Helgarpósturinn - 05.12.1994, Page 22
34
MORGUNPÓSTURINN SPORT
MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 199^
Frá Hollandi til Englands
Undirbúningur hafinn fyrir HM ‘98
>-
UNifrinn
tít Ulfanna
Hollenski leikmaðurinn John
de Wolf hefur verið keyptur til
enska félagsins Wolverhampton
Wanderers frá hollenska liðinu
Feyenoord. Líklegt kaupverð er tal-
ið verða um 600.000 pund.
Graham Taylor stjóri Úlfanna,
eins og liðið er títt kallað, sagði
leikmanninn vera hvalreka á íjörur
félagsins og að möguleikar liðsins á
að komast upp í úrvalsdeildina ykj-
ust stóriega við þetta.B
Japanir enda sitt tímabil
Verdy
meistarar
Verdy Kawasaki sigruðu í jap-
önsku úrvalsdeildinni sem lauk á
föstudag. Liðið sigraði Sanfrecce
Hiroshima 2:0 samanlagt í úrslita-
leikjum deildarinnar og unnu því
titilinn annað árið í röð.H
Claudio Tafarel er líklega á för-
um til japanska liðsins Cerrezo
Osaka.
Meira af Japönum
Tafarel
líklegatíl
Cerrezo
Osaka
Brasilíski landsliðsmarkvörður-
inn Claudio Tafarel er líklega á
förum til japanska liðsins Cerrezo
Osaka fyrir næsta keppnistímabil ef
marka má fréttir þarlendra dag-
blaða fyrir helgi.
Tafarel, sem leikur sem stendur
fyrir ítalska liðið Reggiana, hefur
tekið tíðindunum fagnandi og segir
mikinn heiður að fá að taka þátt í
uppbyggingu fótboltans í Japan. „-
Stjórn Reggiana hefur veitt mér
leyfi til að semja við liðið þannig að
frá mínuni bæjardyrum séð eru að-
eins formsatriðin eftir.
Cerrezo Osaka er annað tveggja
nýrra liða senr munu leika í jap-
önsku deildinni á næsta keppnis-
tímabili og þar á bæ eru menn bjart-
sýnir á að af kaupunum verði .■
Platíni segir samanburð við
HM ‘94 ekki sanngjaman
Frakkar eru nú í óða önn að und-
irbúa allt fyrir heimsmeistarakeppn-
ina í knattspyrnu sem haldin verður
þar í landi eftir fjögur ár. Mikil
áhersla er lögð á glæsileika keppn-
innar svo og skipulagningu en
minna gert úr væntanlegum aðsókn-
artölum enda óvinnandi vegur að
bæta glæsilegt met Bandaríkjamanna
ffá því í sumar.
Knattspyrnustjarnan fræga,
Michel Platini, er formaður undir-
búnings- og framkvæmdanefndar
keppninnar og hann segir mikilvægt
að menn einblíni ekki of mikið á að-
sóknina, það sé margt fleira sem
þurfi að koma til. „Bandaríkjamenn
áttu yfir fimmtíu leikvanga sem gátu
tekið 80,000 eða fleiri,“ segir hann.
„Við Frakkar eigum ekki einn ein-
asta. Hins vegar eru fjarægðirnar hjá
okkur leikur einn viðað við Banda-
ríkin."
Platini segir eðlilegra að miða
keppnina í Frakklandi við Italíu-
keppnina 1990 heldur en keppnina í
Bandaríkjunum í sumar. „Keppnin á
Italíu var sigur fyrir skipuleggjendur
og við viljum fara að ráði þeirra og
láta alla þjóðina taka þátt í veisl-
unni.“
Keppnin eftir fjögur ár verður
með nokkuð breyttu sniði. Liðum í
úrslitunum hefúr verið fjölgað um
átta og eru þau nú 32 talsins. „Við er-
um fylgjandi þessu,“ segir Platini.
„En það mikilvægasta í þessu er
tímasetningin. Við höfum skoðað
ýmsa mismunandi kosti í því sam-
bandi og við teljum að enn sé hægt
að halda svona keppni á einum mán-
uði. Þetta þýðir auðvitað að sumir
leikii,verða með minna millibili en
áður en það ætti ekki að koma að sök
ef það bitnar jafht á öllum liðum.“
Frakkar hafa ekki lagt út í miklar
framkvæmdir vegna keppninnar
enn sem komið er. Viðgerðir eru þó
hafnar á mörgum gömlum og glæsi-
legum völlum auk eins sem er í
byggingu, nýi Grand-Stade sem
staðsettur verður í úthverfúm París-
arborgar verður risasmíð, enda á
hann að hýsa sjálfan úrslitaleikinn
auk þess sem honum er ætlað að
koma í stað hins ffæga Parc des
Princes sem þjóðarleikvangi Frakka.
Michel Platini formaður framkvæmdanefndar Frakka vegna HM ‘98
telur Ijóst að miklu færri muni sækja HM ‘98 en samt muni keppnin
ekki verða verri.
Geirfínnur, Gump
og Takefusa
Aldrei: ÍR
Blóðnasir: Gerist sjaldan
Draumar: Titill
Evrópusambandið: Neikvætt
^orrest Gump: Hetja
Gummi Gumm: Stjóri
Heimir Karlsson: Jarðbundinn
Islandsmeistarar: Afturelding
Jólasveinar, einn og átta: Stúfurstjóri
Kjúklingar: Klassaafurð
Leti: Þekkist ekki
Morgunn: Svefn og aftur svefn
Nirvana: Tyrir ofan mína hlustun
Olífur: Smakkast illa
Pólitík: X D
Ritgerðir: Sjaldgæfar
Sælgæti: Kemurfyrir
Takefusa: Yndi
Undirmenn: Ingimundur Helgason
Vín: Kannast ekki við það!
Þjóðvakinn: Geirfinnur
Æskan og landið: Sótt í fyrri tíma
Onnur mál: Strákar - „Good"sendingar (Gummi Gumm.)
Frá a til ö með Róberti Sighvatssyni, Aftureldingu
agætt
í þessu sinni er
[ (svona til til-
ibreytingar!) að
Ihlæja á kostnað
* náungans. Þessi
náungi er þýskur
og leikur knatt-
jjspyrnu með þar-
lendu liði. I' einum
, leiknum var harkan
sí fyrirrúmi og ekk-
ert gefið eftir. f
sllkum leikjum er
oft togað og teygt
á búningi and-
stæðingsins og af-
leiðingarnar geta
stundum veriö
glæsilegar.
Frjálsíþróttamenn ársins
Morcelog
Joyner-Kersee
bestáárinu
Alþjóða-frjálsíþróttasambandið
(IAAF) útnefndi á föstudag frjáls-
íþróttamenn ársins í flokki karla og
kvenna.
Bandaríska konan Jackie Joyn-
er-Kersee og heimsmethafmn var
útnefnd af sambandinu og var hún
skammt á undan spretthlauparan-
um Irinu Privalova og heimsmet-
hafanum Soniu O’Sullivan.
Noureddine Morceli, frá Alsír,
bar höfuð og herðar yfir aðra
keppinauta sína í karlaflokknum.
Hann á enda heimsmetin í mílu-
hlaupi, 1500 og 3000 m hlaupi og
hefur verið nær ósigrandi á mótum
sambandsins að undanförnu.H
Draumurinn rættist loks
Winny Jones í landsliðið
Stærsti draumur knattspyrnu-
mannsins Winny Jones hjá Li-
verpool lítur út fyrir að geta ræst á
næstunni. Jones, sem þekktur er
fyrir allt annað en prúðmennsku á
velli, var á föstudag valinn í welska
landsliðshópinn gegn Búlgaríu 14.
desentber næstkomandi.
Það er víst óhætt að segja að
ntenn á Bretlandseyjum skiptist al-
veg í tvo gjörólíka flokka vegna
málsins. Sumir segja að nú sé loks
kominn sá baráttuhundur sent
hverju landsliði er nauðsynlegur en
aðrir segja uppbyggingarstarf
landsliðanna í hættu þar sem Jones
sé afar slæm fýrirmynd.
Jones, sem reyndar er Englend-
ingur en á afa fæddan í Wales, hef-
ur á sínum skrautlega ferli afrekað
ýmislegt sem mönnum hefur þótt í
frásögur færandi. Þekktastur er
hann fyrir ntyndbandið „Belli-
brögð og klækir“ sem hann gaf út í
fyrra og snerist boðskapur þess um
ótal heilræði til að klekkja á and-
stæðingnum. Vakti sá hluti mynd-
bandsins, sem fjallaði um hve ár-
angursríkt væri að grípa í hárin
undir höndum manna, sérstaka
óánægju og sögðu sumir að nú væri
nóg komið.
Jones segir sjálfur að ef ekki megi
berjast í boltanum sé alveg eins
hægt að hætta þessu og því,
kannski til sönnunar, var hann rek-
inn af velli um daginn í áttunda
sinn á ferlinum.B
Harðjaxlinn Winny Jones fær nú
loks að leika landsleik.