Helgarpósturinn - 24.10.1994, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 1994
MORGUNPÓSTURINN SPORT
2a
England
Liðið mitt
Jason Ólafsson,
handboltakappi
„Liöið mitt er lið Vík-
ings áárunum 1975-
’84. Þá fór ég alltaf á
æfingar með pabba, sem lék með
liðinu á þessum tíma. Þeir urðu
meðal annars Islandsmeistarar
fjögur ár í röð. Guðmundur Guð-
mundsson, þjálfari minn í dag,
lék með liðinu á þessum tíma.
Annars er ég lítill áhugamaður um
fótbolta og körfubolta og fylgist
lítið með því, og á þar af leiðandi
engin uppáhalds lið í þeim
íþróttagreinum." ■
Alþjóðlega körfuknattleikssambandið hefur gefið út ýmsar reglubreytingar sem miða
að því að aðlaga íþróttina að þörfum nútímans
Tteyjur ofan í buxur og refsað
fyrirað hanga í hringnum
Alþjóðlega körfuknattleikssam-
bandið, FIBA, hefur gefið út reglu-
breytingar sem miða að því að að-
laga íþróttina að þörfum nútímans.
Sambandið kemur til fundar á fjög-
urra ára fresti, iðulega á meðan HM
í körfuknattleik stendur yfir, til að
endurskoða reglurnar, og í. sept-
ember tóku gildi nýjar breytingar á
reglum. Hér er bæði um að ræða
nýjungar, eins og til dæmis reglur
sem beinast að klæðaburði leik-
manna, og einnig áherslubreyting-
ar á þeim reglum sem fyrir voru.
Hér verða taldar upp helstu breyt-
ingar.
Það sem vekur fyrst athygli er sú
breyting að hér eftir skulu leik-
menn girða treyjur sínar ofan í
stuttbuxurnar, en það var ekki
skylda áður. Þá er það ákvörðun
sambandsins að hér eftir skulu
heimalið leika í ljósum búningum
en gestalið í dökkum. Þó er liðum
frjálst að semja sín á milli um liti á
búningum.
Þegar leikur er í gangi er aðeins
þjálfara liðs heimilt að vera stand-
andi, en þetta á eingöngu við þegar
boltinn er í leik. í breytingum er
ákvæði um stökkskot en Jtar hefur
orðið áherslubreyting. Aður fyrr
var ekki dæmt ef brotið var á leik-
manni í skottilraun í stökkskoti eft-
ir að hann hafði hent boltanum, en
nú er búið að lengja skottilraunina
og telst hún nú þar til leikmaður er
lentur og þar af leiðandi dæmt brot
meðan hann er í loftinu. Innkast
skal tekið næst þeim stað þar sem
brot er eða boltinn fer út af. Nú er
heimilt að taka innkast frá endalínu
nema beint undir körfunni, en ekki
má henda yfir körfúspjaldið. Þá eru
breytingar á skrefareglunni og hef-
ur hún verið einfölduð til muna.
Svokallaðar „Alley-oop“ send-
ingar eru núna löglegar en þær fela
í sér að leikmaður má grípa boltann
yfir körfuhring og troða eftir send-
ingu ffá samherja, en þá verður að
hafa verið um augljósa sendingu að
ræða. Áherslubreyting hefúr orðið
á nafninu „ásetningsvilla" sem nú
heitir „óíþróttamannsleg villa“.
Breytingin miðast að því að hér eft-
ir verður refsað fyrir verknað en
ekki ásetning. Sé leikmaður eða
þjálfari rekinn af leikvelli skal hann
annað hvort yfirgefa húsið sam-
stundis eða halda sig í búnings-
klefa. Hann má sem sagt ekki koma
sér fýrir á áhorfendapöllum eða við
hliðarlínu og horfa á leikinn.
Breytingar hafa orðið á svoköll-
uðum bónusrétti, en hann kemur
til við áttundu villu liðs í hvorum
hálfleik. I staðinn fyrir eitt og eitt
vítaskot, það er að segja leikmaður
fær ekki seinna skot nema hafa hitt
úr því fyrra, fær hann tvö hvort sem
hann skorar úr því fyrra eður ei.
Loks hefur orðið áherslubreyting á
tæknivillu fýrir að hanga í körfú-
hringnum. Hingað til hefur ekki
verið dæmt á það en hér eftir skal
dæma tæknivillu á leikmann sem
hangir í hringnum að óþörfu, það
er ef enginn er undir hringnum.
Reglurnar veita þannig svigrúm til
að hanga í hringnum til að forðast
að lenda á öðrum leikmanni eða til
að draga úr falli til að forða sjálfum
sér frá slysi. ■
Úrslit í úrvalsdeild
Aston Villa - Nottingham Forest 0:2
Chrystal Palace - Everton 1:0
Liverpool - Wimbledon 3:0
Manchester City - Tottenham 5:2
Newcastle - Sheffield
Wednesday 2:1
Norwich - QPR 4:2
West Ham - Southampton 2:0
Arsenal - Coventry 2:1
Blackburn - Manchester United 2:4
Chelsea - Ipswich 2:0
Staðan í úrvalsdeild
Newcastle 11 29:10 29
Nott. Forest 11 25:11 27
Man. Utd. 11 19:9 22
Blackburn 11 23:12 21
Liverpool 10 24:10 20
Norwich 11 12:10 19
Chelsea 10 20:13 18
Man.City 11 21:16 18
Arsenal 11 16:12 17
Leeds 10 13:11 15
Southampton 11 17:19 15
West Ham 11 7:11 14
Tottenham 11 18:23 14
Sheff. Wed. 11 14:20 12
Coventry 11 13:20 12
Aston Vllla 11 11:16 10
Chrystal Pal. 11 13:21 10
Leicester 10 13:21 9
Wimbledon 11 8:18 9
QPR 11 15:22 7
Ipswich 11 10:21 7
Everton 11 7:23 3
Úrslit í 1. deild
Barnsley - WBA 2:0
Charlton - Burnley 1:2
Grimsby - Bristol City 1:0
Oidham - Stoke 0:0
Port Vale - Bolton 1:1
Reading - Sunderland 0:2
Sheffield Utd. - Luton 1:3
Swindon - Southend 2:2
Watford - Tranmere 2:0
Wolves - Millwall 3:3
Notts County - Derby 0:0
Portsmouth - Middlesbrough 0:0
Staðan í 1. deild
Wolves 13 25:13 27
Reading 13 17:8 24
Middlesbrough 13 17:12 24
Tranmere 13 20:17 23
Swindon 13 20:17 21
Charlton 13 23:21 19
Luton 13 20:17 19
Sunderland 13 14:9 19
Stoke 13 17:20 18
Southend 13 14:22 18
Grimsby 13 20:16 17
Bolton 13 20:17 17
Oldham 13 20:20 17
Portsmouth 13 16:17 17
Watford 13 15:17 17
Barnsley 13 11:12 17
Sheff.Utd. 13 14:12 16
Derby 13 13:13 16
Port Vale 13 14:19 15
Bristol City 13 10:12 15
Burnley 13 11:16 14
Millwall 13 17:20 12
WBA 13 10:22 10
Notts County 13 14:23 8
Eftirminnileaasta atvikið
í öfugum hitabuxum
Pétur Ormslev Heilan hálfleik
að hysja upp um sig buxurnar.
„Á löngum ferli hefur náttúr-
lega ýmislegt spaugilegt komið
fyrir. Eitt situr þó sérstaklega í
minningunni hjá mér. Það var
þegar við Framarar kepptum í bik-
arkeppninni árið 1987. Leikurinn
var sérstaklega mikilvægur fyrir
okkur og ég man að taugaveiklun-
in var mikil. Á þessunt tíma átti ég
í meiðslum, eins og svo oft áður,
og lék því í sérstökum hitabuxum.
Þetta voru mjög undarlegar bux-
ur, ekki eins og hjólabuxurnar eru
nú, og rnikið um sauma og furðu-
legar festingar.
I hálfleik förum við inn í bún-
ingsklefa og ég var orðinn mjög
pirraður á þessum buxum. Ég
hafði eytt heilum hálfleik í að hysja
upp um mig buxurnar ótt og títt
og fannst þessar buxur vera hin
mesta hrákasnu'ð. Það var ekki fyrr
en ég hafði lýst þessu fyrir hinum
drengjunum að ég uppgölvaði að
helv.. buxurnar sneru öfugt.
Saumamir voru allir á vitlausum
stöðum og þar sem þær áttu að
halda hita var kalt og öfugt. „Kon-
fektið" var allt í lausu lofti og ann-
að eftir því. Ég viðurkenni það að
mér krossbrá og fannst þetta mjög
neyðarlegt. Mér tókst þó að rétta
buxurnar af án þess að nokkur
yrði þess var og mér er minnis-
stætt að við fórum út í seinni hálf-
leik og unnum leikinn.*' ■
England
Paul Walsh sá um Tottenham
Staða efstu liða í úrvalsdeild enska
boltans breyttist lítið um helgina því
flest unnu þau leiki sína. Manchest-
er United skipti um sæti við Black-
burn í þriðja sæti með góðum úti-
sigri á liðinu í miklum markaleik. Á
botninum er staða Everton orðin af-
ar slæm. Liðið tapaði enn einum
leiknum um helgina og fram-
kvæmdastjórastóll Mikes Walker
hefur aldrei verið heitari en nú.
Steve Watson og Andy Cole
tryggðu Newcastle sigurinn gegn
Sheffield Wednesday og þar með
áframhaldandi tveggja stiga forystu í
úrvalsdeildinni. Nottingham Forest
vann góðan útisigur á Aston Villa
með mörkum frá þeim Stuart Pe-
arce, sem skoraði eftir aðeins 40
sekúndna leik, og Steve Stone. Það
var markaveisla á Main Road er
Manchester City tók á móti stjörn-
um prýddu liði Tottenham. Alls
voru sjö mörk skoruðu í leiknum
sem var hinn fjörugasti> og áttu
heimamenn fimm þeirra. Gamla
brýnið Paul Walsh átti stórleik fýrir
City gegn sínu gamla liði, skoraði
tvö mörk og lagði upp önnur tvö, og
var tvímælalaust maður vallarins.
Lið Tottenham sá ekki til sólar í
leiknum og vörnin átti miður góðan
dag, eins og lokatölur leiksins gefa til
kynna. Liverpool skaust upp í
fimmta sæti með 3:0 sigri á Wim-
bledon. Robbie Fowler, Steve
McManaman og John Barnes
skoruðu mörkin. Everton beið enn
einn ósigurinn er liðið sótti Chrystal
Palace heim. Palace vann sinn fyrsta
heimasigur síðan í apríl með marki
ffá Andy Preece sem skoraði sitt
fyrsta mark fýrir liðið, en hann var
keyptur ffá Stockport fýrir tímabil-
ið. Julian Dicks er kominn aftur í
raðir West Ham eftir dvöl hjá Li-
verpool. Liðið bauð hann velkom-
inn heim aftur á laugardag með sigri
á Southampton 2:0. Norwich vann
lið QPR á Carrow Road á laugardag
í frábærum leik, 4:2. lan Wright er
iðinn við að skora þessa dagana og í
gær skoraði hann tvö mörk í sigri
Arsenal á Coventry. Mark Coventry
gerði Roy Wegerle. Alls voru skor-
uð sex mörk í viðureign Blackburn
og Manchester United. Kanchelsk-
is, sem skoraði tvö mörk, Hughes,
og Cantona skoruðu fýrir United
en Warhurst og Hendry fyrir
Blackburn. Loks vann Chelsea lið
Ipswich með mörkum frá þeim
Wise og Shipperley ■