Helgarpósturinn - 05.12.1994, Side 17
MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN MENNING
29
Styrkimir sem
skila varð aftur
„Framleiðslustyrkir vegna leik-
inna kvikmynda hafa undantekn-
ingalaust skilað sér í fullkláruðum
kvikmyndum. Annars hefur þeim
verið skilað," segir Anna María
Karlsdóttir, fulltrúi framkvæmda-
stjóra Kvikmyndasjóðs íslands.
Nokkrir aðilar sem fengið hafa
framleiðslustyrki úr Kvikntynda-
sjóði hafa þurft að skila þeinr vegna
þess að forsendur styrkjanna stóð-
ust ekki þegar á reyndi. Einnig eru
dæmi þess að styrkir til handrita-
gerðar og undirbúnings fyrir ein-
stök verkefni hafa ekki nýst til kvik-
myndagerðar en Kvikmyndasjóður
hefur ekki gengið eftir að þeir væru
endurgreiddir til sjóðsins. Um frek-
ari fjárveitingu hefur hins vegar
ekki verið að ræða til viðkomandi
verkefna. Starfsmaður sjóðsins
treysti sér ekki til að segja til um
hvað þetta væru samtals háar upp-
hæðir.
Eyvindur Erlendsson fékk tvær
milljónir króna til framleiðslu
myndarinnar Erindisleysan mikla,
árið 1985 og 3,5 milljónir ári síðar.
Horfið var frá gerð myndarinnar og
skilaði Eyvindur styrkjunum aftur.
Ágúst Guðmundsson . hugðist
gera sögualdarkvikmynd sem gekk
undir vinnuheitinu Hamarinn og
krossinn og fékk hann samtals 20
milljónir til verksins á árunum 1988
og 1989. Ágústi tókst ekki að verða
sér úti um samfFamleiðanda sem
gat lagt fram það fjármagn sem til
þurfti og skilaði hann því styrkjun-
um að eigin frumkvæði.
Þekktasta dæmið um skil á styrk
til Kvikmyndasjóðs er vegna mynd-
arinnar Meffí sem Hilmar Odds-
son hugðist leikstýra og Jón Ól-
afsson í Skífunni var skráður
framleiðandi að. Meffí fékk 10
milljónir í styrk frá sjóðnum og
undirbúningur undir gerð mynd-
arinnar var vel á veg kominn þegar
Kvikmyndasjóður afturkallaði
styrkinn vegna gagngerra breytinga
á handriti myndarinnar. Spunnust
út af þessu harðar deilur á milli
leikstjórans og sjóðsins en Hilmar
varð að lúta ákvörðun hans.
„Málið er að ég var ekki búinn að
fá allan styrkinn þannig að þeir
voru í aðstöðu til að taka sínar
ákvarðanir aftur út frá þeim for-
Ágúst Guðmundsson. Sögualdarkvikmyndin Hamarinn og krossinn
hlaut samtals 20 milljónir frá Kvikmyndasjóði en Ágústi tókst ekki að
verða sér úti um meðframleiðanda og afsalaði sér því styrknum að eig-
in frumkvæði.
sendum sem þeir gáfu sér. Ég hefði
getað farið í mál við sjóðinn en
kaus að gera það ekki og vildi frekar
reyna að redda þessu dæmi í friði
en svo bara gekk það ekki upp,“
segir Hilmar.
Anna María býst við að í fram-
tíðinni verði meira um að skjalfest
vilyrði, eða svo kölluð „letter of in-
tent“, verði gefin fyrir framleiðslu-
styrkjum í stað þess að greiða út
hluta þeirra við samþykkt umsókn-
ar. Einnig reiknar hún með að tími
til fjármögnunar verði lengdur.
Snorri Þórisson, framleiðandi
kvikmyndarinnar Agnesar, er nú
með slíkt vilyrði upp á vasann en
Kvikmyndasjóður hefur lofað hon-
um 28,5 milljónum króna verði
hann sér úti um meðframleiðanda.
Snorra hefur ekki tekist hingað til
að uppfylla það skilyrði og verður
að afsala sér styrknum, gangi það
ekki eftir, fyrir 15. maí næstkom-
andi. -lae
Eyvindur Erlends-
son. Kvikmyndin Er-
Pidisleysan mikla var
tóm erindisleysa og
skilaði hann því
styrkjum sínum aftur
til Kvikmyndasjóðs.
Hilmar Oddsson. Kvikmyndasjóður var búinn að lofa honum 10 millj-
ónum fyrir Meffí en handritinu var breytt og afturkallaði sjóðurinn því
styrkinn.
Sara Björnsdóttir, Helga Kristrún, Nína Magnúsdóttir og Andrea Beauman.
Uppákoma gegn ofbeldi á konum og börnum
Fjórar stúlkur sem eru á síðasta árinu í Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands ætla að taka sig saman á þriðjudagskvöld og „performa" til þess að
vekja athygli á ofbeldi gegn konum og börnum. Stúlkurnar munu ýmist
performa saman eða í sitt hvoru lagi. Dagskráin er á vegum Amnesty Int-
ernational.B
Ríkissjónvarpið
Stöð 2
Mánudagur 5. desember
15:00 Alþingi
17.00 Fréttaskeyti
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Jól á leið til jarðar
18.05 Þytur í laufi (9:65)
18.25 Hafgúan (3:13)
19.00 Flauel
19.15 Dagsljós
19.45 Jól á leið til jarðar (e)
20.00 Fréttir, íþróttir og veður
20.40 Danska Þorpið (3:12)
21.10 Ævi og samtíð Jesú
1. þáttur: Fyrstu jólin. Bandarískur
heimildarmyndaflokkur um Ésum
og ýmislegt tengdu honum.
22.00 Hold og andi (6:6)
Unga nunnan kveður með stór-
09.00 Sjónvarpsmarkaðurinn
12.00 Hlé
17.05 Nágrannar
17.30 Vesalingarnir
17.50 Ævintýraheimur
Nintendo
18.15 Táningarnir í Hæðagarði
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19:19
20.20 Eiríkur
20.50 íslandsmeistarakeppni
i samkvæmisdönsum
21.50 Matreiðslumeistarinn
22.35 Ellen (8:13)
23.00 Windsorættin
23.55 Dans á rósum
Milk and honey
01.25 Dagskrárlok
kostlegum lokaspretti. Er Omega
búin að kaupa RÚV?
23.00 Ellefufréttir
23.20 Viðskiptahornið
23.30 Dagskrárlok
Þriðjudagur 6. desember
13.30 Alþingi
16.45 Viðskiptahornið (e)
17.00 Fréttaskeyti
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Jól á leið til jarðar
18.05 Moldbúamýri (1:13)
18.30 SPK(e)
19.00 Eldhúsið
19.15 Dagsljós
19.45 Jól á leið til jarðar
20.00 Fréttir, íþróttir og veður
20.40 Staupasteinn (24:26)
21.05 Uppljóstrarinn (5:5)
Lokaþáttur þessa kjötfarsa.
21.55 fslenskar bókmenntir
á lýðveldistímanum
Gramar konur fá að röfla um efn-
istök fyrsta þáttarins iröðinni „List
og iýðveidi". Þeir fjölmörgu sem
sáu þann þátt ættu að leggja við
augun þvi hér verður eflaust kafað
dýpra.
23.00 Ellefufréttir
09.00 Sjónvarpsmarkaðurinn
12.00 Hlé
17.05 Nágrannar
17.30 PéturPan
17.50 Ævintýri Villa og Tedda
18.15 Ráðagóðir krakkar
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19:19
20.20 Sjónarmið Stefáns Jóns
20.50 Visasport
21.30 Handlaginn heimilisfaðir
22.00 Þorpslöggan
22.50 New York löggur (4:22)
23.40 Nornaveiðar
Guilty by Suspicion Sæmó stöff
með De Niro.
01.20 Dagskrárlok
Miðvikudagur 7. desember
13.30 Alþingi
17.00 Fréttaskeyti
17:05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Jól á leið til jarðar
18.05 Myndasafnið
18.30 Völundur
19.00 Einn-X-tveir
19.15 Dagsljós
19.45 Jól á leið til jarðar (e)
20.00 Fréttir, fþróttir og veður
20.45 Hemmi Gunn á tali
21.45 Hvfta tjaldið með Völu Matt
22.00 Finlay laeknir (5:6)
23.00 Ellefufréttir
23.15 Einn-X-tveir (e)
23.30 Dagskrárlok
09.00 Sjónvarpsmarkaðurinn
12.00 Hlé
17.05 Nágrannar
17.30 Litla hafmeyjan
17.55 Skrifað í skýin
18.15 Visasport
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19:19
20.20 Eiríkur
20.55 MelrosePlace (19:32)
21.55 Stjóri
22.50 Tiska
23.15 Hitabylgja
Heatwave Hörkuspennandi sann-
söguleg mynd sem gerist árið
1965. Ungur svartur blaðamaður
fytgist með hvitum löggum sem
niðast á kynbróður hans.
00.45 Dagskrárlok
með svipbrigðum, háttalagi og
búkhljóðum, eða einfaldlega með
þögn og fjarveru. Varðandi um-
rædda sýningu koma þessi orð og
setningabrot til álita og bið ég nú
listamennina átta, aðstandendur,
hlutaðaeigandi og gesti að velja
umsögn við hæfi og bæta síðan við
hinu óskrifaða nafni: „eitthvað í
því“, „leitandi“, „athyglisverðar
þreifingar", „O.K.“, „þreytt og
halló“, „geggjað en þó ekki nógu
geggjað“, „trendí en of stíft“, „per-
sónulegt og heiðarlegt“, „innhverft
pot“, „fallegt", „snyrtilegt“, „gæti
leitt til einhvers", „alltof dreift og
ókonsentrerað“, „hálfvolgt", „snið-
ugt og skemmtilegt“ „ldisjukennt
og þreytt", „ofsalega skemmtilegt“,
„flott“, „kindarlegt", „fjöltækni og
Nýlólegt". Svo er auðvitað hverjum
og einum opið að leggja orð sín, og
jafnvel búkhljóð, inn á orðareikn-
inginn í síopnum hugmyndabanka
Nýlistasafnsins. Ofangreind máls-
meðferð ætti síður en svo að aftra
listamönnunum sjálfum í því að
hrósa hver öðrurn eins og hefðin er
á samsýningum, og svo verður
þeirn í Morgunblaðinu vafalaust öll-
um óskað góðs gengis á listabraut-
inni áður en verkin verða tekin nið-
ur og fundin geymslustaður í ís-
lenkum veruleika.
Ef „unga fólkið" í íslenskum
myndlistarheimi fer nú fram með
sverði og skildi á þessari sýningu þá
er ekki hægt að segja að það sé
neinn sérstakur völlur á því um
þessar mundir, og Nýlóvofurnar,
jafnt sem menningardraugar hins
opinbera, eru algerlega óhultir fyrir
góðlátlegu vopnaskakinu. I sýning-
unni er eins og kreppuhljóð og hún
er öll mörkuð einbvers konar inn-
hverfu poti og allt virðist enn á fræ-
stiginu; hvort sem formerkin í
verkunum eru ræktun, leir og efn-
iskennd, vélar, klessumálverk, fíg-
úrur eða einföld félgasfræði. Og ég
efa það stórlega að verkunum á
þessari sýningu takist, eða sé yfir-
leitt ætlað, að hrista upp í íhaldinu
og afturhaldinu hvar í flokki sem
það kann að vera, fyrir svo utan að
ég efa líka að sýnendurnir hafi að
minnsta kosti ennþá skipað sér
sjálfum í flokk íhalds eða frarn-
sóknar, rnitt á milli, utan flokka eða
í flokki einhverrar tímbundinnar
Jóhönnu. En hver skyldi vera orða-
krókur listamannanna á móti því
bragði gagnrýnandans að skrifa urn
átta manna samsýningu og nafn-
greina einungis og vitna í þann sem
skrifar formálann í sýningar-
skránna? - Reyndar mætti ganga
lengra og fara ennþá framar í sýn-
ingarskránni og segja að athyglis-
verðasta verkið á sýningunni sé
gamla ljósmyndin af hinum dular-
fulla garði við Hóla í Stokkseyrar-
hreppi. En af hverju gerði enginn
neitt úr þessari mynd fyrst einhver
gróf hana upp og rak í hana augun?
Þorvaldur Þorsteinsson svarar því
strax á annarri síðu í skránni, áður
en kemur að myndunum af verk-
um sýnendanna; af því að mynd-
listarmenn vita ekkert hvað þeir
eiga að gera. - Ekki svo að skilja að
hinn .hlutlausi sýningargestur
standi sjálfur oft og tíðum í mikið
vænlegri sporum en hinn villuráf-
andi listamaður, enda fellur hvor-
ugur á tíma rneðan þeir enn rækta
sinn garð.
■ Trúiega eru allir að reyna sitt
besta og eru heiðarleikinn upp-
málaður. En er hreint hjarta ís-
lendingsins jafnan óbrigðull
lausnarsteinn? Sýningin býður
upp á trúverðugt listrænt yfir-
bragð eins og menningarkimum
samfélagsins er ætlað að gera;
en þessi sýning hristir ekki upp í
gestinum — en kitlar þá suma
kannski pínulítið. Hlutkesti réð
að sýningin hlaut fremur þrjár
stjörnur en tvær.
Hannes Lárusson
Hressilegur kokteill
Vilborg DavIðsdóttir:
Nornadómur
Mál OG MENNING 1994
177 BLS.
1 fyrra sendi Vilborg Davíðs-
dóttir frá sér þá skemmtilegu ung-
lingabók Við Urðarbrunn sem
gerðist á landnámstíma og sagði frá
ævintýrum Korku Þórólfsdóttur,
laundóttur norsks landnámsmanns
og írskrar ambáttar. Nornadóntur
er framhald þeirrar sögu og gefur
henni ekkert eftir.
í fyrri sögunni rak hver viðburð-
urinn annan og ekkert lát var á
spennu. Hið sama á við nú. Hér er
nægilega mikið af blóði, kynlífi og
spennu til að halda lesandanum við
efnið. Þetta er það hressilegur
kokteill að Hrafn Gunnlaugsson
má fara að vara sig.
Korka á enn sem fyrr við ýntsa
erfiðleika að etja. I þessari bók
kemst hún reyndar í hjónaband, en
eins og stundum vill verða þegar
eiginkonan er betur gefin og villja-
sterkari en eiginmaðurinn þá verð-
ur sambúðin ekki árekstralaus.
Kolka á í grimmu stríði við eigin-
rnann hálfsystur sinnar, Gunn-
björn, vondur var hann í fyrri bók
en er helmingi verri hér þar sem
hann æðir um síður bókarinnar og
lúskrar á konu sinni.
Mér þykir persónusköpun þess-
arar bókar mun öruggari og skýrari
en í þeirri fyrri. Korka er enn sem
fýrr svipmesta persónan en hálf-
systirin Gunnhildur sem stóð í
skugga hennar í fýrri bók tekur nú
stórt stökk burt úr þeim skugga og
verður sérlega eftirminnileg og
samúðarmikil persóna. Þrjóturinn,
eiginmaður hennar, er ein af þeirn
sjaldgæfu persónum sem unun er
að hata.
Ég er sannfærð unt það að ef
bækurnar um Korku hefðu verið
skrifaðar í nágrannalöndum okkar
þá hefði ekki liðið langur tími þar
til þær hefðu orðið að sjónvarps-
þáttaröð. Þetta er heilmikil sápu-
ópera, örlítið fyrirsjáanleg og form-
úlukennd en býsna skemmtileg.
Bókin er skrifuð af frásagnargleði
og hún býr yfir sjarma. Eg hef þá
trú að sjarmi stafi af því að vinnslu
verksins hafi Vilborg verið að gera
það sem henni þykir skemmtileg-
ast. Það er greinilegt að Vilborg
hefur kynnt sér ítarlega víkingatím-
ann, siði þess tíma, venjur og lifn-
aðarhætti. Lesturinn býður því ekki
aðeins upp á skemmtun heldur
einnig dágóðan fróðleik.
Sögurnar urn Korku virðast aðal-
lega eiga að höfða til unglings-
stúlkna og þar mun þeim vafalítið
tekið fagnandi. Ég held þó að les-
endahópurinn sé enn stærri, tak-
markist þó við konur, enda má
segja að Korka sé Scarlett O’Hara
víkingatímans.
Mér þykir trúlegt að Vilborg hafi
ekki sett punktinn við sögu Korku.
Undir lok sögu fæðir Korka börn
og ég á von á að æska þeirra verði
ævintýrarríkt efni í framhaldsbæk-
ur.
■ Framhald hinnar vinsælu bók-
ar Við Urðarbrunn ætti að fá
jafn ágætar viðtökur og fyrsta
bókin. Vel heppnuð sápuópera
frá vikingatíma.
Kolbrún Bergþórsdóttir