Helgarpósturinn - 24.10.1994, Síða 13
MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 1994
MORGUNPÓSTURINN ERLENT
13
IsTámskir bókstafstrúarmenn
eru í herferð til að brjóta konur aftur til
undirgefni við feðraveldi múslima«» ~
lá :
Heilagt stríð um konumar
I nýlegri grein í tímaritinu Le nou-
vel observateur segir franski heim-
spekingurinn Bernard-Henri Lévy
að hreintrú sé skæðasta meinsemd
andans á tuttugustu öld. Mein
Kampf segir hann, var bók fyrir
hreintrúarmenn. Voðaverk komm-
únista í Sovétríkjunum hafi verið
sprottin af hreintrú. Pol Pot hafi
verið hreintrúaður. Bernard-Henri
Lévy spyr hvort heimsbyggðin sé
reiðubúin að upplifa enn eina öldu
ógnar og morða af hendi hreintrú-
armanna. Hana sér hann birtast við
sjóndeildarhringinn í líki íslamskra
ofsatrúarmanna; þeir séu háskaleg-
asta birtingarmynd slíkrar hreintrú-
ar á okkar dögum.
Víglínan í stríði íslamskra bók-
stafstrúarmanna liggur um hjörtu
500 milljóna kvenna sem búa frá
Indónesíu í austri til Frakklands í
vestri. í þessari baráttu beita þeir
fortölum og áróðri, en þeir skirrast
heldur ekki við að nota ofbeldi.
Konur sem rísa upp gegn þessari
bylgju ofsatrúar setja sig í mikla
hættu. Margar þeirra — til að
mynda í Alsír, Túnis og Tyrklandi
— hafa vanist því að búa við nokk-
urt ffelsi. Þær hafa farið út af heimil-
unum, sótt sér menntun og gegna
ábyrgðarstörfum meðal karla. Þær
telja sig hafa rétt til að velja sér eigin-
menn, til að ákveða hvort og hvenær
þær vilja eignast börn —jafnvel rétt
til fóstureyðinga.
Slíkar konur eru helstu skotmörk
bókstafstrúarmanna sem vilja að
þær setji aftur upp blæjuna, tákn
undirokunar kvenna, hverfi inn á
heimilin og játi undirgefni sína
gagnvart feðrum, eiginmönnum og
bræðrum.
Frakkar eru sú þjóð á Vesturlönd-
um sem horfa á þetta stríð með hvað
mestum áhyggjum. Þar í landi eru
búsettar milljónir múslima sem
margir hverjir hafa flutt með sér trú
sína og siði. Múslimar í Frakklandi
verða fyrir miklum áhrifum frá trú-
bræðrum sínum í ríkjum Norður-
Afríku, til dæmis í Alsír þar sem
bókstafstrúin sækir fram með of-
forsi. Islamskir klerkar hafa lýst því
yfir að Frakkland sé ekki lengur land
sem liggi að íslam (dar el-ahd),
heldur sé það íslömsk jörð (dar el-
islam).
Dyrnar milli Frakkfands og heims
múslima hafa lengi verið opnar í
meira en hálfa gátt. Frökkum mun
ekki líðast að skella þeim aftur, enda
má segja að núorðið sé íslam í raun
sérstakt samfélag innan samfélagsins
franska. I staðinn hafa frönsk stjórn-
völd af nokkrum vanmætti reynt að
hafa auga með því hvar bókstafs-
trúnni skýtur upp: Reynt er að
hindra það eftir megni að múslima-
stúlkur gangi með blæju í frönskum
skólum og háværir leiðtogar ofsa-
trúarmanna hafa að undanförnu
verið handteknir og fluttir úr landi.
Konur eru óæðri
Bókstafstrúarmenn fara ekki í
grafgötur með fyrirætlanir sínar,
þeir mega eiga það að þeir berjast
fyrir opnum tjöldum. Um allan
heim múslima, í Saudi-Arabíu, Al-
sír, Bangladesh, Súdan og Iran heyr-
ist sama orðræðan. Það er talað um
vestræna hugarfarsmengun og
óhreint og blygðunarlaust líferni
hinna trúlausu. En þegar öllu er á
botninn hvolft á þetta næstum allt
upphaf og endi í sama stað — hjá
konum.
Eins og önnur hreintrú byggir
bókstafstrúin íslamska á því að mað-
urinn sé óhæfur til að njóta frelsis.
Til að koma í veg fyrir að hann fari
sér að voða verði að binda hann í
viðjar laga og regluboða. Þessar regl-
ur eru sjálft guðs orð eins og það
birtist í hinu heilaga riti, Kóranin-
um.
Kjarni þessarar heimsmyndar, þar
sem enginn greinarmunur er gerður
á andlegu valdi og veraldlegu, er
feðraveldið. Líklega þekkjast engin
trúarbrögð sem eru undirstaða jafn
algjörs feðraveldis og íslam. Nútím-
anum með tilheyrandi frelsun kon-
unnar er líkt og stefnt gegn þessu
feðraveldi. Það snýst til varnar og
skirrist ekki við að beita öllum ráð-
um til að forða sér frá falli. I þeirri
baráttu getur það skírskotað til
hefðar sem nær þrettán hundruð ár
aftur í söguna. Þar er konum af-
dráttarlaust vísað á sinn stað.
Konur eru óæðri vegna uppruna
síns; þær eru rif úr síðu Adams.
Vegna gerðar sinnar; þær hafa blæð-
ingar mánaðarlega. Vegna hlutverks
síns; þær skulu fæða börn og ekki
láta neitt trufla það. Konur eru líka
háskagripir. Þær bera með sér ffæ-
korn eyðileggingar og uppnáms.
Þær eru fagrar og lostafullar og hafa
ekki stjórn á kynhvöt sinni. Því ber
að halda þeim niðri og hylja þær fyr-
ir augum breyskra karlmanna, ann-
ars eru þær eilíf uppspretta vand-
ræða og stjórnleysis — á bandi djöf-
ulsins. Konur eiga að halda sig inni á
heimilunum og yfirleitt ekki vera á
ferli meðal ókunnra karlmanna. Þær
eiga ekki að sýna andlit sitt eða lík-
ama; eftir byltingu klerkanna í Iran
voru ótal dæmi um konur sem var
misþyrmt fýrir að brjóta gegn þess-
ari trúarsetningu.
Aðskilnaður kynjanna er eins og
stöðug árátta. Meðan karlmenn geta
stundað fjölkvæni er konan dæmd
til hreinlífis. Gerist hún sek um hór-
dómsbrot er hún hýdd samkvæmt
lögmálinu. (Dæmi: þrettán ára
stúlkubarn sem um daginn var hýtt
opinberlega í Bangladesh.) Dýrmæt-
asta eign hennar er meydómurinn,
án hans fær hún ekki eiginmann.
Hann er eins og fangelsi sem er gætt
af föður og bræðrum. I slíkum hug-
arheimi er það blöskranleg hugdetta
að konur fái að ráða yfir lífi sínu,
hvað þá yfir líkama sínum.
Verslun með börn
Vissulega eru samfélög múslima
ekki einsleit, þótt alls staðar sæki
hreintrúarmenn á. I ríkjum á borð
við Saudi-Arabiu og Yemen er und-
irokun kvenna alger. Þar þykir til
dæmis ekkert óeðlilegt að gifta
stúlkur á aldrinum tíu til fjórtán ára,
eða jafnskjótt og þær eru farnar að
hafa á klæðum. Viðskipti með
stúlkubörn eru alsiða. Fréttaritari
Newsweek skýrði frá því að á sama
tíma og ráðstefna um fólksfjölgun í
heiminum var haldin í Kaíró hefði
hann orðið vitni að því að egypskt
stúlkubarn var selt af föður sínum í
hendur auðugum karlmanni frá
furstadæmi við Persaflóa. Kaup-
verðið var um 300 þúsund íslenskar
krónur.
I múslimaríkjum Afríku tíðkast
enn ógeðfelldara athæfi — um-
skurður kvenna. Það hefur verið
áætlað að um 80 þúsund stúlkur
þurfi að undirgangast þessa athöfn
árlega, en margir segja að talan sé
miklu hærri. I Frakklandi þekkjast
dæmi um umskurð stúlkna úr þel-
dökkum múslimafjölskyldum. Þessi
siðvenja er reyndar ekki sérstök
uppfmning múslima, en það eru
þeir sem hafa haldið tryggð við
hana. Hugmyndin á bak við þessa
grimmúðlegu athöfn er einföld: Eft-
ir að snípurinn hefur verið fjarlægð-
ur finna konur enga unun í kynlífi
og geta gegnt hlutverkinu sem þeim
er áskapað — að fæða börn.
I samanburði við þetta búa konur
í Tyrklandi, Túnis og Marokkó í
Paradís. Þar hefur íslam að vissu
marki aðlagað sig að nútímanum.
En það er að þeim sótt og þær vita
að þær hafa margt að verja. Fyrir
þær er það spurning um líf og dauða
að standa gegn framrás bókstafstrú-
arinnar. Þær ganga nefhilega ekki að
því gruflandi hvað gæti beðið þeirra,
þær þekkja mennina sem vilja setja
upp fýrirmyndarríkið þar sem þær
yrðu fangar.
-eh
-byggt á Le nouvel observateur.
Kuflklæddar konur ganga til bæna í háskólanum í Teheran.
Stjömurádópi
Stjömur, kynlíf og eiturlyf, nákvæm-
lega það sem fólkið vill lesa. Þetta
eru orð útgefanda nýútkominnar
bókar, Hollywod Connection, sem fjall-
ar um gjálífi stjamanna í Hollywood.
Höfundur hennar er Rayce Newman,
32 ára maður,
sem segist hafa
verið sérstakur
kókaínsali Holly-
woodstjarna i heil
átta ár. Því ævin-
týri lauk með
þriggja ára fang-
elsi og á þeim
tíma skrifaði hann
bókina, sem hann segir svo sam-
kvæma sannleikanum að hann hafi
gengist undir próf í lygamæli til að
sýna að hann færi með rétt mál. Allt
um það eru sögumar nógu krasss-
andi. Um Jack Nicholson segir New-
man að hann hafi verið til í allt, eitur-
lyf og kynlíf, oft með tveimur eða
þremur stúlkum í einu og jafnvel að
barnsmóður sinni, Rebecca Brouss-
ard aðsjáandi. Hann segist hafa
huggað Juliu Roberts í ástarsorg
með því að gefa
henni línu af
kókaíni. Prince sé
ekkert kyntákn,
segir hann, hann
vilji helst lesa úr
Biblíunni fyrir
konur. Vandi Syl-
vester Stallone sé
af öðrum toga; vegna steraneyslu
þjáist hann af getuleysi. Undir áhrif-
um eiturlyfja hafi Stefanía Mónak-
óprinsessa verið tii í að gera það
með hverjum sem er og hvenær sem
er. Rod Stewart sé fínn náungi, en
hann geti ekki verið trúr konunni
sinni. Eddie Murphy sé hins vegar
einn fárra í Hollywood sem noti ekk-
ert dóp, en hans árátta sé sú að
hann vilji ekkert nema hvítar stúlk-
ur. ■
Jack Nicholson
Keanu allsber?
Bandaríska tíma-
ritið US hefur ný-
lega birt árlega
könnun þar sem
lesendur velja
það besta og það
lakasta í skemmt-
anaiðnaðinum.
Þar komust sex
þúsund svarendur meðal annars að
þeirri niðurstöðu að Jim Carey væri
versti kvikmyndaleikarinn en Tom
Hanks sá besti. Jodie Foster var val-
in besta leikkonan, en Madonna sú
versta og kemur engum á óvart.
Lesendurnir treystu hins vegar Clint
Eastwood leikara best til að fóta sig í
stjórnmálum, en vildu helst leika í
nektarsenu með Keanu Reeves.
Johnny Depp var valin sú stjama
sem þyrfti helst að fara í klippingu,
en Roseanne Barr versta leikkonan í
sjónvarpi. Michael Bolton þótti hvort
tveggja besti og versti söngvarinn,
en helst vildi fólk sjá Mel Gibson og
Juliu Roberts í ástarleik á hvíta tjald-
inu. Þau myndu þó ekki duga í end-
urgerð Casablanca, en þar vildu les-
endur US helst sjá Harrison Ford og
Isabeilu Rosselini. ■
Keanu Reeves
Dauðadæmd kona
sem bugast ekki
Gegn tveimur konum hafa ís-
lamskir bókstafstrúarmenn magn-
að uppfatwa sem þýðir að þær hafa
verið dæmdar til dauða og eru rétt-
dræpar hvar sem í þær næst. Önn-
ur er er skáldkonan Taslima
Nasreen frá Bangladesh sem vann
sér það til óhelgis að skrifa bók og
fer nú huldu höfði í Svíþjóð. Hin er
36 ára stærðfræðikennari frá Alsír,
Khalida Messaoudi að nafni.
Hún er á dauðalista FIS, hreyfmgar
bókstafstrúarmanna í Alsír og
henni hafa verið sýnd banatilræði.
Samt er hún enn búsett í landinu,
þótt hún neyðist til að lifa í felum.
En þessi kjarkmikla kona er ekki á
því að gefast upp, heldur segist hún
jafnvel tilbúin að grípa til vopna ef í
nauðirnar rekur.
I Alsír eru pólitísk morð daglegt
brauð. Það eru bókstafstrúarmenn-
irnir sem veifa byssunum og þau
hafa rekið stjórnvöld á undanhald,
en lýðræðissinnar á borð við Khal-
ida Messaoudi hafa varla önnur ráð
en að halda fundi á götum til að
láta í sér heyra.
Það er mikill ótti í loftinu, marg-
ir þora ekki lengur að standa í vegi
bókstafstrúarmanna; sumir flýja
land en konur láta þvingast til að
ganga með blæju - sem Khalida
Messaoudi líkir við gula stjörnu
gyðinga á tíma þriðja ríkisins. Sjálf
er hún fráskilin og barnlaus og seg-
ist ekki þurfa að óttast um annað
en eigið líf og limi.
Khalida Messaoudi varar við því
að Alsír sé á leið með að breytast í
alræðisríki þar sem ráði „grænn
fasismi" eða „þjóðernis-íslamismi"
eins og hún kallar það. Hún segir
að það myndi jafngilda kviksetn-
Khalida Messaoudi segir að íslamskt bókstafstrúarríki myndi jafngilda
kviksetningu fyrir milljónir alsírskra kvenna.
ingu fýrir milljónir alsírskra
kvenna. Hún ákallar vestræn lýð-
ræðisríki og segist óttast að þau
skilji ekki hvílík ógnarstjórn sé í
uppsiglingu í Alsír. Hér takist á
tvær gjörólíkar samfélagshug-
myndir; önnur byggi á lýðræði og
mannréttindum, hin á ofsatrú og
forneskju. Þar þurfi lýðræðissinnar
hvarvetna að leggja sitt lóð á vogar-
skálarnar og þá ekki síst konur á
Vesturlöndum. ■
Gríðlandið Túnis
Arfleifð Bourguiba er sterk
Meðal íslamskra ríkja
er Túnis að vissu leyti
eins og vin í eyðimörk-
inni. Þar hafa í fjörutíu
ár verið í gildi lög um
jafnrétti sem tryggja að
konur i landinu njóta
óvenju mikils frelsis.
Þetta er öðru frernur
höfundarverk Habib
Bourguiba, helsta leið-
toga Túnisbúa á öldinni.
Flokkur hans var ein-
valda í Túnis lengi eftir
að nýlendutíma Frakka
lauk og Bourguiba not-
aði vald sitt til að berja með hörku
í gegn lög sem bönnuðu fjöl-
kvæni, tryggðu jafnrétti tfl arfs,
mennta og vinnu og jafnframt
frelsi til fóstureyðinga og getnað-
arvarna. Afleiðingin er sú að Tún-
is er vestrænast ríkja í heimshluta
íslams og hið lýðfrjálsasta. Þessar
þjóðfélagsumbætur Bourguiba
virðast vera svo varanlegar að
Túnis er nánast eina múslimarík-
ið þar sem bókstafstrúarmenn láta
ekki á sér kræla. Austan við Túnis
er hins vegar Alsír, miklu stærra
og fjölmennara ríki, og þangað
horfa Túnisbúar í angist.B