Helgarpósturinn - 05.12.1994, Qupperneq 10
10
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1994'
Grafgotur
Staðgreiðsla
tekjuskatts 1994
lOOmilljarðar kr,-
80-
60-
Sjómannaafsláttur
Persónuafsláttur
40----1
■ H
Það sem eftir er
staðgreiðslunnar
Áætluð staðgreiðsia án frá-
dráttar er á yfirstandandi ári
88,7 milljarðar króna. Raun-
veruleg staðgreiðsla er þó
mun lægri því til frádráttar
kemur persónuafsláttur upp
á 46,1 milljarð króna og sjó-
mannaafslátturinn upp á 1,6
milljarða króna.
Skipting
staogr
ireiðslunnar
Staðgreiðsla skatta að frá-
dregnum persónuafslætti og
sjómannaafslætti er 41 millj-
arður króna. Af því fer 18,1
milljarður í útsvar sveitarfé-
laganna, 1,4 milljarðar í sókn-
ar- og kirkjugarðsgjöld, 4,6
milljaðar í barnabætur og
baranabótaauka og 2,9 millj-
arðar í vaxtabætur og hús-
næðisbætur. Eftir standa 14
milljarðar sem fara óskipt til
ríkisins. Við það bætist
reyndar 1 milljarður vegna
fyrirframgreiðslu á hátekju-
skatti og innheimtu á eftir-
stöðvum fyrri ára.
Atvinnuleysi
8000 manns----------------1
7000
6000
5000
4000
3000
2000
1000
Hagstofan Félagsmálaráðun.
I Vinnumarkaðskönnun Hag-
stofunnar er 6900 manns
skráðir atvinnulausir. Hins
vegar hefur félagsmálaráðu-
neytið gefið út að á sama
tíma séu 5431 atvinnulausir.
Tölur félagsmálaráðuneytis-
ins eru alltaf lægri en hjá
Hagstofunni enda sýna þær
þá sem eru á atvinnuleysis-
skrá en hins vegar er um
könnun að ræða hjá Hagstof-
unni.
Rekstur Sorpu hefur verið í járnum frá því fyrirtækið hóf starfsemi sína.
Sveitarfélögin samþykktu að veita 200 milljónum króna til viðbótar í
urðunarfyrirtækið í fyrra og viðskiptavinirnir greiða fjármagnskostnaðinn
Oeðlilega há móttöku
gjöld greiða
fiávmagns-
kostnaðinn
I lok liðins árs var höfuðstóll
Sorpu neikvæður um rúmar 15 milij-
ónir króna og ljóst að ef ekki yrði
gripið tii róttækra aðgerða stefndi
fyrirtækið í gjaldþrot. Langtíma-
skuldir fyrirtækisins voru rúmar 921
milljón króna og skammtímaskuidir
samtals 162 milljónir króna að með-
töldum rúmum 70 milijónum króna
í afborganir á langtímaskuldum á ár-
inu 1994.
Til að forða Sorpu frá gjaldþroti
fór stjórn fyrirtækisins frant á við
Iðnlánasjóð að láni þess við sjóðinn,
samtals rúmum 292 milljónum
króna, yrði skuldbreytt til 15 ára og
féllst sjóðurinn á þá ráðstöfun ef
sveitarfélögin ykju stofnfé sitt, sem
var einungis 115 milijónir króna í
upphafi, unt 200 milljónir króna.
Samþykktu sveitarfélögin þessa
kröfu sjóðsins og að upphæðin yrði
greidd á næstu þremur árum.
Óskar Maríusson efnaverkfræð-
ingur gagnrýndi fjármál Sorpu harð-
lega fyrir síðasta aðalfund fyrirtækis-
ins og í kjölfar hans var stofnaður
samráðshópur Sorpu og fúlltrúa at-
vinnulífsins. Tók Oskar sæti í hópn-
um sent fulltrúi Vinnuveitendasam-
bands íslands.
„Ég gagnrýndi fýrst og fremst að
rekstrargrundvöllur fyrirtækisins
væri brostinn vegna þess að eigið fé
þess var uppurið,“ segir Óskar.
„Höfuðstóll Sorpu var neikvæður og
fjármagnskostnaður slíkur að fyrir-
tækið var rekið með tapi.“
Óskar Maríusson, fulltrúi VSÍ í
samráðshópi Sorpu og atvinnu-
lífsins, telur einokun fyrirtækisins
óeðlilega og óviðunandi að Sorpa
geti breytt gjaldskrá sinni eins og
stjórnendum fyrirtækisins dettur í
hug.
Það var í kjölfar þessarar gagnrýni
Óskars sem láninu við Iðnlánasjóð
var skuldbreytt og sveitarfélögin
samþykktu að veita 200 milljónum
til Sorpu en á þeim tíma dró hann í
efa að sú upphæð dygði til að það
héldi velli. Tap Sorpu í fyrra var
meira en 93 milljónir króna en sam-
kvæmt milliuppgjöri frá 30. júní síð-
astliðnum var rekstrarhagnaðurinn á
fýrstu sex mánuðum þessa árs hálf
milljón króna og segist Óskar því
ekki vera tilbúinn til að deila á fjár-
málarekstur þess í dag.
Kostnaðinum
hleypt upp
Hann hefur þó enn ákveðnar at-
hugasemdir um starfsemi Sorpu.
„I grundvallaratriðum er ég ákaf-
lega andvígur svona einokun, eins og
Sorpa hefur, hvort sem um einkafyr-
irtæki eða opinbert fyrirtæki á í
hlut,“ segir Óskar. „Við getum ekki
unað við að hér séu opinber fyrirtæki
sem búa sér til gjaldskrá sem at-
vinnulífið verður að fara eftir og
breyta henni eins og þeim dettur í
hug. Ég vil fá eftirlit með gjald-
skránni og það rná ekki hleypa ölium
kostnaði upp í loftið og láta atvinnu-
lífið greiða hann.“
Stærstur hluti tekna Sorpu er af
móttökugjöldum vegna urðunar og
námu þau rúmum 290 milljónum
króna í fyrra en kostnaðurinn var
rúrnar 237 milljónir króna. Hagnað-
ur af þessari starfsemi nam tæpum 57
milljónum króna en hann dugði þó
ekki til að mæta kostnaði af fjár-
magnsliðum sem losaði 106 milljónir
króna.
Ef reiknað er út meðaltal á tonn
vegna móttöku og urðunar kostnað-
ar Sorpu nemur það 3.300 krónum
en sambærilegur kostnaður er um
100 krónur á tonnið víða annars
staðar. Fulltrúar atvinnulífsins hafa
farið frarn á að umbjóðendur sínir
fái heimild til að skila sporpi beint á
urðunarstaðinn í Álfsnesi tií að kom-
ast hjá þessum kostnaðarauka, sem
þeim þykjr óeðlilega hár. Sorpa hef-
ur vísað því erindi alfarið á bug og
vísað til ábyrgðar fýrirtækisins gagn-
vart heilbrigðisyfirvöldum á urðun-
arstaðnum. Sérstaklega eru talsmenn
atvinnuveganna ósáttir við að fyrir-
tæki sem starfa við endurvinnslu fái
ekki beinan aðgang að Álfsnesi.
Magnús E. Finnsson, fulltrúi
Kaupmannasamtakanna í samstarfs-
hóp Sorpu og atvinnlífsins, telur
gjaldskrá Sorpu vegna urðunar ailt
of háa.
„Þegar við erum að borga fyrir
urðunina erum við að borga fyrir
rekstur alls batterísins,“ segir hann.
„Við höfum bent á að óeðlilegur
hluti af þessurn gjöldum fer í
greiðslu á ijármagnskostnaði."
Pirríngur og
ósveigjanleiki
Magnúsi finnst einnig forsvars-
menn Sorpu sýna sjónarmiðum
kaupmanna lítinn skilning og vera
ósveigjanlegir í viðskiptum sínum.
„Það koma alltaf upp einhver
vandamál þegar ný fyrirtæki taka til
starfa og dærni um það er að þegar
seljendur stórra raftækja fóru að
bjóða viðskiptavinum sínum að
henda gömlum ísskápum og eldavél-
um þeirra að kostnaðarlausu þegar
fest voru kaup á nýjum tækjum. Síð-
an kemur á daginn að þessir seljend-
ur þurfa að horga stórfé fyrir að
konia þessu á haugana. Þá hlýtur það
að leiða til þess að ef þessi þjónusta á
að vera áfram í boði bætist móttöku-
Magnús E. Finnsson, fulltrúi
Kaupmannasamtakanna í sam-
ráðshópi Sorpu og atvinnulífsins,
gagnrýnir þröngsýni forráða-
manna Sorpu og segir hana „pirr-
andi.“
gjald Sorpu ofan á vöruverðið. Ég
gerði athugasemd um þetta við
Sorpu en þeir treystu sér ekki að taka
hana til greina. Ef einkaaðilar skila
hins vegar svona tækjum til gáma-
stöðva þurfa þeir ekki að borga neitt
fýrir það. Það eru svona hlutir sem
pirra mann.“
Eins og fram kom í MORGUN-
PÓSTINUM síðastliðinn fimmtudag
voru miklar vonir byggðar við Sorpu
þegar fyrirtækið hóf rekstur í maí ár:
ið 1991 og almennt var talið að til-
koma þess ylli byltingu í umhverfis-
vernd og endurvinnslu hér á landi.
Þær væntingar hafa ekki ræst því enn
eru nær 90 prósent úrgangsins sem
þangað berst urðaður í böggum, sem
hægja enn ffekar á rotnun og eyð-
ingu úrgangsefnanna. I viðtali biaðs-
ins við Ögmund Einarsson, fram-
kvæmdastjóra Sorpu, hér á síðunni,
vísar hann ábyrgðinni á þessari
stefnu til sveitarfélaganna sem
standa að fyrirtækinu. Reykjavík er
stærsti eignaraðili þess með um 68
prósenta eignarhlut en Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri var
of upptekin til að tjá sig um sorpmál
borgarbúa þegar blaðið leitaði til
hennar á föstudag. -lae
90 prósent af sorpi höfuðborgarsvæðisinsjfer óflokkað í jörðina.
Ögmundur Einarsson, framkvæmdastjóri Sorpu, er ekki 1 vafa um hver ákvað að ástandið væri þannig
Vísa ábyrgðinni algjörlega til sveitarfélaganna
Ögmundur Einarsson er tækn-
fræðingur að mennt. Hann hóf störf
hjá Reykjavíkurborg árið 1965 og var
lengst af forstöðumaður Vélamið-
stöðvar Reykjavíkurborgar. Þekking
hans á endurvinnslu og umhverfis-
málurn er umdeild en hann hefur
verið framkvæmdastjóri Sorpu frá
því fyrirækið hóf rekstur í maí árið
1991.
Guðjón Þorbjörnsson, fulltrúi
austurríska endurvinnslufyrirtœkis-
ins Rupert Hofer, segist hafa óskað
eftir viðræðutn við þig um málefni
Sorpu en þú haftr ekki sýntþví áhuga.
Hver er skýringin á því?
„Þetta er alrangt. Guðjón fór þess
á leit að fá að konta með menn
hingað til skoðunar. Ég var ekki á
staðnum en sagði að þeim væri vel-
kornið að koma og tekið yrði á móti
þeim. Það var gert og hér birtust
tveir menn og síðar kom Guðjón
með þeim. Skrifstofustjóri og deild-
arstjóri tækni- og þróunardeildar
Sorpu buðust til að sýna þeim starf-
semina en gestirnir töldu það ekki
nauðsynlegt. Þeir gengu um svæðið
og fóru síðan. Það hefur engin ósk
um viðræður við Austuríkismenn-
ina kornið inn á borð til mín frá
Guðjóni Þorbjörnssyni."
Finnst þér eðlilegt að móttöku- og
urðunarkostnaður hjá Sorpu er að
meðaltali 3.30 krónurper kíló?
„Ég vil ekkert segja um hvort það
sé eðlilegt eða óeðlilegt. Ég bendi
hins vegar á að í gjaldið fýrir slátur-
húsaúrgang sem er farið með beint á
urðunarstaðinn er rétt urn ein
króna fýrir kílóið. Gjaldskrá Sorpu
fyrir móttöku á úrgangi spannar yfir
rnjög breitt svið.“
Ett eru móttökugjöldin ekki óeðli-
lega há miðað við að um 90 prósent af
úrganginum er urðaður?
„Þau miðast bara við meðhöndl-
unarkostnaðinn og þær kröfur sem
gerðar eru lil okkar."
Er fjármagnskostnaðurinn ekki
drjúgur hluti af móttökugjöldunum?
„Að sjálfsögðu. Þú verður að at-
huga að sveitarfélögin eiga fyrirtæk-
ið og ákveða að Ijármagna það með
þessunt hætti. Það er að segja að
greiða það niður í gegnurn gjald-
skrá. Þetta er bara hluti af dæminu
burtséð frá mínum skoðunum á því.
Ég vísa ábyrgðinni algjörlega til
sveitarfélaganna í þessu sambandi
og stjórn Sorpu verður bara að
vinna innan þessa umhverfis.“
Er eðlilegt að fyrirtœkin í landinu
borgi brúsann við þennan háa jjár-
magnskostnað?
„Þá er alveg eins hægt að spyrja af
hverju það ætti að teljast óeðlilegt að
fyrirtækin taki þátt í þessum kostn-
aði. Hitt er umdeilanlegt hversu hátt
hlutfall það á að vera.“
Stendurþá ekki fjármagnskostnað-
urinn þróun endurvinnsluaðferða
fyrir dyrunt?
„Hann gerði það í upphafi en nú
hefur verið tekin ákvörðun um að
auka stofnframlagið og það léttir á
þessu dærni. Stofnframlagið verður
aukið um 200 fnilljónir á þremur
árurn og árangur þess starfs kom
frant strax í fýrsta milliuppgjöri
okkar en þá varð rekstrarafgangur
upp á hálfa milljón króna.“
Áttu þá von á að aukið fjármagn
fari til þróunar endurvinnslu á nœst-
unni?
„I því sambandi verðum við að
líta til stefnu fyrirtækisins. Er það
eitthvað sjálfgefið að það eigi að fara
út í mikla endurvinnslu hér? Hún er
mjög kosnaðarsöm og spurningin
er hvort sveitarfélögin séu tilbúin til
að leggja út fyrir því. Ef horft er á
ferlið frá upphafi til enda þá er þetta
ekki bara eyðing. Það þarf líka að
safna og söfnunarkostnaður sveitar-
félaganna er 2/3 hlutar af eyðingar-
kostnaðinum. Það á eftir að koma í
ljós hvort sveitarstjórnirnar ákveði
að fara út í aukna endurvinnslu án
þess að löggjafinn geri þeim það
skylt.“
En nú var talað um byltingu í um-
Ögmundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Sorpu. „Er það eitt-
hvað sjálfgefið að það eigi að fara
út í mikla endurvinnslu hér?“
hverfismálum þcgar Sorpa var sett á
stofn?
„Það var mikil bylting frá því sem
þá var. Fyrirtækið hefur starfað í þrjú
ár og við erum að stíga áframhald-
andi skref. Frá því að við byrjuðum
fullyrði ég að endurvinnsla hafi auk-
ist um 13 til 14.000 tonn miðað við
það sem áður var. Gleymum ekki
hvað þetta er stuttur tími.“
Telurþú að hœgt sé að auka endur-
vinnsluna án umfangsmikilia breyt-
inga á móttökustöðinni?
„Já, það er bara spurningin unt
hvar er farið inn í ferlið. Vilji sveitar-
stjórnir fara að safna saman pappír
og auka innsöfnunarkostnað þá er
það ntjög auðveit ferli en það kostar
fé. Ég hef ekki heyrt einn einasta
sveitarstjórnarmann halda því fram
að þetta sé þýðingarmesta verkefnið í
dag.“
Hefur þú ýtt á eftir því?
„Það er ekki mitt hlutverk að segja
þeim hvað þeir eiga að gera. Sveitar-
félögin skaffa fjármagnið og við er-
um að vinna eftir því sem þau ætlast
til að við gerum.“
Hefur verið settfram einhver stefna
varðandi éndurvinnslu á nœstu ár-
um?
„Ég hef ekki heyrt þá stefnu en ég
veit að umhverfisráðuneytið er að
vinna að stefnumörkun. Þar er í
gangi 10 eða 15 manna nefnd sem
vinnur að tillögum um frantkvæmd
þeirra stefnu stjórnvalda að minnka
sorp um 50 prósent fyrir aldamót. Ég
hef hins vegar ekki heyrt hvaða kröf-
ur verði gerðar eða hvernig eigi að ná
þessum markmiðum né hver viður-
lögin verði náist þau ekki.“ -LAE