Helgarpósturinn - 24.10.1994, Síða 14
14
MORGUNPÓSTURINN SKOÐUN
MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 199-"
Útgefandi
Ritstjórar
Fréttastjóri
Framkvæmdastjóri
Markaðsstjóri
Miðill hf.
Páll Magnússon, ábm
Gunnar Smári Egilsson
Sigurður Már Jónsson
Kristinn Albertsson
Þórarinn Stefánsson
Setning og umbrot
Filmuvinnsla og prentun
Morgunpósturinn
Prentsmiðjan Oddi hf.
Verð í lausasölu kr. 195 á mánudögum
og kr. 280 á fimmtudögum.
Áskriftarverð er kr. 1.300 á mánuði fyrir tvö blöð í viku.
Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 10 prósenta afslátt.
Gott hjá Ólafi
Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra hefur ákveðið að
biðja fjárlaganefnd að útdeila sjálfa styrkjum til menningar-
og fræðslumála, en hingað til hefur sá háttur verið hafður á
að fjárlaganefnd hefur í raun framvísað fjárlagaheimildum til
menntamálaráðuneytisins. Þetta er gott hjá Ólafi.
Framkvæmd þessara styrkveitinga hefur verið óhæfa. Þeir
hafa ekki verið auglýstir og því hefur fólk ekki haft jafnan að-
gang að þeim. Þeir sem hafa fengið styrkina eru fyrst og
fremst þeir sem hafa haft ímyndunarafl til að láta sér detta
það í hug að hægt væri að ganga upp í menntamálaráðuneyti
og fá þar peninga fyrir farseðlum til útlanda. Aðrir, sem
hugsanlega voru á leiðinni út í leiðangra sem voru ekkert síð-
ur í þágu menningarinnar, hafa sjálfir borgað sín fargjöld. í
ofanálag var ekki hægt að ganga að upplýsingum um hverjir
fengu þessa styrki og hversu háir þeir voru fyrr en Ríkisend-
urskoðun tók að sér að upplýsa það. Þá fyrst var hægt að
meta hversu vel eða illa þeir nýtast menningarlífinu. Og þá
kom í ljós að án efa má ráðstafa þessum tæplega eitt hundrað
milljónum á gáfulegri hátt.
En þegar listarnir eru skoðaðir má jafnframt sjá ástæðuna
fyrir því að fjárlaganefnd hefur framvísað fjárlagavaldinu til
ráðuneytisins. Nefndarmenn hafa líkast til einfaldlega verið
að losa sig við suðið í fólkinu á listunum. Þeir hafa ekki treyst
sér til þess að sitja undir endalausum útskýringum á hversu
þarfar hinar og þessar ráðstefnurnar eða sýningarnar eru og
hversu mikið lykilatriði það sé að íslendingar eigi þar full-
trúa. Nefndarmenn hafa sjálfsagt andað léttar þegar þeir
losnuðu við þetta kvabb upp í ráðuneyti. Og munu sjálfsagt
dæsa núna þegar Ólafur hefur sent þetta verkefni aftur í
hausinn á þeim.
Nú verður það hlutverk nefndarmanna í fjárlaganefnd að
koma einhverju skikki á þessa styrki og veita þá eftir almenn-
um reglum sem tryggir að allir hafi jafnan aðgang að þeim.
Eða að leggja þá niður og veita fjármununum til annarra
menningarmála eða jafnvel eitthvað allt annað. Eða veita
fénu aftur í vasa skattgreiðenda og treysta þeim til að kaupa
sér þá menningu sem þeir sjálfir kjósa. Sem er líkast til gáfu-
legasti kosturinn.
Þessir listar sem Ríkisendurskoðun birti afhjúpuðu nefni-
lega ákveðið virðingarleysi gagnvart skattgreiðendum. Skatt-
ar eru teknir af fólki með valdi og skattfé á þar af leiðandi að
umgangast með virðingu. Það á ekki að deila því út á báðar
hendur fyrst og fremst til þess að einhverjir embættismenn
geti losnað undan suði í listamönnum. Ef ríkið veit ekki ná-
kvæmlega hvað gera á við skattféð og með hvaða hætti á að
deila því út á það að láta það kyrrt í vasa skattgreiðenda. Það
er ekki til mikið af fólki í landinu sem þarf aðstoð við að eyða
fjármunum sínum. Ef ekki liggur lífsnauðsyn við á því að
leyfa fólki að halda í þá peninga sem það á. Yfirleitt er því
betur treystandi til að deila þeim út en embættismönnum í
menntamálaráðuneytinu eða nefndarmönnum í fjárlaga-
nefnd.
Listarnir sem Ríkisendurskoðun birti sýna að þeim tæplega
hundrað milljónum sem ráðstafað var úr menntamálaráðu-
neytinu var dreift með tilviljanakendum hætti, ómarkvisst og
eftir einhverjum reglum sem hvergi eru skráðar og enginn
hefur aðgang að. Það er óhæfa.
Gunnar Smári Egilsson
Posturínn
Miðill hf., Vesturgötu 2, 101 Reykjavik, simi 2 22 11
Beinir símar eftir lokun skiptiborös:
Ritstjórn 24666, tæknideild 24777, auglýsingadeild 24888 og dreifing 24999
Símbréf ritstjórnar 22243 - Símbréf auglýsingadeildar 22241 - Símbréf afgreiöslu 22311
pmlgiar 'U’S
\ ■ 1 4
Ummæli
Það var allavega fjör
„Égget ekki svaráð
því nákvœmlega ° i a
hvert þessirpen-
ingar hafafarið þó
að Ijóst sé að þeir Q
hafa farið í að
greiða útgjöld hátíð-
arinnar
Arnór Benónýsson hátíðarmaður.
Alttaf að eltast við vextina
„Persónulega hefég mun meiri
áhyggjur afháutn vöxtum í banka-
kerfitiu en háum ríkisbréfavöxtum.“
Steingrímur Hermannsson banka-
maður.
Grafskrift Miklalax
e „Fiskurinn þolir
ekki svona áföll
en við sáum
ekkifiskinn
vegna mengun-
tr, hantt hvarf í
drullu og leir og
hann dó einnigvegna taugaáfalls.“
Heiðar Albertsson, fyrrverandi starfs-
maður Miklalax.
Beðið við símann
„Efýtt verður á mig aðfara á
framboðslista mun ég að sjálfsögðu
ekki undan skorast...ogégfyrir mitt
leyti er tilbúinn að
gera allt hvað ég
get til gagns. “
Njáll Harðar-
son, blikksmið-
ur og vonbiðill.
Siðbótin: Tillögur um aðgerðir
Sú ánægjulega breyting hefur
orðið að nú viðurkenna flestir þörf-
ina á víðtækri siðbót í íslenskum
stjórnmálum. Jafnvel ráðherrarnir
sem í kvöld verjast vantrausti á Al-
þingi þora ekki annað en að taka
undir kröfuna um nýja starfshætti.
Þetta er mikill árangur á einu ári.
Þegar ég kynnti tillögur Alþýðu-
bandalagsins um siðbót í stjórn-
kerfi og atvinnulífi haustið 1993 þá
hristu forystumenn annarra flokka
hausinn og gerðu grín að slíku
frumkvæði. Umræðan um siðbót
átti að þeirra dómi ekki heima á
vettvangi stjórnmálanna. Nú þora
þeir ekki annað en að viðurkenna
þörfina.
Það er hins vegar ekki nóg. Próf-
steinninn felst í verkunum. Innan-
tóm orð duga ekki. Breytingarnar
sjálfar eru aðalatriðið.
Frá orðum til athafna
Þungavigtin
ÓLAFUR RAGNAR
Grímsson
formaður
Alþýðubartdalagsins
kerfi er spillt að utanríkisráðherra
hefur komist upp með það öll sex
árin sem hann hefur setið í embætti
að auglýsa aldrei stjórnenda- eða
fulltrúastöðu í ráðuneytinu. Þeim
hefur öllum verið ráðstafað án þess
að menntað hæfileikafólk geti sótt
um á jafnréttisgrundvelli.
Afnám æviráðninga
og fríðinda
Nýlegir atburðir í heilbrigðis-
ráðuneytinu eru meðal margra
dæma sem sýna nauðsyn þess að af-
nema æviráðningar í embættiskerf-
inu. Aðhald og hæfni í stjórnsýsl-
unni verður að tryggja með hreyf-
anleika í æðstu embættum. Faglegir
yfirmenn ráðuneyta og ríkisstofn-
ana verði ráðnir til sex ára í senn og
aðrir faglegir embættismenn verði
einnig ráðnir til ákveðins tíma.
Brýnt er orðið að leggja niður
margvísleg fríðindi hjá hinu opin-
bera: í ráðuneytum, stjórnstofnun-
um, bönkum og sjóðum í almanna-
eign. Bannað verði að kaupa bif-
reiðar til einkanota fyrir ráðherra,
bankastjóra og aðra opinbera
stjórnendur. í stað dagpeningakerf-
is hjá toppunum í ríkiskerfinu
verði tekið upp kerfi þar sem ferða-
kostnaður er einungis greiddur
samkvæmt reikningum. Dagpen-
ingagreiðslur til maka ráðherra og
bankastjóra verði afnumdar.
Með slíkum reglum yrði dregið
úr margvíslegri tilhneigingu til
spillingar sem tíðkast hefur á und-
anförnum árum.
Velsæmi og ábyrgð
Ráðamenn þjóðar verða að gæta
í hvívetna velsæmis á opinberum
vettvangi. Þeir verða að haga sér á
þann hátt að allt atferli þeirra þoli
dagsljós frásagnar sem er eðlileg í
opnu upplýsinga- og fjölmiðlunar-
þjóðfélagi nútímans. Sú meinsemd
að ráðamenn séu nánast „stikkfrí"
hefur of lengi dregið úr virkni ís-
lenska stjórnkerfisins.
Nú hefur fólkið í landinu sýnt
með margvíslegum hætti að það
krefst breyttrar og betri hegðunar
ráðamanna og kallar stjórnendur til
ábyrgðar. Verkefnið er því að for-
ystusveitin sýni í verki að hún virði
þá nýju mælikvarða sem almenn-
ingur í landinu hefur sett. ■
Nú er tími kominn að festa sið-
bótina í sessi með ákveðnum og
skýrum breytingum. Ákveða verð-
ur með formlegum hætti reglur
sem tryggja jafnrétti í stjórnkerfinu
og koma í veg fyrir pólitíska mis-
munun, hvort heldur er við veit-
ingu embætta eða úthlutun opin-
berra fjármuna.
Jafnframt verður að setja skýrar
reglur sem tryggja opna starfshætti,
koma í veg íyrir misnotkun á dag-
peningum og ferðastyrkjum og
festa í sessi eðlilegar leikreglur á op-
inberum vettvangi.
Við höfum sett fram ítarlegar til-
lögur um slíkar breytingar. Þær fela
í sér ákvæði um hæfnismat til opin-
berra starfa, afnám fríðinda, afnám
æviráðninga og hreyfanleika í störf-
um, reglur um velsæmi á opinber-
um vettvangi og um ábyrgð og
hegðan forystumanna.
Hæfnismat til
opinberra starfa
Til að koma í veg fyrir að ráð-
herrar misbeiti veitingavaldi í þágu
flokksgæðinga og vildarvina verði
gert skylt að auglýsa allar opinberar
stöður og láta fara fram hæfnismat
á vegum sjálfstæðra dómnefnda.
Þessi skylda nái til allra opinberra
stofnana og fyrirtækja.
Það sýnir best hvað núverandi
„Nú hefurfólkið í landinu sýnt með margvíslegum hœtti að það krefst
breyttrar og betri hegðunar ráðamanna og kallar stjórnendur til
ábyrgðar. Verkefnið erþví að forystusveitin sýni í verki að hún virði
þá nýju mœlikvarða sem almenningur í landinu hefur sett. “
Þungavigtarmenn eru meðal annars: Árni Sigfússon, Geir Haarde, HalldórÁsgrímsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Sigurðardóttir,
Jón Steinar Gunnlaugsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Óskar Magnússon, Páll Kr. Pálsson, Svavar Gestsson, Ögmundur Jónasson, Óssur Skarphéðinsson.