Helgarpósturinn - 24.10.1994, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 1994
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
19
Ari Edwald
AOstoðarniaður lögíræöingur
7. sæti
„Hanti á erindi á þing“
(en hvað finnst hinum?)
Styðjum ungan mann með mikla
reynslu (sem aðstoðarmaður)
Þekkir Svein Andra 17.
minna forystuna á að í flokknum sé
fólk sem dansi ekki eftir línunni og
krefjist að á það sé hlustað. Það mun
þó ekki vera runnið undan riíjum
hennar sjálfrar. Katrín mun örugg-
lega gjalda töluvert fyrir yfirlýsingar
sínar í vor þegar hún ákvað að taka
ekki þátt í prófkjöri fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar. Þær raddir
heyrast að henni verði „slátrað“ og
komist ekki einu sinni í eitt af þeim
tíu sætum sem raða á í. Á hinn bóg-
inn er líklegt að hún fái að sama skapi
talsvert af óánægjufylginu sem Ingi
Björn sópaði að sér síðast. Sá hópur
er hins vegar tvístraður í dag og það
er alls ekki hægt að segja að hann hafi
fundið sér farveg í ffamboði Katrín-
Afar skiptar skoðanir eru um
stöðu Markúsar Arnar Antonsson-
ar. Hann þjófstartaði prófkjörsbar-
áttunni með auglýsingum í blöðum,
endalausum greinaskrifum og lang-
setum á kaffihúsum miðbæjarins til
að minna gesti og gangandi á tilveru
sína. Hann hafði lika rúman tíma til
þess, laus við alla ábyrgð ffá því hann
sagði af sér borgarstjóri, milli þess
sem hann hjálpaði vini sínum Jó-
hanni Briem í Myndbæ. Framan af
virtist Markús fúllur sjálfstrausts og á
góðri leið með að sannfæra sam-
flokksmenn sína um að hann ætti
umbun skilda fyrir fórnfýsina. Nú
drukkna auglýsingarnar hans og
kjallararnir í flóði stærri auglýsinga
og kraftmeiri greina hinna frambjóð-
endanna. Hann er því aftur að kom-
ast í stöðu þess minnimáttar og far-
ARA GÍSLA I 7.-8. SÆTI
Ari Gísli Bragason
Ungskáld og fornbókahúðarloka
7.-8. sæti
„Ungan mann íöruggtsœti“
(hirðskálds)
„Veljum mann meðþekkingu
og reynslu úr menningar- og at-
vinnulífi“ (er þetta grín!?)
Eflurn Reykjavík (á hann ekki við
miðhceinn?)
inn að væla yfir því að verið sé að
níða af honum skóinn. Það kjósa fáir
slíkan mann til forystu og því er hætt
við að hlutskipti hans verði að ná
ekki öruggu þingsæti og 4. sætið sem
hann stefhir á er ekki innan seilingar.
Vonbiðlarnir
Ari Edwald er sá eini úr stutt-
buxnadeildinni, sem tekur þátt í
þessu prófkjöri, sem eitthvað mark er
tekið á. Það eitt gefúr honum mögu-
leika á að lenda í þingmannasæti.
Framboði hans hefur verið vel tekið
af þingmönnunum en Heimdelling-
ar eru sjálfum sér sundurþykkir og
klofnir í fýlkingar þannig að hann á
síður en svo vísan stuðning meiri-
14.7S8 einstaklingar
hafa rátt til þátttöku í próffcjori
Íf Sjálfstæðisfiokksins í Reykjavík
Viít M Mtt i sitis as(|sais«siis? ’
Lára Margrét
Ragnarsdottir
Alþingis mað u r h agfræð i ngu r
5. sæti
Hœgri
Notar ekki konutrikkið
Evrópusinni
„Taktu þátt í mótun morgundags-
ins" (enfcer hún að vera með?)
hluta þeirra yngri. Árangur Ara mun
því væntanlega ráðast af því hve vel
honum tekst að kynna sig hinum al-
menna flokksmanni sem mætir á
kjörstað en er að öðru leyti óvirkur í
starfinu. Hann hefúr greinilega áttað
sig á þessu því hann valdi þá leið að
leggja áherslu á ímyndina með flott
hönnuðum auglýsingum og stórum
myndum af sjálfúm sér með þeim
skilaboðum að hann sé ungur og
kraftmikill maður á uppleið. Sumir
eru þó þeirrar skoðunar að þær séu
of flottar og verki því ffáhrindandi.
Ari gerði þau grundvallarmistök að
setja upp kosningaskrifstofú í mið-
bænum í húsnæði á jarðhæð með
stórum búðargluggum. Yfirleitt er fá-
Ásgerður Jóna
Fiosadóttir
8.-10. sæti
Kona sem trúir að það sé
henni til framdráttar
„Sjálfstœðisflokkurinn metur konur
að verðleikum“ (síðan hvencerí?)
mennt á kosningaskrifstofúnum en
það er eins og Ari vilji að allir viti að
hann er yfirleitt einn á staðnum með
öráum hræðum. Hann er ekki einn
um að trekkja ekki að fólk í kaffi en
það sjá það bara miklu fleiri en
ástæða er til. Kaffið er líka mildu
betra á kaffihúsunum í kring. Annað
sem vinnur gegn Ara er að hann sæk-
ir fýlgi í svipaðan hóp og Sveinn
Andri Sveinsson. Utreið hans í
prófkjörinu fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar bendir til að sá hópur
fari minnkandi þótt fleira hafi spilað
inn í sem Ari er saklaus af.
Prófkjör eru leiðinleg ef alvöru
kverúlanta vantar og fjarvera þeirra
Það er kominn #
tími til...
Guðmund Krtstin Oddsson í 8. sætlð
Guðmundur
K. Oddsson
Fyrrverandi íramhaldsskólanemi
Neðstur
„ Ungtfólk til áhrifa!“ (já, en varla
hann?)
Bjartsýni
Misskilningur
Brotlending á sunnudag
er einmitt gallinn í þetta sinn. Sá
eini sem kemst nálægt því að
geta borið þessa nafiibót er Pét-
ur H. Blöndal. Hann heyr sína
kosningabaráttu á allt öðrum
forsendum en hinir, sem vilja
bara tryggja sér þingsæti, og
veður í þeirri villu að kjósendur
í prófkjöri sökkvi sér ofan í
skoðanir frambjóðendanna á
tæknilegri útfærslu á lífeyris-
kerfinu. En Pétur vill koma að
gagni og er mikið niðri fýrir.
Auglýsingar hans í blöðum og
bæklingarnir eru svo fráhrind-
andi að minnir á hagskýrslu
með passamynd þess sem vann
hana. Engum hefúr heldur
dottið í hug fýrr að halda löng
erindi um aðskiljanlegustu efni
á kosningaskrifstofu sinni fýrir
hálftómu húsi. Þótt það sé
kannski heiðarlegasta leiðin í
svona baráttu að gera ítarlega
grein fýrir skoðunum sínum þá
er það ekki rétta leiðin vilji
menn ná árangri. Pétur fær vís-
ast fýlgi þeirra sem vUja hrista
upp í flokknum - fá mann inn í
þingflokkinn sem fær hina tU að
sinna vinnunni sinni almenni-
lega með endalausum athuga-
semdum og þreytandi dugnaði.
Einarðar og ferskar skoðanir
fleyttu honum inn í bankaráð
íslandsbanka í vor en þá áttu í
hlut óánægðir hluthafar sem
höfðu fjárhagslegra hagsmuna
að gæta. Ekki núna.
Ari Gísli Bragason vUl líka
vera minnihlutahópur eins og
stærri kanónurnar. Hann gerir
kröfú tU þess að vera menning-
arvitinn í hópnum. Gallinn er sá
að hann er ekki viðurkenndur
sem slöcur. Ungskáld er nefni-
lega ekki það sama og hirðskáld.
Þá þykir slagorð hans jaðra við
grín: „Veljum mann með þekk-
ingu og reynslu úr menningar-
og atvinnulífi“. Fáeinir ljóða-
upplestrar og afgreiðsla á göml-
um bókum gerir hann ekki að
athafnaskáldi, sem eru þau skáld
sem eru í mestum metum í Val-
höll. Ari Gísli gerir út á þá stað-
reynd að í ffamboð fýrir Sjálf-
stæðisflokkinn í Reykjavík hefur
að mörgu leyti valist einsleitur
hópur í gegnum tíðina. Hann
hefúr reiknað dæmið þannig að
nú væri lag í ljósi umræðu inn-
an flokksins um þetta vanda-
mál. Menn, sem hafa verið að
reyna að fá botn í ffamboð Ara
Gísla og standa utan stuðnings-
mannahóps hans í miðbænum,
hafa aðeins fúndið eina senni-
lega skýringu; að hann sé að
minna forystumennina á að vilji
hans standi til þess að verða
menningarviti flokksins. Sú
staða hefúr í gegnum tíðina þýtt
vegtyllur ýrnsar og gefið vel af
sér í aðra hönd, enda er flokkur-
inn þekktur fýrir flest annað en
að státa af mörgum listamönn-
um innanbúðar og samkeppnin
því takmörkuð. Ara tekst þetta
kannski en það er erfitt að
ímynda sér hann á þingi.
Þeir vonlausu
Ásgerður Jóna Flosadóttir
er óskrifað blað sem margir telja
raunar að verði aldrei skrifað.
Talið er sennilegast að hún
hugsi framboð sitt til að kanna
hvort hún komi til með að eiga
einhvern tíma séns. Megin-
áherslan í auglýsingum hennar
er annars vegar á þá staðreynd
að hún er kona og hins vegar á
að Sjálfstæðisflokkurinn treysti
konum til að axia ábyrgð, sem
er affur umdeilanlegra. Með því
slær hún þann varnagla að geta
vísað. til hins gagnstæða ef illa
fer. Sem allt bendir til á þessari
stundu.
Guðmundur K. Oddsson er
fulltrúi þeirra sem trúa því enn-
þá að allir.hafi jafna möguleika
og það eigi jafiiframt við í Sjálf-
stæðisflokknum. Þar sé vinnu-
fúsum höndum tekið fagnandi
og með dugnaði sé hægt að láta
að sér kveða og rísa til metorða.
Guðmundur á væntanlega eftir
að skipta um skoðun á sunnu-
daginn þegar úrslit prófkjörsins
liggja fýrir. ■
Ungt fólk er um 40% kjósenda í Reykjavík og það þarf að
eiga fulltrúa á framboðslista Sjálfstceðisflokksins. Rödd
þess verður að heyrast á Alþingi þegar stefnan verður tnórkuð
til nœstu aldar. Það er kosturfyrir Sjálfstceðisflokkinn að geta
boðið upp á ungan mann með þá reyns/u sem Ari Eclwcild
hefur og því hvetjum við alla til að styðja hann í 7. sætið.
-Stuðningsmenn
KosningaskrifstofuAra Edwtád er (xð Hqfharstncti 7 oger opin allu daga
frá 10 til 22. Síntar skrifstofunnar ertu 2 40 25 og 2 40 65. Fax: 240 79
Pösturihn
Áskriftasíminn er 2 55 77
l
rf' 'riá