Helgarpósturinn - 10.10.1994, Qupperneq 28
28
MORGUNPÓSTURINN SPORT
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 1994
Ingi Björn Albertsson Ekki end-
urráðinn.
Blikar
Bjami í stað
Inga Bjöms
Breiðablik hefur samið við
Bjarna Jóhannesson um þjálfun
liðsins til tveggja ára. Þar með er
ljóst að ekki hefur verið leitað eftir
frekara samstarfi við Inga Björn
Albertsson sem þjálfað hefur liðið
síðastliðin tvö ár.
Bjarni þjálfaði 2. deildarlið Fylkis
í sumar en var ekki endurráðinn
þar sem liðið tryggði sér ekki t.
deildarsæti. Þrátt íyrir það mun
hann þjálfa í. deildarlið næsta sum-
ar. Hann hefur aldrei áður verið
aðalþjálfari t. deildarliðs en hann
hefur áður verið aðstoðarmaður
Ásgeir Sigurvinssonar hjá Fram
auk þess að þjálfa lið Grindavíkur
og Tindastóls í annarri og þriðju
deild. ■
U-i8 ára liðið
Stórsigurá
Lúxembora
Islenska landsliðið skipaðdeik-
mönnum 18 ára og yngri rústaði
jafnöldrum sínum frá Lúxemborg á
Valbjarnarvelli í gærdag.
Lyktir leiksins urðu 9:0 eftir að
staðan var 5:0 í hálfleik.
Andri Sigþórsson hjá Bayern
Munchen og Björgvin Magnús-
son hjá Werder Bremen gerðu þrjú
mörk hvor og Vilhjálmur Vil-
hjálmsson og Kjartan Antons-
son sitt markið hvor. Eitt markið
var síðan sjálfsmark gestanna. ■
Evrópukeppni
landsliða
Góður sigur
Portúgala
Portúgal vann góðan sigur á Lett-
landi í gærkvöld með þremur mörk-
unt gegn einu. Leikurinn, sem er lið-
ur í undankeppni Evrópumóts
landsliða, er í sjötta riðli og með
sigrinum taka Portúgalar ótvíræða
forystu í riðlinum með fullt hús
stiga að loknum tveintur útileikjum.
I fjórða riðli unnu Króatar mikil-
vægan sigur á Litháum í gærkvöld
og með sigrinum tóku þeir foryst-
una í riðlinum, eru nteð fullt hús
eftir tvo leiki. ítalir koma næstir
nteð fjögur stig. ■
Hver er þessi Herbert?
»
Eins
hafí
farid“
Herbert Arnarson
„Nú gefég kost á
mér í landsliðið og
stefni ótrauður á
mitt sœti þar. “
Kana, smellur þetta saman hjá þeim.
Ég get nefnt öll lið, lið sem menn hafa
útilokað, eins og Tindastóli, eru að
springa út og svo mætti telja. Jonat-
han Bow á eftir að gera mjög góða
hluti með Valsmönnum og svo
mætti lengi telja. Það er í raun hægt
að mæla með flestum liðum
deildarinnar.“
Nú er mikið látið með erlendu
leikmennina. Þeir eru annað
hvort hetjur eða skúrkar og
þurfa að sanna sigeinn, tveir
og þrír. Hver er þín skoðun
á þessu?
„Þetta er mjög erfitt
hlutskipti. Það er erfitt
að koma til annars
lands og eiga að
blómstra strax og
maður stígur út úr
flugvélinni. Á hitt
ber þó að líta að
þeir sem dæma
rnenn svo snemrna
vita alveg að hverju
þeir eru að leita og
ættu því að vera vel
dómbærir. Það er
svo mikið til af
mönnum sem vilja
spila fyrir peninga að
ef einn stendur sig
ekki þá er bara fenginn
annar. Það er svo ein-
falt að það er nóg til af
mönnum.
Hér á landi er mest af
stórum mönnum og
það er það sem mest
hefur vantað hér á
landi.“
Hvernig erframtíðin?
„Hún er mjög björt
og raunar með ólíkind-
um. Framfarirnar eru
miklar, leikmenn eru að
batna, þjálfarar læra
meira og menn eru meira að
segja að verða hávaxnari. Þetta á
allt eftir að skila meiru og þessi körfu-
boltasprenging er rétt að byrja.“
Hvernig er með landsliðsmálin.
Stefnir þú þangað?
„Ég gaf ekki kost á mér í sumar
vegna útskriftarinnar hjá mér. Nú er
ég hins vegar kominn heim, gef kost á
mér og stefni ótrauður á mitt sæti
þar.'V -Bih
ÍR-ingar hafa byrjað ágætlega í Úr-
valsdeildinni í vetur og virkar Iiðið
vel samhæft og sterkt. Þjálfarinn
John Rhodes, sem lék áður með
Haukum, virðist vera að gera góða
hluti og eitt stærsta tromp liðsins,
Herbert Arnarson, sem nýkontinn
er heim ffá Bandaríkjunum, virðist
smella inn í liðið. Hver er þessi Her-
bert?
Herbert Arnarson hefur búið í
Bandaríkjunum síðastliðin átta ár. Á
þeim tíma hefur hann leikið körfu-
bolta með menntaskóla- og háskóla-
liðum og síðustu þrjú ár hefúr hann
verið fyrirliði Kentucky-liðsins, en
það að vera valinn fyrirliði háskóla-
íiðs í Bandaríkjunum þykir mikill
heiður. En hvernig kom það til að
drengurinn fór til útlanda aðeins sex-
tán ára gamall?
„Þegar ég var í grunnskóla kom
nokkrum sinnunt hingað til lands úr-
valslið ffá Kentucky-fylki í Banda-
ríkjunum. Ég lék körfubolta hér
heima á þessum tíma og einhvern
veginn kom það til tals að ég færi út
og kannaði aðstæður. Jón Sigur-
jónsson sá urn þessi mál hérlendis
og þetta endaði með því að ég hélt ut-
an fyrir forvitnissakir og ætlaði að-
eins að vera eitt ár. Dvölin lengdist
þó, lífið þarna úti var hreint ffábært
og þar sem ég ákvað að mér bæri
einnig nauðsyn til að mennta mig
meira lengdist dvölin smám saman.“
En síðan tekur þú þá ákvörðun að
koma heim eftirátta ára títlegð?
„Já, stefnan hafði alltaf verið tekin
á að koma heim og nú þegar ég var
búinn með háskólann var ekkert
meira fyrir mig í körfuboltanum. Ég
er enginn NBA-leikmaður og þess
vegna lá þetta beinast við. Ég neita
því síðan ekkert að það að vera kom-
inn aftur í faðm fjölskyldunnar og
vina er alveg ffábært.“
Eru þetta ekki mikil viðbrigði?
„Jú reyndar, en þetta verður fljótt
að venjast. Ég hef alltaf verið hér á
sumrin og þekki því vel til besta tíma
ársins hér. Nú er hins vegar tekið að
skyggja og kólna og þá fer reyndar að
versna í því. En kostirnir eru miklu
fleiri en gallarnir í þessu sambandi.
Fyrir mér hefur alltaf verið tak-
markið að leika körfúbolta hér heima
og nú er það að rætast. Þetta er að
mínu mati aðeins rökrétt ffamhald af
ferli mínum úti og nú hefur þetta
takmark ræst. Ég er að skemmta mér
konunglega þessa dagana og hef
mjög gaman af þessu.“
Nú veltu menn því mikið fyrir sér í
hvaða lið þúfœrir.
Já, það höfðu nokkur lið samband
við mig og málin voru rædd ffam og
til baka. Hins vegar var
þetta nær aldrei spurning af minni
hálfú, ég hóf ferilinn með IR og allir
mínir félagar leika nú nteð liðinu.
nú eins og
ég hafi aldr-
ei farið.“
Hvernig
líst þér á lið-
ið?
„Mjög
vel. Þetta
eru góðir
leikntenn
og félagar.
Þjálfarinn,
John
Rho-
des, er
mjög
góður og
síðan höf-
um við fengið
Jón Öm Guð-
munds-
son og Bjöm Steffensen, gamla ÍR-
inga og mér finnst bara mjög spenn-
andi að koma í þetta stóra hverfi og
reyna fyrir mér. Rhodes er svakalegur
karakter og góður leikmaður. Hann
veit hvað hann getur og spilar innan
þeirra marka, sem ntér finnst mjög
gott. Hann sýnir umhyggju fyrir lið-
inu og leikmönnunum og það er að
mínu mati afar mikilvægt í stað þess
að menn hugsi bara um sjálfa sig.“
Ogþú byrjar vel?
„Byrjunin er kröffug og þetta fer
að smella saman hjá okkur. Það er
auðvitað alltof snemmt að spá í leik-
ina, við hefðum átt að gera betur á
Reykjavíkurmótinu þannig að betur
má ef duga skal. Ég held þó að þetta
sé allt að koma.“
Hvað með hin liðin?
„Það er nú erfitt að dæma, liðin
leika öll á sama tíma þannig að það er
ekki auðvelt að dæma hvert lið fyrir
sig nema af afspurn. Það eru ntikil
framför, liðin eru mjög jöfn og síðan
ég fór hafa ótrúlegar frantfarir átt sér
stað. Ég vona samt að reyndin verði
sú að ekkert lið stingi af því þá fer
spennan forgörðum.
Grindvíkingar eru mjög sterkir og
ef þeir ákveða sig einhvern tíma með
Þvi var
valið
einfalt og
mér líður
Spánn
Romario með tvö mörk
Barcelona vann langþráðan sigur um helgina í
spænsku knattspyrnunni gegn Atletico Madrid.
Lyktir leiksins urðu 4:3 að hætti sóknarbolta Bör-
sunga og gerði Brasilíumaðurinn Romario tvö
mörk í leiknum og þeir Hristo Stoichkov og
Josep Guardiola sitt markið hvor. Adolfo Va-
lencia, Francisco Perri og Kirki Narvaez
gerðu mörk Madridinga í leiknum.
Deportivo la Coruna heldur enn áfram sigur-
göngu sinni og í gærkvöld urðu Real Zaragoza
þeim að bráð. Reyndar leit lengi vel út fýrir tap
Corunaliðsins en tvö mörk á lokamínútunum frá
varamanninum Claudio Barragan gerðu út um
leikinn.
Að loknum sex umferðum er Deportivo la
Coruna efst með tíu stig, Real Madrid er í öðru
sæti með níu stig og síðan koma Real Betis, Ten-
erife, Valencia og Real Zaragoza öll með átta
stig.B
Romario Lék sinn fyrsta leik með Barcelonaliðinu í þrjár
vikur og gerði tvö mikilvæg mörk um helgina.
Orð í eyra
Það er ekki svo gott að segja hver á
að fá orð í eyra að þessu sinni.
Vandamálið er ekki það að allt sé
svo slétt og fellt að ekki þurfi að
hreyfa við mótmælum. Málið er
bara mun flóknara en svo.
Flestallir Evrópuieikir liðanna ís-
lensku fara nú fram á útivelli. Fjár-
hagsleg staða liðanna býður ekki
upp á neitt annað og ekki er stuðn-
ingi áhorfenda fyrir að fara; þeir
virðast vera farnir að missa áhug-
ann á íþróttinni nema um úrslita-
keppni sé að ræða.
Hvað er til ráða? Er eðlilegt að lið
séu hrædd við drætti í Evrópu-
keppninni? Er eðlilegt að áhorfend-
ur vilji ekki hvetja sitt lið í mikilvæg-
um alþjóðaleikjum? Er eðlilegt að
leikir einnar bestu og mestu hand-
boltaþjóðar heims séu „seldir“ til út-
landa?
Spyr sá sem ekki veit.
Víkingar enn í vígahug
Heimamenn
höiðu skiur
Víkingar sigruðu FH-inga með
einu marki, 26:25, í Víkinni í gær-
kvöld. Leikurinn var sá fyrsti í
sjöttu umferð 1. deiidar og var flýtt
vegna Evrópuleikja i vikunni.
Bjarki Sigurðsson fór á kostum
í leiknum og gerði tólf mörk. Sig-
urður Sveinsson var einnig góður
og gerði átta mörk.
Markahæstir FH-inga voru þeir
Hans Guðmundsson með sjö
mörk og þeir Guðjón Árnason,
Gunnar Beinteinsson og Stefán
Kristjánsson allir með fjögur
rnörk. ■
Bjarki Sigurðsson Fór á kostum
í gærkvöld og gerði alls tólf mörk.