Helgarpósturinn - 05.12.1994, Síða 14
14
MORGUNPÓSTURINN ERLENT
MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1994
íran
Klerkar á fallanda fæli
Utan frá séð virðast íranir einsleit hjörð tmamfsafólks. Svo erþó ekki því í landinu búa margir við nkidæmi og vest-
ræna háttu. Samt em olíulindimar miklu hættarað skila landinu dýrmætum gjaldeyri, almenningur er sáróánægður
og Rafsanjani forseti hefur á sérmikið spillingamrð.
Það er liðin tíð að ráðamenn í Ir-
an hafi eitthvað um það að segja
hvernig olíuverð þróast. Á há-
punkti veldistíma síns þurfti Res-
ha Palavi keisari ekki annað en
srnella fingrum og verð á olíu rauk
upp. Fjárhirslur hans bólgnuðu út
og Vesturlönd fylltust skelfingu. Á
þeinr tíma var Teheran háborg ný-
fengins ríkidæmis í heiminum. Rétt
eins og þá byggir efnahagur Irans
ennþá alfarið á olíu. Það sætir
furðu hversu margir búa við ríki-
dærni, en landið á í mikilli efna-
hagskreppu og almenningur er sár-
óánægður.
Keisarinn stóð í mikilli iðnvæð-
ingarherferð á áttunda áratugnum,
en frekar var hún í skötulíki. Það
voru settar upp verksmiðjur þar
sem innfluttir vélahlutar voru
skrúfaðir saman. íranir eru engu
nær því nú en þá að hafa þróað sín-
ar eigin framleiðsluvörur. Verk-
smiðjur framleiða enn varning sem
er byggður á hönnun sem Evrópu-
menn köstuðu á haugana fyrir
tveinrur áratugum. Dýrmætur
gjaldeyrir fer í að kaupa vélarhluta.
Ur þeim smíðar til dæmis Paykan-
verksmiðjan nálægt Teheran bif-
reiðar sem hafa að fyrirmynd Hill-
ntan Hunter-bíla sem teljast orðnir
forngripir á Vesturlöndum. Heim-
ilistækjaverksmiðjan Arj setur sam-
an þvottavélar sem byggir á þvotta-
vélum senr Italir framleiddu í
kringunr 1975.
Hagkvæmni þessara atvinnuvega
er náttúrlega ekki mikil. Áður fyrr
kom þetta þó ekki mjög að sök
vegna þess að þeim var haldið uppi
með ómældu fjármagni úr olíuiðn-
aði. Svo er ekki lengur. Það er ekki
bara við lágt olíuverð að sakast,
heldur eru Iranir að vissu leyti í
sömu sporum og Rússar sem ná
ekki að dæla nógu mikilli olíu upp
úr jörðinni. Ástæðan er einfaldlega
sú að tækjakosturinn er ekki til, það
hefur ekki verið fjárfest nóg í þess-
ari undirstöðuatvinnugrein.
Peningarnir hafa farið í vopn og
bænahús sem eru til lítils gagns
þegar þarf að pumpa upp olíu. ír-
anir flytja nú út mun minni olíu en
áður, samdrátturinn nemur næst-
um helmingi á síðustu fimmtán ár-
unum, en á sama tíma hefur orðið
gríðarleg fólksfjölgun í landinu.
Sjálfir bruðla Iranir með olíu. Hún
er niðurgreidd til innanlandsnota
og einhverjir sérfræðingar hafa
meira að segja séð teikn á lofti um
að sú tíð komi að Iranir þurfi að
flytja inn olíu. Og þá bíður varla
annað hlutskipti þjóðarinnar en að
fara aftur að hirða skepnur.
Óánægjan magnast
Landið sárvantar fjármagn frá
Vesturlöndum, en það fá íranir
ekki án þess að gera gagngerar
breytingar á utanríkisstefnu sinni.
Það felur í sér að aflétta dauðadóm-
inum yfir Salman Rushdie, að Ir-
anir vinni ekki gegn friðarviðleitni í
Mið- Austurlöndum og að þeir
hætti stuðningi við hin öfgafullu
Hezbollah-samtök. Klerkarnir eru
algjörlega á móti því að komast að
einhverju samkomulagi við Vestur-
lönd. Þeir telja sig ríkja í nafni Allah
og guð gerir ekki málamið.lanir.
Fyrir þrernur árum föluðust Ir-
anir eftir fjármagni frá Arabalönd-
um. Því var hafnað, enda hafði eng-
inn gleymt hatrömmum árásum
Khomeinis erkiklerks á konung-
dærnin við Persaflóa. Þau kjósa
frekar að halla sér að Bandaríkjun-
um og Bretlandi. Vilji Ali Akbar
Hashemi Rafsanjani forseti
freista þess að horfa í sömu átt tefl-
ir hann framtíð sinni og lífi í mikla
hættu. Honum er mjög óljúft að
komast upp á kant við klerkana. Því
er líklegast að stjórn hans haldi
áfram á sömu braut, að hún treysti
á Allah og þolinmæði þegnanna, en
sé að öðru leyti nánast stefnulaus.
En það er allsendis óvíst hvað
hún endist lengi. Vegna skorts hafa
þegar orðið uppþot í borgunum
Mashad og Quazvin. Það er nánast
öruggt að búast má við frekari
óeirðum. Stríðið við Irak stóð í átta
ár og þurfti fólk að herða sultaról-
ina. Því lauk fýrir sex árum og þá
var lofað betri tíð. En ástandið hef-
ur versnað frekar en hitt.
Það er ekki bara sauðsvartur al-
múginn sem kvartar. I ágúst síðast-
liðnum vöruðu fjórir háttsettir
hershöfðingjar við því að Iran stæði
á barmi innri upplausnar. Mánuði
síðar skrifaði Azizollah Amir Ra-
himi, hershöfðingi og fyrrum yfir-
maður herlögreglunnar, opið bréf
til írönsku þjóðarinnar. Þar hvatti
hann stjórnina til að segja af sér og
efna til frjálsra kosninga; áframhald
klerkastjórnarinnar hefði ekki ann-
að í för með sér en að Iran kæmist
endanlega í þrot og þá líka íslam.
Hikandi og
duglítill forseti
Þess virðist ekki að vænta að
Rafsanjani taki af skarið. Hann er
mjög hikandi og dinglar líkt og í
lausu lofti milli umbótasinna og
afturhaldsmanna. I fyrra vildi hann
freista þess að leysa upp Komithes,
herskáar sveitir eins konar trúarof-
stækismanna sem fólk óttast og
hatar. Þetta gekk ekki eftir og Rafs-
anjani varð að láta undan harðlínu-
mönnum. Afleiðingin er sú að
hann gat sér miklar óvinsældir.
Hreintrúarmenn liggja honum á
hálsi fyrir að hafa reynt að koma
þessu í kring, alþýða manna er
óánægð vegna þess að honum mis-
tókst. Hreintrúarmenn unnu ann-
an sigur fyrr á þessu ári þegar bróð-
ir forsetans varð að hrökldast úr
embætti forstjóra íranska ríkisút-
varpsins fyrir tilstuðlan þeirra.
Rafsanjani forseti er miklu vin-
sælli í útlöndunr en heima fyrir og
að því leyti er staða hans farin að
líkjast stöðu Gorbatsjovs Sovét-
leiðtoga. Á Vesturlöndum er hann
álitinn skynsemdarmaður í hóf-
samari kantinum sem sé líklegur til
að bæta samskiptin við Vestur-Evr-
ópu og Bandaríkjunum. Heima
ásaka hreintrúarmenn hann fyrir
að hafa svikið hugsjónir byltingar-
innar, en venjulegt fólk telur hann
spilltan og ærusnauðan. I Teheran
er ekki rætt um annað meira en
hvað stjórnin sé gerspillt.
Það er talað um trúarleiðtoga
sem lifi eins og hirðmenn keisarans
forðum og pólitíkusa sem aki um á
Mercedes- bifreiðum. Það er bolla-
lagt um verslunarferðir fjölskyldu
Rafsanjanis til London og um veð-
hlaupahesta sem hann eigi. Eftir
stríðið við Irak er stutt í reiði al-
múgans; þar örkumlaðist fjöldi
manns og þvle.r eins og hver önnur
ósvífni að ný og fullkomin gervi-
limaverksmiðja í Teheran er í eigu
Rafsanjani-fjölskyldunnar. Það er
meira að segja orðrómur urn að
forsetinn sé ópíumnautnamaður.
1festrænar
vellystingar
Frá útlöndum séð mætti halda að
Iranir væru einsleit hjörð heittrú-
aðs meinlætafólks. Breski blaða-
maðurinn Jonathan Ford sem ný-
lega var á ferð í íran komst þó að
því að svo er alls ekki. Margt fólk
lifir í vellystingum praktuglega,
þótt það reyni að flíka ekki ríki-
dæmi úti á götu eins og tíðkaðist á
tírna keisarans.
Blaðamanninum var boðið í
veislu hjá ríkum kaupsýslumanni.
Þar gekk engin kona með blæju,
heldur sátu þær í baðfötum á sund-
laugarbarmi. Úr hátölurum hljóm-
aði diskótónlist. Þrátt fyrir áfengis-
bann í landinu supu gestir á rommi
og kóki úr fallegum glösum.
Blaðamaðurinn fékk þá skýringu
að áfengið hefði verið keypt frá
Pasdaran, trúarlögreglu klerka-
stjórnarinnar. Það hefði hún gert
upptækt hjá kaupmönnum og
kærði sig kollótta um veislur af
þessu tagi ef hún fengi að selja
áfengið.
Þetta fólk lætur ástandið í land-
inu sig engu varða. Fjölskyldufeð-
urnir hafa risið til metorða í gríðar-
miklum ríkisfyrirtækum sem urðu
til þegar klerkarnir skiptu upp auð-
æfum keisarans. Þeir ferðast ásamt
konum sínum til Vesturlanda og
senda börnin sín í skóla í Evrópu og
Bandaríkjunum, stúlkurnar ekki
síður en drengina.
Fyrir fólk af þessu tagi er eins og
atburðir og kúgun síðustu fimmtán
ára hafi aldrei átt sér stað. Það hefur
lagt sig eftir vestrænum siðum og
hugsunarhætti, en það er víst að
það mun aldrei standa fyrir næstu
byltingu í Iran.
- eh. byggt á The Spectator
Rafsanjani. Hann er ásakaður um spillingu og meira að segja gengur orðrómur um að hann sé
ópíumnautnamaður.
Þingkona í
klámmynd
Fyrir stuttu var hér sagt frá glæsi-
konunni Dagmar Wöhrl sem þá
var nýkjörinn þingmaður Kristi-
lega demókratafiokksins þýska. Nú
er Dagmar komin í vandræði vegna
hneykslismáls, því komist hefur
upp að fyrir tuttugu árurn lék hún í
klámmynd. Myndin var reyndar
ekki mjög svæsin, titillinn var Unt-
ern Dirndl wird gejodelt, sem út-
leggst í vondri þýðingu Jóðlað und-
ir þjóðbúningi. Ekki þykir samt lík-
legt að flokkur þingkonunnar eða
kjósendur fyrirgefi henni, enda er
það allt hið íhaldsanrasta fólk.B
Framakona
í klandri
Framakona á
Indlandi á við
svipað vandamál
að stríða og áð-
urnefnd Dag-
mar Wöhrl. Það
er Anjali Kapur,
24 ára 'lögfræð-
ingur. Hún hefur
starfað við dóm- An'ah KaPur
stól í Nýju-Dehli, en getur nú búist
við uppsögn. Ástæðan er sú að í
fyrra sat hún hálfnakin fyrir á
myndum í blaði sem heitir Fantasy
og kvað vera í djarfari kantinum.
Það var þó ekki fyrr en fréttist af
þessu í blaðinu India Todayað upp
komst um Kapur. Greinin fjallaði
um konur á framabraut sem líka
starfa sem fyrirsætur. ■
Besson
gengurvel
Frakkinn Luc Besson er frægur
fyrir kvikmyndirnar The Big Blue
og Nikita. Nú hefur hann gert nýja
mynd vestur í Ameríku og hefur
hún fengið geysigóðar viðtökur.
Myndin heitir Léon og íjallar urn
leigumorðingja sem óvænt lendir í
slagtogi við barnunga stúlku. Milli
þeirra tekst vinátta sem þróast upp
í eins konar ást. Þykir Besson hafa
tekist einstaklega vel að sameina
amerískan hasar og franskt innsæi,
en aðalleikari er Jean Reno, þessi
snöggklippti og svipmikli leikari
sem margir þekkja úr fyrri mynd-
um Besson.B
Isabelle
& Daniel?
Leikkonan, Isabelle Adjani,
þykir standa vörð um einkalíf sitt. I
nýlegu viðtali við tímaritið Paris-
Match segist hún samt oft hafa ver-
ið ákaflega óhamingjusöm. Nú hafi
hún þó fundið hamingjuna, hún
lesi bækur, ferðist og sé með fólki
sem hún elskar. Hún er spurð
hvort satt sé að hún eigi í eldheitu
ástarsambandi við leikarann Dani-
el Day- Lewis, en hún svarar því
engu. Svo er hún líka spurð hvort
hún eigi von á barni (fyrir á Isa-
belle, sem er komin hátt á fertugs-
aldur, dreng) og þá segir hún að
kannski líði ekki á löngu áður en
það verði raunin.B
Menningarhöfuðborg Evrópu
Lúxembúrg að sligast
Það hefur verið rætt hér, sérstak-
lega í baráttunni fýrir borgarstjórn-
arkosningarnar, að vel myndi fara á
því að Reykjavík sækti um að fá að
verða menningarhöfuðborg Evrópu
árið 2000.
I þeirri umræðu væri ekki úr vegi
að við leituðum ráða hjá öðru smá-
ríki, vinaþjóð okkar í Lúxembúrg.
Borgin þeirra hefur hreppt það
hnoss að verða menningarhöfuð-
borg Evrópu 1995. Allt hefur verið
lagt í sölurnar til að þetta megi
heppnast sem best, búið er að
prenta plaköt og miða og dagskrár
eru tilbúnar. Það er gert ráð fyrir
hvorki meira né minna en fimm
hundruð atburðum á árinu. Þetta
vegur hins vegar varla upp á móti
þeirri staðreynd að í smáríkinu er
engin ópera, enginn ballettflokkur,
ekkert almennilegt tónlistarhús og
aðeins nítján gallerí.
Svo er það íjárhagshliðin. Ríki og
borg í Lúxembúrg hyggjast eyða
sem nemur 1.8 milljörðum íslenskra
króna í þetta verkefni. Það þykir
ekki mikið miðað við 2.8 milljarð-
ana sem Lissabon pungaði út til að
vera menningarhöfuðborg Evrópu
þetta árið. Kaupmannahöfn sem
fær þennan titil á næsta ári ætlar að
bjóða enn betur, því gert er ráð fyrir
að fjárhæðin sem þar á að eyða
verði fjórfalt hærri en í Lúxembúrg.
Vegna fjárhagsstöðunnar hafa
Lúxembúrgarar orðið að draga
saman seglin. Áætlanir um að
byggja tónleikahöll hafa verið lagð-
ar á hilluna og sömu leið fóru teikn-
Plakötin
eru
tilbúin
en pen-
inga
vantar.
ingar að nútímalistagalleríi sem
hannað var af I.M. Pei, höfundi
glerpíramíðans glæsilega við
Louvre-safnið í París. Aðeins hann
hefði kostað urn 11 milljarða ís-
lenskra króna.
Lúxembúrgarar, sem eru ekki
orðlagðir fýrir að vera menningar-
þjóð, ætla samt að reyna að standa
sig og búast við tveimur milljónum
gesta af þessu tilefni. Sem ætti að
vega eitthvað á móti fjárútlátum.B
Pólland
Forsetaefni skiptir um ham
Samkvæmt skoðanakönnunum
er vinsælasti stjórnmálamaður í
Póllandi nú Jacek Kuron, pólit-
ískur hugsuður, andófsmaður
gegn stjórn kommúnista og fýrr-
verandi félagsmálaráðherra.
Fyrir tæpum áratug var Egill
Helgason í Póllandi og átti þá
viðtal við Kuron. Það fór fram við
hinar einkennilegustu aðstæður í
niðurníddu fjölbýlishúsi í útjaðri
miðborgar Varsjár. Kuron hóstaði
svo mikið að hann virtist í anda-
slitrunum, en þrátt fyrir umvand-
anir túlks, glæsilegrar stúlku og
greindrar, lét hann sér ekki segjast
og keðjureykti amerískar sígarett-
ur sem Egill færði honum.
Utan við ibúðina voru tveir
menn að störfum á litl-
um vinnupalli, líkt og
þeir hefðu fengið það
ævistarf að gera upp
þessa hrörlegu blokk.
Kuron var ekkert að
fela að mennirnir væru
þarna í ákveðnum er-
indagjörðum. Þeir
væru að fýlgjast með
sér og í bæ væri hlust-
að á hvert orð sem sagt
væri í þessu dimma
herbergi.
Örlög margra Aust-
ur-Evrópubúa hafa verið ein-
kennileg eftir að kommúnisminn
lognaðist út af. Menn sem áður
fengu ekki vinnu nema. sem kol-
amokarar hafa orðið
ráðherrar. Skipasmiður
varð forseti Póllands. Og
nú hyggst Kuron máski
feta í fótspor hans, því
hann er orðaður við for-
setaframboð þegar kjör-
tímabili Lech Walesa
lýkur á næsta ári.
Til marks um að Kur-
on sé alvara með fram-
boði er haft að hann
þykir hafa skipt gjör-
samlega um fatastíl upp
á síðkastið. Áður sást
hann aldrei nema í gallajakka og
gallabuxum, en nú birtist hann æ
oftar í vönduðum og dýrum
jakkafötum með hálsbindi.B
Hinn nýji og gamli
Kuron