Helgarpósturinn - 10.10.1994, Blaðsíða 14
14
MORGUNPÓSTURINN SKOÐUN
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 1994
Útgefandi
Ritstjórar
Fréttastjóri
Framkvæmdastjóri
Markaðsstjóri
Miðill hf.
Páll Magnússon, ábm
Gunnar Smári Egilsson
Sigurður Már Jónsson
Kristinn Albertsson
Þórarinn Stefánsson
Setning og umbrot
Filmuvinnsla og prentun
Morgunpósturinn
Prentsmiðjan Oddi hf.
Verð í lausasöiu kr. 195 á mánudögum
og kr. 280 á fimmtudögum.
Áskriftarverð er kr. 1.300 á mánuði fyrir tvö bföð í viku.
Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 10 prósenta afslátt.
Að vinna eftir
nennu og fá laun
eftir þörfum
í MORGUNPÓSTINUM í dag er greint frá því að Dögg Páls-
dóttir, deildarstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, hafí verið á
launum frá ráðuneytinu á meðan hún var við nám í Banda-
ríkjunum. Þessar upplýsingar koma fram í kjölfar frétta af
óheyrilegum greiðslum ráðuneytisins til Guðjóns Magnús-
sonar skrifstofustjóra. Þessi tvö dæmi sýna að það hefur tíðk-
ast lengi í þessu ráðuneyti að greiða starfsmönnum fyrir
vinnu sem þeir inna aldrei af hendi. Yfirmenn ráðuneytisins
virðast telja það sjálfsagt að hlaupa undir bagga í fjármálum
undirmanna sinna og nota til þess - ekki sína peninga - held-
ur fjármuni skattgreiðenda. Þetta er að sjálfsögðu fáheyrð af-
staða. Yfirmenn ráðuneytisins líta ekki á launagreiðslur
ráðuneytisins sem greiðslu fyrir vinnuframlag heldur sem
sporslur sem þeir geta deilt út til vina og vandamanna. Og í
ljósi þess að Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri - æðsti embætt-
ismaður ráðuneytisins - er faðir Daggar Pálsdóttur er þessi
afstaða ekki aðeins fáheyrð heldur siðlaus. Þegar tengsl þeirra
eru skoðuð er ekki hægt að komast að annarri afstöðu en að
faðirinn hafí látið ríkissjóð greiða nám dóttur sinnar.
Þrátt fyrir að þessi tvö dæmi úr heilbrigðisráðuneytinu séu
alvarlegri en mörg önnur af greiðslum til ríkisstarfsmanna
utan og ofan við öll launakerfi sem hafa komið fram á und-
anförnum dögum, þá er engu að síður rétt að skoða þau í
samhengi við þau dæmi. Jón H. Karlsson, aðstoðarmaður fé-
lagsmálaráðherra, situr í svo mörgum launuðum nefndum í
vinnutíma sínurn að hjá einkafyrirtæki væri fyrir löngu búið
að breyta aðstoðarmannastarfi hans í hlutastarf. Þorgeir Ör-
lygsson, prófessor í lögum við Háskólann, situr á skrifstofu
sinni og sinnir ríkulega launuðum aukaverkefnum fyrir
tryggingafélögin á sama tíma og hann fær prófessorslaun sem
miðast við fulla kennslu- og rannsóknarskyldu.
Þegar þessi dæmi hrúgast saman kemur í ljós að vandinn
við launakerfi ríkisins liggur ekki í því að menn hafí sveigt
með því að yfirborga gott starfsfólk með óunninni yfirvinnu
eða öðru slíku til að mæta samkeppni við einkageirann. Þessi
dæmi sýna að vandinn liggur í því að innan ríkisgeirans virð-
ist það viðhorf vera of algengt að menn eigi skilið þau laun
sem þeir komast yfir. Og þar sem allir sem hafa unnið hjá rík-
inu í einhvern tíma komast að því að þar er ákaflega lítið eft-
irlit með vinnuframlagi eða framleiðni eru í raun lítil tak-
mörk fyrir því hversu háar launagreiðslur yfirmenn stofnana
geta skammtað sér, vinum sínum og vandamönnum.
Dæmin tvö úr heilbrigðisráðuneytinu benda alla vega til
þess að engin takmörk séu fyrir því hvað menn geta náð há-
um greiðslum frá launaskrifstofunni - jafnvel til fólks sem er
allt annars staðar á hnettinum að sinna allt öðrum verkum
en að vinna fyrir ráðuneytið hér heima.
Gunnar Smárl Egilsson
Pösturínn
Miðill hf., Vesturgötu 2, 101 Reykjavik, sími 2 22 11
Beinir símar eftir lokun skiptiborðs:
Ritstjórn 24666, tæknideild 24777, auglýsingadeild 24888 og dreifing 24999
Símbréf ritstjórnar 22243 - Símbréf auglýsingadeildar 22241 - Símbréf afgreiðslu 22311
Valkyrhur íslands
„Við cetlum að berjast
til síðustu konu.“
Vanda Sigurgeirsdóttir fyrirliði.
Fann prinsessan
ekki baunina í gegnum
100 dýnur?
„Díana var svo næm að ,
húnfann á augabragði I
allar hræringar í
sálarlífi elskhuga síns."
James Hewitt major ástarinnar.
Enda er hann ekki
uppnæmur fyrir
smámunum
„Mér sýnist að
f þvottavélin sé það eina
sem hefur ekki
eyðilagst. “
Páli Pálsson sprengjuþoli.
Er þetta ekki játning
aldarinnar?
„Þetta hakk sem er verið að bera
saman við er ekki nautahakk. Þetta
er beljukjöt
Óskar Magnússon kaupmaður.
Jöfnum atkvœðisréttinn
f öllum stjórnmálaflokkum virð-
ist nú hreyfing fyrir því að gera
breytingar á vægi atkvæðisréttar
eftir kjördæmum og draga úr því
misrétti sem kjósendur í Reykjavík
og Reykjaneskjördæmi eiga við að
búa í þessu efni. Breyting í þessa
veru er Iöngu tímabær enda er hér
um réttlætis- og mannréttindamál
að ræða. Það getur ekki gengið að
mikill meirihluti kjósenda kjósi
minnihluta alþingismanna. Þannig
er það í dag því þingmenn Reykja-
víkur og Reykjaness eru 29 en þing-
menn annarra kjördæma 34.
Nú eru hartnær tólf ár frá því
síðast voru gerðar breytingar á
kosningakerfinu og hefur verið
kosið eftir því kerfi sem samkomu-
lag varð um árið 1983 í tvennum
kosningum. Gríðarlegar breytingar
hafa orðið í samfélaginu á þessum
tíma og rniklir búferlaflutningar átt
sér stað. Þá hafa samgöngur og fjar-
skipti breyst rnjög til hins betra.
Á kerfinu frá 1983 eru einnig
ýmsir veigamiklir ágallar sem
nauðsynlegt er að lagfæra. Reglurn-
ar eru ógegnsæjar og flestu fólki
óskiljanlegar nema að undan-
gengnum miklum pælingum. Á
síðasta landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins var ályktað að jafna beri
kosningaréttinn og fækka þing-
mönnum.
Stuttur tími til stefnu
í máli þessu þarf að hafa hraðar
hendur á næstu mánuðum. Breyta
þarf stjórnarskrá og kosningalög-
um íyrir komandi alþingiskosning-
ar til þess að breytingin geti kornið
til framkvæmda í næstu kosning-
um þar á eftir, væntanlega árið
1999. Ella næst engin breyting fram
fyrr en árið 2003.
Sú staðreynd að það þing sem í
hönd fer verður fremur stutt kosn-
ingaþing gerir það að verkum að
nauðsynlegt er að fara einfaldar
leiðir í málinu. Þótt sjálfsagt sé að
skoða alla möguleika er ólíklegt að
á þeim stutta tíma sem til stefnu er
sé unnt að ná samkomulagi um
grundvallarbreytingar, til dæmis á
kjördæmaskipaninni sjálfri. Samt
mælir margt með því að stóru kjör-
dæmunum á suðvesturhorni lands-
Þungavigtin
Geir H.
Haarde
Þingflokksformaður
Sjáifstæðisftokksins
ins verði skipt upp í rninni eining-
ar. Tillögur um slíka breytingu þar
senr jafnframt er gert ráð fyrir
fækkun þingmanna liggja fyrir full-
unnar á vegum stjórnskipunar- og
réttarfarsnefndar Sjálfstæðisflokks-
ins. Þessar tillögur hafa mikið að-
dráttarafl sem framtíðarlausn á
rnálinu.
Nú er lag til breytinga
Eins og sakir standa núna má
hins vegar gera ráð fyrir að lægsti
samnefnari stjórnmálaflokkanna
byggist á breytingum innan ramma
núverandi skipunar kjördæma. I
því sambandi koma ýmsar hug-
myndir til greina. í grein í Morgu-
blaðinu í ágúst vakti ég athygli á
þeirri einföidu aðferð sem felst í því
að fækka um einn þingmann í öll-
um kjördæmum. Þar með yrði
heildarfjöldi þingmanna 55 og
dreifing þeirra á kjördæmin eðli-
legri en nú.
Páll Pétursson fyrrverandi for-
maður þingflokks Framsóknar-
flokksins reifaði einnig í haust í DV
hugmynd sem byggist á því að af-
nema kjördæmabindingu jöfnun-
arsætanna svonefndu sem þeim er
ætlað að tryggja jafnræði milli
flokka í endanlegu uppgjöri kosn-
inga. I núgildandi reglum er eitt
slíkt sæti bundið við hvert lands-
byggðarkjördæmi. Með því að felia
brott þá bindingu myndu jöfnun-
arsætin flytjast sjálfkrafa í fjöl-
mennustu kjördæmin, Reykjavík
og Reykjanes, þótt þau gætu einnig
lent í Norðurlandskjördæmi eystra
og í Suðurlandi við ákveðnar að-
stæður og kosningaúrslit.
Til greina kæmi einnig að sam-
eina þessar tvær hugmyndir, það er
að segja, að fækka um einn í öllum
kjördæmum og gera jafnframt þá
breytingu á jöfnunarsætunum sem
fyrrgreind hugmynd byggir á.
Hvað sem einstökum útfærslum
líður er ljóst að í þessu efni má eng-
an tíma missa. Nú hefur skapast lag
til að gera breytingar í réttlætisátt
og það tækifæri verður að nýta. Hið
endanlega markmið í málinu er að
sjálfsögðu það að allir landsmenn
sitji við sama borð að því er varðar
atkvæðisréttinn og að öll atkvæði
vegi jafnþungt óháð búsetu kjós-
enda. ■
„Hvað sem einstökum útfcerslum líður er Ijóst að í þessu efni má engan
tíma missa. Nú hefur skapast lag til að gera breytingar í réttlcetisátt og
það tcekifceri verður að nýta. “
Þungavigtarmenn eru meðal annars: Árni Sigfússon, Geir Haarde, Halldór Ásgrimsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Siguröardóttir,
Jón Steinar Gunnlaugsson, Óskar Magnússon, Páll Kr. Pálsson, Svavar Gestsson, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson.