Helgarpósturinn - 31.10.1994, Side 29
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1994
MORGUNPÓSTURINN SPORT
2a
Einar Bollason velur liðið sitt fyrir Morgunpóstinn
Blak
RJUPNA
VEDMENN
iWf
GPS 40.
[é éé|
Kynningarverð
39,900,-
Tíu bestu körfuknattieiks-
menn Islands frá upphafí
Lerftur úr sögu íþmttafélags
Fimleikafélag Hafnarfjarðar eða
FH eins og það er best þekkt, á sér
langa og glæsta sögu og skipar veg-
legan sess í íslensku íþróttalífi.
FH-ingar opnuðu nýlega sýn-
ingu í Hafnarfirði þar sem gefur
að líta myndir og muni sem tengj-
ast sögu félagsins. Jim Smart fór á
vettvang og tók nokkrar myndir.
Körfuknattleikur á íslandi hefiir
sjaldan eða aldrei verið í eins mikilli
uppsveiflu og akkúrat nú. Þakka
menn helst mikilli NBA-umíjöllun í
fjölmiðlum svo og blómlegri útgáfú
alls kyns blaða og myndbanda, svo
eitthvað sé nefnt. Árangur íslenskra
landsliða og félagsliða á erlendri
grund verður sífellt betri og varla líð-
ur á löngu þar til við eigum lið í
fremstu röð.
Þegar minnst er á körfuknattleik
kemur nafti eins manns oftast upp i
hugann, nafn Einars Bollasonar.
Maðurinn hefur þvílíkan áhuga á
íþróttinni að það er engu lagi líkt.
Hann gerði garðinn ffægan hér áður
fyrr sem leikmaður, meðal annars
með KR og líklega er ekki til harðari
Boston Celtics-aðdáandi á fslandi.
Einar hefur nú tekið saman þá tíu
leikmenn sem sæti eiga í draumaliði
hans, og hefur kosið að fara allt aftur
til gullaldarára ÍR, 1959-1965, við val á
liðinu. Tveir menn eru um hverja
stöðu, en auk þess kaus Einar að velja
þá tvo sem næstir koma í hverja
stöðu.
Leikstjórnandi
Jón Sigurðsson (Ármann - KR)
„Af mörgum talinn besti körfu-
knattleiksmaður sem hér hefúr kom-
ið ffam. Óvenju leikinn og útsjónar-
samur, og gat tekið leikinn í sínar
hendur ef svo var að skipta. Margfald-
ur Islands- og bikarmeistari með Ár-
manni og KR, og lék fýrstur íslend-
inga yfir 100 landsleiki.“
Þorsteinn Hallgrímsson
(ÍR - SISU)
„Frábær bakvörður sem var lykil-
maður í gullaldarliði ÍR 1959- ‘64.
Hann lék með SISU í Danmörku og
vann með þeim danska meistaratitil-
inn í mörg ár. Var talinn besti körfú-
knattleiksmaður Danmerkur. Þor-
steinn var valinn í fýrsta landslið ís-
lands árið 1958 aðeins 16 ára að aldri,
og var valinn í Norðurlandaúrval eftir
NM í Finnlandi 1964. Hann lék sína
síðustu landsleiki á NM í Finnlandi
1974 og affekaði þá að leika allar stöð-
ur í liðinu vegna meiðsla leikmanna.
Segir það meira en mörg orð um fjöl-
hæfni þessa ffábæra leikmanns og
foringja.“
Þeir sem næstir koma:
Jón Kr. Gíslason (ÍBK), Gunnar
Gunnarsson (KR - UMFS1962-1974)
Skotbakvörður
Pálmar Sigurðsson
(Haukum - UBK)
„Frábær skytta sem var maðurinn á
bak við íslands- og bikarmeistatitla
Hauka á síðasta áratug. Þriggja stiga
Einar Bollason telur Pétur Guðmundsson gjaldgengan í besta lið allra
tíma á íslandi.
körfur hans yljuðu mörgum um
hjartarætur en þó aldrei eins og á
lokasekúndum úrslitaleiks íslands og
Noregs í C-keppninni hér heima 1985,
þegar hann tryggði íslandi sigur og
þar með þátttökurétt í B-keppninni.“
Kolbeinn Pálsson
(KR 1962-1978)
„Frábær leikmaður sem hafði
óhemju keppnisskap. Kolbeinn réð
yfir miklum hraða og naut þessi eig-
inleiki hans sín ekki síst í vöminni,
þar sem hann hrelldi margan sóknar-
manninn. Kolbeinn var fyrirliði
landsliðsins í fjölda ára og var valinn
íþróttamaður ársins 1966. Hann er
núverandi formaður Körfúknattleiks-
sambands fslands og hefur átt stóran
þátt í þeirri gríðarlegu uppsveiflu sem
átt hefur sér stað í körfúboltanum hér
á landi.“
Þeir sem næstir koma:
Kristinn Jörundsson (fR 1970-
1986), Teitur Örlygsson (UMHST).
„Léttur“ framherji
Valur Ingimundarson
(UMFN - UMFT)
„Stórkostlegur leikmaður sem hef-
ur unnið til ótal Islands- og bikar-
meistaratitla með núverandi íslands-
meisturunum, UMFN. Mikil skytta
og drjúgur í ffáköstum, þótt oftast
eigi hann í höggi við sér hærri menn.
Valur hefur leikið á annað hundrað
landsleiki og er enn í fúllu Ijöri með
liði sínu, UMFN, þar sem hann er
jafnífamt þjálfari. Það er með hann
eins og rauðvínið - hann verður betri
með aldrinum!"
Gunnar Þorvarðarson
(UMFN 1970-1984)
„Margfaldur meistari með liði sínu
og lék ótal landsleiki. Gunnar var
mjög útsjónarsamur leikmaður sem
nýtti sér vel hæfileika sína og þá ekki
síður veikleika andstæðingsins. Skor-
aði yfirleitt mikð og var harður í horn
að taka í baráttunni undir körfunni.“
Þeir sem næstir koma:
Þórir Magnússon (KFR - Valur
1964-1980), Agnar Friðriksson (fR
1959-1981).
Kraftframherji
Birgir Jakobsson
(ÍR 1966-1976)
„Birgir var mikil skytta og grjót-
harður í fráköstum. Hann spilaði
stórt hlutverk í ÍR-liðinu sem varð ís-
landsmeistari fimm ár í röð, 1969-
1973, og lék fjölda landsleikja fýrir fs-
lands hönd. Margir hafa haft á orði að
svona leikmenn vanti í íslenskan
körfuknattleik í dag, það er, sterka
ffamherja sem hafa yfir að ráða mik-
illi skottækni og jafnframt hörku
undir körfúnni.“
Guðmundur Bragason (UMFG)
„Margir reka ef til vill upp stór
augu við að sjá besta leikmann fs-
landsmótsins í fyrra, miðherja
UMFG, talinn upp hér sem einn besta
framherja landsins. Staðreyndin er
hins vegar sú að hæfileikar Guð-
mundar myndu enn ffekar fá að njóta
sín ef hann léki í stöðu ffamherja.
Hann er góður skotmaður og kann í
raun betur við sig er hann snýr að
körfunni. Óhemju skemmtilegur
leikmaður með gott keppnisskap, og
án efa hefúr hann enn ekki náð
toppnum sem körfuknatdeiksmað-
ur.“
Þeir sem næstir koma:
Torfi Magnússon landsliðsþjálfari
(Valur 1972-1987), Axel Nikulásson
(fBK - KR1979-1992).
Miðherji
Pétur Guðmundsson
(m.a. Valur, ÍR og LA Lakers)
„Það kemur engum á óvart að hér
situr Pétur Guðmundsson í fýrsta
sæti. Fyrrum leikmaður í NBA-deild-
inni með Portland, Los Angeles La-
kers og San Antonio. Þá lék hann
einnig hér heima með Val, ÍR og
UMFT. Stór og öflugur miðherji sem
hefði náð enn lengra ef ekki hefðu
komið til þrálát bakmeiðsli. Með
þátttöku sinni í NBA-deildinni hefur
Pétur skipað sér á bekk með ffemstu
íþróttamönnum landsins.“
Kristinn Stefánsson
(KR 1962-1978)
„Frábær varnarmaður með góðan
stökkkrafi sem nýttist honum vel i
baráttunni undir körfunni. Mjög
góðar tímasetningar hans hjálpuðu til
við að gera Kristin að einhveijum
besta ff ákastara íslenskrar körfubolta-
sögu.“
Þeir sem næstir koma:
Jónas Jóhannesson (UMFN 1970-
1985), Guðmundur Þorsteinsson (ÍR
1958-1964). ■
* Minnsto graMo GPS tækið ó markaðnum.
* Aðeins 261 grömm með rofhlöðum.
* Votnsþétt.
*-Alltoð20kls.rofhlöðuending.
* 250vegpunktar,20leiðirmeð
30 vegpunktum hver.
* Plotter með kvorða fró 0,5-5■ 600 km.
* TengjonlegurviðOGPSIeiðréttingu.
* Úrvol aukahluto.
Urslit um helgina
Karlar:
Þróttur N. - ÍS 0:3
HK - Þróttur R. 3:2
Stjarnan - KA 3:2
Staðan
Þróttur R. 5 14:7 14
KA 5 14:9 14
HK 5 13:7 13
Stjarnan 5 9:9 9
(S 5 7:12 7
Þróttur N. 5 2:15 2
Konur:
Þróttur N. - ÍS 1:3
HK - Víkingur 1:3
Staðan
Víkingur 3 9:0 9
KA 4 9:7 9
is 4 7:7 7
HK 3 4:7 4
Þróttur N. 4 4:12 4
HMkartaí
körfuá
Grikklandi
1998
Kvennakeppnin verður
í Þýskalandi.
Það verða Grikkir sem halda
heimsmeistarakeppnina í körfu-
knattleik karla 1998. Kvenna-
keppnin verður hins vegar í
Þýskalandi. Þetta tilkynnti Al-
þjóðlega körfuknattleikssam-
bandið í gær.
R.SIGMUNDSSON HF.
SIGLINGA - OG FISKILEITARTÆKI
SÍMI: 622666, FAX: 622140