Helgarpósturinn - 03.10.1994, Blaðsíða 45

Helgarpósturinn - 03.10.1994, Blaðsíða 45
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER'19^1 MORGUNPÓSTURINN SPORT 45 Besti dómarínn Spjaldagjafir dómaranna Bragi duglegastur en ótrúlega rólegt hjá Jóni Sé litið yfir sumarið og kannað hvaða dómarar lenda í erfiðustu og grófustu leikjunum sést greinilega að nokkrir dómarar skera sig veru- lega úr hvað fjölda varðar. Norðanmaðurinn Bragi Berg- mann hefur verið iðinn við kolann í sumar og alls hefur hann veitt 51 áminningu auk fjögurra brottvís- ana. Þetta er nokkuð mikið hjá Braga, jafnvel þótt haft sé í huga að ásamt Guðmundi Stefáni Marías- syni dæmdi Bragi mest allra í fyrstu deild, alls ellefu leiki. Bragi hefur skýr- ingar á þessu. „Ég held að sú staðreynd að ég er milliríkja- dómari skipti máli í þessu sambandi. Milliríkjadómarar lenda oft í erfiðari leikjum hér heima, sérstaklega í sein- ustu umferðunum, og stundum hefur maður þurft að fara tíu sinnum í vasann í einum leik. Ég held að þetta hafi að mörgu leyti skilað sér í drengilegri knattspyrnu og þá er auðvitað árangrinum náð. Oft er það þannig að sum brotin eru þess eðlis að jaðrar við brottvís- un og þess vegna er tala áminninga svo há sem raun ber vitni. Auðvitað gerum við dómararnir mistök eins og aðrir en samt verða liðin að hugsa sinn gang. Þeir sem horfðu á HM í sumar vita hvað er í vændum næsta sumar og ef menn fara ekki að róa sig eru litlar líkur á að spjöldum fækki.“ Stjörnumaðurinn Jón Sigur- jónsson hlýtur hins vegar titilinn spjaldafæsti dómari landsins. Jón, sem dæmdi sitt fyrsta tímabil í sumar, dæmdi alls fjóra leiki og alls veitti hann fjórar áminningar í leikjunum, eða eina í hverjum leik. Þetta er afar athyglisvert í ljósi þess að þróunin hefur verið sú að spjöldum fer fjölgandi almennt og ekki getur eitt spjald í leik talist mikið. Ekki eru miklar líkur á því að Jón hafi lent á allra rólegustu leikjum deildarinnar, þannig að skýringa er þörf. Jón var á öðru máli er blaðamað- ur Morgunpóstsins spurði hann álits: „Ég held ég hafi einfaldlega lent á rólegri leikjunum í sumar. Mér finnst ég eltki hafa leyft of grófan leik og finnst ég hafa haft góð tök á leikjunum, þannig að ég hef ekki talið ástæðu til að lyfta fleiri spjöldum. Annars hefur mér fundist þetta rnjög svipað og und- anfarin ár hvað varðar gæði knatt- spyrnunnar og dómgæslunnar.“B Fæstmörk Þórður Þórðarson, markvörður ÍA, fékk á sig fæst mörk í sumar, aðeins ellefu. Þessi ungi og efnilegi Skagamaður sýndi fádæma öryggi milli stanganna í sumar og á stóran þátt í velgengni Skagamanna. „- Þetta er fyrst og fremst sterk liðs- heild og geysilega öflug vörn sem verður til þess að við fáum ekki fleiri mörk á okkur en raun ber vitni, en auðvitað leggur maður alltaf sjálfur eitthvað af mörkum.“ Aðspurður um sumarið sagði hann að meistararnir hefðu ekki spilað eins góðan fótbolta og í fyrrasumar: „Við höfðum talsverða yfirburði í fyrra en í sumar spiluðum við svip- að og hin liðin þó að við hefðum töluvert forskot í stigatöflunni rnegnið af mótinu. Við stefnum að sjálfsögðu að því að verja titilinn og vinna hann fjórða árið í röð næsta sumar.“ ■ Kristinn Jak- obsson kom út sem besti dómari sumarsins í könn- un sem MORGUN- PÓSTURINN Stóð fyrir í september. Kristinn, sem var að dæma fyrstu leiki sína í fyrstu deildinni, þótti sýna jafna dómgæslu í sumar og var alveg laus við að setja sjálfan sig í aðalhlutverk í leikjunum sem hann dæmdi. I samtali við Morgunpóstinn sagðist Kristinn vera mjög ánægður með afstaðna knattspyrnuvertíð: ,,- Þetta hefur verið alveg einstaklega gaman og það er ekki hægt að segja annað en dæmið hafi gengið upp hvað mig varðar. Að vísu hefur oft verið spilaður betri fótbolti en í sumar, en það held ég að sé að hluta til vegna aukinnar pressu á leikmenn og þjálfara." Aðspurður unt gæði dómgæsl- unnar í sumar sagði Kristinn: „Mér finnst umfjöllunin jákvæð og ég tel að öll gagnrýni eigi rétt á sér, hvort sem um leikmenn, þjálfara eða dómara er að ræða. Ef dómarar fá slæma umfjöllun er ekkert að gera nema líta í eigin barm og reyna að gera betur. Nú er að verða smákyn- slóðabreyting; eldri og reyndari dómarar eru að hætta og yngri dómarar farnir að banka á dyrnar. Nú stendur til að fækka dómurum úr tólf í tíu og það finnst mér mjög jákvæð breyting. Þannig fá starf- andi dómarar fleiri leiki að dæma, sem ætti að auka samræmi í dóm- gæslu, og það er af hinu góða.“ Sigurður Guðmundsson Stjörnumaður hlýtur þann vafa- sama heiður að vera sá markvörður sem fékk á sig flest mörk í sumar. „Við misstum lykilmenn í meiðsl í byrjun móts og það setti óneitan- lega stórt strik í reikninginn. Vörn- in, sem var okkar sterkasta hlið í fyrra, var veikasti punkturinn í sumar og við fengum á okkur fá- ránlega klaufaleg mörk. Á undir- búningstímabilinu töpuðum við ekki leik og þarafleiðandi gerðum við okkur kannski of rniklar vonir. Við byrjuðum mótið illa og menn misstu hreinlega trúna á sjálfa sig. Það er hins vegar á hreinu að við stöldrum stutt við í annarri deild- inni og takmarkið að komast upp næsta sumar.“ -BIH Eyjamenn grófastir Eyjamenn hafa mikla yfirburði yfir önnur lið hvað varðar fjölda spjalda á nýliðnu Islandsmóti. Liðið hlaut alls 49 áminningar auk fjögurra rauðra spjalda. Þar að auki hefur iiðið innan sinna vé- banda grófasta leikmann deildarinnar, miðju- manninn Nökkva Sveinsson. Hann komst oftast aljra í svörtu bókina hjá dómurunum, átta sinnum með áminningu og einu sinni með rautt spjald. ■ Snorri Rútsson, þjálfari liðsins, einn fárra þjálf- ara sem hlutu ániinningu, hefur þetta að segja um frammistöðu dómaranna: „Ég er virkilega ósáttur við þennan titil. Auðvitað hafa mínir menn nokk- ur klaufabrot á samviskunni, en þetta hefur ekki náð nokkurri átt. ■ Meðalmarkasumar Fótboltasumrin eru afar misjöfn og margar leiðir til þess að leggja mat á slíkt. Auðveldasta og algengasta aðferðin er einfaldlega að telja mörkin og þegar það er gert kemur í ljós að þetta sumar var ekki nema í meðallagi. Það stóðst engan samanburð við fótboltaveisluna í fyrra, en var jafnframt langt frá hörmunginni 1989. 350 mörk------------------- 300 250 é 200 | '83 ’84 ’85 '86 '87 ’88 ’89 ’90 ’91 ’92 ’93 '94 Markamínútur liðanna Að neðan sést hvenær einstök lið í Trópídeildinni voru í mestu stuði. Hver súla sýnir kortér í leiknum, sú fremsta hið fyrsta og svo koll af kolli til síðustu súlu, sem táknar síðasta kortérið og þann tíma, sem leikið var frarn yfir venjulegan leiktíma. 15 mörk-- 12 FH IBK Valur KR Fram IBV UBK Þór Stjarnan Flestar áminningan Spjöld G R Þjálfarar: Ingi Björn, UBK 1 Kristinn Björnsson, Val 1 Snorri Rútsson, ÍBV 1 Markmenn: Hajrudin Kardaklíja, UBK 2 1 Kristján Finnbogason, KR 1 1 Stefán Arnarson, FH 3 0 Ólafur Pétursson, Þór 0 1 Varnarmenn: Heimir Hallgrímsson, ÍBV 5 2 Júlíus ÞórTryggvason, Þór 5 2 Davíð Garðarson, Val 7 1 Helgi Björgvinsson, Fram 5 0 Zoran Miljkovic, ÍA 5 0 Goran Micic, Stjörnunni 7 1 Friðrik Sæbjörnsson, ÍBV 6 0 Miðjumenn: Nökkvi Sveinsson, ÍBV 8 1 Drazen Podunavac, UBK 7 1 Baldur Bjarnason, 6 1 Heimir Guðjónsson, KR 6 1 Þórir Ólafsson, ÍBV, 7 0 Sigurður Jónsson, ÍA 5 0 Rastislav Lazorik, UBK 5 0 Framherjar: Tómas Ingi Tómasson, KR 3 0 Mihajlo Bibercic, ÍA 3 0 Willum Þór Þórsson, UBK 3 0 Lokastaða liðanna Skoruð fengin Stig ÍA 35 11 39 FH 26 16 36 ÍBK 36 24 31 Valur 25 25 28 KR 28 20 27 Fram 27 30 20 UBK 23 35 20 ÍBV 22 29 19 Þór 27 : : 38 14 Stjarnan 18 : : 39 11 Flest mörk skoruð: ÍBK 36 Flest mörk fengin: Stjarnan: 39 Fæst mörk skoruð: Stjarnan: 78 Fæst mörk fengin: ÍA: 11 Áminningar liðanna Spjöld G R ÍBV KR Stjarnan (A FH Valur UBK ÞÓR ÍBK Fram 49 4 38 2 37 2 36 0 28 4 30 3 32 1 26 4 23 1 24 0 ÍSLENSK F0RRI1AÞR0UN OG MICROSOFT SAMSTARF ÞER TIL GÓOA Microsoft Corporation er stærsta hugbúnaðarfyrirtæki heims ásviði einmenningstölva. Það er þekkt fyrir framúrskarandi hugbúnað á borð við MS-DOS, Windows, Word, Excel, Access og Power- Point. Microsoft hefur nýlega útnefnt íslenska forritaþróun hf., stærsta íslenska hugbúnaðarfyritækið á sviði einmenningstölva, sem Microsoft Solution Provider. I því felst að ÍF mun vinna náið með Microsoft að því að bjóða við- skiptavinum sínum bestu lausnir sem völ er á á sviði upplýsinga- tækni. Microsoft Solution Provider er alþjóðleg stöðluð viðurkenning sem veitt er að vandlega athuguðu máli þeim fyrirtækj um sem Micro- soft telur besta samstarfskostinn á hverjum markaði. Kaupendurgeta treyst því að undir merki Microsofi Solution Provider fá þeir bæði staðlaðan hugbúnað Microsoft og þá aðlögun og samþættingu sem þeir óska. Sem Microsofi Solution Provider hefttr íslensk forritaþróun hf. leyfi og stuðning Microsoft til að selja og þjónusta Microsoft hugbúnað hér á landi, sérstaklega á sviði heildarlausna í fyrirtækjum og stofnunum. Meðal annars hefur ÍF nú beinan aðgang að upplýsingasöfnum og tækniþekkinguMicrosoftoggetur þjónað viðskiptavinum sínum milliliðalaust, hvort sem um er að ræða kerfishugbúnað, bókhalds- og viðskiptahugbúnað eða staðlaðan skrifstofuhugbúnað. Microsoft SOLUTION PROVIDER Microsofi Ofifce Á næstu mánuðum er von á mörg- um spennandi nýjungum frá Microsöft. Nefna má nýtt og byltingarkennt Windows™, nýja og enn öflugri útgáfu afWindows NT™ stýrikerfinu, hugbúnað fyrir stjórnun netkerfa og nýjan SQL gagnamiðlara. Þessar nýjungar mun íslensk for- ritaþróun hf. kynna ítarlega á næstu mánuðum. í tilefni af útnefningunni býður íslensk forritaþróun hf. viðskipta- vinum sínum Microsoft Office hugbúnaðarpakkann, sem inni- heldur Microsoft Word, Excel, PowerPointog Mail fauk Access í Office Professional), á sérstöku kynningarverði, kr. 51.953 með VSK. Þetta ótrúlega lága verð er tímabundið og full ástæða til að panta eintak strax. íslenskforritaþróun bf varstofnuð 1983. StarfiinennfyrirUekisins eru nú 30 og starfa allir við þróun og sölu viðskiptahugbúnaðar auk þjónustu við notendur. ÓpusAlít, semframleiddur er bjá ÍF, er latig- | útbreiddastiviðskiptabugbúnaður- | inn á íslandi, með um 1300 not- 1 endur. íslensk forritaþróun hf. Suðurlandsbraut 4 • 108 Reykjavík Sími (91) 881511 • Bréfsími (91) 888728

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.