Helgarpósturinn - 05.12.1994, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN SPORT
39
Körfubolti
Njarðvíkingar
íham
Þór Ak.-Njarðvík
95-105
Stigahæstir: Þór: Kristinn
Friðriksson 25, Sandy Anderson
2i Njarðvík: Valur Ingimundar-
son 28, Rúnar Árnason 16
Njarðvíkingar halda áfram
sigurgöngu sinni og unnu sinn
sextánda leik í vetur. Reyndar
þurftu þeir að hafa nokkuð fyrir
sigrinum að þessu sinni en það
sannaðist ve! í þessum leik að
ekkert lið fer ffá Akureyri með
tvö auðveld stig.
Snæfell
-Skallagrímur 79-95
Stigahæstir: Snæfell: Atli Þór
Sigurþórsson 22, Karl Jónsson 12
Skaliagrímur: Tómas Hoíton 24,
Henning Henningsson 22.
Snæfell tapaði sínum sextánda
leik í vetur og stefnir allt í það að
liðið fari í gegnum íslandsmótið
án þess að sigra.
ÍA-Haukar 75-65
Stigahæstir: ÍA: Brynjar Karl
Sigurðsson 28, ívar Ásgrímsson
15, B.J. Thompson 15. Haukar:
Pétur Ingvarsson 27, Sigfús Giz-
urarson 17.
Segja má að þetta hafi verið
fjögurra stiga ieikur því bæði lið
berjast hart um fjórða sætið í
riðlinum sem gefur væntanlega
síðasta sætið í úrslitakeppninni.
Fyrir framan 400 tryllta áhorf-
endur tókst Skagamönnum að
sigra í lokin lánlausa Hafnfirð-
inga sem nýverið létu þjálfarann,
Peter Jelic, fjúka.
ÍR-Valur 90-85
ÍR-ingar náðu aftur öðru sæt-
inu í riðlinum með sigrinum.
Fátt virðist geta stöðvað liðið
sem hefur unnið alla sína heima-
lcik í vetur.
Gríndavík
-Keflavík 91-77
Á laugardaginn sigruðu
Grindvíkingar granna sína úr
Keflavík í þriðja skipti í jafn-
mörgum leikjum í vetur. Guð-
jón Skúiason fór fyrir sínum
mönnum og skoraði 26 stig þar
af átta þriggja stiga körfur. Helgi
Guðfinnsson skoraði 19.
Félagaskipti í körfunni
Lárus
afturtil
Stólanna
Lárus Dagur Pálsson,
körfuknattleiksmaður í Val, hef-
ur tilkynnt félagaskipti yfir f
Tindastól. Láms kemur upphaf-
lega ffá Stólunum og lék lengst
af með þeim.B
Útiendingslausir
KR-ingar í baráttuham
Handbolti
sigruðu Sauðkræklinga í tilþrifalitlum leik.
Það var fátt sem gladdi augað á
Seltjarnarnesinu í gærkvöldi þar
sem KR-ingar tóku á móti Tinda-
stólsmönnum. Fyrri liálfleikur var
hryllilegur; bæði liðin spiluðu illa og
rnenn höfðu á orði að eitthvað hafi
verið fitlað við körfurnar. Svo slærn
var hittnin. Seinni hálfleikur var
mun skárri en leikurinn bauð þó
aldrei upp á verulega spennu þar
sem KR-ingar voru yfirleitt með um
tíu stiga forskot. Eftir að hafa verið
yfir, 31-25, í hálfleik sigraði KR 73-62.
KR-ingar léku sinn annan leik án
Donovan Casanave og ekki bætti
úr skák að Hermann Hauksson gat
ekki leikið með vegna meiðsla í baki.
KR-ingar stilltu upp hálfgerðu bak-
varðaliði og lengi vel voru fjórir bak-
verðir inni á hjá heimamönnum.
Falur Harðarson fékk það erfiða
hlutskipti að reyna að stöðva John
Torrey og þrátt fyrir að vera mun
lágvaxnari tókst honum að halda
Torrey í skefjum.
Sóknarleikur beggja liða byggðist
upp á fálmkenndu þreifi allan leik-
inn og enduðu mjög margar sóknir
með bjartsýnislegum þriggja stiga
skotum þegar skotklukkan var að
renna út. Tindastólsmenn tóku ell-
efu þriggja stiga skot í fyrri hálfleik
en ekkert þeirra rataði rétta leið.
Leikur Atla Einarsson KR-ings í
stöðu miðherja var ekkert til að
hrópa húrra yfir en það að hann
liyrjaði inni á segir meira en mörg
orð um mannekluna hjá KR. Atli
virðist forðast það sem heitan eldinn
að reyna að skora undir körfunni en
er hændari að langskotunum sem
hann hittir sjaldan úr.
KR-ingar tefldu fram, eins og áð-
ur sagði, mjög lágvöxnum leik-
mönnum en unnu hæðarmuninn
upp með mikilli baráttu. Ef KR- ing-
ar hefðu leikmann á borð við Torrey
eða Lenear Burns innan borðs þá
væru þeir eflaust ekki í því basli sem
raunin er.
Bestir hjá KR voru Ólafur Jón
Ormsson, Falur Harðarsson og
Ingvar Ormarsson sem börðust
eins og brjálæðingar allan leikinn.
Torrey var sterkur hjá Tindastól-
mönnum og Páll Kolbeinsson lét
ekki sitt eftir liggja þrátt fyrir að eiga
nokkur hlægileg skot í leiknum.
Hinrik Gunnarsson skoraði 18 stig
og var mikil ógnun þegar hann fékk
boltann. Hrakfarir hans á vítalín-
unni í fyrri hálfleik voru reyndar
Herbert Arnarsson og félagar í ÍR héldu uppteknum hætti í gær og
lögðu Valsmenn í úrvalsdeildinni.
niðurdrepandi fyrir liðið.
KR-Tindastóll 73-62
(31-25)
Stig KR: Ólafúr Jón Ormsson 20,
Falur Harðarson 19, Ingvar Ormars-
son 16, Ósvaldur Knúdsen 12, Birgir
Mikaelsson 4, Brynjar Harðarson 2.
Skot innan teigs: 10/18, utan 4/13,
3-stiga io/32(Ólafur 5/12, Ingvar 3/8,
Falur 2/5), víti 15/17. Fráköst 32 (8 í
sókn) (Ingvar 9), Varðir 4, Tapaðir
10, Stolnir 6 (Ólafur 4), Stoðsend-
ingar 4.
Stig Tindastóls: John Torrey 19,
Hinrik Gunnarsson 18, Páll Kol-
beinsson 17, Ómar Sigmarsson 3,
Arnar Kárason 3, Atli Björn Þor-
björnsson 2.
Skot innan teigs: 16/32, utan
4/14, 3-stiga 3/20, víti 13/21. Fráköst
35 (8 í sókn) (Torrey 15), Varðir 1,
Tapaðir 11, Stolnir 4, Stoðsendingar
8 (Páll 5). -ÞK
Gunnar Gunnarsson leiddi sína menn örugglega til sigurs
Víkingar aldrei
Leikur IR og Vikíngs fór fram í
gærkvöld í Seljaskóla. Víkingar
náðu strax tveggja marka forystu og
komust ÍR-ingar aldrei nær þeim
eftir það. I fyrri hálfleik virtust ÍR-
ingar vera hálf andlausir og sýndu
greinilega ekki þann leik sem þeim
er lagið. Víkingar færðu sér það í
nyt og voru alltaf með nokkra for-
ystu en þó ekki afgerandi. Eyjólfur
Bragason, þjálfari heimamanna,
hefur líklega sparkað rækilega í rass
sinna manna í hálfleik, enda var allt
annað að sjá til hans manna í upp-
hafi hans. Með þessum aukna móði
þeirra virtust áhorfendur eiga von á
meiri spennu fyrir aurana sina en
allt kom fyrir ekki og heimamenn
misstu dampinn gegn góðri vörn
gestanna og frábærri markvörslu
Reynis Reynissonar í seinni hálf-
leik. Víkingar hafa oft leikið betur
en þó sýndu þeir ágætis takta inná
milli og höfðu gaman af leik sínum.
Vörnin small saman hjá þeim í
seinni hálfleik og skóp hún fyrst og
fremst ágætan sigur ásamt mark-
vörslu Reynis. Bestur ÍR-inga var
Branislav Dimitrijevic sem átti
vart feilskot í leiknum og finnst
manni að þessi leikmaður eigi að
reyna meira því hann virðist geta
stokkið upp og skorað þegar hann
vill. Njörður Árnason stóð sig
einnig vel og skoraði fjögur góð
mörk. Gunnar Gunnarsson var
höfuð og prýði lærisveina sinna í
liði Víkinga og sýndi hann frábær-
an leik og skoraði sjö glæsileg
mörk. Reynir Reynisson átti góðan
dag í marki gestanna og varði hann
flest sín skot af línunni. Birgir Sig-
urðsson og Rúnar Sigtryggsson
spiluðu einnig vel í fyrri hálfleik.
ÍR — Víkingur 23:29
Mörk ÍR: Branislav 6, Guðfinnur
5, Jóhann 4, Njörður 4, Daði 2, Ró-
bert 1, Ólafur 1
Varin skot: Magnús Sigmunds-
son 7, Hrafn Margeirsson 4
Utan vallar: 4 mín.
Mörk Víkings: Gunnar 7, Birgir
6, Rúnar 6, Sigurður 5, Bjarki 3,
Hjörtur 2
Varin skot: Magnús I. Stefáns-
son 4, Reynir Reynisson 12.
Utan vallar: 6 mín.
Dómarar: Lárus H. Lárusson og
Jóhannes Felixson, góðir. -þsg
Sigurður Valur Sveinsson og félagar áttu ekki í neinum erfiðleikum
með ír-inga í gærkvöldi.
Endir bundinn á sigurgöngu Fiorentina á Ítalíu
Juventus-menn steridr
Parma enn efst og Batistuta skoraði ekki.
Það er óhætt að segja að það hafi
verið hart barist í leik Juventus og
Fiorentina í gærdag. Leikurinn var
enda mjög mikilvægur fyrir bæði
lið sem hafa leikið vel að undan-
förnu og litu mörg falleg mörk
dagsins ljós.
Þegar upp var staðið voru mörk-
in orðin fimm og var það Alless-
andro Del Piero sem færði Juvent-
us-mönnum sigurinn með glæsi-
lega útfærðu marki á lokamínútu
leiksins. Áður hafði Gianluca Vi-
alli gert tvö mörk fyrir liðið og hjá
Fiorentina bar það helst til tíðinda
að Argentínumaðurinn Gabriel
Batistuta skoraði ekki mark í
leiknum. Mörk liðsins gerðu þeir
Francesco Baiano og Angelo
Carbone.
Parma heldur enn efsta sætinu og
leikmenn Brescia voru engin hindr-
un leikmönnum liðsins í gær. í
leikslok voru mörk Parma orðin
fjögur og hefðu getað orðið mun
fleiri.
Lazio gekk hins vegar ekki jafn
vel. Jafntefli varð niðurstaðan úr
leik liðsins við Cagliari og mátti lið-
ið þakka markverði sínum, Luca
Marchegiani, að ekki fór ver.
Framherjarnir Guiseppi Signori
og Alen Boksic voru fjarri góðu
gamni og veikti það liðið mikið.
Leikir á sunnudag
Bari - Foggia 2:1
Tovalieri 6., Amoruso 67. - Di Biagio
45.
Cagliari - Lazio 1:1
Herrera 61. - Fuser 72.
Cremonese - Inter 0:1
Sosa 76.
Juventus - Fiorentina 3:2
Vialli 73., 77., Dei Piero 88. - Baiano
24., A. Carbone 36.
Napolí - Tórínó 1:1
B. Carbone 51. - Angloma 44.
Parma - Brescia 4:0
Crippa 45., Zola 59., 64., Dino Baggio
85.
Roma - Padova 2:0
Aldair 65., Cappioli 81.
Sampdoria - Genóa 3:2
Lombardo, Vierchowod, Maspero -
Miura, Galante
AC Milan - Reggiana f restað
Staðan
Parma 12 23:9 27
Stjömumenn
frábærirfyrir
norðan
KA - Stjarnan 26:30
Stjörnumenn gerðu góða ferð til
Akureyrar og gerðu það sem flest
lið dreymir um að gera. Sigurinn
er re-yndar stærri en raunveruleik-
inn gefur til kynna, KA-menn
náðu að jafna undir lok leiksins en
misstu síðan allt niður um sig og
brotlentu undir lokin.
Stjörnumenn áttu mjög góðan
dag og einna bestir voru þeir Sig-
urður Bjarnason og Dimitri Fil-
ippov. Sú aðferð þeirra að taka
gamla félagann Patrek Jóhann-
esson úr umferð gafst mjög vel og
er líklegt að fleiri lið geri slíkt hið
sama í næstu leikjum.
Bestur KA-manna var mark-
vörðurinn Sigmar Þröstur Ósk-
arsson og varði hann alls tuttugu
skot en auk hans var Erlingur
Kristjánsson traustur.
IH - HK 18:18
Leikur botnliðanna tveggja var
ekki mikið fyrir augað og augljóst
er að liðin stefna bæði niður í aðra
deild. ÍH-menn fengu sín fyrstu
stig í vetur með þessu jafntefli og
ekki er líklegt að þau verði miklu
fleiri.
Valur - Haukar 22:20
Valsmenn sigruðu í þessum
mikla baráttuleik og var þar fyrst
og fremst varnarleikurinn að verki.
Valsvörnin er óhemju öflug og fá
fæst lið neitt við hana ráðið.
Jón Kristjánsson fékk að líta
rauða spjaldið strax á upphafsmín-
útunum fyrir ósæmilega hegðun
að mati dómaranna. Þetta virtist
þjappa Valsmönnum saman og
liðið hélt sínum hlut þrátt fyrir að
Dagur Sigurðsson væri tekinn úr
umferð stærstan hluta seinni hálf-
leiks.
Hjá Haukum var Gústaf
Bjarnason traustur og nýtti færin
sín mjög vel. Það sama má segja
um Bjarna Frostason í markinu,
hann varði mjög vel og oft á mjög
mikilvægum augnablikum.
KR - FH 21:22
Leikurinn var jafn framan af en
KR-ingar höfðu þó oftast forystu.
Baráttan var mikil og oft sást
mönnum ekki fyrir. Þó lentu KR-
ingar í vandræðum með brottvís-
anir undir lokin og misstu tvo
menn útaf skömmu fyrir leikslok.
Það varð þeim dýrkeypt og gaf FH-
ingum tækifæri til að ná þriggja
marka forystu. KR-ingar minnk-
uðu muninn undir lokin og voru
mjög ósáttir við að fá ekki ruðning
dæmdan á Hans Guðmundsson
þegar FH skoraði síðasta mark sitt.
Markahæstur heimamanna varð
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
með sjö mörk og sömu tölu gerði
Guðjón Árnason hjá FH. Bestir
voru hins vegar markverðirnir
Gísli Felix Bjarnason og Magn-
ús Árnason.
Selfoss - UMFA 24:24
Selfyssingar leiddu lengst af en
misstu forystuna undir lokin. Með
mikilli baráttu tókst þeim þó að
jafna aftur og lokatölurnar voru
því kannski sanngjarnar.
Juventus Roma 11 12 17:8 19:7 26 23 Staðan í 1. deild
Fiorentina 12 28:18 22 Valur 13 305:266 21
Lazio 12 22:12 22 Stjarnan 13 342:311 20
Bari 12 15:12 22 Víkingur 13 304:286 19
Foggia 12 14:11 17 FH 13 328:306 16
Inter 12 11:8 17 UMFA 13 326:294 15
Cagliari 12 10:9 17 KA 13 329:309 14
Sampdoria AC Milan 11 10 14:9 7:8 14 13 Selfoss 13 285:299 13
Torino 10 10:12 12 ÍR 13 283:290 12
Cremonese 12 9:15 12
Napolí 12 16:23 12 Haukar 13 344:352 12
Genóa 11 13:19 11 KR 13 290:291 10
Padova 12 10:28 8
Reggiana 11 5:18 3 HK 13 277:307 3
Brescia 12 6:23 3 ÍH 13 251:341 1