Helgarpósturinn - 10.10.1994, Page 20
20
MORGUNPÓSTURINN HEILSA
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 1994
S halfu
” dagana og éti ekkert
nema drasl þá er ég alveg
jafn góður. Ég gæti til dæm-
is aldrei hugsað mér að éta
bara grænmeti til að hugsa
um heilsuna, ég bara skil ekki
hvað fær fólk til að éta ekkert
nema salat heilu dagana.“
Finnst þér vera heilsuæði í
gangi?
„Já, ofsalega mikið. Maður sér
það bara á því hvað fólk er að
Helga
■ Þegar fólk er undir miklu álagi
tapar það B- og C-vítamínum úr
likamanum. Við stressi er því gott
að taka þessi
tvö vítam-
Líkamsræktar-
stöðvar
Hress
Boðið er upp á alls kyns leikfimi-
tíma. Á staðnum er gufa og Ijós.
Mánaðarkort kostar 4.290 krónur en
þriggja mánaða kort er á 12.000
krónur. ■
GYM ’8o
Á staðnum eru tveir taekjasalir. Ann-
ar ætlaður fyrir þá sem vilja brenna
fitu og auka úthald. Hinn fyrir þá
sem vilja styrkja sig og bæta við sig
þyngd. Einnig er boðið upp á að-
stöðu þar sem golfarar geta æft
sveifluna. Ljós og gufubað er á
staðnum. Mánaðarkort kostar 4.800
krónur en þriggja mánaða kort er á
11.400 krónur. ■
gufubað,
heitur pottur og Ijósabekkir.
Verð á mánaðarkorti er 3.900 krón-
ur en 8.800 krónur á þriggja mán-
aða korti. ■
Líkamsrækt
Jazzballettskóla
Báru
Boðið er upp á ýmiss konar leikfimi,
eingöngu ætlaða fyrir konur. Á
staðnum er sauna og Ijósabekkir.
Mánaðarkort kostar 4.500 krónur en
verð á þriggja mánaðakorti er
12.000 krónur. ■
Ræktin
Býður upp á tækjasal og eróbikk-
tíma. Á staðnum er heitur pottur,
gufubað og Ijósabekkir. Verð á
mánaðarkorti er 4.990 krónur en
þriggja mánaðakort kostar 12.200
krónur. ■
World Class
Á staðnum er tækjasalur, og
skvasssalur sem einnig er hægt að
spila körfubolta í. Boðið er upp á
ýmsar gerðir af eróbikktímum, heit-
an pott og gufu. Einnig er hægt að
fara í júdó og danskennslu, en
greiða verður fyrir það sérstaklega.
Korthafar World Class fá afslátt á
sólbaðsstofunni Gæðasól, sem er
samliggjandi stöðinni. Mánaðarkort
er á 4.990 krónur. ■
Stúdíó Ágústu
og Hrafns
Þar er boðið upp á allar tegundir af
eróbikktímum og svo sérstaka
tækjatíma. Á staðnum eru Ijósa-
bekkir og gufubað. Verð á mánað-
arkorti er 4.990 krónur en á þriggja
mánaða korti 12.300 krónur. ■
Máttur
Boðið er upp á þrjá tækjasali og alls
kyns leikfimitíma. Á staðnum er
gufubað, Ijósabekkir og heitir pott-
ar. Mánaðarkort kostar 4.900 krón-
ur en verð á þriggja mánaða korti er
11.400 krónur. ■
m.
Rós V.
Hannam
starfsmaður
á myndbanda-
leigu
„Það er hræðilegt að viðurkenna þetta
en ég hugsa ekkert um heilsuna. Ég
borða hvað sem er, en þó ekki rusl-
fæði, ég lifi aðallega á brauði, osti
og poppkorni. Ég tek aldrei vít-
amín en ég held að það megi
segja að ég spái aðeins í matar-
ræðið.“
Er samspil á milli líkamlegrar
og andlegrar líðanar?
„Það hugsa ég. En þar sem mér
líður ágætlega held ég að þetta
sé bara allt í lagi hjá mér.“
Er heilsuæði í gangi?
Nei, það held ég ekki. Það er
pizzuöld. ■
■ Ef þú átt erfitt með að vakna á ■ E-vítamínin
morgnana áttu að taka gingseng eða eru kynörv-
drottningarhunang, það eykur súr- andi, svo og
efnisupptökuna og hressir því. gingseng og
Blóðleysi gæti líka verið ástæðan drottningar-
fyrir því að þú átt erfitt með að hunang.
vakna og því ágætt að láta mæla í sér
blóðið.
Fyrir lifur, heila og hár
Maxi L-Camrtirte er efnasamband sem líkaminn framleiðir. Hlut-
verk þessa efnasambands er að breyta fitusýrum í orku og því þarf mikið
af þessu efni að vera til staðar í lifrinni til þess að brjóta niður það mikla
magn fitusýra sem myndast við neyslu alkóhóls, eða neyslu fituríkrar fæðu.
[ Ijós hefur komið að Carnitine kemur í veg fyrir lifrarsjúkdóma vegna alkó-
hóineyslu. Einnig eykur Carnitine niðurbrot fitu og hefur þar af leiðandi því
hlutverki að gegna til að hindra sýringareitrun blóðs eða vefja vegna
óheilsusamlegra heilsuvenja. ■
Inositol Er úr flokki B-vítamína og myndar ásamt kólíni efnið Lecitin
sem er aðalefni frumuhimna. Inositol er gott fyrir heilafrumurnar, það stuðl-
ar að heilbrigðu hári og hindrar hárlos, hefur græðandi áhrif á exem og er
gott fyrir húð og vööva. Mikið Inositol finnst í augasteinum og í hjartavöðva
og er því talið þýðingarmikið fyrir heilbrigða sjón og hjartastarfsemi. ■
Efni þessi er hægt að kaupa í Heilsubúðinni.
Logi Bergmann
Eiésson
fréttamaður
„Ég spila fótbolta tvisvar í viku og reyni að
komast í körfubolta tvisvar í viku. Það
hvarflar ekki að mér að fara að hlaupa eitt-
hvað út í loftið enda hef ég aldrei skilið
hvað fær fólk til að hlaupa. Ég fæ ekkert
kikk út úr hlaupum nema ég sé að elta eitt-
hvað. Svo fara sumrin í golf, en ég er alveg
orðinn sjúkur. En þetta er nú eiginlega það
eina sem ég geri til að viðhalda heilsunni.
Mataræðið er mjög óhollt, ætli ég drekki
ekki svona tólf bolla af kaffi á dag og ég hef
yfirleit lítinn tíma til að borða vinnunnar
vegna, og þá þarf maður að bjarga sér á
rækjusamlokunum og pulsum.“
Er samspil á milli líkamlegrar og andlegra
líðanar?
„Ábyggilega, það til dæmis pirrar mig miki<
ef mér fmnst ég ekki fitt, eins og þegar ég
hef ekki farið í fótbolta lengi og mér
finnst ég vera þungur þá get ég orðið
mjög pirraður. En þó ég borði ekkert heilu og
is Jónsdóttir altmuligkona
„Ég hugsa um heilsuna á hverjum degi. Tek inn Herbalife tvisvar á dag
og svo er ég líka að æfa líkamsrækt. Ég hugsa líka mjög mikið um mata-
ræðið og í rauninn gerðist það eftir að ég byrjaði á Herbalife. Áður hafði
ég alltaf verið að reyna að spá í mataræðið og pína mig í að halda út ein-
hverja heilsukúra en maður datt alltaf út öðru hvoru og fór á „fyllerí“,
sykurfíkn og svona rugl. En eftir að ég
byrjaði á Herbalife er líkaminn í
svo svakalegu jafnvægi að ég er
bara brjáluð í vatn, líkaminn
vaknar og maður fer að
hlusta eftir því hvað hann
þarf.“
Er samband á milli lík-
amlegs og andlegs
ástands?
„Það er svo stutt á
milli efnisins og and-
ans að það er bara eitt.
Þegar ég byrjaði á
þessari vöru fannst
mér í fyrsta skipti að
mér liði vel, ekkert
mál að vakna á morgn-
ana án þess að þurfa að
leggja mig á daginn og
vera dauðþreytt. Og síð-
asta vetur var svo gaman
að vera til að mér leið eins og það væri
sumar, engin svartsýni eins og svo oft
vill verða á veturna. Ég hef ekki lengur
trú á þunglyndissjúkdómum, ég held
að þetta sé bara langvarandi næring-
arskortur sem veldur því að fólk
verður svona svartsýnt vegna
þess að það er svo þreytt að það
sér ekki næsta dag fyrir sér.
Maður er svo orkulaus þegar
maður hefur ekki næringu, það
eru sex billjón frumur sem eru
að endurnýja sig í líkamanum
daglega og hann þarf orku til
þess.“
Er heilsuæði í gangi?
„Það eru allir að reyna
eitthvað, það lang-
ar alla að líta vel
út en ég verð ekki
vör við neina öfga
hér á íslandi enda
held ég að öfgar í
hvaða átt sem er sé ekki
rétta lausnin. Til dæmis
held ég að það henti ekki
íslendingum að vera græn
uoiua, uisaiegu iihkiu giæu-
meti. Mér finnst skrýtið að sjá fólk
fá sér kálblað og vatnsglas, það er ekki
alveg ég. Það góða er að fólk er farið að
hreyfa sig miklu meira í staðinn fyrir að
svelta sig til að líta vel út.“ ■