Helgarpósturinn - 29.12.1994, Blaðsíða 31

Helgarpósturinn - 29.12.1994, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 MORGUNPÓSTURINN SPORT 31 Árið 1994 gerðist sitt lítið af hverju í heimi íþróttanna. Heimsmeistarakeppni var haldin í knattspyrnu og í kjölfar hennar heyrðust óhugnanlegir atburðir. Valsmenn og Skagamenn héldu uppteknum hætti í handbolta og fótbolta og unnu íslandsmeistaratitlana. KR-ingar brutu titlamúrinn og gott ef konurnar stálu ekki senunni. Björn Ingi Hrafnsson leit lauslega yfir árið sem er að líða. íþróttaárið 1994 ™ Ánð sem KR-ingar, Maradona og aðstandendur Escobars munu aldrei gleyma. Á framabraut Snillingurinn ungi, Eiður Smári Guðjohnsen, sló eftirminnilega í gegn á árinu og var valinn efnilegasti leikmaður 1. deildarinnar eft- ir glæsta frammistöðu með Valsmönnum í sumar. Ljóst var að mikið efni var á ferð og var vitað af áhuga margra evrópskra stórliða á að klófesta piltinn. Því kom það fáum á óvart að Eiður skyldi gera samning nú í haust við hollenska stórliðið PSV Eindhoven til þriggja ára. Þar er hann aldeil- is kominn í góðan félagsskap því margir snjöllustu leikmenn heims leika eða hafa leikið með liðinu. Nægir þar að nefna Brasilíumennina Romario og Ronaldo. Enn eitt Valsárið í handboltanum Valsmenn héldu áfram glæsilegri sigurgöngu sinni í íslenskum hand- bolta á árinu og unnu íslandsmeist- aratitilinn í vor eftir harða rimmu við Hauka úr Hafnarfirði. Enn einu sinni tókst snillingnum Þorbirni Jenssyni að mynda sterkan og samstilltan hóp sem borið gat and- stæðinga sína ofurliði. Breiddin var mikil og leikmannahópurinn skip- aður mörgum efnilegustu Ieik- mönnum þjóðarinnar ásamt göml- um jöxlum. Þessi hópur tók litlum breytingum í sumar, Geir Sveins- son landsliðsfyrirliði gekk aftur til liðs við félagið og Rúnar Sig- tryggsson gekk til liðs við Víking eftir harða rimmu um félagaskipti á milli félaganna tveggja. Mestu munaði þó líklega um meiðsli landsliðsmannsins Ólafs Stefáns- sonar, en hann hefur verið lengi frá og er fyrst búist við honum til' keppni aftur í febrúar. Það ætti reyndar að henta Valsmönnum ágætlega, þeir hafa verið að leika mjög vel í vetur og er ljóst að þeir enda ofarlega í deildarkeppninni og fá þar með fleiri heimaleiki en and- stæðingurinn í úrslitakeppninni. Þegar í hana er komið verður Ólaf- ur orðinn leikfær að nýju og þá verða líklega fá lið til að stöðva Valsmenn. Haukamenn voru reyndar það lið sem sló mest í gegn á árinu. Undir góðri stjórn Jóhanns Inga Gunnarssonar Iék liðið geysivel og Jóhannes R. Jóhannesson varð skyndilega fjölmiðlamatur á dög- unum þegar hann keppti til úrslita um heimsmeistaratitil áhuga- manna í snóker í Suður-Afríku. Leiknum tapaði hann en þessi góði árangur sýnir sterka stöðu íslenskra spilara í greininni. náði alla leið í sjálfa úrslitaleikina, erkiíjendunum í FH til sárrar ar- mæðu. í úrslitaleikjunum munaði miklu um breidd Valsmanna en leikirnir voru þó alltaf spennandi og liðið hefur markað sér stöðu og nafn sem eitt fremsta handknatt- leikslið landsins. Það sem af er keppnistímabilinu sem nú stendur sem hæst hafa nokkur lið skorið sig úr hvað getu varðar. Stjörnumenn úr Garðabæ eru efstir sem stendur og hafa geysisterku liði á að skipa undir styrkri stjórn Viggó Sigurðsson- ar. Valsmenn koma næstir og hafa leikið jafnbest allra liða og KA- menn hafa gjörbreyst með tilkomu Patreks Jóhannessonar. Þá eru Haukamenn, FH-ingar og Aftur- elding einnig sterkir ásamt Víking- um sem fengu Sigurð Val Sveins- son til liðs við sig frá Selfossi í sum- ar. Landsliðið hafði óvenju hægt um sig á árinu og lék fáa landsleiki. Mest bar á Opna Reykjavíkurmót- inu sem haldið var á dögunum og þar stóð liðið sig ágætlega, lék til úrslita gegn Svíum en tapaði þeim leik reyndar með miklum mun. I Evrópukeppnunum fóru liðin misjafnlega að, flest léku báða leiki sína erlendis af fjárhagsástæðum og duttu út þess vegna, meðal annars Valsmenn sem ákváðu að mikil- ■ KR-ingar unnu allt sem hægt var að vinna á árinu og voru einkar beittir í viðureignum sínum. Var haft á orði að einhver fagmaður hlyti að hafa komið nálægt brýningum þeirra þar eð hópurinn þótti sérlega vel tenntur. Hver titlavofan féll af annarri og var það ekki síst þakkað franska atvinnumanninum Eric Cantona sem iék með liðinu. Hann er einmitt kvæntur íslenskri konu og var keyptur til liðsins eftir að gengið hafði verið hús úr húsi í vesturbænum og samskotum safn- að... ■ Islendingar sameinuðust um það að handboltinn væri íþrótt íþrótt- anna hvað sem aðrar þjóðir segja og er formaður HSl, Ólafur B. Schram, orðinn vel þekktur erlend- is. Eru bjartsýnustu menn farnir að sjá hann leysa Juan Antonio Samaranch, forseta Alþjóða Ólympíuhreyf- ingarinnar af hólmi þegar hann dregur sig í hlé seint á næsta ári... Vetrarólympíu leikarí Lillehammer Þolfimikappinn Magnús Sche- ving var mikið í sviðsljósinu á ár- inu. Hann vann fyrstu verðlaun á Islandsmótinu og varð einnig Evr- ópumeistari í greininni. Auk þess varð hann annar á heimsmeistara- mótinu í Japan og var í raun óheppinn að vinna ekki titilinn. Auk alls þessa varð hann í 1. sæti á „Alþjóðlega meistaramótinu" í Seoul. Magnús var á dögunum val- inn fimleikamaður ársins í vali sér- sambandanna á íþróttamönnum ársins. Vetrarólympíuleikar voru haldn- ir í norsku borginni Lillehammer í vetur og þóttu þeir takast einstak- lega vel. Skipulagning og fram- kvæmd leikanna þótti framúrskar- andi og hlutu heimamenn mikið lof fyrir. Mest bar þó á erjurn skautadrottninganna bandarísku, Nancy Kerrigan og Tonyu Hard- ing. Fyrir leikana réð Harding glæpamenn til að berja keppinaut sinn og slapp Kerrigan naumlega frá þeirn hildarleik. Allt kastljós fjölmiðlanna beindist að þeim drottningum og urn fátt annað var rætt en skautadans. Að hugsa sér... Þoffími- meistarinn

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.