Helgarpósturinn - 05.12.1994, Blaðsíða 4
4
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1994
Nýskipaður umboðsmaður barna á íslandi vinnur í forsætisráðu-
neytinu og svaraði fyrirspurnum annarra umsækjenda um starfið.
Hópur umsækjenda telur þessa embættisveitingu forsætisráðherra
óvandaða og ekki samræmast nýjum stjórnsýslulögum
Tók við umsóknum
hinna og sólti svo
sjátf um
Að tillögu forsætisráðherra var
Þórhildur Líndal, lögfræðingur í
forsætisráðuneytinu, ráðinn fyrsti
umboðsmaður barna á Islandi. Það
voru 24 sem sóttu um starfið en um-
sóknarfrestur rann út í lok septemb-
er. Tveir umsækjenda hafa farið fram
á að Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra rökstyðji ráðningu Þórhildar.
Að mati þeirra hefur hún fátæka
reynslu af málefnum barna miðað
við marga úr hópi umsækjenda. Þeir
segja að um pólitíska ráðningu og
hagsmunatengsl hafi verið að ræða ef
ekki verða færð haldgóð rök fyrir
ráðningunni. Davíð, sem nú er
staddur er í Kína, sagði hins vegar að-
Þau sóttu um
Áslaug Þórarinsdóttir,
Benedikt Sigurðarson
skólastjóri,
Björn Baldursson
lögfræðingur,
Borghildur Maack
hjúkrunarfræðingur,
Brynhildur G. Flóvens
lögfræðingur,
Elín Norðdahl,
Guðrún Hjartardóttir ritstjóri,
Guðrún Agnes Þorsteinsdóttir,
Helga Þórðardóttir,
Herdís L. Storgaard fujltrúi
hjá Slysavarnarfélagi íslands,
Hugo Lárus Þórisson
sálfræðingur,
Ingibjörg Georgsdóttir,
Jón Björnsson
félagsmálastjóri,
Lára Pálsdóttir,
Magnús Gunnarsson,
Margrét Vala Kristjánsdóttir
kennari,
Páll Tryggvason læknir,
Pétur Ólafsson,
Sigríður Á. Ásgrímsdóttir,
Sigurður Ragnarsson
sálfræðingur,
Sturla Kristjánsson
sálfræðingur,
Unnur Guðrún Kristjánsdóttir,
V.Soffía Grímsdóttir,
Þórhildur Líndal.
spurður í fféttum Bylgjunnar á föstu-
daginn að hann sjái ekkert athugavert
við ráðninguna þar sem iögin geri
óbeint ráð fyrir að í starfið sé ráðinn
lögfræðingur. Aðrir umsækjendur
efast hins vegar um þetta.
Vísað var á Þórhildi þegar sóst var
eftir upplýsingum um embættið þeg-
ar. staðan var auglýst og einnig eftir
að umsóknarfrestur rann út. Þórhild-
ur segir það hins vegar ekki vera rétt.
Borghildur Maack, hjúkrunar-
fræðingur og Hugo Lárus Þórisson,
sálfræðingur sóttu um starf umboðs-
manns barna og var vísað á Þórhildi
þegar þau óskuðu upplýsinga varð-
andi starfið. „Mér finnst mjög óeðli-
legt að Þórhildur sem embættismað-
ur skuli svara fýrirspurnum okkar
sem sóttu um, bæði þegar staðan var
auglýst og einnig eftir að umsóknar-
frestur rann út. Ég neitaði alfarið að
tala við hana í seinna skiptið og var
þá vísað á ráðuneytisstjóra," segir
Hugo.
Reynslan takmarkast
við eigin böm
Hugo segir að margir úr hópi um-
sækjenda hafi víðtæka menntun og
reynslu af málefnum barna. „Sem
dæmi má nefha Jón Björnsson, fé-
lagsmálastjóra á Akureyri, sem er sál-
fræðingur og mjög virtur ffæðimað-
ur. Sigurður Ragnarsson lagði
einnig inn umsókn en hann hefúr í
mörg ár rekið meðferðarheimili fyrir
börn og unglinga.
Enn fleiri spurningar vöknuðu
þegar ég las viðtal við Þórhildi í
Morgunblaðinu en þar kemur ffam
að reynsla hennar af málefnum barna
byggist fyrst og ffemst á uppeldi eigin
barna,“ segir Hugo.
í samtali við MORGUNPÓSTINN
segir Þórhildur Líndal staðhæfingar
Hugos rangar. „Ég ákvað að sækja
um starfið daginn áður en umsókn-
arffestur rann út og eftir það þá kom
ég ekki nálægt málinu. En það er rétt
að símanum var beint til mín þegar
spurt var um embættið en það var
áður en ég lagði sjálf inn umsókn.
Eftir það sá ráðuneytisstjóri sjálfúr
um fyrirspurnir umsækjenda."
Hugo Lárus Þórisson „Þórhildur
sat báðum megin við borðið."
Osmekklegt að Þór-
hildur skuíi hafa tekið
við umsóknunum
I 2. grein laga um umboðsmann
barna segir meðal annars að hafi um-
boðsmaður barna ekki lokið embætt-
isprófi í lögum þá skuli lögffæðingur
starfa við embættið.
„Að mínu mati er því mjög eðlilegt
að ráða lögfræðing sem umboðs-
mann barna í upphafi. Margir hafa
nú þegar leitað til mín með lögffæði-
leg álitaefni þó ég sé ekki enn tekin til
starfa,“ sagði Þórhildur.
Bjöm Baldursson lögffæðingur
segir að Þórhildur hafi veitt sér upp-
lýsingar um starfið þegar hann var að
hugleiða umsókn. Hann lagði inn
umsókn á síðasta degi og ræddi við
Þórhildi nokkrum dögum áður.
„Hún veitti þvi upplýsingar alveg
fram á síðasta dag. Mér finnst
ósmekklegt að hún skuli standa
svona nálægt undirbúningsferlinu og
fá síðan stöðuna. Auk mín sóttu að
minnsta kosti tveir lögffæðingar um
starfið, Þórhildur og Brynhildur Fló-
vens. Ég er eldri en Þórhildur og hef
starfað við lögffæðistörf ffá embætt-
isprófi. Einnig hef ég sinnt málefúum
bama en þó mest í tengslum við mitt
eigið barn sem er fatlað. Þórhildur
hefúr hins vegar starfað mun lengur
hjá hinu opinbera en ég. Þetta er
Páll Tryggvason „Starfið snýst
um svo mikið meira en lögfræði.
Það snýst um að hafa auga fyrir
hver aðstaða barna í þjóðfélaginu
er. Þess vegna þarf að okkar mati
einhvern sem hefur verulega
reynslu af börnum og þekkir vel
aðbúnað þeirra."
spurning um hvers konar manneskju
þú vilt fá í embættið en ég er ekki að
draga í efa að hún eigi eftir að standa
sig vel.“
„Bíðum eftir
haldgóðum rökum“
Páll Tryggvason, barnalæknir og
geðlæknir barna og unglinga við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, og
Benedikt Sigurðarson, skólastjóri
Barnaskóla Akureyrar, sóttu um starf
umboðsmanns barna. Þeir rituðu
nýlega opið bréf í Morgunblaðið til
Davíðs Oddssonar þar sem þeir fara
ffam á að færð verði betri rök fyrir
embættisveitingunni. „Það er al-
mannarómur að búið hafi verið að
ráða Þórhildi í stöðuna áður en hún
var auglýst. Við útilokum ekki að um
hagsmunatengsl hafi verið að ræða
fyrr en Davíð færir haldgóð rök fyrir
ráðningunni,“ segir Páll.
Páll og Benedikt benda á að hvorki
menntun né fyrri störf Þórhildar
tengist málefúum barna og unglinga.
„í frétt forsætisráðuneytisins, þegar
tilkynnt var að Þórhildur hafi fengið
stöðuna, er starfsferill hennar orðum
aukinn. Greint er ffá því að hún hafa
starfað í félagsmálaráðuneytinu í 9
mánuði árið 1993 að málaflokki um
vernd barna og unglinga. I fféttablaði
Barnaheillar sem kemur út í vikunni,
Glinggló pirrar hreintrúaða jazzáhugamenn í Bretlandi ■ Kani snuðrar um íslenska
poppara ■ „Leshískar lagasetningar“ ekki að skapi lagaprófessora við Háskólann
I kjölfar ffægðar Bjarkar Guð-
mundsdóttur hefur útgáfufyrirtæki
hennar, One Little Indian, sent Gling
gló, plötu hennar og Guðmundar Ing-
ólfssonar, á markað í Bretlandi. í
nýjasta heffi breska tímaritsins Vox er
dómur um plötuna og segir þar að
hún sé sannarlega
1 skrítin. Líklega hafi
Björk gert plöt-
iuna til að
Lpirra hrein-
[ trúaða jazz-
’ menn og
r líka aðdáend-
f ur sína í rokk-
deildinni. Þó
ekki sé nema
afþeim
, sökum sé
k þess
i virði að
kaupa plötuna; á ein-
kennilegan hátt sé hún
einhvem veginn miðja
vegu milli Sykurmol-
anna og plötu Bjarkar,
Debut...
r rá því á föstudag-
inn hefur bandarískur
náungi verið að
snuðra um ranghala íslensks nætur-
lífs. Hann er útsendari stórfyrirtækis-
ins Arista sem starfar meðal annars
við það að finna hæfileikafólk á sviði
tónlistar fyrir plötufyrirtæki. Maður-
inn kom hingað gagngert til að skoða
hljómsveitina Kolrössu krókríðandi
en vinur hans sem starfar sem sjálf-
stæður hæfileikasnuðrari sagði hon-
um af þessari íslensku kvennasveit
eftir að hafa heyrt „Drápu“, fyrsta
disk Kolrössu. Hann sá
Bubblefhes á Kaza-
blanka á laugardags-
kvöldið en Kolrössur í
gærkvöldi. Skífan er
umboðsaðili Arista á
jslandi og JóN Ólafs-
Són riggaði upp giggi
fyrir manninn á Gauki
á Stöng í gærkvöldi þar
sem SSSól og Scope
með Svölu Bóbó í fylkingarbrjósti
léku...
C^laire Anne Smearman heitir
bandarískur kennari sem hefúr slegið
gegn í Háskólanum í vetur. Smearm-
an var fengin til landsins af Rann-
sóknarstofu í kvennafræðum og fékk
hún Fulbright-styrk til fararinnar.
Hún hefur verið ákaflcga ötul við
kennsluna, haldið málþing og notið
mikilla vinsælda meðal nemenda
sinna. Námskeiðið sem Smearman
kennir kallast Feminískar lagakenn-
ingar, en hún er doktor í lögum frá
hcimalandi sínu. Námskeiðið er hins
vegar í félagsvísindadeild en ekki
lagadcild enda hefur sú deild löngum
verið lokaðasta deild skólans. Það
hefur þó ekki aff rað því að nokkrir
laganemar hafa sótt námskeiðið. Ein-
hverjar vöflur eru aftur á móti á þvi
hvort laganemamir fái námskeiðið
metið til eininga og munu þeir verða
að leggja inn beiðni til þess fyrir
deildarráð lagadeildarinnar. Það hef-
ur vakið nokkra athygh að þeir laga-
nemar sem hafa sótt tima Smearmans
eru allir kvenkyns en til marks um
víðsýni karlkyns laganema má nefna
að í þeirra hópi gengur kúrsinn undir
nafninu lesbískar lagasetningar...
Þórhildur Líndal „Ég hætti öllum afskiptum af málinu eftir að ég sótti
sjálf um.“
er viðtal við Þórhildi þar sém hún
rekur starfsferil sinn en minnist ekki
á að hún hafi farið með þennan
málaflokk."
Aðspurð sagði Þórhildur í samtali
við MORGUNPÓSTINN að ef það væri
rétt að hún hafi ekki getið þess að
hafa sinnt þessum málailokki, þá hafi
hún einfaldlega gleymt því. Hún seg-
ir ffétt forsætisráðúneytisins hárrétta.
„Grundvallaratriði í okkar huga er
að borgararnir geti treyst því að þeir
njóti allir jafúræðis gagnvart stjór-
nýslunni," segir Páll.
Davíð sér
ekkert athugavert
I fréttum nýlega kom ffam að for-
sætisráðherra, sem staddur er í Kína,
sjái ekkert athugavert við ráðningu
Þórhildar þar sem lögin geri óbeint
ráð fyrir að umboðsmaður sé lög-
ffæðingur. Þessu eru Páll og Benedikt
Sigurðarson ósammála. „I umfjöllun
á Alþingi á sínum tíma var talað um
að lagalegum málefúum barna skyldi
vísað til umboðsmanns alþingis og
að umboðsmaður barna ætti ekki að
fara inn á það verksvið,“ segir Bene-
dikt.
„Itrekað hringdi ég í forsætisráðu-
neytið og spurði hvort til stæði að
kalla menn í viðtal. Mér var sagt að
fyrst stæði til að skoða þær umsóknir
sem teljast vera alvöru umsóknir og
síðan verður tekin ákvörðun um
hvort kallað verði í viðtal,“ segir Páll
en aldrei kom til þess að umsækjend-
ur yrðu kallaðir til viðtals. Þeir
heyrðu flestir næst af málinu þegar
búið var áð ráða Þórhildi.
Einn umsækjenda, sem ekki vildi
láta nafús síns getið, bendir á sterk
tengsl fjölskyldu Þórhildar við Davíð
Oddsson.
Páll Líndal, faðir Þórhildar, var
borgarlögmaður á sama tíma og
Davíð var borgarstjóri í Reykjavík.
Bjöm Líndal, bróðir Þórhildar er að-
stoðarbankastjóri og góður vinur
Hreins Loftssonar, fyrrum aðstoð-
armanns Davíðs. Þórhildur er gift Ei-
ríki Tómassyni, lögffæðingi sem er
sonur Tómasar Árnasonar í Seðla-
bankanum og fyrrverandi ráðherra.
Davíð, Eiríkur og Þórhildur eru öll
góðir vinir og voru lögffæðinemar á
svipuðum tíma í Háskóla Islands og
síðast þegar var vitað voru þeir Eirík-
ur og Davíð í sama briddsklúbbi. HM
Guðrún Helgadóttir:
Lögfræðimenntun á
engan hátt nauðsynleg
Guðrún Helgadóttir, alþingis-
maður hefur lengi barist fyrir
frumvarpi til laga um umboðs-
mann barna á Alþingi. Fyrir tíu ár-
um lagði hún fyrst fram frumvarp
þess efnis.
„I mínu upphaflega frumvarpi er
gert ráð fyrir að til starfans yrði
ráðinn einstaklingur sem hefúr sér-
fræðiþekkingu á málefnum barna,
eins og hefð er fyrir á Norðurlönd-
um. I Noregi gegnir læknir starfi
umboðsmanns. Frumvarp mitt
breyttist síðan í meðförum þingsins
og í núverandi lögum eru engin
skilyrði þess efnis. Það er því ekkert
ólöglegt við ráðningu Þórhildar. Ég
veit að meðal umsækjenda var mik-
ið mannval en ég geri ráð fyrir að
Þórhildur hafi mikinn áhuga á mál-
efnum barna. Ég vil gefa henni
möguleika á að móta þetta starf og
óska henni alls hins besta í því.
Hitt er annað mál að lögfræði-
menntun er á engan hátt nauðsyn-
leg í þetta embætti. Umboðsmaður
barna á ekki að leysa nein einkamál
heldur er hans starf að vísa þeim í
réttan farveg.
Ég get vel skilið að öðrum um-
Guðrún Helgadóttir „Ég tel ekki
óeðlilegt að forsætisráðherra geri
grein fyrir á hverju ráðningin er
byggð."
sækjendum hafi fundist of mikil
áhersla verið lögð á lögfræðimennt-
un. Því tel ég ekki óeðlilegt að for-
sætisráðherra geri grein fyrir á
hverju hann byggir ráðninguna
sína,“ segir Guðrún í samtali við
MORGUNPÓSTINN.
■
i
' a
i
a
a
>
a