Helgarpósturinn - 15.12.1994, Qupperneq 44
44
MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF
FIMMTbDAGUR 15. DESEMBER 1994 i
1
8.DESEMBER - 15.DESEMBER 1994
sv ÞV Titill Flytjandi
01 01 LÖG UNGA FÓLSINS UNUN
09 02 BETTER THINGS MASSIVE ATTACK
04 03 THE WILD ONES SUEDE
02 04 GIRL, YOU’LL BEAWOMAN... URGE OVERKILL
06 05 T0M0RR0W SPOON
08 06 MURDER WAS THE CASE SNOOP DOGGY DOGG
14 07 NOTHINGMAN PEARLJAM
03 08 SWEETJANE COWBOY JUNKIES
11 09 WORKAHOLIC BONG
18 10 THE MAN WHO SOLD THE ... NIRVANA
07 11 FEELING SO REAL MOBY
— 12 ODE TO MY FAMILY CRANBERRIES
05 13 BUST BUBBLEFLIES
— 14 GOTT MÁL (REMIX) TWEETY
17 15 ÉG GEF MÉR KOLRASSA KRÓKR.
— 16 TILL NOW BUBBLEFLIES
— 17 LOVESPREADS STONE ROSES
20 18 ME AND MY BIG BROWN BELLY URMULL
— 19 FELL ON BLACK DAYS SOUNDGARDEN
19 20 CONNECTION ELASTICA
kraumandi undir...
SIGHT FOR SORE EYES
A CONSPIRACY
THE RUBBERS SONG
THANK YOU FOR HEARING ME
MPEOPLE
BLACK CROWES
PHARCYDE
SINEAD O ’CONNOR
Lög uttgafólsins með Unun á toppnum aðra vikuna
í röð!! Gáfnaljós vikunnar er gamla Bowie-lagið,
TheMan Who Sold The World, íflutningi Nirvana
semfer upp um 8 bekki. Hœsta nýja lagið á írski
quartettinn Cranberries, Ode To My Family kemur
beint inn í 12. bekk. Fimm ný lög koma inn í vik-
unni. Níu lög hoppa og skoppa enfimm lög eru fal-
listar. Aðeitis topplagið stendur í stað.
X-Domino's listinn er valinn vikulega af hlustendum og dagskrár-
gerðarmönnum X-ins. Listinn er frumfluttur á fimmtudögum kl.
16:00-18:00 og endurleikinn á laugardögum kl. 14:00-16:00. Það er
Einar Örn Benediktsson sem sér um’ann!
„Hann var sannur íslendingur og dó á 17. júnfc
Menn gera sér ýmislegt til dund-
urs á aðventunni. Sumir hafa tekið
upp þann sið að senda alls konar
föx fram og til baka um borgina —
sjálfum sér og öðrum til skemmt-
unar. Eitt slíkt er nú í gangi þar sem
tíndar eru saman meintar tilvitnan-
ir í minningargreinar í Mogganum.
Þessu er trúlega logið upp á bæði
Mogga og greinarhöfunda, en við
látum nokkur sýnishorn flakka.
„Drottinn minn gefðu dánum ró
og hinum líkin sem lifa. “
„Hann kvœntist eftirlifandi eigin-
konu sinni og átuþau tvö böm.“
„Gönguferðin þeirra varð styttri
en menn vonuðu. Banvaenn sjúk-
dómur beið hennar bak við stein
og sló hanafljótt tiljarðar."
„Hún hafði það sterka skapgerð
að smávegis rigningarsuddi setti
hana ekki úr jafnvœgi. “
„Þrátt fyrirgóða greind gekk hún
aldrei í kvenfélag. “
„Það er löngu vitað mál að bestu
og skemmtilegustu vinina eignast
maður í lúðrasveitum.“
„Hann skrapp úr vinnu til aðfara
í þrekprófun í Hjartavemd en
kom þaðan liðið lík."
„Ég bið þann sem lífið gafað
hugga, styrkja og bceta aðstand-
endum skaðann.“
„Tók hannfráfall konu sinnar
mjög ncerri sér, vegna bamanna. “
Fyrirmyndirnar í bók Hallgríms Helgasonar
Þetta er allt að koma
liði. Auðunn gaf út æviminningar
sínar, Lífsól, í samvinnu við Þor-
stein Eggertsson blaðamann 1991.
Auðunn var laus við björgunar-
hring, pundinu var paddað jafnt
utan á skrokk hans, og á manna-
mótum var hann duglegur að þenja
út kassann og skjóta maganum inn,
hugsanlega með magabelti sér til
fulltingis. „Hann varð af þessu all
reiginslegur í fasi og næmt fólk
hafði það jafnan á tilfmningunni að
hann væri á leið upp úr buxunum,
eins og súpermann að hefja sig til
flugs. Og á vissan hátt var hann allt-
af á leið úr buxunum. Auðunn var
kvennamaður.“ Auðunn er lífs-
kúnstner, listaunnandi, listagóður
kokkur, líf hans eitt kúnstverk og
„Auðunn hafði tekið til höndum
varðandi útlit sitt og lagað eftir
smekk sínum og innsæi, mótað eig-
ið andlit eins og post-human-lista-
maður...“
Margt af þessu minnir óneitan-
lega á Ingólf en Hallgrímur þeysir á
Pegasusi út á tún í einni sérstæð-
ustu ríðingarsenu íslenskra bók-
mennta. Auðunn kemst yfir sögu-
hetjuna í íbúð sinni á Rimini eins
og svo margar aðrar sem vinna og
hafa unnið hjá honum en Auðunn
er einn kynmesti maður sem Island
hefur eignast. Hann fer hantförum
eins og sannur akróbat í hinum
ýmsu stellingum, svo sem „Bú-
mannsgleði“, „Tvívængju“, „Siggu
f’rænku" og „Ríðum heim til Hóla“.
Og í morgunsárið tekur hann koll-
una ofan og er þá hvirfillinn þéttrit-
aður kvenmannsnöfnum sem hafa
gist rekkju meistarans — og í þar-
tilgerða bók færir kóngurinn nafn
söguhetjunnar og bætir aftan við í
sviga (afm.).
Sigríður M. Konráðs-
dottir kórstjóri aiías
■ ín
Þorgerður mgólfsdótt-
ir
Fjölskylda Ingólfs fær engan frið
fyrir Hallgrími, eða öllu heldur
þessum samanburðarfræðum. Ein
af tilþrifameiri persónum bókar-
innar er Sigríður Mirra, kórstjóri í
Fjölbraut, og margt við hana minn-
ir óneitanlega á Þorgerði Ingólfs-
dóttur, kannski vegna þess að Þor-
gerður er Kórstýran með stóru Ká-
i. Mirra er fyrsta kórstýran til að
mennta sig sérstaklega í kvenna-
tónfræði og er lýst sem einum af fá-
um brautryðjendakonum íslenskr-
ar samtíðar. „Andlit hennar var
fremur mjóslegið, allt að því fugls-
legt, með nokkuð langvíuðu nefi,
löngu og einsýnu, og hvössu
augnaráði við rætur þess.“ Hún er
ætíð ómáluð og röddin með skóla-
bjöllukeim á háunótunum og er á
þessum árum í hvítu möttu krep-
yrjóttu síðpilsi. Mirra er kynvísari
en Þorgerður og vill eingöngu
stelpur í kórinn, enda vænlegra til
árangurs, og máli sínu til stuðnings
vitnar Mirra í „The Choir as an
Organ“ eftir Judy Manyter sem seg-
ir að „kórinn verði heilsteyptari
sem líffæri ef einungis annað líf-
færamunstrið stendur að honum.“
Mirra nær ótrúlegum árangri með
kórinn sinn eða „kóruna“ enda nær
hún að stilla saman strengi kórfé-
laga svo hraustlega að algjör sam-
stilling næst í blæðingum stúlkn-
anna. Þarna ber skáldfákurinn
Hallgrím í hæstu hæðir en í nektar-
æfingar kórsins hóf kórstýran sam-
hreinsun á því að ganga á milli
stúlknanna með plastpoka og safna
í hann bindum sem hún setti síðan
í stóra klerkrukku fulla af vökvan-
um Symbíósa. „Eftir því sem leið á
veturinn fékk hann á sig rauðbrún-
an lit og á nektaræfingum lét Sig-
ríður krukkuna standa opna á gólf-
inu milli sín og Kórsins. Gaus þá
upp „frumkvenleg“ (ur-kvinnlig)
lyktargufa..."
Gunnlaugur Gunn-
steinsson alías Hrafn
Gunnlaugsson
Gunnlaugur Gunnsteins-
son er kraftmikill eldhugi (
stórtækur til uppsetninga.
Þó svo að hann sé aðallega
starfandi við leikhús í
sögu Hallgríms þykir
hann um svo margt líkj-
ast Hrafni Gunn-
laugssyni að fram hjá
því verður vart litið.
Gunnlaugur endar
allar setningar sínar
á „I love it“ og
kemur til sögu
þegar hann á að
leikstýra óperu-
uppfærslu skóla-
félagsins sem hann
vill hafa með vík-
ingalegu yfirbragði og
umfram allt með „action"
Gulla Love-it tekst að breyta ,
kyrrlátasta stofudrama í
þrælspennandi fjölskyldu-
uppgjör með því að bæta i
óvæntu morði og nauðgun- t
arsenu inn í uppfærslur sínar.
milli skáldsögu og viðtalsbókar
og/eða ævisögu. Aukinheldur er
Ragnheiður Birna fædd 1959 og
sagan fylgir henni fram á þennan
dag þannig að tíminn í sögunni er
skuggalega nálægt núinu. Einnig
gefur Hallgrímur samanburðar-
fræðum undir fótinn með því að
brúka þekkt nöfn eins og Magnús
Ver, Steinn Ármann Magnússon,
Þorgeir Ástvaldsson, Þorsteinn
Eggertsson og fleiri (án þess þó að
þeir karakterar minni að öðru leyti
á þekkta alnafna sína úr raun-
heimi). Einnig koma nokkrir stutt-
lega við sögu í „eigin persónu“ eins
og Hemmi Gunn, Jordan, Helga
Hjörvar og Hilmar Oddsson, Guð-
bergur Bergsson og fleiri. Hallgrím-
ur Helgason er þannig öðrum höf-
undum óskammfeilnari í því að má
út mörk raunveruleika og skáld-
skapar. Og svo við stígum nokkur
spor í þeim dansi þá spyr Hallgrím-
ur Helgason Hallgrím Helgason í
viðtali í Alþýðublaðinu 25. nóv-
ember: „Þú notar stundum beinar
fyrirmyndir og atburði úr samtím-
anum...?“
Þetta er sumsé allt í einum alls-
herjar hrærigraut. Eitt af því sem
hefur dúkkað upp í þeirri stífu bók-
menntaumræðu sem hefur átt sér
stað hér innan blaðsins er að
nokkrir aðilar hafa þráfaldlega ver-
ið nefndir sem augljósar fyrir-
myndir ýmissa persóna Hallgríms
þó svo að hann fari með þær út fyr-
ir þann ramma sem líf hvers og eins
markar í raunveruleikanum. Það
þarf kannski ekki að taka fram en
þessi samanburður er auðvitað eins
ábyrgðarlaus og skáldskapur er al-
mennt og gripinn á flugi hér á rit-
stjórninni og úti í bæ.
Auðunn Ástþórsson
alías Ingólfur Guð-
brandsson
Ferðamálafrömuðurinn Auðunn
Ástþórsson á ferðaskrifstofunni Út-
ferð er ein eftirminnilegasta per-
sónan og Ingólfur Guðbrandsson
hefur verið nefndur sem fyrirmynd
hans. Auðunn er einn af glæsileg-
ustu og kassamestu mönnurn sinn-
ar kynslóðar en umfram allt sól-
brúnn, líklega þeldekksti Islending-
ur allra tíma og stundum minnir
hann einna helst á fullsminkaðan
óperusöngvara. Auðunn byggði
upp veldi sitt með ódýrurn sólar-
landaferðum og skákaði keppi-
nautum sínum í Sunnu og Útsýn
með persónufylgi og fögru starfs-
Einar Kárason sagðifyrir
skemmstu í viðtali við
MORGUNPÓSTINN að
hann teldi að það þyrfti
um það bil 250 þúsund
manngerðir til að búa til
eitt stykki samfélag. Þetta
leiðir til þess að íslenskar
skáldsögur hafa tilhneig-
ingu til að verða lykil-
rómanar sem þýðir með
öðrum orðum að íslenskir
lesendur erufljótir að
finna hugsanlegar fyrir-
myndir skáldsagnaper-
sóna. Þetta er allt að
koma eftir Hallgrím
Helgason hefur vakið
nokkra athygli ekki síst
fyrirþœr sakir að hún er
á við besta kitlusmokk —
persónur bókarinnar
skarast hœttulega við
ýmsa þekkta samtíma-
menn.
Þetta undirstrikar Hallgrímur
með frásagnarmátanum en hann
bindur saman ýmsa kafla bókar-
innar með eins konar mannlífsvið-
tali við aðalpersónuna, Ragnheiði
Birnu, og leikur þannig línudans