Helgarpósturinn - 31.10.1994, Síða 7
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1994
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
7
Reykjavík
Stútur svínaði
Allharður árekstur varð á mörk-
um Sæbrautar og Skeiðarvogs rétt
íyrir kl. 22.00 á laugardagskvöld.
Bílarnir mættust á Sæbraut en rétt
áður beygði sá þeirra sem var á
norðurleið í veg fyrir hinn bílinn
með þeim afleiðingum að þeir
skullu saman. Ökumaðurinn sem
beygði var ölvaður og slasaðist
hann nokkuð. Farþegi í hinum
bílnum slasaðist einnig en eftir að
hugað hafði verið að meiðslum
þeirra á slysavarðsstofu fengu þeir
að fara heim til sín. ■
Keflavík
Fullur upp á
umferðareyju
Lögreglan í Keflavík hafoi hend-
ur í hári ölvaðs ökumanns í gær-
morgun. Hann var á leiðinni eftir
Reykjanesbraut í átt til Reykjavíkur
þegar ekki vildi betur til en svo að
hann missti stjórn á bifreið sinni á
móts við afleggjarann til Grinda-
víkur. Bifreiðin hentist upp á um-
ferðareyju og skemmdist töluvert
en maðurinn slapp ómeiddur.
Hann var færður í fangageymslur
til að sofa úr sér vímuna en hann
var talinn verulegar ölvaður. ■
Grindavík
Sjórn/arpi stol-
ið ir Alberti
Brotist var inn í Albert GK 31 þar
sem hann stóð við Grindarvíkur-
höfn á föstudagskvöld. Töluverð
ölvun var í bænum um helgina en
ekki er vitað hver eða hverjir fóru
um borð í bátinn. Sjónvarpi var
stolið úr Alberti og tókst þeim sem
var að verki að komast í burtu með
það án þess að nokkur yrði var við
það. Málið er í rannsókn og ef ein-
hver getur veitt upplýsingar um bíl
sem sást á bryggjunni umrætt kvöld
er hann beðinn um að láta lögregl-
una í Grindavík vita. ■
Akureyri
Rúðubrot
Nokkur ölvun var á Akureyri á
föstudagskvöldið án umtalsverðra
árekstra. Brotnar voru rúður í
verslunum Amaró og Levisbúðinni
en einskis var saknað úr verslun-
um. Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri er talið að rúðubrotin hafi
tengst skrílslátum og einhver gert
sér það að leik að sparka í rúðurnar
með þeim afleiðingum að þær
brotnuðu. ■
Hveragerði
Fyllerí oq flöl-
skyflduetjur
Mikil ölvun var í Hveragerði um
helgina. Ölvaður ökumaður var
tekinn fótgangandi eftir að hafa
endað ökuferð inni í húsagarði og
lögreglan þurfti að hafa afskipti af
nokkrum heimilum vegna hjóna-
erja. Flest vandamálin voru leyst á
staðnum en einn eiginmaðurinn
var handtekinn og látinn sofa á lög-
reglustöðinni á Selfossi eftir að
hann hafði gengið í skrokk á eigin-
konu sinni. ■
Eyrarbakki
Hætt komnir
af sveppaáti
Tveir menn voru illa á sig komnir
af sveppaáti á Eyrarbakka um helg-
ina. Lögreglan á Selfossi var kvödd í
hús um ellefuleytið á laugardags-
morguninn og hrjáðust mennirnir af
slæmum ofskynjunum og vissu vart í
þennan heim né annan. Þeir voru
fluttir á sjúkrahúsið á Selfossi þar
sem þeir jöfhuðu sig en sá sem út-
vegaði þeim sveppina var handtek-
inn og fluttur til yfirheyrslu. ■
Árið 1988 var Guðmundur H. Jónsson ráðinn aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í Kópavogi gegn vilja allra starfandi lögreglumanna.
Eftir hatrammar illdeilur var Guðmundur sendur í 10 mánaða
launað frí en er aftur mættur til starfa við litla hrifningu
Enn logar altt í illdeilum
Á byssuleyfi Guðmundareru skráð 14 vopn, þarafsjö skammbyssur
og einn rifill sem hann átti að farga
Guðmundur H. Jónsson. Árið 1988 var Guðmundur eini maðurinn
utan Kópavogslögreglunnar sem sótti um stöðu aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns. Hann fékk stöðuna en allir starfandi lögregluþjónar, 22 að tölu,
mótmæltu ráðningunni skriflega. Eftir sex mánaða veru á Siglufirði og
tíu mánaða launað leyfi er Guðmundur mættur aftur til starfa, þvert á
vilja lögreglumanna í Kópavogi.
Enn logar allt í illdeilum innan
Iögreglunnar í Kópavogi. Aðstoðar-
yfirlögregluþjónninn, Guðntundur
H. Jónsson, mætti aftur til stafa á
mánudaginn var eftir að hafa verið
í launuðu leyfi frá 22. desember
1993. Eftir deilur sem hafa staðið í
sex ár, eða allt frá því að Guð-
mundur hóf störf, ákvað dóms-
málaráðuneytið að hann hæfi aftur
störf í samráði við sýslumanninn í
Kópavogi. í bréfi Þorleifs Páls-
sonar sýslumanns til Guðmundar
segir: „Ákveðið hefur verið að fyrst
um sinn sinnnið þér ekki stjórnun-
arstörfum umfram það að stjórna
rannsóknardeild lögreglunnar í
Kópavgi. Á meðan svo er verðið þér
ekki sjálfkrafa staðgengill yfirlög-
regluþjóns í forföllum hans og mun
ég því taka ákvörðun hverju sinni
um skipun staðgengils.“ Lögreglu-
menn í Kópavogi eru mjög ósáttir
við að Guðmundur sé aftur kom-
inn til starfa og sjálfur telur Guð-
mundur að starfsvið hans sé mjög
rýrt miðað við bréf sýslumanns.
Allir lögreglumenn
mótmæltu ráðningunni
Guðmundur var skipaður að-
stoðaryfirlögregluþjónn árið 1988.
Ellefu sóttu um stöðuna en Guð-
mundur var sá eini sem var ekki
innan lögreglunnar í Kópavogi.
Allir starfandi lögreglumenn, 22
talsins, að meðtöldum yfirlögreglu-
þjóninum, Valdimari Jónssyni
skrifuðu undir bréf þar sem ráðn-
ingunni var mótmælt. Eftir að
Guðmundur hóf störf hafði hann
fjölmargt við vinnureglur lögregl-
unnar að athuga og skrifaði fjöl-
mörg bréf þar sem farið var fram á
bætt vinnubrögð sem fór mjög í
taugarnar á starfandi lögreglu-
mönnum. Guðmundur segir þó að
vandræðin hafi aukist til muna
þegar hann kom til starfa í ágúst
1992 eftir sumarleyfi. Yfirlögreglu-
þjónninn virði hann ekki viðlits og
því talar Guðmundur við sýslu-
mann og biður um starfslýsingu
fyrir sig. í nóvember skrifar Guð-
mundur greinargerð um ástandið
og í mars 1993 talar hann við dóms-
málaráðuneytið. Eftir það ganga
kiögumálin á víxl og yfirmenn lög-
reglunnar, Guðmundur og Valdi-
mar, ræðast ekki við. Þann 19 maí
1993 fær Guðmundur áminningu
sem hann krefst að verði dregin til
baka. Sýslumaður féllst á að hún
yrði minniháttar en nú hefur hún
að fullu verið dregin til baka með
bréfi frá dómsmálaráðuneytinu.
Sendur hálft
ár á Siglufjörð
Þann 28 maí 1993, tveimur dög-
um eftir að sýslumaður féllst á að
áminningin teldist minniháttar, er
Guðmundur settur yfirlögreglu-
þjónn á Siglufirði, fýrst til þriggja
mánaða en á endanum var hann í
sex mánuði. Hann kom síðan aftur
til starfa í byrjun desember 1993 í
Kópavogi. Þá er engin lausn komin
í innanbúðardeilurnar og sex lög-
reglumenn höfðu í millitíðinni
gengið á fund dómsmálaráðuneyt-
isins og sagt að þeir gætu ekki starf-
að með Guðmundi. I desember fer
Guðmundur strax í leyfi á meðan
unnið verði að lausn málsins og
þegar lítið gerist ætlar Guðmundur
að hefja störf að nýju. Þá fullyrðir
Guðmundur að Ari Edwald hafi
boðið honum ársleyfi á fullum
launum, hann fengi að halda titlin-
um gegn því að hann segi upp að
þeim tíma liðnum. Guðmundur
sættir sig ekki við það og samþykkt
er að óvilhallur aðili rannsaki sam-
skiptaörðugleikana í Kópavogi.
Skólastjóri Lögregluskólans er
fenginn til að taka saman skýrslu
sem er ekki tilbúin fyrr en í byrjun
júlí 1994. Þrátt fyrir að hún sé tekin
saman að beiðni Guðmundar hefur
honum þráfaldlega verið neitað um
aðgang að henni og hefur hann leit-
að til umboðsmanns Alþingis með
vísan til stjórnsýslulaga um að fá
aðgang að henni. Hvað sem því líð-
ur hefur Guðmundur nú aftur haf-
ið störf, þvert á vilja flestra lög-
reglumanna í Kópavogi.
14 vopn og
7 skammbyssur
Deilurnar eru orðnar æði per-
sónulegar og inn í þær dragast lög-
regluskýrsla frá Akureyri frá 9. ág-
úst 1994 þar sem Guðmundur er
handtekinn eftir átök, ónæði og
ölvun á Hótel Eddu. Einnig er
byssueign Guðmundar mjög um-
deild. Við húsrannsókn í Kópavogi
árið 1988 fór Guðmundur með RLR
og gerði upptækan 22 kalibera og 16
skota Browning-riffil með skrán-
inganúmer 68951. Stuttu síðar kall-
ar Guðmundur fýrir afa drengsins
sem átti byssuna og undirritar hann
að lögreglan skuli sjá um förgun á
rifflinum. Guðmundur skrifar síð-
an undir að það sé afgreitt 4. maí
1988. f byssuleyfi Guðmundar frá
11.11. 1991 er þessi sami riffill kom-
inn inn á leyfi Guðmundar. f kjöl-
farið lætur ráðuneytið hann skila
rifflinum og áminnir hann. Einnig
er mjög umdeild umsókn Guð-
mundar á mjög öflugri haglabyssu
sem Guðmundur veitti sjálfúm sér
leyfi fyrir í Kópavogi, þótt hann
hafi lögheimili í Hafnarfirði, auk
þess sem leyfi frá ráðuneytinu berst
ekki fyrr en eftir á. Þess utan þykir
byssueign Guðmundar æði skraut-
leg en hún telur 14 vopn, þar af 7
skammbyssur. f bréfi dómsmála-
ráðuneytis ffá 1978 til lögreglustjóra
segir að lögreglumenn megi aðeins
eiga eina skammbyssu og hún skuli
geymd á lögreglustöð. Eftir því sem
næst verður komist er bréfið enn í
gildi. Guðmundur neitar alfarið að
ræða atvikið á Akureyri og byssu-
eign sína.
-PJ'
Rokktónleikar um miðja nótt í miðbænum
„Löggan komst ekki
skrt fyrir krádinu“
Við bara mættum þarna á stór-
um sendiferðabíl með kerru og spil-
uðum þangað til löggan stoppaði
okkur,“ segir Finni, söngvari þunga-
rokkhljómsveitarinnar Quick Sand
Jesus, sem tók upp á því óvænta
uppátæki að halda tónleika í Aust-
urstræti um hálf- fjögurleytið í fyrri-
nótt. „Við stoppuðum bílinn á milli
pósthússins og Apóteks Reykjavíkur
og beindum tónlistinni upp Lauga-
veginn.“
Quick Sand Jesus eru þekktir fyrir
flest annað en að spara decebelin og
hjá lögreglunni fengust þær upplýs-
ingar að hávaðinn hafi verið ærandi.
Mikið af fólki var samankomið í
miðbænum og kunni það vel að
meta þetta framtak hljómsveitarinn-
ar og gífúrleg stemmning skapaðist
á þeim örfáu mínútum sem hljóm-
sveitin fékk að spila í ffiði. „Við náð-
um einu frumsömdu lagi og vorum
komnir inn í hálft lagið Fire með
Hendrix þegar við vorum stoppaðir.
Löggan vissi ekkert hvað var í gangi
en fjórir lögregluþjónar mættu á
staðinn. Einn þeirra þreif í fæturna á
mér og öskraði og á meðan var hinn
bíllinn að reyna að komast í gegnum
krádið en það var bara svo mikið af
fólki að hann komst ekki skít,“ segir
Finni.
Lögregluþjónarnir gerðu hvað
þeir gátu til að stöðva hljómsveitina
en hún náði að forða sér inn í
mannþröngina og varnaði fleiri lög-
reglubílum að komast á vettvang.
Skömmu eftir að hljómsveitin náði
að forða sér fýlltist hins vegar allt af
lögregluþjónum sem gerðu hljóð-
færin upptæk. „Löggan veit ekki
ennþá hvaða hljómsveit var þarna á
ferðinni,“ segir söngvarinn, „en við
fréttum að þeir hefðu verið að
hringja út um allan bæ til að reyna
að komast að því. Við vorum á Stöð
2 í gær þannig að þeir hljóta að fatta
það fljótlega.“
Finni segir að hljómsveitarmeð-
limirnir hafi borist í gegnum þvög-
una upp á Laugaveg og áheyrendur
hafi lagt sitt af mörkum til að koma
þeim undan. „Þetta voru ekkert
meiri læti heldur en venjulega þegar
hljómsveitir spila niður í bæ,“ segir
hann. „Það fóru einhverjir upp á bíl-
inn eftir að við vorum hættir að
spila og voru að tromma á hann en
svo var þetta búið. Það var bara
brjáluð stemmning í fólkinu því
þetta var í fýrsta skipti sem það
heyrir músik eftir klukkan þrjú nið-
ur í bæ. Þetta var eins og í Eyjum og
fólkið dansaði út um allt Áustur-
strætið.“
Um jólin er von á fyrstu breið-
skífu Quick Sand Jesus og nefnist
hún The more things change, the
more they stay the same. Hljóm-
sveitin sér sjálf um útgáfu plötunnar
og var þetta fýrsti liðurinn í kynn-
ingu hennar. „Maður verður að
koma með svona hugmyndir ef
maður ætlar að gera eitthvað af viti,“
segir Finni. „Við erum ekki það
þekktir og þetta er allt öðruvísi en ef
maður er með útgefanda sem kostar
til kynninganna. Þetta var líka bara
gaman og það urðu ekki nein slys
eða neitt svoleiðis. Við hringdum
upp á löggustöð til að tékka á því.“
Eftir að hljómsveitin hvarf af vett-
vangi var gerður aðsúgur að lögregl-
unni með þeim afleiðingum að
framrúða í lögreglubíl brotnaði og
fimm óbreyttir borgarar voru hand-
teknir. -LAE/HM
segirFinni, söngvari Quicksand Jesus.
Fjármálaráðu-
neytið síðdegis
á föstudag
Flestir við
Morgunpósturinn gerði „stöðu-
tékk“ á viðveru í fjármálaráðu-
neytinuá föstudaginn, svipað og
var gert í utanríkisráðuneytinu
vikunni áður.
15.10 Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra
„Hann er á fundi.“
15.10 Magnús Pétursson
ráðuneytisstjóri
„Magnús er á fundi.“
15.10 Steingrímur Ari
Arason, aðstoðarmaður
ráðherra
„Hann er á fundi.“
15.10 Þór Sigfússon, ráð-
gjafi ráðherra
„Þór er ekki við í dag.“
15.10 Ingibjörg
Björnsdóttir, deildarstjóri
á almennri skrifstofu
„Ingibjörg er á skrifstofunni."
15.15 Páll Halldórsson,
deildarstjóri á gjaldaskrif-
stofu
„Já, hann er við.“
15.15 Halldór Árnason,
skrifstofustjóri á
fjárlagaskrifstofu
„Hann er á fundi.“
En Jón Ragnar Blöndal,
deildarstjóri?
„Hann er líka á fundi.“
Og Ólafur Hjálmarsson,
deildarstjóri?
„Hann er líka á fundi, það er öll
deildin (Fjárlagaskrifstofa) á fundi
til allavega hálf-fimm í dag.“
15.15 Skarphéðinn Berg
Steinarsson, deildarstjóri á
gjaldaskrifstofu
„Hann er við.“
15.15 Haukur
Ingibergsson, deildarstjóri
Hagsýslu ríkisins
„Á fundi, kemur ekki meira í
dag.“
15.17 Jóhann
Gunnarsson, deildarstjóri
Hagsýslu ríkisins
„Á skrifstofunni.“
15.20 Indriði H.
Þorláksson, skrifstofustjóri
tekju- og lagaskrifstofu
„Á fundi.“
15.20 Ástráður Karl
Guðmundsson, deildarstjóri
tekju- og lagaskrifstofu
„Tekur ekki síma nema á milli
kl. 9.00 og kl. 10.30.“
1 5.20. Bolli Þór
Bollason, skrifstofustjóri
efnahagsskrifstofu
„Hann er erlendis."
15.20 Maríanna
Jónasdóttir, deildarstjóri
efnahagsskrifstofu
„Maríanna er upptekin."
15.24 Þórhallur Arason,
skrifstofustjóri gjaldaskrif-
stofu
„Er á fundi og verður ekki meira
við í dag.“
15.35 Haraldur
Sverrisson, deildarstjóri
rekstrardeildar
Haraldur hringdi sjálfur í Morg-
unpóstinn, væntanlega af skrif-
stofu sinni. ■