Helgarpósturinn - 03.10.1994, Blaðsíða 32
32
MORGUNPÓSTURINN BÍLAR
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994
Bájub)ý
Mazda Engar breytingar
verða á Mözdu, en verðið á þrennra
dyra 323 er kr. 1.065.000 og fernra
dyra kr. 1.149.000, sem er lítil
hækkun frá síðasta ári. ■
Nissan 1995-zárgerðin af
Nissan Primera verður með líknar-
belg sem staðalbúnað og boðið
verður upp á nýja liti, verð frá kr.
1.696.000.
Nissan Micra, Terrano II, Patrol og
Sunny verða óbreyttir en litaúrval
meira.
Nissan Terrano verður með breytt
mælaborð og aukna hljóðeinangr-
un. ■
Astra með nýju grilli,
hliðánistum og áklæði, verð frá kr.
1.128.000. Opel Vectra verður fá-
anleg standard með velúráklæði,
verð frá kr. 1.595.000.
Opel Omega kemur gjörbreyttur og
nýr frá grunni, verð frá kr.
2.395.000.
Opel Corsa kom gjörbreytt í fyrra
en verður óbreytt í ár, verð frá kr.
1.049.000. ■
Peugeot Nokkrar breyt-
ingar verða á Peugeot 306 þó að
hann hafi komið nýr í fyrra. Meiri
búnaður fylgir honum og verðið er
lægra. Peugeot 306 fæst frá
1.088.000 upp í 1.590.000. Bílinn er
einnig hægt að fá með 160 ha. vél
og öllum hugsanlegum aukabún-
aði. ■
Peugeot 405 kemur nú
aftur í nýrri útgáfu með nýrri vél,
innréttingum o.fl. Jöfur hefur m.a.s.
tekið díselbíla inn á lager, enda bíll-
inn í fullri leigubílsstærð. Hægt er
því að velja um 1,6,1,8 eða 2,0 lítra
bensínvél með beinskiptingu eða
sjálfskiptingu, eða 1,9 lítra díselvél.
Væntanlegar eru svo innan
skamms skutbílsútgáfur af öllum
þessum gerðum, þ.á m sendibíll.
Allar aðrar gerðir Peugeot 405 má
svo fá með skömmum fyrirvara,
þ.m.t. 220 ha. fjórhjóladrifna út-
gáfu. ■
Toyotu RAV 4
á að sameina kosti
jeppa og fólksbíls
RAV 4 GXi er nýr bíll úr röðum
Toyota sem er ætlað að sameina
kosti jeppa og fólksbíls.
Hann hefur aksturseiginleika
fólksbíls en um leið aksturseigin-
leika jeppa með sítengdu aldrifi og
slaglangri sjálfstæðri fjöðrun á öll-
um hjólum.
Staðalbúnaður RAV 4 er meðal
annars tvær sóllúgur sem hægt er
að taka úr, vökva- og veltistýri,
samlæsing á hurðum, rafdrifnar
rúður og speglar, stafræn klukka,
50/50-aftursæti sem hægt er að
halla aftur eða leggja saman og 129
ha., 2000 rúmsentimetra, 16 ventla
vél með beinni innsprautun.
Toyota kynnir bílinn um þessar
mundir en sala á honum hefst eftir
áramót. Þó eru komnir til landsins
þrír bílar sem hægt er að fá að
reynsluaka hjá umboðinu.
Bíllinn kemur til með að kosta
kr. 2.289.000. ■
Óli H. Þórðarson,
framkvæmdastióri Umferðarráðs
Volvo 740, argerð 1990
Er hœgt að sjá útpersónuleika
manna á því hvemig bíl þeir aka?
„Já, ég hugsa að það sé oft hægt
að lesa allmikið út úr því. Hvað
mig sjálfan varðar býst ég við að
það séu hugrenningar mínar til
öryggis en ekki tilviljun sem gerir
það að verkum að ég ek um á Vol-
vo, sem ásamt öðrum bílum er
þekktur fyrir að vera traustur og
öruggur. En þó að menn keyri um
á sterkum og öruggum bílum
verða þeir að passa sig á að það
komi ekki niður á öðrum vegfar-
endum því þeir byrja að valta yfir
þá.“
Hvernig lýsirðu karakter bíls-
ins?
„Hann er traustur og áreiðan-
legur. Stundum dálítið þungur í
taumi og stirðari en aðrir, en fýrst
og fremst öruggur.“
Hvað skiptir mestu máli við
bíl?
„Að hann sé öruggur og þægi-
legur og komi manni til skila. Það
er mikilvægt að hann bili ekki oft
og hægt sé að reiða sig á hann.“
Hefurðu aldrei verið með bíla-
dellu?
„Ég átti mér þann draum þegar
ég var yngri að eignast Volkswag-
en- bjöllu. Sá draumur rættist þó
aldrei, en ég held að það sé óhætt
að segja að ég hafi aldrei verið
með bíladellu eða haft þann metn-
að að eiga flottasta bílinn í göt-
unni.“
Hefurðu einhvem tíma lent í
árekstri?
„Já, ég lenti í smávægilegu um-
ferðaróhappi fyrir u.þ.b. 25-30 ár-
um. Ég var staddur á gatnamótum
og var að fara að taka hægri
beygju og hélt að bíllinn sem beið
fyrir framan mig væri farinn. Svo
Peugeot 205 er væntan-
legur og verður með stórri vél, raf-
rúðum, samlæsingu með fjarstýr-
ingu, topplúgu o.fl. Verð bílsins
verður um 980.000 kr. ■
Peugeot 106 Rallye er
væntanlegur um næstu mánaða-
mót. Lítill og snaggaralegur bíll sem
kostar 1.090.000 kr. ■
Óskar Björn Óskarsson
afgreiðslumaður
Skoda 120 LS, árgerð 1982
„Ég keypti bílinn 3. mars 1993 af
afa mínum, sem keypti hann nýjan
á sínum tíma. Ég er búinn að
skipta um startara og kælikerfi, svo
setti ég í hann nýja pústgrein og
heddpakkningu.“
Vekur hann athygli?
„Að sjálfsögðu.
Að vísu sjá
menn bara
blossa,
því
bíllinner eins og elding sem kemur
og fer. Þetta er skruggukerra."
Hvað er mikilvœgast í sam-
bandi við bíla?
„Að leggja þeim þar sem fólk sér
þá. Og það er lítið mál á mínum,
því það kemst ekki nokkur maður
hjá því að sjá hann.“
Er hœgt að segja til um persónu-
leika manna útfrá því hvernig btl
þeir eiga?
„Ekki á mínum bíl. En á sumum
bílum er það eflaust hægt. Til
dæmis þegar menn keyra um á
fínni merkjum og hafa bílana
sína alltaf stífbónaða, -
það getur verið merki
um snobb.“ ■
FramtíBarbíHinn?
var þó ekki og þegar ég ók af stað
lenti ég aftan á honum. Það
meiddist enginn sem betur fer. Ég
hef aldrei orðið valdur að meiðsl-
um annarra í umferðinni og það
tel ég mikla guðsblessun.“
Ertu ánœgður með umferðar-
menninguna á íslandi í dag?
„Ég verð náttúrlega aldrei full-
komlega sáttur, - þá gæti ég nú
bara pakkað saman og farið. En
umferðin á íslandi hefur lagast
mikið enda er hópur fólks hjá
Umferðarráði og annars staðar að
láta gott af sér leiða í því sam-
bandi.“
Nú hefur stundum verið talað
um að það megi sjá einkenni
þjóða útfrá umferðarmenningu
þeirra, ertu sammála þessu?
„Já, ég held að það sé eitthvað
til í þessu. Það sést best þegar litið
er til landa í Suður-Evrópu þar
sem fólk er mjög örgeðja. Þar er
mikill hamagangur, flaut og læti í
umferðinni.
Islendingar eru aftur frekar lok-
aðir og feimnir og í umferðinni á
íslandi mætti fólk vera tillitssam-
ara; það nennir ekki að bíða. Þetta
sést einnig á að það er engin biðr-
aðamenning á íslandi og börn
þurfa stundum að gjalda smæðar
sinnar. Hugsanlega eru Islending-
ar feimnir við að sýna öðrum til-
litssemi.“ ■
Bílaframleiðendur hafa síðustu
árin keppst við að gera bíla
sína sparneytnari og umhverfis-
vænni. Alvöru bíladellumenn
labba með tárin í augunum út
af hverri bílasýningunni á fætur
annarri þar sem kynntir eru litlir,
hentugir, vindmótstöðulausir,
sparneytnir, umhverfisvænir og
öruggir smábílar, í einu orði
sagt kerlingabílar.
Þessir sömu bíladellumenn
sakna gömlu góðu daganna
þegar bílarnir voru stórir og
eyddu alveg hreint hellingi af
bensíni með tilheyrandi spóli og
látum; þegar bílar voru notaðir
til að menn gætu verið töff en
ekki til að komast á milli staða
með sem ódýrustum og örugg-
ustum hætti.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
martröð bíladellumannsins,
hinn fullkomna framtíðarbíl:
Fullkomlega vindmótstöðulaus,
mjög öruggur því óliklegt er að
tveir svona fyrirferðarlitlir bílar
hitti hvor á annan, og hann
gengur ekki fyrir bensíni heldur
er hann trekktur upp og af þeim
sökum afskaplega sparneytinn
og umhverfisvænn. ■
Rúnar
JÚLÍUSSON
tónlistarmaður:
„Ég hef nú áttýmsa bíla í gegnum tíðina, svona minni spámenn
í bílabransanum, nokkra japanska eins og Mözdur og svo Cortinur
og einn ekta sænskan Volvo, mér fannst hann nú fullstífur, eins og
þeir eiga til að vera þarna í Svíþjóð.
En bílinn, sem ég keyrí um á í dag, hef ég átt langlengst, ein
fjórtán ár. Þetta er 1980-módelið af Oldsmobile-skutvagni með
alvöru átta cylindra vél og sándið sem hún gefur er eins og fínasta
músík. Skutvagninn er keyrður 500-600 þúsund kílómetra
og hentar mér mjög vel þar sem ég þarf oft að ferðast með
mikið af græjum. Þetta er besti bíll sem ég hef átt og ég ætla að
fá mér annan eins þegar ég sel þennan.
Ég vil hafa bílana ameríska með rafmagni í öllu, sjálfskipta og
með 8 cylyndra vél sem hljómar vel. Eins er ég hrifinn af gömlu og
kraftmiklu bílunum. Að vísu hef ég aldrei átt Benz eða BMW, en
þeir heilla mig eins og allt sem er vel byggt. “