Helgarpósturinn - 29.12.1994, Page 18

Helgarpósturinn - 29.12.1994, Page 18
18 MORGUNPÓSTURINN INNLENDUR ANNÁLL FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 Hallgrímur bestur - Sjón frumlegastur Skáldsögur Þetta voru skáldsagnajól. All- flestir starfandi skáldsagnahöfund- ar okkar voru með bók á markaðn- um og samkeppnin um hylli les- enda var því býsna hörð. Sölutölur sýna að Olafur Jóhann Ólafsson skákaði keppinautum sínum enn eina ferðina og virðist vel á veg með að öðlast sömu hylli meðal lesenda og Kristmann Guðmundsson og Guðrún frá Lundi hér áður fyrr. Gagnrýnendur hældu skáldinu ákaft fyrir skáldsöguna Sniglaveisl- una sem þeir sögðu vera framúr- skarandi stofudrama. Öllu nær sannleikanum hefði verið að kalla þá bók stofubrandara af fremur þreyttri sort, og bókin er líklega la- kasta verk höfundarins til þessa. Annar höfundur sem mikið hrós fékk, og öllu verðskuldaðra, var Hallgrímur Helgason sem sendi frá sér aðra skáldsögu sína Þetta er allt að koma, þar sem þjóð- og menningarlíf síðustu þrjátíu ára var sýnt í spéspegli. Þessi ósvífna og hugvitsamlega bók er örugglega bók ársins. Annar ungur höfundur, Sjón, sendi frá sér sitt besta verk, sérlega frumlega bók sem bar hið fallega nafn Augu mín sáu þig. Hugmyndin að Höfuðskepnum, skáldsögu Þórunnar Valdimars- dóttur var býsna góð og höfundi lá greinilega mikið á hjarta en fæst af því komst til skila í heldur hroð- virknislegum texta. Megas sendi frá sér fyrstu skáld- sögu sína. Björn og Sveinn sem var kannski langdregnasta bók ársins, ákaflega þunglesin þótt öðru hvoru glytti í góðan, jafnvel læsilegan texta. Helgi Ingólfsson var annar höfundur sem sendi frá sér sína fyrstu bók, Letrað í vindinn, vel skrifaða og spennandi sögu um svik, launráð og karllegar perver- sjónir í Rómaborg hinni fornu. Bókin vakti mun minni athygli en hún átti skilið. Þetta voru ungliðarnir og ný- græðingarnir en gömlu brýnin létu ekki sitt eftir liggja. Fríða Á. Sig- urðardóttir var fremst í þeirra hópi, átti afburðabókina, í luktum heimi, sem íjallaði um sálarkrísu miðaldra karlmanns. Fríðu tókst að draga upp einstaklega sterka mynd af hinum kvalda karlmanni og aukapersónur voru ekki síðri. Eins og í fleiri verkum Fríðu mátti finna sterkan siðferðilegan tón í bókinni, en hann hafa margir íslenskir skáldsagnahöfundar vísvitandi forðast að slá, kannski af ótta við að slá feilnótu. Fríða vann þarna af miklu öryggi og vandvirkni og henni tókst að skapa sögu sinni sál- fræðilega dýpt sem of sjaldgæft er að sjá í íslenskum skáldverkum. Skáldkonan var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir þetta verk sitt, en óskráðar reglur þess efnis að höfundur megi ekki hreppa þau verðlaun tvisvar með stuttu millibili ættu að koma í veg fyrir að henni hlotnist sú vegsemd. Annar höfundur sem sýndi að honum er síst af öllu að fatast flug- ið er Thor Vilhjálmsson sem átti eina best unnu bók ársins, þá ofur myndrænu og vel skrifuðu Tvílýsi sem á hvaða ári sem er myndi telj- ast verðug verðlaunabók. Verðlaunaskáldið Guðbergur Bergsson sýndist hins vegar vera í léttri afslöppun og var ekki að sýna klærnar í góðlátlega glettinni sögu Ævinlega sem virtist bera það með sér að höfundur hennar hefði skrif- að hana með bros á vör. Það var einnig léttara yfir Vig- dísi Grímsdóttur en árin á undan og það jafnvel þótt meirihluti per- sóna í bók hennar Grandavegi 7 væru látið fólk. Eins og fleiri bækur Vigdísar var þessi nokkrum tugum blaðsíðna of löng, en hvað sem því líður þá verður því ekki neitað að í henni var víða að finna ofur falleg- an texta, og um margt var þetta bók unnin af miklum næmleika. Bók Vigdísar mætti ofur vel flokka sem óvenjulega fjölskyldusögu sem ger- ist í tveimur heimum. Einar Kárason var á hefð- bundnara róli í fjölskyldusögu sinni Kvikasilfri, framhaldi af Heimskra manna ráðum. Bókin jafnaðist kannski ekki á við þá fyrri en var aldrei leiðinleg og í henni mátti finna góð tilþrif, sérstaklega í veldar lesendum að læra á sín skáld. Þeir vita að Einar Kárason færir þeim fjölskyldusögu þar sem slatti af kúnstugum fylliröftum mun lík- lega koma við sögu, Vigdís segir sögu af baráttu hins ytra og innri heims, Fríða sögu fólks sem lifir í angist og leitar svara við tilgangi lífsins. Misskiljið mig ekki, þessir höf- undar kunna til verka, en þeir eru óneitanlega nokkuð fyrirsjáanlegir í efnisvali. Nöfn þeirra eru vöru- merki og við þekkjum innihaldið Ljóðabók ársins Stokkseyri eftir Isak Harðarson Ævisaga/endur- minning ársins / barndómi eftir Jakobínu Sigurðardóttur Ofmetnasta bók ársins Sniglaveislan eftir Ólaf Jóhann Ólafsson Vanmetnasta bók ársins Letraö í vindinn eftir Helga Ingóifsson Frumlegasta bók ársins Augu þín sáu mig eftir Sjón Óþarfasta bók ársins Voridal Endurminningar Friðriks Þórs Friðrikssonar Hallærislegasta bók ársins Ég man eftir Þórarin Eldjárn Ólæsilegasta bók ársins Björn og Sveinn eftir Megas Skemmtilegasta bók ársins Þetta er allt að koma eftir Hallgrím Helgason Vonbrigði ársins Efstu dagar eftir Pétur Gunn- arsson Endurkoma ársins ísak Harðarson í Stokkseyri Bókin sem kom mest á óvart Krummi skráð af Árna Þórarinssyni Besta byrjendaverkið Letrað í vindinn eftir Helga Ingólfsson Eftirminnilegasta skáldsagnapersónan Tómas ÍLuktum heimi eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur Eftirminni- legasta aukapersónan Haukuri Grandavegi 7 eftir Vigdísi Grímsdóttur seinasta hluta hennar. Pétur Gunnarsson hélt sig einnig í fjölskyldudeildinni í Efstu dögum, fyrstu skáldsögu sinni í fjögur ár. Þar varð ekki vart endur- nýjunar, heldur var hún dapurleg útþynning á eldri bókum höfund- arins. Þessi bók Péturs vekur óneitan- lega upp vangaveltur þess efnis hvort íslenskir höfundar séu hræddir við að taka áhættu í efnis- vali og túlkun. Þetta á ekki við um yngri höfunda eins og Hallgrím Helgason og Sjón, en bækur þeirra báru vott um ferskleika og skemmtileg efnistök. Eldri höfund- ar okkar virðast hins vegar margir sitja sem fastast á sinni þúfu og taka ekki þá áhættu sem fylgir því að færa sig úr stað. Þessi tregða auð- en gæði vörunnar geta verið mis- munandi frá ári til árs. Ljóð og ævisögur Ljóðskáldin voru ekki öfunds- verð þetta árið og verk þeirra voru óneitanlega í skugga skáldsagn- anna. Meðal betri ljóðabóka voru Engill í snjónunr eftir Nínu Björk Árnadóttur, Þrisvar sinnum þrett- án eftir Geirlaug Magnússon og Stokkseyri eftir l’sak Harðarson. Jóhanna Sveinsdóttir átti einnig skemmtilega spretti í Guð og mamma hans. Stórt stökk hefur orðið í fram- faraátt í íslenskri ævisagnaritun. Ruslið er nær algjörlega horfið og vandaðar bækur streyma á markað. Eftir áratuga störf og heldur dræmar móttökur átti Gunnar Dal langþráð sigurstökk með bókinni Að elska er að lifa sem rataði beina leið að náttborði þjóðarinnar, seld- ist senxsagt grimmt. Síðasta bók Jakobínu Sigurð- ardóttur, í barndómi, reyndist besta endurminningabók ársins og var jafnframt síðasta bók skáldkon- unnar. I ljós kom að Þórarinn Eidjárn mundi sitthvað úr æsku sinni, alls 480 atriði sem hann setti í minn- ingarbókina Ég man, sem er ómiss- andi bók í safn þeirra sem vilja ganga nostalgíunni á hönd. Þeir sem finna sig engan veginn í sjálfs- dekri við æsku sína munu hins veg- ar engan veginn átta sig á tilgangi bókarinnar. Friðrik Þór Friðriksson sagði sögur af sjálfum sér í bókinni Vor í dal sem leið fýrir stórfellda sjálfs- ánægju höfundarins og var líkleg óþarfasta bók á bókamarkaði þetta árið. Það hefði verið auðvelt að spá því að bókin um Hrafn Gunn- iaugsson yrði þreytt söngl um píslarvætti mikils listamanns. Bók- in reyndist langt frá öllu skíku, heldur uppfull af hressilegum tökt- um, bráðskemmtileg og nasklega unninn. Hún fór því miður fyrir of- an garð og neðan hjá flestum les- endum sem virtust ekki átta sig á því að hér var afbragðs skemmtun á ferð. Aðrar ævisögur sem ástæða er til að nefna eru bókin með virðulega heitið í þjónustu forseta og ráð- herra eftir Birgi Thorlacius, Skáldið sem sólin kyssti eftir Silju Aðalsteinsdóttur, sögu Halldóru Briem eftir Steinunni Jóhannes- dóttur, æviminningar Aðalheiðar Hólm Spans sem Þorvaldur Kristinsson skráði og Herbrúðir eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdótt- ur. Niðurstaða Þetta var gott bókaár. Menn skil- uðu sínu yfirleitt vel og fátt var um skandala. Hins vegar sitjum við upp með spurningar þess efnis hvort íslenskir höfundar séu ekki ( með einstaka undantekningum) orðnir of fýrirsjáanlegir í efnisvali og efnistökum. Hins vegar vil ég ekki ganga verulega hart fram í þessari gagnrýni nema efnisval höf- unda sé algjörlega útjaskað, og það tel ég ekki eiga við um marga. Annað er ekki síður umhugsun- arvert og það eru hin sterku skil sem virðast vera að eiga sér stað í ís- lenskum bókmenntaheimi milli karla og kvenna. Það er engu líkara en kynjabarátta sé þar í uppsigl- ingu, samanber frægan þátt um bókmenntir lýðveldisins og um- ræður í kjölfar hans. Þetta er ekki aðeins umræða sem snertir bók- menntafræðinga heldur einnig skáldin. Hallgrímur Helgason hef- ur látið hafa eftir sér að það sé ekki lengur hægt að skrifa karlabók- menntir eins og hér hefur verið gert síðustu ár, það sé orðið hallærislegt. Það er ástæða til að taka undir þetta sjónarmið, en vel að merkja þá virðast rithöfundarnir sem skrifað hafa karlasögurnar ekki kannast við að hafa skrifað þær, og meðan þeir vita ekki hvað þeir hafa verið að gera þá er ekki von til að þeir breyti taktinum. Karlasögur virðast ekki vera á neinu undanhaldi, kannski af því körlum fellur vel við þær. Karlleg nostalgían grasserar einnig í verk- um eins og Ég man og hinni sjálf- hverfu Vor í dal. Það má hins vegar velta því fyrir sér hvort ekki hefði heyrst hljóð úr strákahornum hefði einhver stelpan velt sér svo rækilega upp úr æsku sinni. Það kann að vera vert að hug- leiða það. Steingrímur Hermannsson If you can’t beat them, ioin them Þetta var árið sem Steingrímur settist í helgasta steii stjórnmálamanna, þann við Arnarhól, og naut þar samvista við Birgi ísleif Gunnarsson. Og hann átti það skilið. Eftir áralanga baráttu fyrir því að vöxt- um yrði handstýrt úr Seðlabankanum og öll verð- trygging tekin úr sambandi komst hann loks í stjórnklefann. En eins og oft vill verða þegar menn loks ná markmiði sínu þá var allur vindur úr Stein- grími. Hann nennir ekki stýrið að snerta. En hann hefur það samt alls ekki slæmt. Hann hefur það barasta fínt. Því eins og byltingarmanninum svíður ríkisvaldið þegar hann er að komast til valda þá verður það besti vinur hans þegar hann nær þeim. ArngrImur Jónsson Barði verkfallið ábakaftur Arngrímur Jónsson hjá Atl- anta sýndi fádæma hörku og raunsæi í vinnudeilu sinni við flugmenn félagsins sem eru aðil- ar að FÍA í nóvember. Arngrím- ur gerði lýðum Ijóst að ef hann beygði sig undir kröfur verka- lýðsfélagsins væri rekstrar- grundvöllur Atlanta brostinn og hann neyddist til að flytja starf- semi þess úr landi. Að hans sögn hefði þjóðarbúið þá tapað 900 miíljónum króna á ári. Þjóðkirkjan Ast yfir sóknar- mörk ,D.ýr arsins Gýmir Gceðingurinn felldur Gæðingurinn Gýmir var mikið í fréttum eftir landsmótið á Hellu í júlí en óprúttinn eigandi hans dældi í hann deyfilyfjum og lét hann hlaupa sárfættan á nrótinu. í miðju hlaupi kubbaðist vinstri framfótur Gýmis í sundur en hann var svo dópaður að hann tók ekki eftir því og hljóp bara áfram með bútinn dinglandi. Strax eftir hlaup- ið varð að fella gæðinginn og varð þessi atburður til þess að nánara eftirlit verður haft með lyfjagjöf hrossa í framtíðinni og reglur um ástand þeirra fyrir keppni teknar til endurskoðunar. Hofsboli Bolinn synti á hafút Hofsboli frá Hofi í Vatnsdal vildi ekki enda á jólahlaðborðinu og tók á rás þegar hann var leiddur til slátrunar hjá Sölufélagi Austur- Húnvetninga á Blönduósi. Bolinn hljóp í sjóinn og synti á haf út og hvarf sjónum manna í myrkrinu. Skepnan fannst daginn eftir og var grafinn með viðhöfn í heimahög- um sínum. Táta Tík í tvígang ífréttum Tíkin Táta vakti eiganda sinn þegar eldur kom upp í húsi hans Sléttu á Bergi í Keflavík 19. desember og mátti hann þakka besta vini mannsins fyrir að brenna ekki inni. Táta var ekki fýrr sloppin úr þess- ari eldraun fyrr en keyrt var á hana og mátti hún þakka fýrir að sleppa lifandi undan klóm brimfáksins. Bauga „Prestarnir gera það líka“ hét Tannlaus en tórir enn sýning sem Sigurður Örn Brynj- Ærin Bauga á Leifsstöðum lifði sín ólfsson teiknari hélt fyrir meira en 16. jól, tannlaus en við góða heilsu. áratug síðan. Á henni voru teikn- ingar af prestum að gæla við synd- ina eða jafnvel bara á klósettinu. SÖB var líklega að benda okkur hinum á að þrátt fyrir helga köllun og guðlegt hlutverk þá voru grey prestarnir bara venjulegt fólk undir hempunni. Þeir sem misstu af þessari sýningu á sínum fengu allan sanninn um að SÖB hafði rétt fyrir um prestana í sumar, allavega hvað áhrærir þau séra Gylfa í Grensási og séra Solveigu Láru á Nesinu. Þau urðu skotin þvert á öll sóknarmörk og gegnum tvö brúðkaupsheit. En örin hitti ekki aðeins hjartað á þeim tveimur heldur stóð föst í taugakerfinu á tveimur sóknar- nefndum. Og titringurinn sem var því samfara skók hinna evangalísku þjóðkirkju svo minnstu máttu muna að einhverjir hrykkju af lestinni. Jafnvel biskupinn sjálfur, sem reyndi að róa öldurnar eins og lærifaðir hans forðum, en fékk yfir sig hverja gusuna af annarri. Helstu óvinir hans í klerkastétt hefðu viljað sjá á eftir honum ofan í hyldýpið eins og Pétur forðum en hafandi enga hönd að grípa í varð þeim ekki að ósk sinni. En þetta mál ásamt öðrum óskunda sem reið yfir kirkjuna varð hins vegar til að draga úr áhrifum biskups. Prestarnir urðu stóryrtari í hans garð, minnugir samstöðuleysis hans í kjaradeilunni um árið. Þetta var ekki ár biskups né kirkjunnar. Og ekki heldur prestanna ef því er að skipta, nema þá helst þeirra tveggja fyrrnefndu.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.