Helgarpósturinn - 03.10.1994, Blaðsíða 29

Helgarpósturinn - 03.10.1994, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994 MORGUNPÓSTURINN BÍLAR 29 Flosi Ólafsson leikari: „Fyrsti bíllinn sem ég eign- aðist var Volkswagen-bjalla sem ég keypti svo gamlan að ég sá í gegnum gólfið á hon- um. Þetta var áður en mér óx fiskur um hrygg og ég varð auðugur maður. Næst kom ágætis blöðru- Skódi. Svo eignaðist ég gaml- an og bláan Fíat. Eftir það hafa allir mínir bílar verið Subaru. Ég er afskaplega hrifinn af Su- baru og hefátt eina sex slíka, einn tvennra dyra og einn fernra dyra og svo hafa hinir verið station- bílar. Ég er hrifinn af Subaru vegna þess að þeir eru „four wheel drive" og ígamla daga voru þeir næstum eins og jeppar. Ég er ekki alveg nógu ánægður með hversu mikið þeir eru að breytast íhighway- biia, það hentar mér ekki nógu vel því ég bý ísveit. í dag á ég ‘89-módel af Su- baru og þeir segja mér á verk- stæðinu að það sé sterk og góð árgerð. Svo á ég líka Toy- otu Hilux, sem er minn fjalla- bíll. “ ■ Valtýr Björn Valtýsson fÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR: „Ég átti Carinu ‘88 og það var alveg hreint ágætis bíll. Svo keypti ég mér Galant ‘91 EXE. Sá bíll var svona einn með öllu; alveg ofboðslega fal- legur með spes innréttingu, topplúgu og allt. Það er skemmtilegasti bíll sem ég hef átt, enda var hann sérinnflutt- ur. Næst fékk ég mér Carinu ‘93 en líkaði ekki við hana, of mikið veghljóð, svo ég seldi hana og keypti mér Mitsubishi Lancer, og það er bíllinn sem ég á í dag. Draumurinn er að fá sér annan Galant, auðvitað langar mann íjeppa eða Benz en þeir eru bara svo fjandi dýrir. Það er mun praktískara að fá sér einn japanskan með öllu en hráan BMW þar sem maður þarfað rúlla upp rúðunum sjálfur. “ ■ Fyrsta kínverska bflafyrirtækið Kínverjar hafa hingað til látið sér nægja reiðhjól til að komast á milli staða, enda væri það ekkert grín ef sá milljarður manna sem þar býr tæki upp á að ferðast um á bílum. Menn myndu líklega leggja af stað ungir að ár- um í vinnuna einn daginn, en lenda svo í hrikalegri um- ferðarteppu sem þeir losnuðu ekki úr fyrr en mörgum árum seinna, gráhærðir og biótandi því aö hafa nokk- urn tíma lagt frá sér reiðhjólið. Kínverjar eru þó um þessar mundir að eignast sína fyrstu bílaverksmiðju. Hún ber það virðulega nafn Beij- ing Golden Thunder Classic Motors og mun framleiða dýra lúxusbíla í ætt við Merzedes Bens 300 SL og Austin Healy 3000. Kínverjar þurfa líklega ekki að hafa áhyggjur af því að umferðin aukist og það að komast til og frá vinnu verði blóðug barátta, því laun í landinu eru mjög lág og á fárra færri að eignast lúxusbíl. ■ Við æðsta Stýri á Islandi Þegar fólk mætir forsetabílnum lítur það aftur í bílinn og athugar hvort þar sitji nokkuð forsetinn. Fáir taka hins vegar eftir mannin- um við stýrið, sá heitir Þorvaldur Ragnarsson og hefur verið einka- bílstjóri forseta íslands undanfarin fimm ár. „Ég byrjaði sem bílstjóri fyrir ráðherra, og keyrði bæði þá Magn- ús Kjartansson og Geir Hall- grímsson í ráðherratíð þeirra. Það er töluverður munur á að keyra ráðherra og forsetann. Erillinn er miklu meiri í kringum ráðherrana; þeir eru alltaf á fartinni, en hjá for- setanum eru hlutirnir skipulagðir lengra fram í tímann,“ segir Þor- valdur. Hann segir að starfið felist í fleiru en að keyra forsetann á milli staða og bíða svo í rólegheitunum þess á Guðbergur Guðbergsson, Islandsmeistari í rallíkrossi uuODergur uuöDergsson, isian< Porsche 964, árgerð 1 „Þetta er 964-týpan, þó að þessi gerð sé yfirleitt bara kölluð 911. Ég keypti hann nýjan 1990 en er samt bú- inn að bæta við hann 30 hestöflum, — ég læt aldrei neitt óhreyft." Vekur hanti mikla athygli? „Ég er nú eiginlega hættur að taka eftir því enda búinn að eiga svona bíla það lengi. En það er þannig með þennan bíl að annað- hvort finnst fólki hann mjög eða þá hræðilega ljótur. Hann í úrulega ekki venjulegur í útliti og því auðvelt að skilja þessa ákveðnu af- stöðu til hans.“ Hvernig mundirðu lýsa karakter bílsins? „Hann er svona eins og lítill froskur sem manni þykir vænt um. Þá, sem hafa einu sinni eignast Porsche, langar alltaf í annan; þetta verður hálfgerð sýki eða jafn- vel trúarbrögð. Enda er það þannig að Por- sche-bílarnir hérna heima ganga kaupum og sölum innan ákveðins hóps manna.“ Eru það þd ákveðnar týpur sem keyra um á Porsche? „Ég veit það nú ekki. Ætli þessir menn eigi það ekki sameiginlegt að þeir vilja hafa bílana sína í pottþéttu standi og nostra mikið við þá. Auðvitað þurfa menn líka að eiga eitthvað af peningum og ætli það sé ekki misjafnt hvort þeir eru ríkir eða eyða bara öllum peningunum sínum í bílana." ■ Mondeo. Ný V6 2,5 1170 hö. vél er nú fáanleg í Ghia-útfærslu og eftir áramót kemur Mon- deo með aldrifi á markað- inn. (Ghia-útfærslunni hef- ur nú verið lagt meira í inn- réttingar, meðal annars við- arklætt mælaborð og krómað grill. Ford Mondeo 2.0 GLX árgerð 1995 kostar frá 1.886.000 og innifalið í verði er ryðvörn og skráning. ■ milli. „Það þarf að sjá um ýmsar út- réttingar fyrir forsetann og stjórn- arráðið, því er ég mikið á ferðinni. Þegar lítið er að gera fer ég svo inn í stjórnarráð og svara í símann eða reyni að hjálpa eitthvað til,“ segir Þorvaldur. Hann segir það fínt starf að keyra forsetann og þau séu orðnir góðir vinir eftir fimm ára samstarf. „Við spjöllum mikið saman ég og forset- inn og það er auðvitað trúnaðarmál hvað okkur fer á milli, en við erum miklir vinir og afskaplega þægilegt að vinna fyrir hana. Til dæmis er ég með lykil að heimili hennar þar sem ég get hleypt sjálfum mér inn og fengið mér kaffisopa í eldhúsinu meðan ég bíð eftir að hún hafi sig til.“ Forsetabílarnir eru tveir, nýr Mercedes Benz og ‘90-árgerðin af Cadillac. Yfirleitt eru þeir geymdir á Bessastöðum, en þar sem viðgerð stendur yfir á húsinu um þessar mundir eru þeir hafðir hér í bæn- um. „Benzinn sem keyptur var í sum- ar er S-320 L-gerðin. Það var ekkert bruðlað og eini aukabúnaðurinn í bílnum er jafnhæðarbúnaður og sérstakt sætisáklæði, einnig var sett í hann nýtt útvarp. Þó að Benzinn sé notaður meira en Kadiljákinn var ákveðið að hafa hann forsetabíl númer tvö, því að hinn bíllinn er notaður þegar eitthveð mikið stendur til og því við hæfi að hann sé númer eitt,“ segir Þorvaldur. Fyrir þá sem eru að velta fyrir sér hvort forsetinn sé á ferðinni næst þegar þeir mæta forsetabílnum er auðveldast að líta á fánastöngina á húddinu. Fáninn er bara hafður uppi þegar forsetinn er í bílnum. ■ .V—•—•*r Chrysler -samsteypan er um þessar mundir að Ijúka við að endurnýja alla fólksbílalínu sína. Chrysler Vision er hluti af nýju lín- unni og er m.a. búinn 215 ha. fjöl- ventlavél, verð bílsins er tæpar 4 milljónir. Chrysler Neon er einnig hluti af nýju línunni og er ætlað að keppa við japönsku smábílana. Neon er útbú- inn 2 lítra 130 ha. fjölventlavél. Loftpúðar eru bæði fyrir ökumann og farþega og stuðararnir eru á höggpúðum. Eftir áramót kemur svo þriðji nýi Chrysler-bíllinn. Hann heitir Crysler Stratus og er stærð hans einhvers staðar á milli Vision- bílsins og Ne- on. ■ Fiat kynnir þess dagana nýjan bíl, Fiat Punto. Lögð var mikil áhersla á árekstraröryggi við hönn- un bílsins og er hann útbúinn högg- deyfandi stýrishjólum, stýri sem gengur saman við högg, styrktar- bitum í hliðum og gólfi, bæði lang- sum og þversum, og ýmsu fleiru. Verð Fiat Punto er frá kr. 945.000. Aðrar tegundir Fiat koma óbreyttar í ár. ■ Ford Vélarstærðir í Escort verða áfram 1,4 EFI og 1,6 16 ventla EFI en engar breytingar verða á árinu 1995. Eftir áramót er bíllinn þó væntanlegur sjálfskiptur og þá með 1,6-vélinni. Verð á 1995-árgerð liggur ekki fyrir. ■ Ford Ýmsar nýjungar eru væntanlegar á 1995-árgerðinni af

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.