Helgarpósturinn - 29.12.1994, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN INNLENDUR ANNÁLL
23
annáll
OKTÓBER
3. október Morgunpósturinn hefur
göngu sína.
4. október 30 Islendingar sækja ársfund
Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins í Madrid. Makar ráðamanna eni
fjölmennir í þeim hópi. Kristrún Kristins-
dóttir, fulltrúi sýslumannsins á Akranesi,
leggur fram stjórnsýslukæru vegna
þriggja áminninga sem sýslumaðurinn,
Sigurður Gizurarson veitti henni í vikunni
á undan.
5. október Hagvirki-Klettur úrskurðað
gjaldþrota að ósk forsvarsmanna fýrir-
tækisins.
6. október Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins segja skýrslugerð Stefáns Jóns
Hafsteins fyrir borgarstjóra ekkert annað
en pólitískan bitling. Sigurður Gizurarson
sýslumaður á Akranesi kærir fulltrúa sinn,
Kristnjnu Kristinsdóttur, til RLR og rikis-
saksóknara fyrir meint afbrot í starfi.
7. október Guðjón Magnússon, skrif-
stofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, segist
hafa tekið launað námsleyfi sitt í fullu
samráði við ráðherra og ráðuneytisstjóra.
Bjórsala eykst um 1,2 milljónir lítra á
fyrstu níu mánuðum ársins miðað við
sama tímabil á síðasta ári, eða um 28
prósent.
10. október Upplýst að Dögg Pálsdótt-
ir, dóttir Páls Sigurðssonar ráðuneytis-
stjóra í heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt-
inu, þáði laun frá ráðuneytinu um margra
mánaða skeið á meðan hún stundaði
nám erlendis. Stefnir í 330 milljón króna
halla á rekstri Borgarspítalans.
13. október Sigriður Dúna Kristmunds-
dóttir segir sig úr Kvennalistanum.
14. október Tíu leikurum sagt upp
störfum við Borgarleikhúsið.
17. október Jóhanna Sigurðardóttir
mælist með 16,5 prósenta fylgi í skoð-
anakönnun MORGUNPÓSTSINS. Al-
þýðuflokkurinn hrapar niður í 8,4 prósent.
20. október Hálfdán Henryssyni sagt
upp störfum fyrirvaralaust hjá SVFl eftir
meira en 30 ára starf. I kjölfarið fylgja
miklar deilur innan aðildarfélaganna.
24. október Ný plata með Madonnu
kemur út, en titillag hennar, Bedtime
Story, er eftir Björk Guðmundsdóttur og
Nellee Hooper við texta Bjarkar.
28.- 29. október Prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavik. Ekki hrófiað við
Davið og Friðrik, Björn Bjamason heldur
3. sætinu en Geir H. Haarde náði því
fjórða. Markús Öm Antonsson var settur
endanlega út í kuldann og lenti í 10. sæti.
30. október Islenskar sjávarafurðir hf.
kaupa stóran hlut i Vinnslustöðinni í Vest-
mannaeyjum, sem hingað til hefur verið i
viðskiptum við Sölumiðstöð Hraðfrysti-
húsanna.
NÓVEMBER
3. nóvember Fjárfestingareignir Islend-
inga erlendis meira en tvöfaldast á þrem-
ur árum, úr 3,7 milljörðum í 8,1. I Ijós
kemur að reglur um greiðslur til maka
ráðherra vegna kostnaðar við utanferðir
eru mun rýmri hér á landi en í Bretlandi.
Tékkafærslu fækkar um eina milljón á
mánuði eftir debetkortin ná fótfestu.
4. nóvember Stjóm Kvennaathvarfsins
vikið frá vegna fjármálaóreiðu.Um 20
prósent þjóðarinnar, 55.000 manns, fá
mestan hluta framfærslutekna sinna úr
rikissjóði.
5. nóvember Embættismenn í Hafnar-
firði komast að þeirri niðurstöðu að stjóm
listahátíðarinnar sem haldin var í bænum
á síðasta ári beri ábyrgð á bókhaldsóreið-
unni. Krafist 60 daga fangelsis yfir Antoni
Ingvarssyni stýrimanni á Hágangi II og 2
milljóna króna í sekt fyrir héraðsdómi í
Tromsö. 37 ára gamalla maður dæmdur í
18 mánaða fangelsi fyrir að nauðgd konu
sinni að bömunum ásjáandi.
Vikan 30.10 - 5.11 Héraðsdómur
Reykjavíkur dæmir Bjöm Önundarson
fyrrum tryggingayfirlækni í 3 mánáða skil-
orðsbundíð varðhald og 3 milljóna króna
sekt fyrir að hafa vantalið tekjur sínar
vegna örorkumata um 15,5 milljónir
króna á árunum 1988-1990. Afkoma
Flugleiða batnaði um 562 milljónir króna
fyrstu átta mánuði ársins miðað við sama
tíma í fyrra.
6. nóvember Biskup vill gera bæn að
föstum lið i þinghaldi.
8. nóvember Bæjarráð Hafnarfjarðar
samþykkir að senda bókhaldsgögn
Listahátíðar Hafnarfjarðar til skattstjóra
Reykjaness vegna rökstudds gruns um
skattalagabrot, skjalafals og ótvíræðrar
bókhaldsóreiðu.
9. nóvember Irving Oil Ltd. sækir um
lóðir undir átta bensínsstöðvar. Hart deilt
á Alþingi um bamaskattinn svokallaða.
Helgi Pétursson segir sig úr Framsóknar-
flokknum. Verðlag hjaðnar um 0,1 pró-
sent á Islandi á undangengnu tólf mán-
aða tímabili.
10. nóvember Verkfall sjúkraliða hefst á
miðnætti, sjúkiingar útskrifaðir og deild-
um lokað. Formaður Framsóknarflokks-
ins vill að Helgi Pétursson segi af sér öll-
um trúnaðarstörfum fyrir R-listann. Nefnd
á vegum forsætisráðherra leggur til að
hommar og lesbíur geti staðest sambúð
sína formlega með svipuðum réttindum
og skyldum og fylgja hjónabandi, með
nokkrum undantekningum. FÍA boðar
allsherjarverkfall hjá flugfélaginu Atlanta.
Árið hennar Lindu Pé
og svo kom löggan...
Árið hjá Lindu Pé, fyrrum al-
heimsfegurðardrottningu, hófst
með því að Pressan birti myndir af
henni eins og þjóðin hafði aldrei
séð hana áður. Skömmu síðar kom
í ljós að ljósmyndarinn og Linda
höfðu ekki skilið hvort annað og
Linda mætti með lögfræðinginn.
Spurningin var; vissi Linda að
Björn Blöndal var að taka af henni
myndir nakinni og vissi Björn að
hún vildi ekki að myndirnar birt-
ust? Vissi Linda að hún fékk pen-
inginn frá Birni fyrir myndirnar
sem hann ætlaði að birta og vissi
Björn að hann borgaði henni fyrir
myndirnar sem ekki átti að birta?
Málið leystist að lokum en síðar á
árinu fékk löggan að sjá Lindu eins
og hún hafði aldrei séð hana áður.
Það var eins og svo oft áður þetta
nóvemberkvöld að það var mikið
fjör' hjá Lindu Pé — allt þar til að
löggan kom. Ef löggan hefði ekki
álpast til að bregðast svo skjótt við
þetta kvöld þá hefði sjálfsagt eng-
inn munað eftir því. En svona er líf-
ið og ekki verður það einfaldara
þegar það er komið í lögguskýrslur.
Hvað gerðist eiginlega? Hvort hefur
rétt fyrir sér; Linda eða löggan? Má
fólk ekki skemmta sér í friði án þess
að löggan þurfi að skipta sér af? Og
má löggan eldd rannsaka mál í friði
án þess að lögfræðingarnir þurfi að
skipta sér af?
Enginn veit almennilega hvað
gerðist en allir hafa hins vegar
skoðanir á því. Löggan ætlaði að
rannsaka skemmdir á bíl sem
nuddari Lindu átti og vildi þess
vegna spjalla við hann Les hennar
Lindu en þeir höfðu skömmu áður
rifist vegna klósettferðar nuddarans
og Lindu. Linda vildi það hins veg-
ar ekki og var þá færð niður á stöð
þar sem löggan sparkaði í rassinn á
henni. Allt var þetta fært inn í
skýrslur en þegar MORGUNPÓST-
URINN birti skýrsluna, þar sem
stóð að löggan taldi að Linda væri
eitthvað skrítin, varð málið fyrst
flókið. Linda kærði lögguna til
rannsóknarlöggunnar og löggan
kærði svo Lindu á móti. Linda
sendi síðan inn þvagprufu sem eng-
inn taldi neitt að marka. í ljós kom
að þvagprufan var ekki í annar-
legu ástandi og Linda og lögfræð-
ingurinn fögnuðu sigri. Niður-
staða rannsóknarinnar liggur hins
vegar ekki fyrir og á meðan bíður
þjóðin í ofvæni; hvort hefur rétt
fyrir sér, Linda eða löggan?
ROKKARAMOT
1994-1995
á tveim vinum klukkan 00.30
fyrstajanúar I995
STÁLF É LAGIÐ
ÁSAMT JÓNU DE GROOT
og gestum
Allir gestir fá fordrykkinn
SVARTAST ÁL
og Meyjarbrjóstin mjúku
Miðaverð í forsölu 700 krónur og I000
krónur við innganginn.
Upplýsingar um forsölu í síma 2I255
LEvrs
niíIRVIlVIH
ogannari frii
Laugavegi 45 — Stmi 21255
I Elfl'C
Kmi v I «9
Jón Baldvin
Hannibalsson
Seinheppinn
bófaforingi
Jóhanna sveik hann, Guðmundur Árni sveik
hann, Össur lagðist í barneiginir, Jakob Magnússon gripinn með bók-
haldið í vasanum og Arnór með sitt upp í sumarbústað í Kjós, bæjar-
stjórinn á Patró sakaður um að stela úr bæjarsjóði og Bryndís sagði upp
sem utanríkisráðherrafrú og sendi þjóðinni reilcning fyrir vel unnin
störf. Það er sama hversu vitlaus skandallinn hefur verið þetta árið, allt-
af eru það kratarnir hans Jóns sem eru þar að verki. Þeir eru orðnir eins
og seinheppinn bófa-
Pétur Blöndal
Tvöfaldur
kosningasigur
Pétur Blöndal kom, sá og sigraði í kjöri í
bankaráð Islandsbanka í apríl. Bankinn hafði
verið rekinn með tapi og Pétri fanns ótækt að
sjálfkjörið yrði í bankaráðið. Hann
auglýsti því framboð sitt og hlaut
næst bestu kosningu þeirra sem
kjörnir voru í ráðið. Pétur hefur
öðlast sess sem nokkurs konar
Vilmundur Gylfason viðskipta-
lífsins og í huga hins almenna
hluthafa hankans er hann refsi-
"vöndur kerfiskallanna sem gera hlut-
ina af gömlum vana eða í eigin þágu. Pétur
bættri síðan um betur í haust þegar hann nældi
sér í öruggt sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík fýrir komandi alþingiskosningar.
flokkur sem þjóðin
ýmist hlær af eða
skelfist. Og þrátt fyrir
að Jón hafi nánast
haidið sér á mottunni
þetta árið þá situr
hann uppi með allar
skammirnar þótt ein-
hver úr flokknum
hans hafi unnið til
þeirra. Hann er orð-
inn svo óvinsæll sam-
kvæmt skoðanakönn-
unum að hann getur
framvísað þeim við
hvaða landamæri sem
er og fengið pólitískt
hæli.
Ný lög um
fjöleignarhús
1. janúar 1995 taka gildi ný
lög um fjöleignarhús.
Upplýsingabæklingur um hin nýju lög liggur nú
frammi hjá Húsnæðisstofnun ríkisins,
húsnæðisnefndum sveitarfélaga, á sveitar-, bæjar- og
borgarstjórnarskrifstofum, hjá verkalýðsfélögum,
Leigjendasamtökunum, Húseigendafélaginu og
Búsetafélögum.
Þeir sem málið varðar eru hvattir til að kynna sér
nýju lögin gaumgæfilega og verða sér úti um
upplýsingabæklinginn.
Húsnæðisstofnun ríkisins veitir almennar upplýsingar
um framkvæmd hinna nýju laga
um fjöleignarhús.
c8ll húsnæðisstofnun ríkisins
SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SÍMI: 569 6900 (kl. 8-16)
BRÉFASÍMI: 568 9422 • GRÆNT NÚMER (utan 91-svæðisins); 800 69 69