Helgarpósturinn - 31.10.1994, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1994
MORGUNPÓSTURINN FÓLK
17
MEiga erfitt með að koma sér saman um nýjan ríkissáttasemjara ■ Ólafur og Hallur byrja með
glans ■ Tryggingafélögin fúl út í Húsatryggingar Reykjavíkur
Síðustu daga og vikur hafa aðilar
vinnumarkaðarins hist á fundum til
þess að ræða fyrirhugaða stöðuveit-
ingu ríkissáttasemjara. Lengst af var
talið að Þörir Einarsson, prófessor í
viðskiptafræði við Hl, væri líkleg-
astur en efasemdaraddir eru nú
töluverðar báðum megin borðsins.
Vinnuveitendur horfa helst til MAs
Gunnarssonar, starfsmannastjóra
Flugleiða, og telja hann hæfastan
umsækjcnda. Margir leiðtogar
verkalýðsfélaganna styðja hann þótt
ólíldegt sé að hann verði fyrir val-
inu. Ástæðan er töluverð andstaða
innan verkalýðsfélaganna, einkum í
ljósi þess að hann hefur verið í for-
svari vegna launamála hjá Flugleið-
um. Hins vegar verður að hafa í
huga að vararíkissáttasemjari, Geir
Gunnarsson, lýkur sínu tímabili
þann 15. apríl og
væntanlega
verður sam-
ið um báðar
stöðurnar í
einu. Báð-
um megin
borðs er full-
yrt að enginn
augljós kostur
sé í sjónmáli meðal umsækjenda og
þvi er rætt um hugsanlegan fulltrúa
utan umsækjenda. Félagsmálaráð-
herra, Guðmundur Árni Stefáns-
SON, hefur veitingavald i stöðuna og
þótt rætt sé um neitunarvald ASÍ og
VSl er það flóknara ef þeir ætla að
leita út fyrir hóp umsækjenda. Sam-
kvæmt heimildum MORGUNPÓSTS-
INS hefur ekki verið rætt við ráð-
herra vegna þessa. Skemmst er þó
að minnast þess að þegar fráfarandi
ríkissáttasemjari, Guðlaugur Þor-
valdsson, var fenginn í embættið þá
sótti hann ekki um stöðuna...
Frá og með næstu áramótum ráða
húseigendur hjá hvaða tryggingafé-
lagi þeir kaupa brunatryggingar,
sem eru eftir sem áður skyldutrygg-
ing. Gríðarlegar fjárhæðir eru þvi í
húfi fyrir tryggingafélögin. Fram að
þessu hefa Húsatryggingar Reykja-
víkur, sem er í eigu borgarinnar,
haft einkarétt á brunatryggingum í
Reykjavik en Vátyggingafélag
Islands og fyrirrennarar þess í öðr-
um sveitarfélögum á landinu. Slag-
ur tryggingafélaganna stendur nú
sem hæst, enda þurfa húseigendur
að segja upp tryggingu sinni fyrir
30. nóvember ætli þeir að skipta um
tryggingarfélag. Þau hafa keppst við
að senda húseigendum bréf þar sem
þau kynna breytinguna. Það vekur
athygli í bréfi Húsatrygginga að fé-
lagið auglýsir sitt iðgjald sem 140
krónur á ári fyrir hverja milljón
sem brunabótamat hljóðar upp á,
án þess að láta þess getið að jafn-
framt því þarf félagið að innhcimta
nokkur þúsund krónur (til dæmis
3.200 af 10 milljóna króna eign) fyr-
ir ríkið og stofnanir þess. Þar er um
að ræða viðlagatryggingargjald,
brunavarnagjald og umsýslugjald.
Mikil óánægja er með þessa við-
skiptahætti hjá hinum tryggingafé-
lögunum sem eru í einkaeign.
Finnst forráðamönnum þess óeðli-
legt að borgarfyrirtæki segi ekki all-
an sannleikann um hvað húseigend-
ur þurfa að borga og reyni þannig
að halda sem flestum þeirra í við-
skiptum við sig...
Fjölmiðlaráðgjöf af ýmsu tagi hef-
ur aukist mjög upp á síðkastið. I
þessari grein kynningarstarfa vinna
einkum gamlir fréttahundar af
blöðum og ljósvakamiðlum. Sam-
keppni í þessari grein jókst til muna
um daginn þegar
tveir sjóaðir jaxl-
ar úr frétta-
mennskunni, ÓL-
afur E. Jóhanns-
son og Hallur
Hallsson, stofn-
uðu fýrirtækið
Menn og málefni
hf. Þeir sem fyrir eru í bransanum
biðu nokkuð uggandi eftir því
hvernig til tækist með fyrsta verk-
efni þeirra félaga, sem varð með
þeim hætti í síðustu viku að keppi-
nautarnir þurfa nú að bretta upp
ermarnar. Nýja fyrirtækið tók að sér
kynna fyrir Lions-hreyfinguna
dreifingu á 36 þúsund endurskins-
merkjum til barna um land allt og
tókst að lokka til leiks nánast alla
fjölmiðla landsins, þar með talið
báðar sjónvarpsstöðvarnar, flestar
útvarpsstöðvarnar og dagblöðin, og
allir gerðu málinu talsverð skil. Þá
tókst þeim einnig að fá í lið með sér
Davíð Oddsson til að útbýta fyrstu
merkjunum, en það er einmitt einn
helsti mælikvarðinn á árangur í
þessum bransa hvort mönnum tekst
að fá til liðs við sig helstu þunga-
vigtarmenn þjóðarinnar...
NÝBÝLAVEGUR 12, KÓPAVOGI, SÍMI 444 33
BARNAGALLAR FRÁ 1250,-
BARNABUXUR 800,-
BARNAPEYSUR 800,-
BARNAVESTI 1680,-
BARNAKJÓLAR FRÁ 1900,-
Fullt af tilboðsvörum á börn 500,-
íslenskir dagar
Á fullorðna:
Isl. náttfatnaður frá 500,- -4900,-
Frottesloppar 1900,-
Velour sloppar og gallar 6500, -
UUir
mvut.ygfc
gráda ostq,