Helgarpósturinn - 05.12.1994, Qupperneq 28
■ „ístrubanarnir“
' vekja lukku ■ Lárus
og félagar gagnrýna
KSÍ ■ Hagnaður
KSÍM
v3ú hugmynd
nokkurra fyrrver-
andi landsliðs-
manna í knatt-
spyrnu um að
mynda félagsskap
og stofna jafnvel
lið hefur vakið
mikla athygli. Þyk-
ir mörgum tilhugsunin fyndin að
sjá menn eins og Þorgrím Þráins-
son, Lárus Guð-
MUNDSSON, SÆV-
AR JÓNSSON,
Bjarna Sigurðs-
son, Karl Þórd-
ARSON Og PÉTUR
Pétursson að
keppni í bikar-
keppninni og er
þegar farið að
kalla félagsskap-
inn „ístrubanana“ meðal gárung-
anna...
Jr á þykja þau
ummæli LArusar
Guðmundsson-
ar í Morgun-
blaðinu að ís-
lensk knatt-
spyrna sé í mik-
illi lægð einnig
nijög athyglisverð
og mun forysta KSÍ
ekki hrifin af ummælunum. Þetta er
þó stutt með ágætum rökum hjá
Lárusi, hann segir að fyrir tíu árum
hafi tsland átt fjölmarga atvinnu-
menn hjá erlendum stórliðum en
nú þyki það stórfrétt ef einhver fer í
„atvinnumennsku“ til Noregs...
.A.rsþingi Knattspyrnusambands-
ins lauk um hclgina á Akranesi og
kom fram að hagnaður sambands-
ins eftir fyrningar var tvær milljónir
króna. Veltan var mikil eða alls
rúmlcga 140 milljónir króna og
hafði aukist um tæpar fimmtíu
milljónir frá því I fyrra. Þykir mörg-
um þetta bera merki um góða stöðu
sambandsins og segja undarlegt í
Ijósi þess að sambandið hafi ekki
getað hlaupið undir bagga með ann-
arri hvorri sjónvarpsstöðinni til að
sýna beint landsleiki Islands I knatt-
spyrnu...
IR-ingar sigruðu Valsmenn í borgarslagnum í gærdag. Valsmenn veittu verðuga mótspyrnu og oft var hart
barist. Útlendingarnir í liðunum fóru mikinn og hér gerir John Rhodes þjálfari ÍR harða atlögu að Jonathan
Bow hjá Val. Bragi Magnússon Valsmaður skilur ekkert í þessu.
Sigurvegarinn Arnar Richardsson. Hann átti mjög góða leiki á stiga-
mótinu um helgina og lék allan tímann til sigurs.
Stigamót í snóker
Amar vann
en Jóhannes
R enn efstur
Arnar Richardsson sigraði á
þriðja stigamóti vetrarins I snóker
sem fram fór um helgina. Arnar
sigraði Akureyringinn Sófanías
Árnason í úrslitaleik og Ragnar
Ómarsson sigraði Ingvar Hilm-
arsson í leik um þriðja sætið.
í fjögurra rnanna úrslitum áttust
við Arnar og Ingvar annars vegar
og Ragnar og Sófanías hins vegar.
Arnar vann Ingvar 3:2 en Sófanías
sigraði Ragnar 3:1.
Keppendur á mótinu voru rúm-
lega þrjátíu og var uppbyggingin
þannig að í byrjun voru sigur-
möguleikar allra jafnir sökum for-
gjafar.
Staðan í mótaröðinni er nú
þannig að loknum þremur mótum
að Jóhannes B. Jóhannesson er
efstur með 130 stig. Eyjamaðurinn
og fyrrverandi íslandsmeistarinn í
golfi, Þorsteinn Hallgrímsson, er
í öðru sæti með 125 stig og heims-
meistarinn fyrrverandi, Kristján
Helgason, í þriðja sæti með 90 stig.
Jóhannes R. Jóhannesson,
sem varð í öðru sæti á heimsmeist-
aramóti áhugamanna um daginn
keppti ekki á mótinu sökum anna í
vinnu og er hann nú í 18 sæti í
mótaröðinni. -Bih
Veður
Veðurhorfur næsta
sólarhring:
Gengur í vaxandi suðaustanátt,
allhvasst eða hvasst um aust-
an- og norðanvert landið þegar
líður á daginn. Skúrir og rigning
á suðaustur og Austurlandi. Hiti
allt að 6 stigum suðaustan
lands og nálægt frostmarki
annars staðar.
Veðurhorfur á
þriðjudag og mið-
vikudag:
Umhleypingar með breytilegri
vindátt og lengst af nokkuð
hvasst. Snjókoma eða élja-
gangur um mesta allt land.
Frost 0 til 5 stig.
Áað fœkka
þingmönnum?
Greiddu
atkvæði
39,90 krónur mínútan
Það er einfalt að taka þátt. Þú hringir í síma 99 15 16, hlustar á
spurninguna og greiðir síðan atkvæði með því að ýta á 1 eða 2 á
símtækinu þínu. A sunnudaginn verður síðan talið upp úr Kjörkass-
anum og niðurstöðurnar birtar í mánudagsblaði MORGUNPÓSTSINS.
r x
Hlustum
allan
sólarhiinginn
2 1900
Pósturínn ©1994