Helgarpósturinn - 31.10.1994, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 31.10.1994, Blaðsíða 28
28 MORGUNPÓSTURINN SPORT MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1994 Reykjavík international Leikimir 2. nóvember Spánn - Danmörk ísland - Ítalía Sviss - Frakkland Svíþjóð - Noregur 3. nóvember Spánn - Ítalía Svíþjóð - Frakkland Noregur - Sviss ísland - Danmörk 4. nóvember Frakkland - Noregur Svíþjóð - Sviss Danmörk - Ítalía ísland - Spánn 5. nóvember 7-8 sæti 5-6 sæti 3-4 sæti úrslit íslenskur sigur í Kúveit á laugar- dag Lofar góðuupp á fram- haldið íslenska landsliðið í knatt- spyrnu mætti liði Kuwait í A1 Ain í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á laugardag. Mjög heitt var í veðri, um 30 gráður, og gerði það íslensku leikmönnunum erfitt fyrir, en að öðru leyti voru aðstæður hinar ákjósanlegustu þegar leik- urinn fór fram. ísland var betri aðilinn í leiknum og vann verð- skuldað með marki Haraldar Ingólfssonar eftir góðan sam- leik við Helga Sigurðsson á 70. mínútu leiksins. Ásgeir El- íasson notaði alla sextán leik- mennina og stóðu sig allir vel. Liðið heldur nú til Englands í æfmgabúðir og verða alls 23 leikmenn í búðunum. Af þeim sextán leikmönnum sem spil- uðu leikinn á laugardag verða þrettán í búðunum, en þeir Kristján Jónsson, Helgi Sig- urðsson og Hlynur Stefáns- son eru farnir til sinna félaga. Þá bætast við hópinn tíu leik- rnenn sem eru farnir til Eng- lands. Það eru þeir Birkir Krist- inson, Eggert Sigmundsson, Atli Knútsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Hákon Sverris- son, Auðunn Helgason, Tryggvi Guðmundsson, Kári Steinn Reynisson, Ottó Karl Ottósson og Guðmundur Gíslason. RM Haraldur Ingólfsson Átti mjög góðan leik og skor- aði eina mark leiksins í Al Ain á laugardag. Stórviðburður í íslenskum handbolta Það sterkasta í söaurmi Alþjóða Reykjavíkurmótið (Reykjavík Open) sem hefst á mið- vikudaginn, er sterkasta hand- knattleiksmót sem haldið hefur verið hér á landi til þessa. Liðin sem leika á mótinu eru flest öll í fremstu röð í heiminum og nægir þar að nefna heims- og Evrópumeistara Svía sem, að venju, mæta til leiks með sitt allra sterkasta lið. Löng hvíld hjá „okkar mönnum“ Liðin sem mæta hingað til lands hafa öll verið að spila nokkra æf- ingalandsleiki að undanförnu til að hita upp fyrir átökin. Öll nema eitt — íslenska landsliðið. Þorbergur Aðalsteinsson iandsliðsþjálfari segir þetta ekki vera sérstakt áhyggjuefni, menn hafi verið orðn- ir langþreyttir og því hafi verið brugðið á þetta ráð. Einar Þor- varðarson aðstoðarmaður hans bætti um betur og sagði ljóst að ekki væri hægt að ræða um ofálag að þessu sinni. Opnunarleikur íslenska liðsins á mótinu er gegn landsliði Ítalíu í Laugardalshöllinni á miðvikudags- kvöld. Dagskrá mótsins er afar þétt og þrír leikir verða leiknir á þremur næstu dögum þar á eftir, gegn Dönum, Spánverjum og loks verð- ur leikið á laugardeginum um sæti. Riðill Islendinga virðist í fljótu bragði vera léttari en hinn riðillinn. Þó má segja að eina liðið sem í fljótu bragði á að vera lakara en það íslenska sé það ítalska. Hin liðin tvö, Spánn og Danmörk, hafa verið að gera góða hluti og í raun betri en það íslenska á undanförnum árum. Margar frægar kempur Það er óhætt að segja að fjöl- margar frægar kempur heiðri mót- ið með nærveru sinni í vikunni. Svíaliðið er auðvitað hægt að telja upp í heilu lagi, menn eins og Staffan Olson, Erik Hajas, Per Carlén, Magnus Wislander og Mats Olson eru í hópi mest höt- uðu manna þjóðarinnar í ljósi margra ósigra „okkar manna“ gegn þeim á ögurstundu og í liði Spánar, Frakklands, Noregs og Sviss eru Þorbergur Aðalsteinsson Segir hvíld íslenska liðsins und- anfarið vera sanngjarna eftir mik- ið álag. Dagur Sigurðsson Einn þeirra leikmanna sem ís- lendingar treysta á fyrir komandi átök. margir frábærir handknattleiks- menn. Þeirra fremstur er án efa hinn 23 ára Svisslendingur Marc Baumgartner. Hann leikur með þýska liðinu Lemgo og er af mörg- um talinn besti handknattleiks- maður heims í dag. Undirbúningur fyrir HM’95 Ekki fer á milli mála hversu mót- ið er mikilvægt fyrir íslendinga í ljósi Heimsmeistarakeppninnar sem haldin verður hér á landi á næsta ári. Allt starfsfólk þeirrar keppni tekur þátt í undirbúningi Reykjavíkurmótsins og mun þann- ig hljóta dýrmæta reynslu sem komið getur að gagni næsta vor. Leikið verður í þeim húsum sem einnig eiga að hýsa keppnina og all- ur tæknibúnaður verður frum- reyndur að þessu sinni. Búist er við nokkrum erlendum blaða- og fréttamönnum hingað til lands í tilefni mótsins og verður allt gert til að sýna þeim fram á kosti þess að halda hér heimsmeistara- keppni. ■ Þýskaland Þjóðverjar andvígir þriggja stiga reglunni Þjóðverjar eru ekki hrifnir af nýrri reglugerð FIFA (Alþjóða knattspyrnusambandsins) um að festa þriggja stiga regluna í sessi og gera aðildarlöndin skyldug til að notast við hana í deildarkeppnum sínum. Reglan gengur út á að gefa þrjú stig fyrir sigur en eitt fýrir jafntefli. Þessi regla hefur reyndar lengi verið í gildi hér á landi en hefur einnig á undanförnum árum verin tekin upp í öðrum löndum Evrópu, til að mynda í Englandi og nú síðast á Ítalíu. 1 sumar gaf FIFA síðan út þá til- skipun að gefa þrjú stig fyrir sigur í undankeppnum landsliða og í framhaldi af því kemur þessi ákvörðun nú. Þýskaland og Spánn eru meðal fárra landa sem enn eiga effir að til- einka sér þessa reglu og nú lítur sumsé út fyrir að breyting verði þar á. Jupp Heynkes, þjálfari Eintr- acht Frankfurt, segist vera mjög andvígur þessari breytingu og finnst reglan ekki hafa sannað gildi sitt annars staðar og telur menn vera á villigötum. „Leikurinn batnar ekki vegna svona reglna,“ sagði hann. Tony Cottee hjá West Ham Kominn aftur „heim“ á UptonPark Körfumaraþon Þessir hressu krakkar úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla léku körfubolta af krafti á fimmtudag. Þetta gerðu þeir til að safna peningum í útskriftarsjóð nemenda og fólst átakið í því að leika körfubolta stanslaust í sól- arhring, í keppni sex fimm manna liða. Þegar Tony Cottee var seldur frá West Ham til Everton fýrir sex árum var hann einn allra dýrasti leikmaður enskrar knattspyrnu. Alls þurfti Howard Kendall, þá- verandi framkvæmdastjóri Ever- ton, að punga út tveimur milljón- um punda fyrir kappann, sem var metfé á þeim tíma. Cottee byrjaði vel með nýja lið- inu og skoraði þrennu í fyrsta deildarleik sínum með félaginu. Eftir það lá leiðin niður á við hjá honum, hann datt út úr iiðinu, og varð að sætta sig við að spila með varaliðinu. I janúar á síðasta ári fékk hann tækifæri með aðalliðinu og raðaði inn mörkum nokkra leiki í röð. Kendall tilkynnti honum að hann ætti sæti víst í liðinu og bauð honum nýjan þriggja ára samning. Þetta leit semsagt allt vel út þar til í desember, er Kendall sagði af sér og Mike Walker tók við liðinu. Cottee var ekki inni í myndinni hjá hon- um og því var hann seldur aftur til West Ham fyrir upphæð sem er að- eins lítið brot af þeirri upphæð sem greidd var fyrir hann sex árum áður við félagsskiptin í Everton. Cottee vill ekki meina að hann hafi „flopp- að“ hjá Everton: „Kannski vann ég ekki neina stóra sigra hjá Everton en ég er samt stoltur af markaskor- un minni fyrir félagið. Ég skoraði 99 mörk í rétt rúmlega tvö hundr- uð leikjunt, sem gera næstum því eitt mark fyrir hverja tvo leiki. Þetta er svipað hlutfall og ég var með í West Ham og gerði mig að tveggja milljóna punda leikmanni fyrir sex árum síðan. Auk þess var ég í liði sem var í endalausu basli og ætíð í botnbaráttu. Reyndar var toppur- inn á ferli mínum í fyrra þegar Ev- erton náði á undraverðan hátt að forðast fall úr úrvalsdeild. Mín skoðun er sú að sóknarmaður „- floppi“ ef hann skorar til dæmis bara eitt eða tvö mörk í heilum þrjátíu leikjum.“ Tony Cottee er semsagt kominn aftur á heimaslóðir og ætlar að skora rnikið fyrir West Ham í vetur: „Aðal takmarkið mitt núna er skora þau mörk sem koma til með að halda West Ham í úrvalsdeildinni. Ég er ekkert farinn að hugsa lengra fram í tímann.“ -RM Kominn aftur í West Ham eftir sex ára dvöl hjá Everton. Hann ætlar sér stóra hluti í vetur með sínum gömlu félögum.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.