Helgarpósturinn - 03.10.1994, Blaðsíða 4
4
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
4+
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994
Umboðsmaður
Alþingis um mál
Sævars Ciesielski
Hallvarður
vanhæfur
Dómsmálaráðuneytið hefur tek-
ið þá ákvörðun að Hallvarður Ein-
varðsson, ríkissaksóknari, víki
sæti þegar afstaða verður tekin til
beiðni Saevars M. Ciesielski um
endurupptöku Guðmundar- og
Geirfinnsmálanna. Þetta kemur
fram í bréfí ráðuneytisins til Sæv-
ars, sem dagsett er 16. september
síðastliðinn. Frá því Sævar var lát-
inn laus úr fangelsi hefur hann bar-
ist fyrir því að fá mannorð sitt
hreinsað en árið 1980 var hann
dæmdur í 17 ára fangelsi af Hæsta-
rétti fyrir að hafa átt aðild að hvarfi
Guðmundar Einarssonar og
Geirfinns Einarssonar.
Til þess að fá mál endurupptek-
ið, sem Hæstiréttur hefur dæmt í,
þarf ríkissaksóknari að fjalla um
beiðni þar að lútandi. Sævar hefur
hins vegar krafist þess að skipaður
verði sérstakur ríkissaksóknari til
að taka afstöðu til beiðni hans þar
sem Hallvarður var einn af stjórn-
endum rannsóknarinnar á hvarfi
Guðmundar og Geirfinns um miðj-
an 8. áratuginn og málinu því ná-
tengdur.
A þetta hefur ráðuneytið nú fall-
ist. I bréfi þess kemur fram að Sæv-
ari beri að snúa sér til ríkissaksókn-
ara óski hann eftir endurupptöku
ntálsins. „Eítir að því embætti hef-
ur borist slík beiðni, má gera ráð
fyrir því með næstum óyggjandi
hætti að núverandi ríkissaksóknari,
Hallvarður Einvarðsson, víki sæti
þar sem hann var svo verulega rið-
inn við framangreind mál,“ segir
svo orðrétt. Ráðuneytið muni þá
skipa vararíkissaksóknara eða ann-
an löghæfan mann í stað Hallvarð-
ar til að fjalla um beiðnina. Eftir þá
umfjöllun ber, samkvæmt lögum
um meðferð opinberra mála, að
senda beiðnina til Hæstaréttar
ásamt skjölum málsins og tillögum.
Sævar leitaði til Umboðsmanns
alþingis, Gauks Jörundssonar,
snemma í sumar til þess að fylgja
eftir kröfu sinni og það var eftir
þrýsting frá honum sem þessi nið-
urstaða fékkst í málinu. MORGUN-
PÓSTURINN hefur undir höndum
bréf sem staðfesta það.
Sævar sagði í samtali við MORG-
UNPÓSTINN að hann myndi fljót-
lega senda beiðni sína til ríkissak-
sóknara ásamt ítarlegri greinargerð
þar sem hann myndi færa rök fyrir
máli sínu.B
Framsóknarmenn samþykkja að greiða skipta-
stjóra Mótvægis hlutafé
Flokkurinn borgar og
dómsmálið fellt niður
Flest bendir tii þess, að sú nið-
urstaða verði í deilu skiptastjóra
Mótvægis hf. og forráðamanna
Framsóknarflokksins, að sæst
verði á greiðsiu til búsins. Skipta-
stjórinn, Brynjólfur Kjartansson
hæstaréttarlögmaður, hafði krafið
flokkinn og þá ráðamenn hans
sem skipuðu stjórn Ttmans um
hlutafjárframlag sem Brynjólfur
taldi að aldrei hefði verið greitt inn
í Mótvægi hf. Á sínum tíma höfn-
uðu stjórnarmenn Mótvægis kröf-
unni en nú er líklegt að náist sátt
um að þeir greiði hluta hennar.
Samkvæmt heimildum MORGUN-
PÓSTSINS munu Framsóknar-
flokkurinn greiða hátt í eina og
hálfa milljón til skiptastjóra. I
staðinn fellir hann niður mál á
hendur þeim sem hann hafði
þingfest fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur. „Ég held að þetta sé mjög
ásættanleg niðurstaða fyrir alla að-
ila og ég geri þá ráð fyrir að þetta
sé að verða búið,“ sagði skipta-
stjóri. Ekki er búið að undirrita
samkomulagið.
En hver borgar upphæðina?
Skiptastjóri sagði að formlega væri
það Framsóknarflokkurinn enda
hefði málið fyrir héraðsdómi verið
höfðað gegn honum. Það verða
því ekki þeir einstaklingar sem
skrifaðir voru fyrir hlutafjárlof-
orðinu sem borga.
Framsóknarmenn töldu sig hafa
greitt inn hlutafé í Mótvægi með
tækjum og tólum í eigu Tímans
dagblaðs. Skiptastjóri samþykkti
þetta ekki sem greiðslu og gerði
kröfu um allt að 4,7 milljónir
króna sem hann taldi vanta á
hlutafjárloforðin.
Jafnffamt hafði skiptastjóri kall-
að til matsmenn út af greiðslu og
notkun á nafni Tímans. Höfðu
Steingrímur Hermannsson,
fyrrum formaður Framsóknar
og núverandi Seðlabankastjóri
Krafa þrotabús Mótvægis á hend-
ur Framsóknarfiokknum verður
nú greidd að hluta.
Framsóknarmenn innheimt
greiðslu fyrir afnot af nafninu í
formi auglýsingasamninga en
skiptastjóri taldi að það hefði átt
að felast í hlutafjárframlaginu.
Taldi skiptastjóri að ekki væri
hægt í senn að leggja fram við-
skiptavild sem hlutafé og taka
jafnframt út fé í formi auglýsinga-
samninga fyrir þessa sömu við-
skiptavild.
Miklar umræður urðu um þessi
mál fyrir kosningarnar í vor en þá
sendu forráðamenn Framsóknar-
flokksins frá sér yfirlýsingu þar
sem sagði meðal annars: „Við telj-
um okkur hafa gætt þess vandlega
að staðið væri rétt að máli þessu
samkvæmt Iögum. Kemur okkur
mjög á óvart að það skuli véfengt.“
Undir þetta skrifuðu Steingrímur
Hermannsson, Páll Pétursson,
Jón Kristjánsson, Alfreð Þor-
steinsson, Hrólfur Ölvisson,
Finnur Ingólfsson og Sigrún
Magnúsdóttir.
Samkvæmt heimildum MORG-
UNPÓSTSINS þá var það niður-
staða Framsóknarmanna að reyna
að losna við þetta mál enda töldu
menn að mistök hefðu áttsér stað
við orðalag á tilkynningu til
Hlutafélagaskrár. Vildu ráðamenn
í flokknum ekki hafa það hang-
andi yfir sér í ljósi þeirrar umræðu
sem nú fer fram í þjóðfélaginu urn
siðferði í stjórnmálum. „Við telj-
um að flokkurinn sé yfir það haf-
inn að standa í svona máli og við
viljum gera hreint fyrir okkar dyr-
um,“ sagði ráðamaður í flokkn-
um. Viðkomandi tók fram að það
væri eigi að síður álit Framsóknar-
manna að flokkurinn hefði borgað
allt það inn í hlutafélagið sem
hann hefði lofað að borga — í
þessu væri eingöngu viðurkenning
á mistökum í tilkynningu til
Hlutafélagaskrár.
„Ég hef ekki komið að þessu
samkomulagi í sjálfu sér. Halldór
Ásgrímsson tók að sér að ganga
frá þessu fyrir Framsóknarflokk-
inn því það var skilningur manna
að það væri flokkurinn sem slíkur
sem stæði að þessu. Mér finnst það
hins vegar afskaplega skemmtileg
tímasetning hjá vini mínum,
skiptaráðandanum, sem hefur sof-
ið á þessu máli í marga mánuði að
koma með það upp núna,“ sagði
Sigrún Magnúsdóttir. Ekki náðist í
Halldór Ásgrímsson út af málinu.
-SMJ
þeir seldu fyrirtækið á kjörum sem
gömlu eigendunum buðust ekki. Það
þykir þvi nokkrum tíðindum sæta að
sonur hans, Jón Scheving Thor-
steinsson, skuli enn starfa hjá Sól, þar
sem hann er titlaður framleiðslu-
stjóri. En reynsla Jóns, sem hefur
unnið hjá fyrirtækinu frá unglingsár-
unum, þykir dýrmæt og svo munu
nýju eigendurnir, með PÁL Kr. Páls-
son forstjóra í broddi fylkingar, vilja
leggja sitt af mörkum til að draga úr
sárindunum við cignaskiptin. Meðal
annars er verið að athuga þann mögu-
leika að Jón verði hluthafi.
En Páll Kr. hefur inn-
leitt nýjan stjórnun-
arstíl miðað við það
sem áður tíðkaðist
þar á bæ og gerir
miklar kröfur til
Jóns og fleiri
millistjórnenda.
Davíð Scheving var
þekktur fyrir að ganga
gengið, en „nudd“ alla leið kostar
fimmþúsund krónur. Staðurinn
mun mjög vinsæll meðal minni
spámanna í viðskiptalífnu, og svo
veitinga- ogskemmtanastjórum
hinna og þessa skemmtistaða í
bænum. Um helgar er svo oft
boðið upp á stripshow. Síðasta
laugardagskvöld var troðið hús af
fólki, að horfa á stripshow þar
sem stúlkan, er birtist fyrir skömmu á
forsíðu Samúels og „gerir það frítt“,
var í aðalhlutverki...
Fiin vinsælasta rokkhljómsveit
heims, Pearl Jam, hefur undanfarnar
vikur leitað sér að trommuleikara þar
sem sá er gegndi þeirri stöðu í sveit-
inni var rekinn úr henni fyrir
skömmu. Þetta væri í sjálfu sér ekki í
fr ásögur færandi ef hljómsveitin hefði
eklci leitað hófanna hjá Sigtryggi
Baldurssyni, fyrrum trommara Syk-
urmolanna, öðru nafni Bogomil Font,
Stjórnarandstaðan ætlar að hittast á
Alþingi í dag til að fara yfir það hvern-
ig brugðist verði við Guðmundarmál-
inu. Er gert ráð fyrir að það verði
þingflokksformennirnir sem hittast.
Sem kunnugt erþá hefur Kvennalist-
inn boðað vantrauststillögu á Guð-
mund árna Stepánsson en það hefur í
raun ekki fengið neinn sérstakan
hljómgrunn hjá öðrum flokkum.
Sumir hafa haft á orði að rétt sé að
treina sér málið fram á vetur. Einnig
eru menn að velta þvf fyrir sér að efna
tU utandagskrárumræðu í vikunni um
vandamál kratanna...
Brottför DavIðs Sche-
vings Thorsteinssonar frá
Sól hf. gekk ekki sársauka-
laust fýrir sig, cins og kunn-
ugt er. Davíð fannst lánar-
drottnar fyrirtækisins ekki
hafa komið hreint fram þegar
í öU verk og lagði sig í
framkróka um að vera
inni í sem flestum
málum. Skilaboð Páls
til millistjórnendanna
eru hins vegar skýr -
ef þeir standa sig ekki í
stykkinu verða þeir
miskunnarlaust látnir
fjúka. Þannig mun
hann hafa tilkynnt Jóni að ef vörur
skorti einhvern tíma verði hann rek-
inn og ef lagcrinn verði of stór verði
hann líka rckinn...
I Duggguvogi 12 hefur verið rekið i
nokkurn tíma eins konar baðhús.
Þarna er hægt að skella sér í ljós og
gufu og slappa af. Áfengi er selt undir
borðum og því ekkert mál að fá sér í
glas eftir ljósatímann. Á staðnum
mun einnig vera kvenmaður sem
„nuddar“ menn ef þeir vUja. Verðið á
„nuddinu" fer eftir því hversu langt er
um að taka starfið að sér. Sigtryggi
barst þetta tU eyrna frá hljómplötu-
fyrirtækinu Electra sem höndlaði með
mál Sykurmolanna í Bandaríkjunum.
Þangað hafði borist fyrir-
spurn frá umboðsskrif-
stofu Pearl Jam í þá
veru hvort Sigtrygg-
ur væri á lausu. Sig-
tryggur er eins og
kunnugt er af-
bragðs trommari
en áhuga banda-
rísku sveitarinnar má
sjálfsagt lxka skýra með
því að Eddie Vedder söngv-
ari Pearl Jam er vinur Molanna frá
gamaUi tíð. Hann býr í San Diego og
hékk mikið í kringum hljómsveitina
þegar hún dvaldi á vesturstönd
Bandarikjanna við tónlcikahald. Fór
meðal annars með Molunum i Sea
World svo eitthvað sé nefnt. Sigtrygg-
ur staðfesti að þetta væri rétt þegar
blaðið hafði samband við hann vestur
um haf þar sem hann dvelst um þess-
ar mundir en sagði jafnframt að hann
teldi litlar líkur á því að hann tæki
sæti í Pearl Jam þar sem hann hefði
ekki heyrt frekar frá sveitinni...
Sambíóin og Hákólabíó
munu á næstu dögum taka
til sýninga myndina Forrest
Gump með Tom Hanks í
titilhlutverkinu en vel-
gengni hennar kom verulega
á óvart í Bandaríkjunum þar
sem hátt í 50 miUjón kvik-
myndahúsagcstir hafa séð myndina.
FrIða AradöTTIR sá um hárið á leikur-
um myndarinnar en hún hefur náð
hvað lengst af þeim íslendingum sem
reynt hafa fyrir sér í HoUywood. Fríða
er engin nýgræðingur í bransanum
því hún var einnig með hendur í hári
þeirra sem léku í Jurassic Park, Ram-
bling Rose og Dirty Dancing svo
nokkrar myndir séu nefndar...
Prestar vilja rýra vökl biskups
Talsverð óánægja hefur verið meðalpresta vegna fyrirkomulags innan kirkjunnaren eins og málum
ernú komið erbiskup einn til umfjöllunar um þau aga- og siðferðisbrot er upp koma innan kirkjunnar.
Á fimmtudaginn var var langur
fundur í biskupsstofu en hann sátu
af hálfu biskups, Herra Ólafur
Skúlason biskup, Þorbjörn Hlyn-
ur Árnason biskupsritari og
Ragnhildur Benediksdóttir,
skrifstofustjóri Biskupsstofu, en
hún er jafnframt lögmaður Bisk-
upsstofu. Auk aðila Biskupsstofu
sat stjórn Prestafélags Islands fund-
inn, þeir: Séra Geir Waage, for-
maður Prestafélagsins, séra Baldur
Kristjánsson, Höfn, séra Kristinn
Ágúst Friðfinnsson, Hraungerði,
séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir,
Grindavík og séra Bragi Skúlason,
fangelsisprestur. Samkvæmt heim-
ildum MORGUNPÓSTSINS var
fundurinn gagnlegur en ýmislegt
bendir til að tekist hafi verið á um
valdafyrirkomulag. í fréttum RÚV
á föstudag var sagt að biskup hafi
verið knúinn til að skrifa undir
samþykkt en eftir fréttina var gló-
andi lína frá Biskupsstofu þar sem
það var borið til baka: Biskup hafi
ekki verið knúinn til eins né neins.
Fundurinn skrifaði þó undir álykt-
un sem send var til félagsmanna
Prestafélagsins með fréttabréfi. Þar
segir að aðilar Prestafélagsins og
biskup séu sammála um að það
verði að koma á úrræðum innan
kirkjuskipanarinnar til að fjalla urn
mál sem varða siðferði og aga í
kirkjunni. Lagt er til að öll meiri-
háttar aga- eða siðferðisbrot starfs-
manna Islensku þjóðkirkjunnar
sem og alvarlegum ágreiningsefn-
um geti biskup vísað til sérstakrar
nefndar og niðurstöður hennar
megi skjóta til áfrýjunarnefndar
sem kirkjumálaráðherra skipi. Með
öðrum orðum^r verið að leggja til
að komið verið upp kerfi sem bisk-
up einn hefur ekki algerlega yfir að
segja.
Aðdragandinn er sá að Prestafé-
lagið sendi fýrir rúmri viku biskupi
Islands fyrirspurn varðandi með-
ferð hans á máli séra Solveigar
Láru Guðmundsdóttur, sóknar-
prests á Seltjarnarnesi, og máli séra
Gylfa Jónssonar safnaðarprests
Grensáskirkju. Ljóst er að prestar
eru ekki sáttir við málsmeðferð og
krefjast þess að fundin séu úrræði
til að taka á málum af þessu tagi
innan kirkjuskipanarinnar. Biskup
óskaði þá eftir því að fá fund með
stjórn Prestafélagsins þar sem hann
lagði fram skriflegt svar við fyrir-
spurninni, ýtarlegar umræður áttu
sér stað og ofangreind ályktun sam-
þykkt. Einhverjum kynni að þykja
greinagerðir er varða siðferðis-
spursmál afstæðar og háðar tímun-
um en svo er ekki í augum kirkj-
unnar.
Gagnrýni hefur verið sett fram
innan prestastéttarinnar að úrræði
sem kirkjan hafði áður, hefur verið
kastað af ráðuneytinu, og þá vænt-
anlega að undirlagi einhverra
kirkjustjórnaraðila, án þess að
nokkuð hafi komið í staðinn. Hér
er um að ræða heilan lagabálk úr
Norsku kirkjuorgenantsíunni sem
gilt hefur hér frá árinu 1622 en þar
má meðal annars finna kirkjulaga-
bálk frá Kristjáni IV um legur
presta og hórdómsbrot. Hann var
tekinn úr gildi fyrir fáeinum árum
sem og Sínódalrétturinn sem var
eini dómstóllinn sem kirkjan átti
eftir. Hann hafði að vísu ekki kom-
ið saman síðan í byrjun aldarinnar
en hann var eini aðilinn í kirkju-
skipaninni sem var úrskurðaraðili
Ólafur Skúlason biskup
Vaxandi ónægja er með störf
hans meðal presta.
og bæri að taka á brotum sem ekki
vörðuðu beinlínis refsilöggjöfina.
Það sem eftir stendur er að biskup
einn er fyrir svörum í málum sem
þessum og sem dæmi, að væri bisk-
up sjálfur ákærður fýrir meint brot,
þá er enginn umsagnaraðili annar
en kirkjumálaráðherra. Gert er ráð
fýrir því í ályktun fundarins að
áfrýjunarnefndinni beri að rann-
saka slík mál, komi þau upp. -JBG
Um helgina var ffamið spellvirki á
rörahliði á veginum sem liggur um
Rjúpnadal í Vatnsendalandi,
skammt utan höfuðborgarinnar.
„Hliðið hefur að öllum líkindum
verið sprengt í loft upp árla á laugar-
dagsmorgun,“ segir Hannes Thor-
arensen, deildarstjóri hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins. Dínamít var
notað við sprenginguna og segir
Hannes að allt bendi til þess að þar sé
um að ræða sprengiefhi sem hafi ný-
lega verið stolið. Hannes telur ólík-
legt að börn eða unglingar hafi verið
viðriðin þennan verknað og segir að
ummerki bendi til þess að þarna hafi
fagmenn verið að verki. Spellvirkj-
arnir eru ófundnir. ■
Rörahliðið sem var spengt upp um helgina í Rjúpnadal. Verksummerki
benda til þess að þeir sem þarna voru að verki hafi kunnað vel með
dínanmít að fara.
Rörahlið sprengt í Rjúpnadal
-4