Helgarpósturinn - 24.10.1994, Page 11
MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 1994
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
11
Ekki er enn vitað hvenær mál raðsmíðaskipanna kemur til með að
fara fyrir dómstóla
SkuMabréfum ekki þinglýst
Jöfur 1172. Sigurður Thoroddsen, lögfræðingur Ríkisábyrgðasjóðs
segist ekki geta sagt fyrir um hvenær málsundirbúningi af hálfu ráðu-
neytisins verði lokið, en þó mun fyrsta stefnan verða birt á næstu dög-
um eða vikum.
Að sögn Sigurðar Thoroddsen,
lögfræðings Ríkisábyrgðasjóðs, er
verið að yfirfara öll gögn sem fund-
ist hafa og verið að leita að eldri
skjölum sem tengjast rað-
smíðaskipunum. Að sögn Sigurðar,
er það misskilningur að ekki hafi
verið skrifað undir kaupsamninga.
Hins vegar hafi kaupendur aldrei
skrifað undir skuldabréfin fyrir lán-
unum, sem þeir fengu til skipa-
kaupanna. „Auðvitað hefði átt að
ganga frá þessum skuldabréfum áð-
ur en skipin voru afhent," sagði
Sigurður í samtali við MORGUN-
PÓSTINN. Þar sem kaupsamningar
voru undirritaðir og skipin komin í
vörslu sinna nýju „eigenda“, en
skuldabréfin ekki þinglýst, voru
skipin ekki opinberlega í vanskilum
við neinn og því ekki hægt að halda
eftir sjö prósentunum, sem Stofh-
fjársjóður innheimtir reglulega af
öllum skipum. Þar að auki voru
gerðar lagabreytingar árið 1986,
sem sögðu fyrir um, að Stofnfjár-
sjóður sæi ekki um innheimtu
skulda fyrir Byggðastofnun og Rík-
isábyrgðasjóð, nema útgerðirnar
væru einnig í skuld við Fiskveiða-
sjóð.
Þolinmóðir
lánadrottnar
Aðalástæðurnar fyrir þeim töf-
um sem orðið hafa á aðgerðum af
hálfu ráðuneytisins segir Sigurður
vera tvær. I fyrsta lagi ákveðna laga-
lega örðugleika. Gengið var frá gerð
ákveðinna tryggingarbréfa á sínum
tíma, þar sem skipasmíðastöðvun-
urn voru tryggðar greiðslur fýrir
skipin. f þessum tryggingarbréfum
voru engar ákveðnar upphæðir
nefndar, og þar sem útgerðarmenn
skrifuðu aldrei upp á skuldabréfin
varð fyrst að reikna út fasta upp-
hæð og fá hana staðfesta fýrir dóm-
stólurn.
Hin ástæðan og sú veigameiri
mun þó vera sú, að menn vildu ná
samningum við viðkomandi út-
gerðarmenn og fá þá til að skrifa
undir skuldabréfin áður en farið
yrði í hart. Voru útgerðarmenn
duglegir að kvarta yfir hinum ýmsu
vanköntum, sem þeir fundu á skip-
um sínum og kvóta og tefja þannig
framgang mála. Eflaust hefði mörg-
um, sem skuldað hafa minni fjár-
hæðir til skemmri tíma en farið á
hausinn eigi að síður, þótt mikill
fengur í jafn þolinmóðum og skiln-
ingsríkum lánadrottnum og Ríkis-
ábyrgðasjóður hefur reynst þessum
útgerðarmönnum. Enn er verið að
semja við Nökkva hf., en það mun
vera eina útgerðarfélagið sem sýnt
hefur einhvern samningsvilja.
„Reiknað með
undirskrift“
En hvers vegna voru skipin af-
hent áður en útgerðarmennirnir
skrifuðu undir skuldabréfin? Líkt
og Magnús Pétursson ráðuneyt-
isstjóri, í síðasta tölublaði MORG-
UNPÓSTSINS, hafði Sigurður ekki
önnur svör en þau, að væntanlega
hefðu menn „einfaldlega reiknað
með því, að gengið yrði frá undir-
skriftum" og þess vegna afhent
skipin. Núna, sjö árum seinna, á að
bjarga því sem bjargað verður og
reyna að selja skipin upp í eitthvað
af skuldunum. Einnig er unnið að
samningum um greiðslu eins konar
afnotagjalds fýrir þau ár, sem út-
gerðarmennirnir hafa haft skipin
„að láni“. Það er þó fullljóst að rík-
issjóður hefur nú þegar tapað
hundruðum eða jafnvel þúsundum
milljóna króna vegna mistakanna
við sölu skipanna. Samt sem áður
virðast menn engan áhuga hafa á að
komast að því, hver eða hverjir það
voru, sem „reiknuðu með“ undir-
skriftunum á sínum tíma. Ekki er
unnið að neinni rannsókn þar á
innan veggja ráðuneytisins. Þar er
eins og menn hafi einfaldlega sætt
sig við þessa einföldu skýringu og
ætli að taka þessu milljarðaklúðri
sem hverju öðru hundsbiti, sem
enginn beri ábyrgð á.
æöj
Aðstoðarmenn ráðherranna hafa að meðaltali verið skipaðir í rúm-
lega níu nefndir og hver þeirra fengið tæplega eina milljón króna í
þóknun á kjörtímabilinu
Tólf til Ijórtán milljón-
ir fyrir nefndasetuna
Steingrímur Ari Arason og Þröstur Ólafsson,
aðstoðarmennirnir með hæstu aukatekjurnar.
Þeir níu einstaklingar, sem
gegna starfi aðstoðarmanns
ráðherra, hafa að meðaltali
verið skipaðir í 9,25 nefndir,
stjórnir og ráð á kjörtímabil-
inu og þegið fýrir það 922.564
krónur. Þann fýrirvara verður
þó að gera á þessum tölum að
ekki hefur borist yfirlit um
þetta frá Jóni H. Karlssyni
þar sem hann er staddur í út-
löndum um þessar mundir.
Þó er ljóst að nefndaseta hans
hækkar meðaltalið. Þá eiga
þeir flestir eftir að fá greiddar
þóknanir fyrir nokkurn hluta
vinnunnar.
Skipaðir í fleiri en
hundrað nefndir
Alls hafa aðstoðarmennirnir átta,
sem upplýsingar hafa borist um,
setið í 74 nefndum og fengið
greiddar 7,4 milljónir króna. Enn
eiga þeir þó eftir að fá uppgert fýrir
20 nefndir þannig að þóknanirnar
eru vart undir 10 milljónum. Þá er
ótalinn hlutur Jóns H„ Þorkels
Helgasonar, fyrrverandi aðstoðar-
manns Sighvats Björgvinssonar,
og þeirra aðstoðarmanna sem
hættir eru störfum. Þann hóp skipa
Magnús Jóhannesson, sem var
aðstoðarmaður Eiðs Guðnasonar,
og Bragi Guðbrandsson og Þor-
lákur Helgason, aðstoðarmenn
Jóhönnu Sigurðardóttur.
Þegar þeirra hlutur er reiknaður
með er ljóst að aðstoðarmenn ráð-
herranna á kjörtímabilinu hafa
verð skipaðir í vel yfir 100 nefndir,
stjórnir og ráð. í sumum tilvikum
eru þó fleiri en einn aðstoðarmaður
í hverri nefnd. Ætla má að heildar-
þóknanir til þeirra allra nemi að
minnsta kosti 12-14 milljónum
króna umfram þau laun sem þeir
hafa fýrir aðalstarf sitt.
Steingrímur Ari og
Þröstur með vel yfir
tvær milljónir
Yfirlit yfir nefndasetu sex starf-
andi aðstoðarmanna og þóknanir
sem þeir hafa fengið fyrir það starf
var birt í MORGUNPÓSTINUM
síðastliðinn fimmtudag. Þar var um
ræða Ara Ewald, Birgi Her-
mannsson, Eyjólf Sveinsson,
Margréti S. Björnsdóttur, Sigur-
geir Þorgrímsson og Þórhall
Jósepsson. Sá síðasttaldi er ótví-
ræður nefndakóngur aðstoðar-
mannanna en hann hefur verið
skipaður í 22 nefndir. Nú hafa sams
konar upplýsingar borist frá tveim-
ur til viðbótar; Steingrími Ara
Arasyni, aðstoðarmanni Friðriks
Sophussonar, og Þresti
Ólafssyni, aðstoðarmanni
Jóns Baldvins Hannibals-
sonar.
Það sem af er kjörtímabil-
inu hefur Steingrímur Ari
verið skipaður í 16 nefndir,
stjórnir og ráð á vegum hins
opinbera. Engin þóknun er
greidd fýrir fimm þeirra og
enn á Steingrímur Ari eftir
að fá uppgert fyrir setu í
þremur, þar af einni sem
starfað hefur frá 1992. Þannig
að þóknanir sem hann hefur
fengið ffam að þessu fýrir að
sitja í átta nefndum nema 604.461
krónum. Þess utan hefur hann haft
föst mánaðarlaun fyrir setu í stjórn
Lánasjóðs íslenskra námsmanna og
samninganefnd ríkisins. Fyrir þá
fýrrtöldu hefur hann fengið samtals
1.368.000 krónur og þá síðartöldu
að minnsta kosti 400.000. í heild-
ina hefúr Steingrímur því fengið
greiddar að lágmarki samtals
2.372.461 krónu á kjörtímabilinu
auk launa sinna sem aðstoðarmað-
ur.
Þröstur er hálfdrættingur á við
Steingrím Ara, hefur verið skipaður
í átta nefndir, stjórnir og ráð á kjör-
tímabilinu. Greiðslurnar til þeirra
eru þó svipaðar. Þresti hefur enn
ekki verið greitt fyrir starf sitt í
þremur nefndum en samtals hefur
hann fengið launaávísanir sem
hljóða upp á 2.317.351 krónu.
Jón H. Karlsson, aðstoðarmað-
ur Guðmundar Árna Stefáns-
sonar, var skipaður í 12 nefndir í
heilbrigðisráðherratíð yfirboðara
síns. Ekki hefur reynst unnt að ná
sambandi við Jón þar sem hann er í
leyfi í útlöndum og því ekki ljóst
hvort og þá hve margar nefndir
hafa bæst við. Þá er það í hans
höndum að birta tekjur sínar af
nefndastarfinu. Slíkt yfirlit verður
því að bíða betri tíma. SG
Nefndaseta adstodaimanna ráðhena í ríkisstjóminni
Fjöldi Nefndir Nefndir Heildar
nefnda án sem á eftir þóknun
þóknunar að greiða í krónum
fyrir
Ari Edwald 5 - - 297.695
Birgir Hermannsson 2 - 2 0
Eyjólfur Sveinsson 5 - 2 145.961
Margrét S. Björnsdóttir 7 - 3 247.394
Sigurgeir Þorgrimsson 9 2 1 666.287
Steingrímur Ari Arason 16 5 3 2.372.461
Þórhallur Jósepsson 22 2 6 1.333.365
Þröstur Ólafsson 8 - 3 2.317.351
Samtals 74 9 20 7.380.514
Meðaltal 9,25 1,125 2,5 922.564
í návíqi
Þórarinn V. Þórarinsson
framkvæmdastjóri
Umrœðan um
jöfnuð hefur farið
fram úr umrœðunni
um úrangur
Hvað átt þú við þegar þú segir
að grunnskólarnir séu þjóðhættu-
lega lélegir?
„Ég horfi fýrst á skýrslurnar sem
segja mér það að fjórðungur barna
sem lýkur grunnskólaprófi nær ekki
lágmarksárangrinum, sem er fimm.
Þetta er gríðarlega hátt hlutfall. Þá
er það nú einu sinni svo að það
koma ekki saman tvennir eða
þrennir foreldrar til að ræða um
viðfangsefni í skólum að það komi
ekki upp umræðan um að
grunnskólinn nýti óskap-
lega illa tíma eða lærdóms-
hæfileika barnanna á
þessu skeiði. Þar ber margt
til; við setjum allt of litla
peninga í menntakerfið.
Við skipuleggjum skólann
þannig að hann ýtir hvorki
undir frammistöðu nem-
enda eða starfsmanna.
Starfsmenn í skólakerfinu
eiga enga von um umbun
fyrir góða frammistöðu.
Sá sem leggur sig fram af
mikilli eljusemi og leggur
mikla vinnu í sitt starf og
nær góðum árangri ber
ekkert meira úr býtum en
hinn sem fer fljótt yfir
sögu og leggur lítið af
mörkum. Launakerfið í
skólunum örvar ekki og
hættulegur skortur er á
samkeppni og samanburði
á milli skóla. Foreldrar
hafa engar upplýsingar til-
tækar um það hvernig þeir
standa; hvort þessi skólinn
sé betri en hinn.“
Viltu láta breyta kerf-
inu þannig að einkarekn-
ir skólar komi upp?
„I sjálfu sér geri ég ekk-
ert með eignarhaldið á
skólunum en ég hefði vilj-
að sjá annað rekstrarform.
Mér finnst áhugavert það
sem menn hafa verið að
prófa sig áfram með, til
dæmis í Bretlandi og Sví-
þjóð og víðar um lönd,
þar sem skólarnir eru
farnir að hafa fjárhagslegan ávinn-
ing af frammistöðu. Menn hafa
þróað þetta fyrirkomulag sem er
kallað skólapeningar; — að það
fylgi ákveðin upphæð hverjum
nemanda og það komi í hlut þess
skóla sem börnin fara í og síðan er
það stjórnanda þess skóla að nýta
þessa fjármuni sem best. Það þarf
að efla sjálfstæði skólanna og skóla-
stjóranna og bæta samanburðinn á
milli. Ég hef miklar efasemdir um
að það val sem fór fram fýrir 15 ár-
um -— og byggir á því að blanda
fullkomlega í bekkina með börnum
af öllum getuskalanum — og mæta
erfiðleikum með sérkennslu, skili
okkur áfram. Þetta gerir það alla-
vega að verkum að það er setið að
hæfileikum þess hluta úr hverjum
árgangi sem best á með nám. Það er
sama hvað okkur finnst en það eru
hæfileikar þessa hóps sem eru lík-
legir til að draga okkur áfram í
efnahagslegu tilliti. Þess vegna þarf
að búa vel að þesum hópi. Við höf-
um í launalegu og skipulagslegu til-
liti lagt allan þungann á meðal-
mennskuna."
Viltu láta meiri fjármuni af
hendi til skólamála?
„Öll fjárhagsleg aukning í skóla-
kerfinu á síðustu árum hefur birst í
aukinni sérkennslu. Þrátt fyrir það
er árangurinn með þessum hætti.
Það segir okkur að það er eitthvað
að í skipulaginu. Ég veit það að það
vantar miklu meiri peninga í þetta
kerfi. Skiptingin á skattpeningun-
um er auðvitað spurning um for-
gangsröðun. Ég er þeirrar skoðunar
að það sé ekki verið að raða í rétta
forgangsröð og ég hefði gjarnan
viljað sjá stærri hluta af skattpen-
ingunum ganga í skólakerfið.“
Hvað vilt þú gera?
„Meginatriðið er það að við
þurfum að setja meiri peninga inn í
skólakerfið. Við þurfum að taka
upp skipan í skólunum sem örvar
árangur og setur árangurinn í önd-
vegi en ekki einhver önnur mark-
mið.“
Hvaða markmið ert þú að ræða
um?
„Mér finnst að að sumu leyti hafi
umræðan um jöfnuð farið fram úr
umræðunni um árangur. Hið fé-
lagslega hlutverk skólans hefur
fengið meira vægi en hið menntun-
arlega. Þá er ég að tala um félagsleg-
an jöfnuð og barnagæsluhlutverkið
sem blandast alltaf inn í umræðu
um skólamál hérna.“
Hvað finnst þér um fjölda nem-
enda á hvern kennara?
„Ég hef átt börn í Isaksskóla og
það er enginn skóli á landinu sem
er með fleiri börn í hverjum bekk
heldur en hann. Reynsla mín segir
mér að það séu aðrir þættir en
fjöldi í hverjum bekk sem séu
ákvarðandi um frammistöðuna.
Auðvitað eru þarna einhver mörk
en það er afar varhugavert að horfa
á eina stærð eins og fjölda í bekkj-
um. Ég held að það séu aðrir þættir
sem skipta meira máli.“ -SMJ
„Launakerfið í skólunum
örvar ekki og hœttulegur
skortur er ú samkeppni og
samanburði á milli skóla.
Foreldrar hafa engar upp-
lýsingar tiltœkar um það
hvernigþeir standa; hvort
þessi skólinn sé betri
en hinn. “
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinuveitendasambands
íslands, hefur komið fram með harða gagnrýni á skólakerfið sem
hann telur vera á miklum villigötum og nánast þjóðhættulega lélega.