis þar og þótti lítið spennandi að leika í varalið- inu. Hann íhugaði að hætta í knatt- spyrnu þegar hann fékk ekki tæki- færi með aðalliðinu og var jafnvel að hugsa um að fylgja Sigurði Jóns- syni til íslands á sínum tíma og leika með lA. Ekkert varð þó af því og eftir aðeins einn deildarleik með Arsenal var hann lánaður til Ful- ham og Bristol City þar sem hann var fljótur að sýna hvers hann er megnugur. Bristol City keypti hann fyrir 500.000 pund sumarið 1992 og eftir aðeins 29 leiki og tólf mörk var hann seldur til Newcastle í mars 1993 fyrir 1.750.000 pund. Á þeim tíma var það hæsta upphæð sem Newcastle hafði borgað fyrir leik- mann og hefur hann endurgoldið það ríkulega. Hann fann sig strax mjög vel og skoraði tólf mörk í tólf leikjum og hjálpaði liðinu upp í hóp þeirra bestu. Á sínu fyrsta tímabili í úrvalsdeildinni skoraði hann 34 mörk í 40 leikjum og varð markahæstur. Paul Kitson er 23 ára framherji sem hóf ferilinn hjá Leicester og vakti fljótt mikla athygli. Hann var oft kallaður hinn nýi Gary Lineker og Liverpool og Arsenal höfðu mikinn áhuga á að fá hann til sín. Það kom því nokkuð á óvart þegar að hann vildi fara til Derby í 1. deildinni I mars 1992 fyrir 1,3 millj- ónir punda. Eftir rúm tvö ár með Derby gafst hann upp á að bíða eft- ir að liðið kæmist upp og fyrir rúmri viku var hann seldur til Newcastle fyrir 2,25 milljónir punda. Malcolm Allen er 27 ára fram- herji sem hóf ferilinn hjá Watford. Eftir stutta dvöl í láni hjá Aston Villa var hann seldur til Norwich sumarið 1988. Tvö mögur ár þar áður en hann fór til Millwall í mars 1989. Newcastle keypti hann fyrir síðasta tímabil og hann byrjaði af krafti en datt út úr liðinu þegar líða tók á tímabilið.B Breytingar frá því 1993-1994 Komnir Marc Hottiger frá Sion í Sviss Steve Guppy frá Wycombe Jason Drysdale frá Watford Phillipe Albert frá Anderlecht Farnir Matthew Appelby til Darlington Alan Armstrong til Stockport Mark Robinson til Swindon MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994 MORGUNPÓSTURINN SPORT 41 Orð í eyra ...fá forsvarsmenn íslenskrar knatt- spyrnu fyrir að hafa íslenska keppn- istímabilið alltof stutt. Eftir ótrúlega langan og strangan undirbúnings- tíma stendur keppnistímabilið að- eins yfir í fjóra mánuði. Tímabilið er rétt byrjað þegar kemur að enda og aftur er tekið til við undirbúning. Auðvitað má öllum Ijóst vera að brýn þörf er á yfirbyggðri höll sem hýst gæti knattspyrnuvöll. Þetta er forgangsatriði fyrir vinsælustu íþróttagrein landsins og hvert ár sem líður án frekari framkvæmda er skref aftur á við. En yfirbyggt hús er ekki allt. Auð- veldlega væri hægt að fjölga leikj- um, spila með minna bili, byrja fyrr á vorin og enda seinna á haustin. Jafnvel þótt leika yrði einhverja leiki á möl þá hlýtur öllum að vera Ijóst að betra er að leika á möl en að leika alls ekki. Spurningin er hvort fjölga eigi í 1. deild að hætti körfu- og handbolta, eða hvort taka eigi upp annað mót og keppa sjálfstætt í því, eins og Engiendingar gera með sinni deildabikarkeppni. Hver niðurstaðan verður er ekki gott að segja en fulljóst er að breytinga er þörf. Nágrannar okkar á Norður- löndunum þjóta áfram hvað varðar tækni og spil vegna bættrar að- stöðu heima fyrir. Lið Bodö Glimt frá Norður-Noregi sigrar ítalska stórliðið Sampdoria með glæsileg- um leik í Evrópukeppninni. Sem væri ekki frétt út af fyrir sig nema fyrir þær sakir að fyrir fáum árum lék norska liðið í neðri deildum heima fyrir, en með stórbættri aðstöðu og yfirbyggðum velli er liðið nú komið í fremstu röð. Þetta er vert eftirbreytni. Klapp á öxlina ísland mætir Grikklandi í Evrópukeppni kvenna í dag: „Förum í leikinn til þess að sigra“ - segir Logi Ólafsson, þjátfari íslenska liðsms ,Við ætlum að hnldn okkv.r vift n>u leikaöferöina. nö sækja j hófurn boltann og vorjnsl án --e r.i*lckn eíftlnmmíir Hflf'l nttkkilð ... fer að þessu sinni til Loga Olafssonar og KSI. Þau undur og stórmerki hafa nú átt sér stað í herbúðum íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu að kúvent hefur verið í stefnu og taktík. Algjörlega nýtt hljóð virðist vera komið í strokkinn, sem hefur nú begar sannað ágæti sitt með glæsi- legum 6:1 -sigri á Grikkjum. Ættu önnur sambönd og jafnvel félagslið að hasla sér völl eftir þessari nýju og árangursríku formúlu sem KSÍ virðist vera brautryðjandi í, en hún er, eins og fram kemur í risafyrir- sögn viðtals vlð Loga Ólafsson landsliðsþjálfara í DV\ Förum i leik- inn til þess að sigra. Um leið og við þökkum kærlega fyr- ir að Logi skyldi auðvelda okkur vinnuna með því að taka þetta sér- staklega fram minnúm við á að oft eru einfaldir hlutir lengi að skila sér og í raun grátlegt að fyrirrennarar Loga skuli ekki hafa lagt áherslu á þetta atriði fyrr. Og Logi fylgir stefn- unni vel eftir með þessum glæsilegu ummælum: „Við ætlum að halda okkur við sömu leikaðferðina (þessa nýju); að sækja þegar við höfum boltann og verjast án hans.“ Segjast verður eins og er að með menn eins og Loga í brúnni er ekki ástæða til að örvænta um framhald- ið. Til hamingju stúlkur! ■ GSM farsímar frá BOSCH # n | 0 0 n © íS3 & j ® i jffí'. bræpurnir BJQRMSSQNHF Uagmúla 9 - Sími 38825 Ath. Ekið inn frá Háaleitisbraut Tæpt ár í nýtt íþróttahús Fylkis Borgin sam- þykkirábyiyð Borgarráð samþykkti í vikunni að gangast í ábyrgð fyrir skulda- bréfum að jafnvirði íoo milljóna króna vegna framkvæmda knatt- spyrnufélagsins Fylkis í Árbænum. Framkvæmdum við húsið miðar vel og er stefnt að því að vígja það við hátíðlega athöfn 2. september 1995 klukkan tvö. „Það er verið að flýta fram- kvæmdum,“ segir Jóhannes Óli Garðarsson, formaður Fylkis, að- spurður um framkvæmdirnar. „Borgin er í raun aðeins að ábyrgj- ast eigin lán því eftir tvö og þrjú ár kemur til styrkur frá henni vegna framkvæmdanna. Sala á skulda- bréfunum gengur mjög vel, enda um góða fjárfestingu að ræða fyrir lífeyrissjóðina og fleiri fjársterka aðila.“ Árbærinn hefur lengi verið af- skiptur varðandi íþróttamannvirki og segir Jóhannes Óli að loks sé biðin á enda. „Við höfum notast við lítinn sal í 25 ár og gátum ekki beðið lengur. Nú fáum við 4.000 fermetra hús með fullkominni að- stöðu til keppni og félagsstarfs og það ætti að geta orðið gífurleg lyfti- stöng fyrir félagið.“ Samið hefur verið við skólayfir- völd í Árbæjarskóla um að húsið verði nýtt fýrir leikfimikennslu á daginn næstu tíu árin.B P með þaki yfir------ merkir bílastæðahús P án þaks merkir útistaeði- g Ráðhús Tjarnargata Mundu eftir smámyntinni - það margborgar sig. Kort P-kort er þægilegur greiðslumáti - það gildir í alla miðamæla í Reykjavík og þú getur hlaðið það aftur og aftur... Flóknani er þetta ekkl -faðu þér stæðl BÍLASTÆÐASJÓÐUR Bílastceöi fyrir alla Bílastaeðasjóður Re/kjavíkur er að koma upp vegvísakerfi að bílastæðum og bílastæðahúsum borgarinnar. Það er liður í aðgerðum til að auðvelda vegfarendum sem erindi eiga í miðbæinn að finna stystu leið að bílastæði. Nýju skiltin eru tvenns konar: Skilti með bláu letri sem vísa á ákveðin svæði í miðbænum Skilti með rauðu letri sem vísa á bílastæðahús eða stór útistæði Bílastæðahúsin eru t þægilegasti kosturinn. 1 Þau eru á eftirfarandi stöðum: • T raðarkoti a n Rvk- við Hverfisgötu • Kolaportinu | T “ Gamla höfn 1 Vitatorgi

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.