Helgarpósturinn - 29.12.1994, Blaðsíða 40
29,4%
70,6%
f hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur, sem þeir geta kosið um í síma 99 15 16.
jörkassanum
Ármóta- og nýársgleði úti um allan bæ
Dagar víns <
fara 1 hönd
Eftir rólega hátíðartíð fara nú í
hönd dagar víns og rósa; miklar át-
og drykkjuveislur bæði í heimahús-
um sem á opinberum skemmti-
stöðum. Framundan er fjöldi ára-
mótateita en aðrir taka því rólega
en fagna þess í stað nýju ári á nýárs-
kvöid. Nokkur hefð hefur skapast
fýrir því að gamlárskvöld séu kvöld
unga fólksins en nýárskvöld þeirra
sem eldri eru og hafa jafnframt eitt-
hvað fé handa á milli. Gera má ráð
fýrir því að fjörið dragist á langinn
báðar næturnar enda fer sögum af
því að aldrei þessu vant fái eítirlitið
helgarfrí. Reyndar er þetta með eft-
irlitið opinbert leyndarmál sem
best er að hafa sem fæst orð um.
Gamlárskvöld
Á skemmtistaðnum Bóhem við
Vitastíg skemmta á gamlárskvöld
hljómsveitirnar Silverdrome og
2001 en sögur herma að sú síðar-
nefnda hafi tekið stakkaskiptum
eftir að nokkrir meðlimir hennar
flúðu land; hún hafi tekið stökk-
breytingum til hins betra.
Allt lítur út fyrir að menningar-
vitarnir stefni á heimahús á gaml-
árskvöld því Sólon Islandus verður
lokað frá og með gamlársdegi fram
til 2. janúar, en nota tækifærið til að
taka staðinn í gegn.
Glaumbar verður hins vegar op-
inn eftir miðnætti á gamlársdag
fram á síðasta mann. Einnig stend-
ur til að hafa opið á nýársdag þótt
ekki hafi það verið komið á hreint í
gær.
Kaffibarinn verður að mestu lok-
aður um helgina nema á föstudags-
kvöld, enda ætlar gengið sem þar er
við stjórn að standa fyrir annarri
uppákomu á gamlárskvöld í Ing-
ólfscafé. Skemmtanastjóri þar verð-
ur Steinn Ármann Magnússon.
Uppi mun einhver sýru-djass-
grúppa skemmta en niðri heldur
Pálí Óskar Hjálmtýsson, nýkom-
inn frá New York, uppi stemmn-
ingunni.
Leðurklædda liðið ætti að fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð á gamlárs-
kvöld því þá ætla Jóna de Groot
og Stálfélagið að standa fýrir rokk-
aramóti á Tveimur vinum. Við hæfi
er að þar er boðið upp á drykkina
Svartastál og Meyjarbrjóstin mjúku.
Forsala aðgöngumiða er í Levi’s
búðinni og á Tveimur vinum.
Þá verður einkasamkvæmi hjá
Björk Guðmundsdóttur í Rósen-
bergkjallaranum á gamlárskvöld
fyrir útvalda. Dagskráin þar er enn
nokkuð í lausu lofti en búast má við
að Smekkleysugengið verði þar
samankomið auk vina og vanda-
manna.
Hafnfirðingar fara ekki varhluta
af áramótadjamminu því þá ætlar
Pláhnetan að halda áfram samstarf-
inu við hafnfírsku drengina úr
Bubbleflies og nú í Firðinum.
Áramótafagnaðir verða fyrir út-
iendinga í Perlunni, á Hótel Loft-
leiðum og á Hótel Sögu, en hátt í
1500 erlendir ferðamenn ætla að
fagna nýju ári á íslandi,' Svisslend-
ingar, Japanir og Þjóðverjar að
stærstum hluta.
Á Hótel tslandi verður svo sveita-
ball með SSSól og Vinum vors og
blóma og verður þar sjálfsagt sam-
ankomin yngsta kynslóðin. Daginn
eftir ætlar Hótel Island að skipta
um ham...
Nýársfagnaðir
Þótt hart sé í ári lítur allt út fyrir
að lítið verði til sparað er kemur að
nýársfögnuðum úti um allan bæ. Á
einni nóttu mun Hótelíslandbreyt-
ast úr sveitaballahúsi í danshús
með dynjandi Vínartónum. Veislu-
stjóri þar verður Garðar Cortes og
vel flest skemmtiatriðin eru í formi
óperusöngs, en fram koma Ólafur
Árni Bjarnason, Ólöf Kolbrún
Harðardóttir auk veislustjórans.
Þarna syngur einnig Kór íslensku
óperunnar og félagar úr Sinfóníu-
hljómsveit Islands bjóða upp á Vín-
arvalsa og Polka. Herlegheitin kosta
7500 krónur með mat.
Borgin verður hins vegar undir-
lögð fastagestum sem lögðu hart að
hótelhöldurum að halda „kasúal“
nýársfagnað þar sem hvorki verður
lagt of mikið upp úr kjólum og
hvítu né öðrum formlegheitum.
Boðið verður upp á val milli nokk-
urra rétta og grúppuna Skárr’en
ekkert. Kampavín verður á milli sjö
og níu og verður á borðum þegar
hverjum og einum hentar. Kvöldið
kostar 6900 án víns. Þegar munu
vera staðfestar yfír 100 pantanir.
Opið er fyrir almenning eftir hálf-
tólf.
Hin samhenta ‘68-kynslóð eyðir
kvöldinu saman á Hótel Sögu undir
tónurn hljómsveitarinnar Pops.
Löngu er upppantað í matinn en
þeir sem vilja eyða fyrsta degi nýs
árs með Ingibjörgu Sólrúnu, Ástu
Ragnheiði Jóhannesdóttur og
Stefáni Jóni Hafstein er hleypt
inn um miðnætti.
Ein dýrasta veislan í bænum er á
Ömmu Lú, allavega við fyrstu sýn.
Haldið verður upp á nýtt ár í
fimmta sinn þar á bæ og því hefur
skapast þar hefð. Nýárskvöld á
Ömmu Lú kostar 12.500 á mann-
inn, en það er nánast allt innifalið.
Tekið er á móti gestunum með
kampavíni, síðan er frjálst val á
barnum uns borðhald hefst. Mál-
tíðin er fjórréttuð og með innfluttu
hvítvíni og rauðvíni og kaffi og
koníak eða líkjör á eftir. Auk þess
fær hver kona gjöf að andvirði sex
þúsund krónur. Skemmtanastjóri
kvöldsins er Karl Ágúst Úlfsson,
en fram koma meðal annars þau
Diddú, Berþór Pálsson ásamt
stórsveit Egils Ólafssonar og
hljómsveitin Hunang, auk nokk-
urra aukanúmera. Algengt er að
flugfreyjur hópist á Ömmu Lú á
nýárskvöld en heyrst hefur að
Linda Pétursdóttir ætli að vera
meðal gesta. Flestir gestanna eru á
aldrinum 25 til 45 ára, en fáir miðar
eru óseldir.
Allt er upppantað í Perlunni á
nýárskvöld. Þar verður nánast
einkasamkvæmi því sömu gestirnir
hafa setið um Perluna ár eftir ár.
Veitingastjóri Perlúnnar vildi ekki
gefa upp hvað kvöldið byði upp á
enda væri það ætlunin að koma
gestum á óvart.
Minni nýársfagnaðir verða svo á
Kaffi Reykjavík en þar munu þeir
Ingi Gunnar Jóhannsson og Eyj-
ólfur Kristjánsson gegna veislu-
stjórastöðum. Boðið verður upp á
fímm rétta máltíð á þó nokkuð
lægra verði en á Ömmu Lú.
Café Ópera verður einnig með
nýársfagnað undir tónum ragtime-
Bob. Boðið verður upp á sex rétta
máltíð á innan við fimm þúsund
krónur án víns. I allar nýársveisl-
urnar er að verða upppantað, hvað
sem þær kosta. GK
Veðrið í dag: Norðan og norðaust-
'an hvassviðri eða stormur víða um
land með éljagangi norðan til en lít-
*illi úrkomu syðra. Skafrenningur
erður víða um land. Lægir lítið eitt
Ira vestast annað kvöld. Aftur
eldur harðnandi frost eða á bilinu 4
til 8 stig.
Horfur á morgun: Norðaustan
strekkingur og él norðaustanlands
en annars fremur hæg breytileg átt
og léttskýjað. Frost 2 til 6 stig.
Horfur á gamlársdag og nýárs-
dag: Fremur hæg breytileg átt og
sums staðar dálítil él við strendur en
léttskýjað inn til landsins. Frost 0 til
3 stig.
Veðrið um helaina
Í7f /ícf/wA/i fí/
0ikraliða?
Greiddu
atkvæði
39,90 krónur mínútan
Það er einfalt að taka þátt. Þú hringir í síma 99 15 16, hlustar á spurn-
inguna og greiðir síðan atkvæði með því að ýta á 1 eða 2 á símtækinu
þínu. Kvöldið fyrir næsta tölublað verður síðan talið upp úr Kjörkass-
anum og niðurstöðurnar birtar í MORGUNPÓSTINUM að morgni.
t /
Hlustum
allau
sólarhringmn
2 1900