Helgarpósturinn - 10.10.1994, Page 25
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 1994
MORGUNPÓSTURINN MENNING
25
Hvar er banjóið?
Svejk, Birtingi, fávitanum Myskin
íiirsta, Stikilsberja-Finni og umrenn-
ingi Chaplins. Líkt og einfeldni
þeirra er afglapaháttur hans afhjúp-
andi; bjánaskapur hans dregur fram
miklu ógeðfelldari bjánaskap þeirra
sem hafa meira að segja um hvemig
veröldin vindur sig. Einfeldni hans
vinnur áreynslulaust á sérgæskunni,
smásálarhættinum og fautaskapnum
sem er allt í kring.
Svo eru Bandaríkjamenn núorðið
óvissir um stöðu sína heima og alls
staðar að þeir em haldnir nánast sjúk-
legri áráttu til að skilgreina sjálfa sig.
Gumpæðið hefur verið skilgreint í
bak og fyrir. Vinsælasta kenningin er
sú að hann sé tákn um eitthvert
bandarískt sakleysi sjötta áratugarins
sem hafi glatast, nánast bernskan
heim. Vísast er margt til í því. En
máski er Forrest Gump fyrst og
fremst maður sem lætur lífið ekki
stela neinu frá sér. Kannski að hluta til
vegna þess að lífið ágirnist ekki neitt
frá honum. Hann er trúr yfir sínum
bút. Slíkt hughreystir og vekur góðar
kenndir. Og kannski er hann líka
frændi Frans frá Assisi sem talaði við
fúglana.
■ Hugkvæm mynd þar sem hug-
myndaflug og vitsmunir vinna
saman.
DAGSLJÓS
RÚV
★★★
Þegar Hrafn Gunnlausson
viðraði hugmynd sína um „maga-
sín“ þátt í alræmdum umræðu-
þætti sá maður fyrir sér einhvers
konar kerlingaþátt að breskri fyrir-
mynd sem myndi að mestu leyti
ganga út á tesmökkun. Raunin hef-
ur orðið nokkur önnur og síðan
Dagsljós hóf göngu sína í fyrra hef-
ur þjóðin getað slafrað í sig sviða-
kjammana eftir enn einn daginn í
dósaverksmiðjunni yfir hinu
prýðilegasta slafrkompaníi. Nú er
Dagsljósstóðið komið affur í bás-
ana eftir sumarfrí og þrátt fyrir
villandi auglýsingaherferð hefur
lítið breyst. Hvar eru aðþröngu
búningarnir sem okkur var lofað?
Hvar er banjóið? Gerði Rósa Ing-
ólfs þessa auglýsingu?
önnur hinna ljóshærðu er að
vísu hætt en enn situr gengið í hin-
um ýmsu hægindastólum, hellir
niður úr kaffibollum og kynnir
okkur innslögin sem þau hafa ver-
ið að vinna fyrr um daginn. Þætt-
irnir verða auðvitað ekki skemmti-
legri en þær hugmyndir sem
kvikna á ritstjórnarfundum. Is-
lenskt fjölmiðlalíf virðist byggjast á
hellingi af efnisþáttum sem eru
endurteknir eftir þörfum og lúta
lögmálinu: „liðið er fljótt að
gleyma". í síðustu viku sáum við
innslög um eyðni, box og sniff. I
þeSsari viku verður það kaffihúsa-
menningin, „Hvað varð um pönk-
arana?“ og vandræðaunglingar.
Nci, ansk., Dr. Sigrún varð fyrri
til.
Það er svo sem ekki við þau í
Dagsljósi að sakast. Ekki er radíus
fréttatengdrar uppfinningarsemi
stærri annars staðar. Kratar og
týndir menn á öllum forsíðum, því
„þetta kaupir liðið“.
Það þarf þó ekki að éta svið þar
til ákveðinni kæruleysisvímu er
náð (og þar með að kæfa í hnakka-
spika allar kröfur um frumlegt
rannsóknarsjónvarpsefni - og ekki
spurja mig hvað er frumlegt) til að
hafa gaman af þessu prógrammi.
Þau er helv. góðir krakkarnir. Sér-
stakt stuð er að sjá Fjalar þjarma
að einhverjum hálfrita í sófanum,
svo ég tali nú ekki unt ritstjórnar-
pistlana.
Radíusbræður eru sem betur fer
mættir aftur með sömu brandara
og í fyrra og eru alltaf jafn spreng-
hlægilegir. Popparaportið er frá-
bær nýjung þar sem hin ýmsu ung-
lingabönd fá að spreyta sig. „Síð-
asta orðið“ er hins vegar fúlt dæmi.
Alla vega skyldi ég ekki bofs í því
hvað þessir rithöfundar voru að
bulla. Þeir sem eru ekki rithöfund-
ar fá að vera menn dagsins - en fá
væntanlega ekki krónu fyrir. Samt
fannst mér speki kattagæslu-
mannsins bera af speki síðustu
viku. Gagnrýnin er á sínum stað:
Árni Þórarinsson alltaf jafn slá-
Halldór E. Laxness heldur
því fram í viðtali að leikritið
„Sannur vestri" eigi vel við
ástandið á íslandi.
stemmningin - en það eru ýmsir að-
ilar í því að gauka að okkur ritvélum
til eyðileggingar.
Gengur það ekkert illa að setja
þennan amerískœttaða flœking í ís-
lenskt samhengi?
„Nei, alls ekki. Við getum í því
sambandi tekið muninn á mennta-
mannaklíku hér á höfuðborgar-
svæðinu og síðan sjóurum úti á
landi. Hvor hópurinn hefur engan
áhuga á hinum og heldur að hann sé
eitthvað sem má fara til andskotans.
Það er þetta bil milli borgarinnar og
landsbyggðarinnar sem er alltaf að
breikka. Þessi flækingur er eins og
farandverkamaður og á vel við í dag.
Þá er áríðandi að minna á það að
þetta ríki sem heitir íslenska lýðveld-
ið hefur miklu meira af ammerísk-
um straumum hér en margir gera
sér grein fyrir. Margir erlendir ferða-
menn sem hingað hafa komið segja
að þetta sé ekkert annað en smækk-
uð mynd af Ameríku. Bæði viðhorf
og hvernig hlutir eru skipulagðir og
uppbygging öll. Það eru bara ein-
hverjar klíkur sem rembast við að
halda því ffarn að þetta sé eitthvað
líkara öðrum löndum. Ungt fólk
hefur miklu meira samband við
Bandaríkin eða sjá miklu meira af
bandarískri menningu og öllu því
dóti heldur en frá nokkru öðru
landi.“
Bent hefur verið á að Shepard geri
ameríska draumnum betur skil en
nokkur annar. Er til eitthvað sem
heitir íslenski draumurinn eða er
þetta sama tóbakið?
„Já, já og það er merkilegt með
ameríska drauminn, eins og ítalskur
þjófúr sagði einu sinni við mig, að
hann lifir aðeins í Ameríku, Napólí
og á íslandi. Það eru miklir draumar
hér og menn hafa haldið í ýmis gildi:
Island ofar öUu, sjálfstæði, tunga,
menntun og svo afíur á móti erum
við að komast á það augnablik núna
að velferðarríkið er einhver ægileg il-
lúsjón miðað við velferðarkerfi ann-
ars staðar í heiminum eins og á
Norðurlöndunum og jafnvel í mið-
Evrópu. Velferðarkerfið gekk vel hér
fyrir um 15 brautum, var gott og
skemmtilegt, en það er úr sér gengið
og því ekki haldið nægUega vel við
þannig að við erum á hættubraut.
Draumar margra eru að bresta.“
HaUdór hóf leikstjórnarferU sinn
á íslandi um 1990 með því að setja
upp „Leiksoppa“ hjá Nemendaleik-
húsinu. Síðan hefur hann sett upp
einar tíu sýningar sem hafa hlotið
mjög misjafna dóma.
„Já, ég hef fengið nokkrar bunur
hjá Súsönnu, sem elskar aðra hverja
sýningu hjá mér en hatar hinar.
Menn eru farnir að spyrja hvort ég
sé á einhverjum sérsamningi hjá Sú-
sönnu: Að ég fái góða krítík fyrir
aðra hverja sýningu með þeim skU-
málum að hún fái að rífa niður hin-
ar á mUli. Annars hefur hún tekið
fastast á þeim sýningum sem ég hef
sett upp í stóru leikhúsunum:
„Dúfhaveislan“ og „Blóðbræður“.
Er eitthvert samhengi þar á milli?
„Ég veit það ekki og þó að hún
hafi rifið þær niður þá kom fólk að
sjá þær þannig að það kom ekki
málinu við. En það er erfitt að segja
það hvort henni faUi betur í geð það
sem er gert utan stóru leikhúsanna.
Hún hefúr náttúrlega sinn smekk.
Það er annar andi með frjálsum leik-
hópum og minni stofnunum eins og
Leiklistarskólanum — meiri aksjón
og snerpa. Hún elskaði „Standandi
pínu“ sem ég setti upp í fyrra þannig
að samkvæmt formúlunni ætti hún
að hata þessa. En við vonum að það
fari ekkert út í það.“
Skipta krítíkerar miklu máli að
þínu mati?
„Krítíkerar skipta máli, það skipt-
ir aUt máli í þessum bransa. En hvort
þeir hafi áhrif á mann sjálfan það er
annað mál. Ég lít á þetta þannig, eins
og góður kennari minn sagði:
„Strákar mínir. I raun og veru þurfið
þið ekki að lesa neina krítík því það
er svipað og með líkamann á okkur
að ef við erum ekki veikir, þá förum
við ekki tU læknis.“
Nú má segja að leikhúsfólk sé með
ákveðið yflrlæti gagnvart gagnrýni?
„Það er líklega rétt. Það er einhver
mekaník sem fer í gang tU að þola
áreiti. En það er nú kannski aUt í lagi
að kíkja svolítið á hana og þá auðvit-
að aðaUega þegar krítík verður mál-
efnaleg og byggð á þekkingu. En ég
persónulega hef gaman af því að lesa
aUa krítík, þó ekki nema mér tU
gamans. Maður er ekki að gera leik-
hús alveg fyrir sjálfan sig og ég met
viðhorf krítíkera, þeir eru jú áhorf-
endur og eins og aUir áhorfendur þá
hafa þeir skoðanir á málunum. Og
það er nauðsynlegt að líta á það
hvort hægt hefði verið að skemmta
þessari manneskju á einhvern annan
hátt.“
Nú eru margir leikarar sem, stœra
sig af því að þeir lesi ekki gagnrýni.
Eru þeir ekki bara að Ijúga þessu?
„Er það ekki? Ég gæti vel trúað
því. Ég held að aUir laumist í krítík.“
-JBG
Horfiö á sjó
með Dr
i£k
Látið Dr. Gunna leiða ykkur um frumskóg dagskrárinna
Ríkissjónvarpið Stöð2
c?
Manudagur 10. oktober
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Þytur í laufi 2:65
Wind in the willows Alger snilld,
nú með íslensku döbbi.
18.25 Kevin og vinir hans 6:6
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Flauel
Popp! jibbí!
19.15 Dagsljós
20.00 Fréttir og veður
20.40 Vinir 3:7
Tveir gamlingjar i stuði. Breskur
gamanmyndaflokkur.
21.10 Nýr óvinur 2:2
Heimildamynd um skipulagða
giæpastarfsemi.
22.05 Leynifélagið 4:6
Franskur myndaflokkur um um-
hverfisvænt leynifélag.
23:00 Ellefufréttir
17:05 Nágrannar
17:30 Vesalingarnir
17:50 Ævintýraheimur
Nintendo
18:15 Táningarnir
í Hæðagarði
18:45 Sjónvarpsmarkaðurinn
Popparar selja húsmæðrum
nuddtæki.
19:19 19:19
20:15 Eiríkur
20:40 Matreiðslumeistarinn
Sigurður Hall og Tommi Tomm
steikja hamborgara.
21:15 Neyðarlínan
Rescue 911
22:05 Hulin ráðgáta
Secrets of Lake Success
23:40 Friðhelgin rofin
Unlawful Entry Passið ykkur:
iöggan er vond!
01:30 Dagskrárlok
Þriðjudagur 11. október
17.50
18.00
18.30
18.55
19.00
19.15
20.00
20.35
Táknmálsfréttir
Svona lærum við... 2:4
SPK
Fréttaskeyti
Eldhúsið
Dagsljós
Fréttir og veður
Staupasteinn 16:26
Kunningjar okkar drekka bjór.
21.05 Leiksoppurinn (1:3)
Calling the Shots Breskur saka-
málaþáttur um fréttakonu sem
dregst inn í vond mál.
22.00 Hvað getum við lært?
Ólafur Sigurðsson með um-
ræðuþátt um fisk. Zzzz.
23:00 Ellefufréttir
17:05 Nágrannar
17:30 PéturPan
17:50 Gosi
18:15 Ráðagóðir krakkar
18:45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19:19 19:19
20:15 StefánJón
20:40 Visasport
21:15 Barnfóstran
The Nanny
21:40 Hulin ráðgáta
Secrets of Lake Success
23:10 í sérflokki
A League of Their Own Ágæt
mynd um drykkfelldan þjálfara
og kvennalið i hafnabolta.
01:15 Dagskrárlok
Miðvikudagur 12. október
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Hattaborg
18.15 Spæjaragoggar
18.30 Völundur
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Einn-X-tveir
19.15 Dagsljós
20.00 Fréttir og veður
20.35 Á tali hjá Hemma Gunn
Enn stígur snillingurinn á stokk
- þið vitið hverju við er að bú-
21.35 Hvíta tjaldið
Vala Mattferibíó.
22.00 Saltbaróninn (11:12)
23:00 Ellefufréttir
23:15 Einn-X-tveir
23:30 Dagskrárlok
17:05 Nágrannar
17:30 Litla hafmeyjan
17:55 Skrifað í skýin
18:15 Visa-sport
18:45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19:19 19:19
20:15 Eiríkur
20:40 Melrose Place
21:35 Stjóri (The Commish II)
22:20 Tíska
22:50 Smásögur
Kurt Vonnegut
Einþáttungur upp úr hinu
þokkalega smásagnasafni
„Welcome to the Monkey
House“.
23:15 Dutch
Driving me Crazy Úrjeel-
good“ smiðju John Hughes.
01:00 Dagskrárlok
andi vitur urn ræmurnar, fúli leik-
húsrýnirinn verður vonandi i fýlu
út önnina (enda fátt leiðinlegra en
slefvolgar lofrollur um íslenskt
leikhús) og nú bætist pottþétt inn-
legg í hópinn: Sigurjón Kjartans-
son, forveri rninn í þessu sjón-
varpsgjammi, fær að púkka upp á
poppið. Kannski fleiri snillingar
bætist svo í hópinn.
Dagsijós er skrambi árennilegur
þáttur fyrir augað og eyrun meðan
bixímaturinn rennur um kokið og
„Þráttfyrir villandi
auglýsingaherferð hefur
lítið breyst. Hvar eru
aðþröngu búningarnir
sem okkur var lofað?(í
það er vonandi að nieira en 15%
þjóðarinnar sjái sér fært að líta upp
úr kvöldmatnum kl. 19.15 á mánu-
dögunt til fimmtudags í vetur.
Dr. Gunni