Helgarpósturinn - 31.10.1994, Blaðsíða 9
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
9
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1994
--------------------------{■/■■'.”1 f 'MA" "
Ríkissjóður í ábyrgðum vegna kaupa á Flekkuvík-
urjörðinni á 58 milljónir króna í tengslum við fyr-
irhugað álver á Keilisnesi
Situruppi með
verðiausa
jörð
„Þetta var allt gert með ábyrgð
ríkisins,“ segir Jóhanna Reynis-
dóttir, sveitarstjóri Vatnsleysu-
strandarhrepps, um kaup hrepps-
ins á jörðinni Flekkuvik I af Finni
Gíslasyni. I MORGUNPÓSTIN-
UM á fimmtudaginn var sagt frá
því að Finnur hafi verið dæmdur
til að greiða fyrrum eiginkonu
sinni helming kaupverðsins en
geti það ekki eftir að hann var úr-
skurðaður gjaldþrota þremur
dögum eftir uppkvaðningu
dómsins. Fireppurinn keypti
jörðina í júlí árið 1991 með það í
huga að leigja hana út til fyrir-
hugaðs álvers í Keilisnesi en
áform um byggingu þess voru
lögð til hliðar í hili eins og kunn-
ugt er.
Kaupverð Flekkuvíkur var
rúmar 58 milljónir króna en fast-
eignarmat hennar mun hafa verið
rétt um eina milljón króna á
þeim tíma. Verðmæti jarðarinnar
rauk upp úr öllu valdi vegna fyr-
irhugaðrar stóriðju á svæðinu en
eftir að þær áætlanir runnu út í
sandinn er verðgildi hennar nær
fyrra fasteignamati. Jóhanna seg-
ir að gengið hafi verið frá öllum
pappírum varðandi kaupin í iðn-
aðarráðuneytinu en allar greiðsl-
ur vegna kaupanna fari í gegnum
fjármálaráðuneytið.
„Við erum bara í viðskipta-
reikning hjá ríkinu og upphaflega
var gerður samningur þess efnis,“
segir Jóhanna. „Það var náttúr-
lega alveg ljóst að hreppur af
okkar stærð mundi aldrei ráða
við þessi kaup nema einhver
kæmi á móti okkur. Á meðan
ekki rís álver hérna sér ríkið um
að greiða af jörðinni.“ Jóhanna
segir að ef af leigusamningi verði
taki hreppurinn við rekstri henn-
ar og greiði upp skuldina hjá rík-
inu. Upphaflega hugmyndin var
sú að hreppurinn eignaðist jörð-
ina á 20 til 30 árum með fyrir-
hugðum leigutekjum frá álveri en
eins og staðan er í dag er jörðin
nánast verðlaus eign ríkisins.
LAE
Flekkuvíkurmálið
Greinar-
gerð værrt-
anleg
Morgunpóstinum barst seint í
gær greinargerð frá Bjarna Þór
Óskarssyni, lögmanni Finns
Gíslasonar, vegna umfjöllunar
blaðsins um svokallað Flekku-
víkurmál. Sökum þess hve grein-
argerðin er löng og lítið rými í
blaðinu varð að samkomulagi
við lögmanninn að hún birtist í
heild sinni í Morgunpóstinum á
fimmtudaginn.
Ritstj.
Ámes ekki
Baldur
I smáfrétt á fimmtudaginn var
sagt að frumsýningarpartý Frú
Emilíu hefði verið haldið um
borð í flóabátnum Baldri sem er
ekki alls kostar rétt. Eftir að
gamli Baldur hætti að gegna
hlutverki ferju og sigldi suður
með nýjum eigendum fékk það
nafnið Árnes. Beðist er velvirð-
ingar á þessu nafnabrengli.
snyrtipinnar
&
bómullarskífur
eru frqmleidd 6 Hvamnisiqnga?
Skarp hf. s. 95-12418,95-12818, fax 95-12418 VELJUMISLENSKT!
HÆTTU AÐ REYKJA NÁÐU STJÓRN Á MATARÆÐINU
Á TVEIMUR KVÖLDUM Á TVEIMUR KVÖLDUM
Tvö kvöld, tveir tímar í senn.
Þú losnar við alla löngun og
vöntun gagnvart reykingum.
Fjöldi takmarkast við sex
manns á hvert námskeið
Dáleiðsla hjálpar þér að ná strax tökum
og stjórn á mataræðinu fyrir fullt og allt.
Skjótur og varanlegur árangur.
Fjöldi takmarkast við sex
manns á hvert námskeið
Friðrik Páll Ágústsson
R.P.H. C.Ht.
Friðrik er menntaður í dáleiðslumeðferð og hefur unnið víða um
heim við dáleiðslu.
Viðurkenndur af International Medical
and Dental HypnotherapyAssociation.
UPPLÝSINGAR í SÍMA: 870803
Einnig bjóðast einkatfmar I dáleiðslumeðferð