Helgarpósturinn - 10.10.1994, Page 10
10
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 1994
Grafgotur
Nýskráningar
folksbila
Nýskráningum fólksbíla fer fækk-
andi, fjórða árið í röð. Á tímabilinu
janúar til september 1991 voru
7568 bílar skráðir en á sama
tímabili í ár voru aðeins skráðir
4333 nýir bílar. Fyrstu níu mánuð-
ina 1993 voru 4576 bílar skráðir.
Verðmæti
innflutnings
Verðmæti innflutnings er meira á
tímabilinu janúar til ágúst í ár en í
fyrra. í fyrra var innflutningurinn
57,4 milljarðar en í ár er hann 63,9
milljarðar. Verðmæti innflutnings-
ins er svipað nú og árið 1990.
Verðmæti út-
flutnings á áli
12 milljarðar króna -
t~h
im
’88 '89 ’90 ’91 '92 ’93 ’94 í
Það stefnir í mun meiri útflutning
á áli í ár en verið hefur síðustu ár.
Verðmæti útflutningsins gæti far-
ið yfir 10 milljarða ef miðað er við
þróunina frá janúar til ágúst í ár.
Mer er spurn
Deilur um flutning ÁTVR í Hafnarfirði í Miðbæ hf.
„Þeir eru að narra
fófláð frá mér“
segirStefán Rafn, fasteignaeigandi við Reykjavíkurveginn.
Óánægja er komin upp meðal
margra Hafnfirðinga vegna fyrir-
hugaðra samninga milli ÁTVR og
Miðbæjar hf. um kaup á stóru rými
í nýja miðbæjarhúsinu fýrir áfeng-
isútsölu. Fyrir sex árurn var opnuð
áfengisútsala í Lækjargötunni sem
annar vel og gott betur þeirri versl-
uninni í Hafnarfirði, að sögn eins
starfsmanns. Þá var ráðist í að inn-
rétta húsnæðið fyrir háa fjárhæð
sem sé hvorki þröngt né óhentugt.
Hann telur að verið sé að bjarga
Miðbæ hf. þar sem hellingur af
húsnæði er ekki gengið út og fyrir-
tækið komið í greiðsluvandræði.
Bærinn hafi keypt meira í húsinu
en hann ætlaði til að bjarga málun-
urn í kratatíðinni.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam-
þykkti eindregin tilmæli til fjár-
málaráðuneytisins að útsalan yrði
flutt í húsið en ráðuneytið ræður
endanlega staðarvali og verður að
staðfesta samninga. Að sögn Frið-
riks Shopussonar fjármálaráð-
herra er búið að gefa grænt ljós á
flutningana þótt ekki hafi ennþá
verið samið. „Bæjarráð Hafnar-
fjarðar hefur lagt það rnjög ein-
dregið til að ÁTVR verði flutt. Ég
fékk bréf frá þeim þar sem þeir tí-
unduðu vandkvæðin að hafa áfeng-
isútsöluna þar sem hún er.“
Aðspurður um hvað þetta kosti
gaf fjármálaráðherrann ekki upp
tölur en sagði samninginn hag-
stæðan.
Lúðvík Geirsson, bæjarfulltrúi
Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði,
er einn þeirra sem telur flutninginn
með öllu óþarfan. „Áfengisútsalan
er betur kornin þar sem hún er,“
segir hann. Burtséð frá því gengur
fjöllunum hærra að hjólað hafi ver-
ið í verslunareigendur á Reykjavík-
urveginum til að fá þá inn. Helsti
fasteignaeigandinn þar, Stefán
Rafn, staðfesti þetta í samtali við
MORGUNPÓSTINN.
Afengisbúðin við Lækjargötuna í Hafnarfirði.
Þórður H. Hilmarsson, forstjóri Giobus, spyr: „Að-
ilar í atvinnulífinu þurfa oft að skreppa til útlanda í
stuttar viðskiptaferðir. Og Það getur verið allt að þre-
faldur verðmismunur á farmiðum hjá Flugleiðum eftir
því hvort tnenn eru úti ífimm daga eða tvo, ogþá ódýr-
ara að vera í fimtn daga. Þetta leiðir til þess að mcnn
sem kannski þurfa ekki að vera nema einn eða tvo
daga í útlöndum þurfa oft að láta sig hafa það að vera
úti í fimm daga til að fá ferðina ódýrari og ná niður
kostnaði. Ég vil meina að með þessu sé verið að láta at-
vinnulífið greiða niður fyrir aðrar ferðir, til dœmis túristafargjöldin.
Þannig að mig langar að spyrja að því hvort Flugleiðir geti ekki verið
með meiri jöfnuð á milli fargjalda."
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, svarar: „Það er kannski
ekki eðlilegt að bera viðskipta-
mannafargjöldin við alódýrustu far-
gjöldin vegna þess að á þeim eru svo
stífir skilmálar. Eðlilegra er að bera
þetta saman við fargjöld sem eru
nær fimmtíu þúsund krónum. Þar
er verið að bera saman tvenns konar
þjónustu oft mjög ólíka og þeir sem
borga svokölluð viðskiptamannafar-
gjöld eru í rauninni að borga fyrir
þrennt.
í fyrsta lagi fyrir tíðnina sem þeir
hafa aðgang að, í öðru lagi fýrir
stuttan bókunarfýrirvara og í þriðja
lagi fýrir sveigjanleika miðans. Og
þessi sveigjanleiki miðans hefur í för
með sér að þeir geta breytt fýrirvara-
laust um ferðaáætlun og miðinn
gildir áfram.
I fyrsta lagi er okkar reynsla sú að
allt að fjórðungur fólks á þessum
gjöldum mæti ekki til þess flugs sem
það var bókað á, og við erum því oft
að fljúga með mjög mörg tóm sæti
þeirra vegna og töpum þar af leið-
andi tilsvarandi tekjum. Þannig að
við verðum að taka tillit til þess í
verðlagningunni.
í öðru lagi vilja þessir farþegar yf-
irleitt stuttan bókunarfýrirvara. Ög
við bjóðum líka upp á fargjöld fýrir
viðskiptamenn sem eru ekki með
þessari helgarreglu sem Þórður er að
tala um, þau eru 20 prósent ódýrari,
en það er hins vegar á þeim fjögurra
daga bókunarfýrirvari. En þessi far-
gjöld eru mjög lítið notuð, við sjáum
það ef við miðum við okkar við-
skiptamenn erlendis sem nota þetta
„Þeir eru að narra fólkið frá mér
af Reykjavíkurveginum sem er búið
að vera í leigu þarna í mörg ár og
nota ÁTVR sem agn. Ég er mjög
óhress yfir þessu og sé enga ástæðu
fyrir því að flytja áfengisverslunina
niður í miðbæjarapparatið.”
„Manni blöskrar að það eigi að
fara í dýrasta húsnæði landsins til
að bjarga einhverjum mönnum úti
í bæ. Okkur finnst það glapræði,"
sagði starfsmaður í áfengisútsöl-
unni í samtali við blaðið. Það geng-
ur einmitt fjöllunum hærra að
Hrafnkell Asgeirsson, frændi
Guðmundar Árna Stefánssonar,
hafi séð um söluna fyrir Miðbæ hf.
Hrafnkell neitaði hins vegar að
ræða það við MORGUNPÓSTINN.
Kári Halldórsson hjá fasteigna-
sölunni Ás, sem sér um sölu og
leigu á húsnæði í miðbæjarhúsinu,
sagði að staðan væri þannig núna
að neðri hæð hússins hefði að fullu
verið ráðstafað nerna einu bili en
uppi væri eftir að koma út helm-
ingnum. „Sumt er selt og annað
leigt eftir atvikum,“ sagði hann.
Hann sagði enga stefnubreytingu
hafa orðið á þann hátt að þar sem
salan hefði gengið illa væri nú öll-
um árum reynt að leigja út. „Það er
búið að bjóða leigu og kaupieigu
frá upphafi.“
Heyrst hefur að mögulegir kaup-
endur og leigjendur setji það sem
skilyrði að ÁTVR opni útsölu í hús-
inu. Kári neitar því en hins vegar
hafi nokkrir sett þann fyrirvara að
megnið af rýminu væri gengið út
áður en þeir skrifa undir. En er ekki
verið að reyna að fá ÁWR inn í
húsið sem agn á kaupmenn?
„Jú,jú. Það er bæði verið að
reyna að fá þá inn til að selja þeim
ákveðið rými og eins til að auðvelda
að koma því út sem eftir er. Þetta er
svipað og í öðrum verslunarmið-
stöðvum.“
Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, segir að tvær ástæður séu
fyrir því að stefnt sé að því að flytja
útsöluna í miðbæjarhúsið. Annars
vegar hafi nágrannar kvartað yfir
óþægindum, ekki síst vegna rnikill-
ar og vaxandi bílaumferðar sem
magnist vegna skorts á bílastæðum.
Er þetta nauðsynlegt?
„Það má alltaf deila um hvað er
nauðsynlegt en það er ómögulegt
að segja að þetta sé bráðnauðsyn-
legt. I sjálfu sér hefur verslunin við
Lækjargötu gengið vel en nágrann-
arnir telja sig hafa orðið fyrir óþæg-
indum vegna mikillar untferðar og
mun meira. Og
það sýnir okkur
það að þessi
stutti bókunar-
fyrirvari skiptir
viðskiptamenn
hérlendis miklu.
I þriðja lagi er-
um við að tala
um tíðnina. Þeir
viðskiptamenn sem borga þau far-
gjöld, sem Þórður er að tala um, geta
fýrirvaralaust hlaupið inn á hvert
flug Flugleiða sem þeir vilja. Hinir
sem borga afsláttarfargjöldin sætta
sig við miklu meiri hömlur, kannski
tveggja vikna eða lengri bókunarfyr-
irvara og síðan hömlur á dvalar-
lengd í hinn endann líka.
Þannig að um er að ræða mjög
ólíka þjónustu. Og þeir sem þurfa
meiri þjónustu og meiri sveigjan-
leika, þeir borga meira.“
Nýbygging Miðbæjar hf. þar sem fyrirhugað er að setja upp
áfengisverslun.
skorts á bílastæðum. Svo er erfitt að
velja tíma til að fara í miðbæjarhús-
ið. Það er að hrökkva eða stökkva ef
við viljum vera með verslun þar.“
Verður tnikill kostnaðarauki við
flutninginn?
„Já, af þessu verður kostnaðar-
auki þar sem húsnæðið er stærra.
Við erum nú í 370 fermetrum í
Lækjargötunni en nýja húsnæðið er
töluvert stærra.” -SG ásamt GK
Holyday Inn lokar 1. nóvember
Flugleiðir hafa
sýntáhuga
Islandsbanki mun hætta rekstri
Holiday Inn-hótelsins nú 1. nóv-
ember þannig að ákvörðun um
framtíð þess verður að liggja fýrir
innan skamms.
Að sögn Vals Valssonar, banka-
stjóra íslandsbanka, þá blasir það
við að ef menn vilja kaupa hótelið
til áffamhaldandi hótelrekstrar þá
sé tíminn að renna út. Sagði Valur
að ef hótelið lokaði 1. nóvember þá
yrði því mikill aukakostnaður sam-
fara að opna það aftur til hótel-
rekstrar — tíminn væri því að
renna út.
Samkvæmt heimildum MORG-
UNPÓSTSINS þá hafa Flugleiða-
menn sýnt hóteiinu áhuga. Upp-
hæðin sem þeir hafa nefnt til er
hins vegar ekki ásættanleg fyrir Is-
landsbanka sem að sögn Vals lítur
svo á að ef ekki kemur tilboð yfir
500 milljónir króna þá sé eins hag-
kvæmt að taka það undir höfuð-
stöðvar íslandsbankans. Eftir því
sem komist verður næst þá hafa
Flugleiðamenn verið að ræða verð-
tölu nálægt 400 milljónum en Val-
ur vildi ekki ræða tilboð einstakra
aðila. Hann staðfesti hins vegar að
aðilar í ferðaiðnaðinum hefðu sýnt
hótelinu áhuga.
Valur Valsson bankastjóri „Það
hlýtur hins vegar að vera mikið
áhyggjuefni fyrir þá sem standa
að ferðaiðnaðinum að enginn
skuli treysta sér til að reka hótel
sem fæst á hálfvirði.”
„Það hlýtur hins vegar að vera
mikið áhyggjuefni fyrir þá sem
standa að ferðaiðnaðinum að eng-
inn skuli treysta sér til að reka hótel
sem fæst á hálfvirði," sagði Valur
en byggingakostnaður Holiday Inn
var nálægt 1000 milljónum króna.
-SMJ
Lobbflð á Holiday Inn. Þar verður hugsanlega hætt að taka á móti
hótelgestum og því breytt í biðstofur bankastjóra.